Morgunblaðið - 22.03.1997, Side 3
2 C LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997 C 3
URSLIT
KA-Stjarnan 23:18
KA-heimilið á Akureyri, þriðji leikur liðanna
í átta liða úrslitum 1. deildar karla í hand-
knattleik, föstudaginn 21. mars 1997.
Gangur leiksins: 1:0, 1:2, 5:5, 8:7, 8:9,
13:9, 14:9, 15:10, 15:12, 16:13, 19:13,
22:15, 23:16, 23:18.
Mörk KA: Heiðmar Felixson 7, Jóhann G.
Jóhannsson 4, Julian Duranona 4/3, Björg-
vin Björgvinsson 3, Leó Öm Þorleifsson 2,
Sævar Arnason 2, Sergej Ziza 1.
Varin skot: Guðmundur A. Jónsson 1,
Hermann Karlsson 12/1 (þaraf 4 til mót-
heija).
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Stjörnunnar: Konráð Olavson 7/2,
Sigurður Viðarsson 3, Einar Einarsson 3,
Hilmar Þórlindsson 3, Jón Þórðarson 2.
Varin skot: Ingvar Ragnarsson 10 (þaraf
5 til mótherja), Axel Stefánsson 0.
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Einar Sveinsson og Þorlákur
Kjartansson. Mjög góðir.
Áhorfendur: 1.036 að sögn en virtust ein-
hvem vegin vera nær því að vera um 1.600.
Haukar-Valur 20:19
íþróttahúsið við Strandgötu:
Gangur leiksins: 1:3, 2:6, 6:7, 7:9, 9:10,
12:13, 14:14, 17:17, 18:19, 20:19.
Mörk Hauka: Rúnar Sigtryggsson 7, Hall-
dór Ingólfsson 4/1, Petr Baumruk 2, Jón
Freyr Egilsson 2, Gústaf Bjamason 2/1,
Þorkell Magnússon 2, Hinrik Óm Bjamason
1.
Varin skot: Magnús Sigmundsson 12/1,
(þar af 4 til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Vals: Jón Kristjánsson 6, Skúli Gunn-
steinsson 5, Ingi Rafn Jónsson 2, Valgarð
Thoroddsen 2, Daníel Ragnarsson 2, Ari
Allansson 1, Einar Öm Jónsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 12,
(þar af 5 til mótheija).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Sigurgeir
Sveinsson glfmdu við erfitt verkefni og vill-
ur í lokin urðu til þess að það stemmdi ekki.
Áhorfendur: 900.
ÍBV - Fram 23:25
íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum:
Gangur leiksins: 2:1, 3:4, 5:6, 7:9, 8:10,
10:11, 13:13, 15:15, 18:16, 19:17, 19:19,
20:19, 21:21. 21:23, 22:23, 22:25, 23:25.
Mörk ÍBV: Zoltan Belany 10/5, Gunnar
Berg Viktorsson 5, Guðfinnur Kristmanns-
son 4, Sigurður Friðriksson 2, Erlingur
Richardsson 1, Svavar Vignisson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson
16/2 (þar af 8 til mótheija).
Utan vallar: 8 mín.
Mörk Fram: Daði Hafþórsson 8/2, Oleg
Titov 6/l; Magnús Arnar Arngn'msson 4,
Njörður Arnason 3, Sigurpáll Árni Aðal-
steinsson 2/1, Guðmundur Helgi Pálsson 2.
Varin skot: Reynir Þór Reynisson 20/2
(þar af 6/1 til mótheija), Þór Björnsson 1/1
(til mótheija).
Utan vallar: 14 mínútur. Oleg Titov fékk
rautt spjald fyrir þriðju brottvísun í fram-
lengingu.
Áhorfendur: Um 500.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur
Haraldsson. Fengu erfitt verkefni en leystu
það með sóma.
Haukar-FH 23:18
fþróttahúsið Strandgötu, fslandsmótið í
handknattleik - undanúrslit, fyrsti leikur,
föstudaginn 21. mars 1997.
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 4:1, 4:3, 8:4,
11:6, 11:7, 11:10, 14:10, 15:13, 18:13,
21:15, 22:18, 23:18.
Mörk Hauka: Judit Esztergal 8/5, Harpa
Melsteð 5, Andrea Atladóttir 4, Ragnheiður
Guðmundsdóttir 2, Thelma Bj. Árnadóttir
2, Hulda Bjarnadóttir 1, Hanna G. Stefáns-
dóttir 1.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 20/1 (þar
af átta til mótheija).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk FH: Hrafnhildur Skúladóttir 7/3,
Þórdís Brynjólfsdóttir 4, Hildur Erlingsdótt-
ir 2, Dagný Skúladóttir 2, Guðrún Hólm-
geirsdóttir 1, Björk Ægisdóttir 1, Drífa
Skúladóttir 1.
