Morgunblaðið - 22.03.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.03.1997, Blaðsíða 1
L? IHíjKk. BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1997 ■ LAUGARDAGUR 22. MARZ BLAÐ Fjórði HM-sigur Rússanna Grit- schuk og Platov OKSANA Gritschuk og Evgeny Platov frá Rúss- landi urðu heimsmeistarar í ísdansi í gærkvöldi, er keppni lauk í Lausanne í Sviss. Þetta er fjórði heims- meistaratitill parsins í röð5 en Rússarnir hafa verið ósigrandi síðan þeir urðu Olympíumeistarar í grein- inni á leikunum í Lillehammer í ársbyijun 1994. Rússneska parið fékk hæstu einkunn - 6,0 - frá tveimur dómurum fyrir listfengi í gærkvöldi er þau báru enn sigurorð af löndum sínum, Anjelika Kry- ova og Oleg Ovsiannikov. „Þetta var síðasta heims- meistaramótið fyrir Ólympíuleikana og það hjálpar okkur mjög mikið að sigra. Það veitir okkur mikið sjálfstraust fyrir [leikana í Nagano í] Japan á næsta ári,“ sagði Gritschuk, sem varð 26 ára fyrir fímm dögum, eftir að sigurinn var í höfn í gær. HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/RAX Haukar, KA og Fram í undanúrslit LIÐ Hauka, KA og Fram komust í undanúrslit 1. deildar karla í handknattleik í gærkvöldi. KA . sigraði Stjörnuna örugglega á Akureyri, 23:18, en hinir leikirnir tveir voru æsispennandi; Fram sigraði 25:23 í Eyjum eftir fram- lengingu og Haukar lögðu Islands- meistara Vals, 20:19, eftir að meistaramir höfðu haft forystu, 19:18 þegar sex mínútur voru eft- ir. Það var svo gamla kempan Petr Baumruk sem skoraði tvö síðustu mörk leiksins fyrir Hauka. Stuðningsmenn Vals veittust að dómurunum í Hafnarfirði í leiks- lok; voru ævareiðir vegna meintra mistaka þeirra undir lok leiksins. Á myndinni má m.a. sjá Brynjar Harðarson, formann handknatt- leiksdeildar Vals, til hægri, og Jón H. Karlsson, fyrrum fyrirliða Vals og landsliðsins, sem átti ýmislegt vantalað við dómarana. Undanúrslitin hefjast á mánu- dagskvöld þegar Afturelding tek- ur á móti Fram í Mosfellsbæ og Haukar og KA eigast svo við í fyrstu rimmu sinni á þriðjudags- kvöld i Hafnarfirði. ■ Leikirnir / C2 HANDKNATTLEIKUR Keflvíkingar kæra Eford KR-ingar íhuga einnig kæru til aganefndar KKÍ. Úrskurður liggurfyrir í dag Forráðamenn Keflavíkurliðsins hafa ákveðið að senda kæru til aganefndar Körfuknattleiks- sambands íslands vegna umdeilds atviks í leikhléi er liðið mætti KR í undanúrslitum úrvalsdeildarinnar á fímmtudaginn. Stjóm körfu- knattleiksdeildar KR sat á fundi í gærkvöldi og íhugaði einnig að senda kæru til aganefndar, sem kemur saman í dag. Roney Eford, bandarískur leik- maður KR, sló Keflvíkinginn Al- bert Óskarsson þegar þeir voru á leið til búningsherbergja í leikhléi. Keflvíkingar segja að hann hafí einnig slegið Albert í leiknum, þeg- ar boltinn var víðsfjarri og það atvik sé til á myndbandi. Lögregla var kvödd á staðinn og tekin skýrsla vegna atviksins í leikhléinu. Eford er þeldökkur og KR-ingar segja Albert hafa notað orð sem margir vilja tengja kynþáttafor- dómum og einnig benda þeir á að mikið hafí verið um óþverrabrot í síðustu tveimur leikjum liðanna. Þegar Morgunblaðið fregnaði síð- ast í gærkvöldi lá ákvörðun KR- inga ekki fyrir - hvort af kæm yrði eða ekki. Gísli Georgsson, for- maður körfuknattleiksdeildar KR sagðist helst vilja útkljá viðureignir liðanna á vellinum en ekki í réttar- sölum. Albert Óskarsson segist saklaus af einhveiju tali sem kalla megi kynþáttafordóma og segist ekki hafa talað neitt við Eford í leikn- um. „Ég lék illa í fyrstu tveimur leikjunum gegn honum og ákvað að einbeita mér að því að spila góða vörn og það gekk eftir,“ sagði Albert í samtali við Morgun- blaðið í gær. „Eford kýldi mig með krepptum hnefa í leiknum og þegar ég var að fara til búnings- herbergisins í leikhléi var ég fyrst- ur út. [Jonathan] Bow [leikmaður KR] var á eftir mér og sagði eitt- hvað við mig, en ég svaraði ekki. Svo veit ég ekki fyrr en Eford ríf- ur í öxlina á mér og öskrar á mig að ég eigi að hætta að bijóta á sér. Eg öskraði eitthvað á móti - man ekki hvað það var - og þá lamdi hann mig. Ég hef aldrei talað niðrandi um þá erlendu leikmenn sem hér hafa verið og ég hef til dæmis aldrei kallað menn negra eða eitthvað þaðan af verra. Eg leggst ekki svo lágt. Eford segir í lögregluskýrsl- unni að hann hafi ekki lamið mig og að ég hafí kallað sig „nigger". Eitthvað hefur samt gerst því Bow kom til mín þegar síðari hálfleikur var að byija og bað mig afsökun- ar og þeir Hermann og Ingvar komu eftir leik og spurðu hvort það væri ekki allt í lagi með mig,“ sagði Albert. Þess má geta að Roney Eford lék fyrir áramót í Þýskalandi en var dæmdur í sex leikja bann þar fyrir að slá til dómara. Samkvæmt upplýsingum KKÍ eru engar regl- ur, líkt og í knattspyrnu, sem banna leikmanni, sem er í banni í einu landi, að keppa í öðru. MARGIR SNJALLIR ERLENDIR SKÍDAMENN TAKA ÞÁTT í LANDSMÓTINU / C4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.