Varin skot: Alda Jóhannesdóttir 18/1 (þar
af fimm til mótheija):
Utan vallar: 4 mfnútur.
Ðómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas
Elíasson. Of erfiður leikur fyrir þá.
Áhorfendur: 160.
Knattspyrna
Þýskaland
Diisseldorf - VfB Stuttgart......0:4
Balakow 48., Hagner 56., Bobic 64., Elber
88. Áhorfendur: 15.000
Werder Bremen - Duisburg.........0:2
- Zeyer 40., Salou 52. Áhorfendur: 26.000
Efstu lið:
VfB Stuttgart ..24 14 5 5 59:25 47
Dortmund ..23 14 4 5 49:27 46
Bayem Miinchen. ..23 13 7 3 41:24 46
Bayer Leverkusen23 13 5 5 46:30 44
Schalke. ..23 10 6 7 31:29 36
VfLBochum ..22 9 8 5 32:31 35
Karlsmhe ..23 9 7 7 40:30 34
Köln ..23 10 3 10 38:39 33
Werder Bremen... ..24 9 5 10 38:40 32
1860 Múnchen.... ..23 8 7 8 39:40 31
Markhæstir:
17 - Fredi Bobic (VfB Stuttgart)
16 - Bemhard Winkler (1860 Múnchen)
15 - Giovane Elber (VfB Stuttgart)
14 - Sean Dundee (Karlsruhe)
Skíði
Bikarmót í skíðagöngu
Haldið á Siglufirði um síðustu helgi:
30 km ganga karla (frjáls aðgerð): mín.
1. EinarÓlafsson, Akureyri.........94,17
2. Haukur Eiríksson, Akureyri......96,05
3. Magnús Eiríksson, Siglufirði...106,54
15 km ganga pilta 17-19 ára:
1. Þóroddur Ingvarsson, Akureyri...44,56
2. Jón Garðar Steingrímsson, Sigluf. ...45,33
3. Gísii Harðarson, Akureyri.......46,13
7,5 km ganga kvenna:
1. LilaNilsson, Ólafsfirði.........25,57
2. Lísbet Hauksdóttir, Ólafsfirði...28,45
15 km ganga karla:
1. Einar Ólafsson, Akureyri........43,58
2. Haukur Eiríksson, Akureyri.......45,07
10 km ganga 17 - 19 ára pilta:
1. Jón Garðar Steingrímsson, Sigluf. ...28,59
2. Þóroddur Ingvarsson, Akureyri....29,32
3. Gísli Harðarson, Akureyri.......30,01
7.5 km ganga pilta 15 - 16 ára:
1. Ami G. Gunnarsson, Ólafsf.......21,35
2. Baldur Ingvarsson, Akureyri......22,02
3. Rögnvaldur Bjömsson, Akureyri...22,49
5 km ganga pilta 13 - 14 ára:
1. Steinþór Þorsteinsson, Ólafsf...18,06
2. Ámi Teitur Steingrímsson, Sigluf.... 18,07
3. Einar P. Egilsson, Akureyri......26,39
5 km ganga kvenna:
1. Lísbet Hauksdóttir, Ólafsf.......20,25
3.5 km ganga stúlkna 13 - 15 ára:
1. Hanna Dögg Maronsdóttir, Ólafsf. ..16,40
2. Aðalheiður Helgadóttir, Akureyri....23,19
3,5 km ganga stúlkna 13 -15 ára:
1. Hanna Dögg Maronsdóttir, Ólafsf. ..15,44
2. Aðalheiður Helgadóttir, Akureyri....23,45
5 km ganga drengja 13 - 14 ára:
1. Steinþór Þorsteinsson, Ólafsf...18,29
2. Ámi Teitur Steingrímsson, Sigluf....l8,54
3. EinarPáll Egilsson, Akureyri.....29,12
10 km ganga drengja 15 - 16 ára:
1. Baldur Ingvarsson, Akureyri.....30,36
2. Ámi G. Gunnarsson, Ólafsf.......31,51
3. Rögnvaldur Bjömsson, Akureyri....33,03
UM HELGINA
Körfuknattleikur
Laugardagur:
1. úrslitaleikur kvenna:
Hagaskóli: KR - UMFG................15
Sunnudagur:
Undanúrslit karla:
Seltjamames: KR - Keflavík..........16
Mánudagur:
2. úrslitaleikur kvenna:
Grindavík: UMFG - KR................20
Handknattleikur
Laugardagur:
Undanúrslit kvenna:
Framhús: Fram - Stjaman..........16.30
Sunnudagur:
Kaplakriki: FH - Haukar.............20
Mánudagur:
Ásgarður: Stjarnan - Fram...........20
Undanúrslit karla:
Varmá: Afturelding - Fram...........20
Knattspyrna
Deildarbikarinn:
Laugardagur:
Ásvellir: Haukar - Fram..........11.30
Ásvellir: KR - Sindri...............15
Sandgras Kópav.: Völsungur - Breiðab. ...15
Leiknisvöllur: Selfoss - Leiftur....15
Sunnudagur:
Leiknisvöllur: Þróttur - Stjaman...11
Ásvellir: Sindri - Keflavík.........13
Ásvellir: Ægir - Völsunjgur.........15
Sandgras Kópav.: ÍA - IR...........15
Blak
Laugardagur:
Undanúrslit kvenna:
KA-heimili: KA -ÍS...............13.30
Sunnudagur:
KA-heimili: ÍS-KA..................14
Íshokkí
Laugardagur:
3. úrslitaleikur:
Skautasv. Laugard.: Björninn - SA.19
■ Vinni SA þennan leik em þeir orðnir ís-
landsmeistarar, en takist leikmönnum
Bjamarins að vinna leikinn eigast liðin við
að nýju á sunnudagsmorguninn á Skauta-
svellinu í Laugardal.
Skíðaganga
í dag verður Strandagangan þreytt á
Hólmavík. Hægt verður að velja á milli 5,
10 og 20 km metra gönguleiða.
Alpagreinar
Bikarmót 15 til 16 ára og fullorðinna fer
fram á Seyðisfirði í dag og á morgun.
Karate
íslandsmótið í kata fer fram í íþróttahúsinu
Smáranum í Kópavogi. Keppni hefst klukk-
an 13 með undanúrslitum en áætlað er að
úrslit heflist kl. 14.30.
Sund
Annað Opna sprettsundsmót KR og Ár-
manns fer fram í Sundhöll Reykjavíkur í
dag og á morgun. Keppni hefst klukkan 10
í dag en úrslit verða kl. 15.30. Það sama
verður upp á teningnum á morgun.
Fimleikar
í dag verður landskeppni a milli íslands og
írlands í Laugardalshöll. Á morgun fer stð-
an fram á vegum fimleikadeildar KR meist-
aramót unglinga og seniora.
Golf
Opið púttmót fyrir konur verður haldið í
Golfheimi við Vatnagarða 14 í dag. Mótið
hefst kl. 9 árdegis og lýkur kl. 20. A morg-
un verður síðan, eins og venjulega á sunnu-
dögum, púttmót sem opið er öllum.
HAIMDKIMATTLEIKUR
KA-menn of
sterkir fyrir
HANDKNATTLEIKUR
Stjömuna
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar frá
Akureyrí
KA-MENN sigruðu Stjörnuna
örugglega, 23:18, í þriðja leik
liðanna í átta liða úrslitum 1.
deildar karla í handknattleik
en liðin áttust við í KA-heimil-
inu á Akureyri. Það er því Ijóst
að KA mætir Haukum f und-
anúrslitum en Stjörnumenn
eru komnir í frí.
Það var að venju mikil og góð
stemmning í KA-heimilinu og
mega reykvísk félög margt af
norðanmönnum læra í sambandi
við hvernig á að
standa að hand-
knattleiksleik.
Stemmningin
minnti óneitanlega
á úrslitakeppnina í körfuknattleik
þar sem rífandi stemmning er í
húsinu löngu fyrir leik og áhorf-
endur komnir til að skemmta sér.
Það gerðu stuðningsmenn KA svo
sannarlega í gærkvöldi, jafnvel þó
svo leikurinn væri langt frá því
að vera eitthvert augnayndi.
Fyrri hálfleikurinn var þó ágæt-
ur. KA byijaði með 6-0 vörn en
Stjarnan var með Sæþór Ólafsson
fyrir framan og stóð hann sig mjög
vel í vörninni. Jafnræði var allt þar
til fimm mínútur voru til leikhlés.
Stjarnan lék af skynsemi, langar
sóknir og vandaðar þar sem menn
biðu eftir að fá færi en KA-menn
sýndu gestunum strax á fyrstu
mínútu að þeir mættu illa við að
gera mistök í sókninni; þá voru
heimamenn komnir í hraðaupp-
hlaup.
Allt var sem sagt í járnum þar
til fimm mínútur voru til leikhlés
og staðan 8:9 fyrir Stjörnuna. Þá
gjörsamlega hrundi sóknarleikur
Garðbæinga, sem gerðu ekki mark
í sex síðustu sóknunum. Heima-
menn gengu á lagið og gerðu síð-
ustu fimm mörkin og það fyrsta í
síðari hálfleik þannig að staðan var
orðin 14:9 skömmu eftir hlé.
Síðari hálfleikur var leiðinlegur.
Gríðarlega mikið um mistök á báða
bóga, þó heldur færri hjá KA.
Sóknirnar voru ekki mjög mark-
vissar en varnir liðanna skömminni
skárri og á 13 mínútna kafla gerðu
gestimir aðeins tvö mörk úr 13
sóknum. Hermann Karlsson var
kominn í mark KA og varði ágæt-
lega en hinum megin varði Ingvar
Ragnarsson aðeins eitt skot í síð-
ari hálfleik, en hann varði mjög
vel í upphafi leiksins. Snemma í
síðari hálfleik var það hið eina
markverða sem gerðist að menn
voru reknir útaf í gríð og ergi og
í átta mínútur voru oftar en ekki
einn eða tveir útaf.
Þegar 12 mínútur vom liðnar af
hálfleiknum hafði hvort lið gert
þijú mörk eftir hlé en þá komu
þijú mörk í röð á stuttum tíma hjá
KA og eftir 20 mínútna leik var
staðan 19:13 og bjöminn sama sem
unninn. Lokamínútumar vom síðan
eins og oft vill verða í svona leikj-
um, mikið um mistök og hraðinn
miklu meiri en leikmenn réðu við.
Heiðmar Felixson var bestur í
sókn KA en aðrir náðu sér ekki
vel á strik þegar liðið þurti að leika
skipulagða sókn. Jóhann G. Jó-
hannsson og Björgvin Björgvins-
son vom sterkir í hraðaupphlaup-
unum og gerði KA 7 mörk eftir
slíka sókn en gestirnir aðeins tvö.
Hermann átti fínan leik i markinu
eftir að hann kom inná og í vöm-
inni vom þeir Alfreð Gíslason,
Björgvin og Erlingur Kristjánsson
sterkir.
Konráð Olavson var sá eini í liði
Stjörnunnar sem náði að leika vel,
hinir áttu margir góða kafla, en
þeir vom bæði of stuttir og of fáir.
Sæþór var mjög góður í vöm
Stjörnunnar og Ingvar byijaði vel
í markinu en fann sig síðan ekki.
SÓKNARNÝTING
Þriðji leikur liðanna í úrslitakeppni
íslandsmótsins, leikinn á Akureyri
föstudaginn 21. mars 1997.
Einn fyrir alla ...
Morgunblaðið/Þórhallur
HEIÐMAR Felixson, bestl maður KA í gærkvöldl, skýtur að markl Stjörn-
unnar. Það eru Einar Einarsson (7) og Einar Baldvin Árnason (17) sem
gera árangurslausa tilraun til að stöðva KA-manninn.
„Veit aldrei hvar
éghef liðid'
iá
Mörk Sóknir % Mörk Sóknir %
13 25 52 F.h 9 24 38
10 24 42 S.h 9 25 36
23 49 47 Alls 18 49 37
Langskot
Gegnumbrot
Hraðaupphlaup
Hom
Lína
Vfti
Stefán Þór
Sæmundsson
skrífar frá
Akureyrí
Alfreð Gíslason, þjálfari KA og varn-
arjaxl, var himinlifandi í leikslok.
„Það er óneitanlega betra að tapa fyrsta
leiknum en þeim síðasta.
Við spiluðum mjög vel í
síðustu tveimur leikjum
og ég vona að það verði
áframhald á því. Hins
vegar veit ég aldrei hvar ég hef Iiðið,
eða þannig hefur það verið í vetur.
Ýmist hrekkur það í gang eða dettur
alveg út. Vonbrigðin með gengið í deild-
inni og tapið í fyrsta leiknum þjöppuðu
okkur saman og liðið hefur sýnt mikinn
styrk. Nú viljum við meira og erum til-
búnir í slaginn gegn Haukum í undanúr-
slitum. Þar eigum við harma að hefna,“
sagði Alfreð sem lék sérlega vel í vörn-
inni í sigurleikjunum gegn Stjörnunni.
Heiðmar Felixson, stórskyttan unga
og örvhenta, fann KA-hjartað slá í þess-
um leik, en hann er fyrrum Þórsari. „Ég
hef verið að fá að spila meira og meira
og vona að ég hafi þakkað traustið í
þessum leik. Þetta var frábært og
stemmningin í liðinu virkilega góð,“
sagði Heiðmar sem var markahæstur
KA-manna með 7 mörk.
Valdimar Grímsson, þjálfari Stjörn-
unnar og góðkunningi KA-manna, varð
að játa sig sigraðan í leikslok. „Þetta
var ekki okkar dagur. Við gerðum allt
of mikið af tæknilegum mistökum, skil-
uðum boltanum ekki á rammann og
fengum mörg hraðaupphlaup í bakið á
okkur. Þar held ég að munurinn liggi á
liðunum í þessum leik. Við vorum að
spila sömu vörn og í sigurleiknum en
mistökin í sókninni voru dýrkeypt," sagði
Valdimar. Stjaman hefur aldrei komist
í undanúrslit en Valdimar hafði enga trú
á því að þetta væru álög á liðinu, að
detta út í 8-liða úrslitum. „Ég er ekki
hjátrúarfullur."
Öruggt hjá Haukastúlkum
MINNUGAR tapsfyrir FH ídeildarleik liðanna, ætluðu Hauka-
stelpur sér greinilega að fara með sigur af hólmi þegar liðin
mættust á ný í fjögurra liða úrslitunum í Strandgötunni í gær-
kvöldi. Þær náðu strax forystu og slökuðu aldrei á klónni í
23:19 sigri. „Við ákváðum að koma brjálaðartil leiks eftirtapið
í deildinni og ætluðum að gjörsigra en FH er með of sterkt lið
til þess að það sé hægt,“ sagði Vigdís Sigurðardóttir markvörð-
ur Hauka eftir leikinn en hún varði 20 skot.
Taugar leikmanna voru þandar
fyrstu mínúturnar og kom
það helst niður á sóknarleikum
þannig að eftir tíu mínútur með
níu sóknum var
staðan 1:1. Vörn
Hauka var sterk og
það skilaði næstu
þremur mörkum úr
hraðaupphlaupum auk forystu,
sem liðið hélt til leiksloka. FH-liðið
lagði þó ekki árar í bát og leyfði
mótheijunum aldrei að stinga af
og í upphafi síðari hálfleiks tókst
þeim að minnka muninn í eitt
Stefán
Stefánsson
skrifar
mark, 11:10. En Haukaliðið hefur
leikreynsluna sín megin, þær sættu
færis og þegar FH-liðið gleymdi
sér í nokkrar mínútur um miðjan
hálfleik juku Haukar forystuna í
fimm mörk, 18:13. Þrátt fyrir
ágæta baráttu FH tókst þeim ekki
að saxa á forskotið enda hægara
sagt en gert gegn Haukum.
Haukar vita sem er að sigur
byggist yfirleitt á góðri vörn og
hún lagði grunninn að sigrinum
en liðið skoraði fimm mörk úr hrað-
aupphlaupum, sem var munurinn
að leikslokum. Vigdís í markinu
varði vel, Judit Esztergal var að
venju potturinn og pannan í leik
liðsins og Harpa Melsteð gerði
góða hluti en Hulda Bjarnadóttir
fékk lítið svigrúm á línunni.
Lengi var sagt um FH-liðið að
það væri ungt og efnilegt en
skólunin, sem þessar ungu stúlkur
hafa fengið í deildinni í vetur, hef-
ur skapað gott og skemmtilegt lið.
Vörnin var grimm en það vantaði
meira öryggi í sóknarleikinn. Þór-
dís Brynjólfsdóttir og Hrafnhildur
Skúladóttir voru í aðalhlutverkum
og Guðrún Hólmgeirsdóttir, Dagný
Skúladóttir og Drífa Skúladóttir
gerðu góða hluti en Alda Jóhannes-
dóttir markvörður átti góðan dag.
„Við gerðum aulamistök, þar lágu
mistökin," sagði Alda eftir leikinn.
„Við ætlum áfram og getum bet-
ur, nú verður farið yfir hvað fór
úrskeiðis en við sigrum í næsta
leik í Kaplakrika með stuðningi
góðra áhorfenda."
Þannig vörðu þeir
Guðmundur Arnar Jónsson, KA, 1:
Langskot.
Hermann Karlsson, KA, 12/1 (4): 9(3)
langskot, 1 vítakast, 1(1) eftir gegnum-
brot, 1 eftir hraðaupphlaup.
Ingvar Ragnarsson, Sljörnunni, 10
(5): 7(3) langskot, 2(1) úr horni, 1(1)
af línu.
Axel Stefánsson, Stjörnunni: varði
ekki skot.
Magnús Sigmundsson, Haukum, 12:
7(3) langskot, 1 vítakast, 1 úr horni, 1
eftir gegnumbrot, 1(1) af línu, 1 eftir
hraðaupphlaup.
Bjarni Frostason, Haukum: varði ekki
skot.
Guðmundur Hrafnkelsson, Val, 12:
6(2) langskot, 4(3) eftir gegnumbrot, 2
úr horni.
Sigmar Þröstur Óskarsson, ÍBV 16:
5(1) langskot, 5(3) úr horni, 1(1) eftir
gegnumbrot, 2(2) af línu, 1(1) eftirhrað-
aupphlaup, 2 vítaköst.
Reynir Þór Reynisson, Fram 20: 3
langskot, 4(2) úr horni, 5(2) eftir gegn-
umbrot, 2(1) af línu, 4 hraðaupphlaup,
2(1) víti.
Þór Björnsson, Fram 1(1): Vítakast.
„VIÐ vorum andlega vel búnir
undir þennan leik og ég held
að það hafi sýnt sig íframleng-
ingunni. Til hennar komum við
einbeittari en þeir og þá skildu
loks leiðir," sagði sigri hrós-
andi þjálfari Fram, Guðmundur
Guðmundsson, eftir að hans
menn höfðu lagt Eyjamenn að
velli ígærkvöldi íframlengdum
leik 25:23 íVestmannaeyjum
og eru nýliðar Fram þar með
komnir í undanúrslit íslands-
mótsins.
Leikurinn var hnífjafn og æsi-
spennandi allan tímann og
framlengingu þurfti til að knýja
fram úrslit en jafnt
var eftir venjulegan
leiktíma, 20:20. Það
tekst ekki öllum sem
til Eyjá koma í þeim
tilgangi að leika upp á líf og dauða
að fara þaðan með sigur, en með
baráttuna og einbeitinguna að vopni
tókst Safamýrapiltum það. Einn
fyrir alla og allir fýrir einn var
dagskipum Guðmundar og hún
gekk upp. En björninn er hvergi
nærri unninn því næsta verkefni
Framara tekur við og það er að
mæta deildarmeistuurum Aftureld-
Ivar
Benediktsson
skrífar
frá Eyjum
ingar í undanúrslitum og verður
fyrsti leikurinn á mánudagskvöldið
að Varmá. „Ég er ánægður með
drengina og það verður gaman að
fást við Mosfellinga," bætti Guð-
mundur við.
„Við í gegnum erfiðann skóla að
leika í tvígang hér í Eyjum með
nokkurra daga millibili, en það jók
þrek okkar og reynslu og það fleytti
okkur í gegnum þetta erfiða verk-
efni,“ sagði þjálfari Fram ennfrem-
ur. „Mér gekk vel og það var gott,
en það sætast var samt það að
sigra,“ sagði Reynir Þór Reynisson
markvörður Fram sem undirstikaði
styrk sinn að þessu sinni og varði
sem berserkur allan leiktímann.
Eftir að Arni Johnsen alþingis-
maður hafði hitað upp áhorfendur
eins og honum einum er lagið tóku
leikmenn við stjórnvölunum á leik-
vellinum og hófu baráttuna sem var
upp á allt eða ekkert. Eyjamenn
voru fastir fyrir í vörninni og leik-
menn Fram léku langar sóknir eins
og þeim er títt og fór svo að dæmd
var á þá töf í fýrstu sókn og þeir
fóru í vörn. En þá spiluðu þeir fram
trompi sínu sem var framliggjandi
þrír, tveir, einn vörn sem þeir léku
allt þar til yfir lauk með góðum
árangri. „Við höfum verið að æfa
þessa varnaraðferð í laumi í vetur
og nú var kominn tími til að láta á
hana reyna,“ sagði Guðmundur
sposkur á svip í leikslok. Með hana
að vopni tókst þeim að halda niðri
hugsuði þeirra Eyjamanna, Amari
Péturssyni og slá verulega á skytt-
una, Gunnar Berg Viktorsson. Fyr-
ir aftan vörnina fór Reynir Þór
hamförum í markinu. Eyjamenn
léku á hinn bóginn flata vörn allt
þar til Erlingur Richardsson fór að
taka Daða Hafþórsson úr umferð
þegar tíu mínútur voru eftir.
Leikurinn var í járnum og bar-
átta liðanna mikil en frumkvæðið
var þó fremur Frammegin og náðu
þeir m.a. í tvígang tveggja marka
forystu. Báðir markveðir liðanna
vörðu vel og áhorfendur voru vel
með á nótunum. í hálfleik höfðu
Framar eitt mark í forskot, 11:10.
Afram hélt darraðardansinn í síð-
ari hálfleik nema hvað frumkvðið
færðist yfir til heimamanna. Gest-
irnir áttu erfitt uppdráttar í sókn-
inni sem var bitlítil, einkum var
hægri vængurinn máttlaus. Eyja-
menn náðu tveggja marka forystu,
18:16 þegar hálfleikurinn var hálfn-
aður og virtust loks vera að hrista
leikmenn Fram af sér. En seiglan
er mikil í þeim drengjum úr Safa-
mýrinni og með einstakri samheldni
gáfust þeir aldrei upp og ÍBV náði
aldrei þriggja marka forystu þrátt
fyrir að möguleikarnir hafi gefist.
Loks þegar 3 mínútur voru eftir
tókst þeim að jafna, 20:20. Bæði
lið fengu möguleika á að gera út
um leikinn áður en tíminn rann út
en allt kom fyrir ekki. Síðasta fær-
ið kom 5 sekúndum fyrir leikslok
en þá varði Reynir þrumuskot
Gunnars Bergs og ljóst var að fram-
lenging tók við.
I henni voru Framarar mun
ákveðnari og Eyjamaðurinn Magnús
Amar Amgrímsson í herbúðum
Fram, sem ekkert hafði náð sér á
strik, dró vagninn yfir síðustu hindr-
unina sem í veginum varð. Hann
gerði tvö mörk með þrumuskotum
sem öðm fremur riðu baggamuninn.
Áður hafði hann ekkert náð sér á
strik í leiknum.
Leikurinn var í heildina bráð-
skemmtilegur og drengilega leikinn
af beggja hálfu og ekki skemmdu
hressilegir áhorfendur fyrir sem
voru vel með á nótunum allan tím-
ann. Þama áttust við tvö ung og
sterk lið, allir lögðu sig alla fram,
sigurliðið var það sem tókst að halda
einbeitingu allan tímann, þar skildi
á milli feigs og ófeigs að þessu sinni.
Magnþrungin spenna
BOÐIÐ var upp á sannkallaðan
spennutrylli í íþróttahúsinu við
Strandgötu í gærkvöldi er
Haukar og Valsmenn áttust við
íoddaleik sínum. Haukar höfðu
betur eftir æsilegan eltingaleik
ílokin, 20:19, og eru þvíkomn-
ir í undanúrslit. Barátta Vals-
manna var mikil og léku þeir
skynsamlega, en það dugði
ekki til og eru því meistararnir
úr leik.
Gestirnir byijuðu mun betur en
Haukarnir og náðu mest fjög-
urra marka forystu snemma leiks.
Heimamenn skor-
Edwin uðu. f fYrstu sóku
Rögnvaldsson sinni, en nsestu sjö
skrifar sóknir þeirra mis-
fórust og skoruðu
þeir því aðeins eitt mark fyrstu tíu
mínútumar. Valsmenn léku nokkuð
langar sóknir og skutu aðeins í
góðum færum, en það gerðu Hauk-
ar ekki. Gestirnir léku einnig góða
vörn framan af og hvorki gekk né
rak í sóknarleik Hafnfirðinga.
Heimamenn breyttu varnarleik
sínum lítið eitt þegar munurinn var
fjögur mörk og fór þá Gústaf
Bjarnason aðeins framar á völlinn
til að tmfla sóknaraðgerðir gest-
anna. Þá nýttu Valsmenn sóknir
sínar ekki jafn vel og áður, en
mestu munaði um þijú mörk Rún-
ars Sigtryggssonar þegar fyrri hálf-
leikur var rúmlega hálfnaður. Þann-
Morgunbaðið/RAX
PETR Baumruk gerðl tvö mörk þegar Haukar slgruðu Vals-
menn. Það voru tvö síðustu mörk leikslns og tryggðl hann
því llðl sínu sætl í undanúrslitum, þar sem það mætir KA. Á
myndlnni fagnar Tékkinn með samherjum sínum í leikslok.
ig náðu Haukar að minnka muninn
í tvö mörk og þannig stóðu leikar
í leikhléi, eða 9:7.
Valsmenn hófu síðari hálfleikinn
einum leikmanni færri, en það kom
ekki að sök. Munurinn var eitt til
tvö mörk fyrstu tíu mínúturnar eft-
ir hlé, en heimamenn náðu að jafna
í fyrsta sinn frá upphafi leiksins
þegar rúmar 17 mínútur voru eftir,
14:14. Á þessum tíma héldu þeir
Jón Kristjánsson og Skúli Gunn-
steinsson Valsmönnum á floti og
liðin skiptust á um forystuhlutverk-
ið til leiksloka.
Petr Baumruk gerði aðeins tvö
mörk í leiknum, en þau gerði hann
á hárréttum tíma. Þegar rúmar
fimm mínútur voru eftir, jafnaði
hann, 19:19. Skömmu síðar fékk
Jón Kristjánsson tveggja mínútna
brottvísun og kom hann aftur inná
þegar ein og hálf mínúta var til
leiksloka. Þá hafði Baumruk bætt
öðru marki við og komið heima-
mönnum yfir, 20:19.
SOKNARNYTING
Þriðji leikur liðanna í úrslitakeppni
fslandsmótsins, leikinn í Vestm.eyjum
föstudaginn 21. mars 1997.
Fram
Mörk Sóknir %
10 22 45 F.h 11 22 50
10 24 42 S.h 9 24 38
3 10 30 Framl. 5 10 50
23 56 41 Atls 25 56 45
4 Langskot 9
4 Gegnumbrot 3
5 Hraðaupphlaup 4
3 Horn 0
2 Lína 5
5 Víti 4
SOKNARNYTING
Þriðjii leikur liðanna í úrslitakeppni
íslandsmótsins, leikinn í Hafnarfirði
föstudaginn 21. mars 1997.
Haukar
Mörk Sóknir %
Valur
Mörk Sóknir %
7 22 32 F.h 9 22 41
13 21 62 S.h 10 21 48
20 43 47 Alls 19 43 44
8 Langskot 6
5 Gegnumbrot 1
1 Hraðaupphlaup 2
1 Horn 3
3 Lína 4
2 Víti 3
SOKNARNYTING
Fyrsti leikur liðanna í 4. liða úrslitum
íslandsmótsins, leikinn í Hafnarfirði
föstudaginn 21. mars 1997.
Haukar
Mörk Sóknir %
FH
Mörk Sóknir %
11 24 46 F.h 7 25 28
12 24 50 S.h 11 24 46
23 48 48 Alls 18 49 37
4 Langskot 6
3 Gegnumbrot 2
6 Hraðaupphlaup 1
2 Horn 3
3 Lína 3
5 Viti 3
Gagnsókn Valsmanna rann út í
sandinn, en Guðmundur Hrafnkels-
son kom félögum sínum til bjargar
með vörðu skoti í næstu sókn
Hauka. Þá var rúm mínúta til leiks-
loka og Valsmenn freistuðu þess
að jafna. Heimamenn brutu af sér
þegar átta sekúndur voru eftir, en
Valsmenn gátu auðveldlega haldið
sókn sinni áfram án þess að taka
aukakast. Dómarar leiksins dæmdu
aukakast, en þá stóð Ingi Rafn
Jónsson einn og óvaldaður með
boltann. Dýrmætar sekúndur fóru
því í að taka aukakastið og voru
Valsmenn mjög ósáttir við ákvörð-
un dómaranna. Jón Kristjánsson
fékk rautt spjald þegar hann mót-
mælti dómnum ásamt Guðmundi
Hrafnkelssyni er leiktíminn var úti
Vamarleikur beggja liða var til
fýrirmyndar, en sóknarleikur var
slakur í fyrri hálfleik. Rúnar Sig-
tryggsson gerði sjö mörk fyrir
Hauka og tók af skarið í sókninni
þegar ráðleysið var sem mest. „Þessi
leikur gat farið á hvorn veginn sem
var. Valsmenn em með gott lið, en
annað liðið varð að vinna,“ sagði
Rúnar.
Magnús Sigmundsson stóð sig
með prýði í markinu og lék allan
leikinn, en Bjarni Frostason kom
aðeins einu sinni inná til að reyna
að veija vítakast. „Það kom mér
næstum ekkert á óvart að leika
allan leikinn því mér gekk vel í
upphafi. Ég fékk loksins tækifæri.
Vörnin hjá okkur var mjög góð og
við lékum líklega bestu vörn okkar
í vetur í þessum leik,“ sagði Magn-
ús í leikslok umlukinn dyggum
stuðningsmönnum.
Sigurður Gunnarsson tók ofan
fyrir Valsmönnum. „Þetta var mjög
góður leikur. Valsmenn léku mjög
skynsamlega, en leikur okkar er
sveiflukenndur. Stundum getur það
verið okkur til góða, en það getur
líka verið ókostur. Við spiluðum þó
frábæra vörn í leiknum," sagði Sig-
urður.
Stuðningsmenn Valsmanna
ruddust inn á völlinn þegar leik-
tíminn rann út og hegðun þeirra í
garð dómara var skammarleg.
Nokkrir þeirra reyndu að ná til
dómaranna, en sem betur fer tókst
þeim það ekki.