Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
?.P
M
H
’iWiU
f\8c
y *
j
c
HANDKNATTLEIKUR
1997
jntorgtntl>l«iSifö
FIMMTUDAGUR 3. APRIL
BLAD
Lægri skattar
fyrir knatt-
spyrnumenn
FRANSKA ríkisstjórnin ákvað í gær að lækka
skatta lyá atvinnumönnum í knattspyrnu í
þeirri von að halda þeim í landinu en á undan-
förnum árum hafa meira en fjórir tugir af
þeim bestu, þ.á m. Eric Cantona, David Ginola
og Didier Seschamps, fyrirliði franska lands-
liðsins, flutt tii annarra landa. Knattspyrnu-
mennirnir fá hér eftir sömu fríðindi og kvik-
myndaleikarar og verða 80% tekna þeirra und-
anþegin skatti vegna þess að litið verður á
þann hluta sem útlagðan kostnað við að halda
jákvæðri ímynd á lofti. Almennt greiða Frakk-
ar um 55% tekna í skatt. Talsmaður ríkisstjórn-
arinnar sagði að vonandi
y/ði þessi breyting ekki að-
eins til að halda frönskum
leikmönnum í landinu held-
ur líka til að iaða erlenda
leikmenn að á ný en félög
hafa sagt að erfitt sé að
halda í menn vegna hárrar
skattaprósentu.
Ragnar áfram
hjá ÍR
RAGNAR Óskarssom, hinn
efnilegi leikmaður ÍR-liðs-
ins i handknattieik, verður
áfram í herbúðum IR-inga.
Ragnar sem var sjötti
markahæsti leikmaður 1.
deildar með 116 mörk, skrif-
aði í gær undir tveggja ára
samning við ÍR.
GEIR Sveinsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins, skorar hér
eitt af fjórum mörkum sínum
gegn Kínveijum á ísafirði í gær-
kvöldi. Geir skoraði tvö mörk af
línu og tvö eftir hraðaupphlaup
í sigurleik, 27:24.
Morgunblaðið/Golli
Leikurinn / D8
Guðbjörg Guðmannsdóttir, leik-
maður ÍBV, fékk tilboð frá rúss-
neska félaginu Energy frá Voronezh
í páskavikunni og ætla Rússarnir að
kanna hug hennar til þess á næstu
dögum. Auk launa buðu Rússarnir
Guðbjörgu að greiða allan kostnað
vegna dvalar ytra, m.a. námskostnað,
og jafnframt sögðust þeir bjóða for-
eldrum hennar út þeim að kostnað-
arlausu. Eftir því sem næst verður
komist er Guðbjörg fyrsti íslenski
íþróttamaðurinn sem fær atvinnu-
mannatilboð frá Rússlandi en þess
má geta að uppistaða rússneska
kvennalandsliðsins er frá Energy, sem
var stofnað 1990 og varð Rússlands-
meistari 1991, 1995 og 1996 auk
þess sem liðið varð í 2. sæti 1994.
Fimm íslensk knattspyrnulið, þar á
meðal kvennalið ÍBV, voru í æfinga-
búðum í Algarve í Portúgal fyrir
páska og lék IBV tvo leiki við Energy
í ferðinni. Energy, sem hefur verið
besta lið Rússlands undanfarin ár og
nánast ósigrandi, hafði mikla yfír-
burði á móti Eyjastúlkum en rétt áður
en íslenski hópurinn fór heim óskuðu
Rússarnir eftir að fá að ræða við
Guðbjörgu.
„Ég hélt að þeir væru að grínast
en annað kom á daginn,“ sagði Guð-
björg, sem verður 17 ára í maí og er
nemi á náttúrufræðibraut framhalds-
skólans í Vestmannaeyjum. „Þetta lið
er gífurlega sterkt og hefur verið í
æfingabúðum í þijá mánuði en stelp-
urnar lifa á því að leika fótbolta enda
flestar í landsliðinu. Tímabilið hjá
þeim byijar 1. maí og þjálfarinn vildi
að ég kæmi sem fyrst, hefði ég áhuga.
Ekki var rætt um samning til ákveð-
ins tíma en hann sagði að ég gæti
verið í nokkra mánuði í reynslu og
farið hvenær sem ég vildi líkaði mér
ekki dvölin."
Guðbjörg leikur ýmist sem hægri
bakvörður eða á miðjunni auk þess að
spila í horni í handknattleik þar sem
hún hefur leikið með stúlknalandslið-
inu en rússneski þjálfarinn sá strax
að hún væri líka í handbolta og sagð-
ist geta gert úr henni góða knatt-
spymukonu. „Það er mikill heiður fyr-
ir mig að hafa fengið þetta tilboð og
ég er mjög hreykin, en þó að það sé
mjög freistandi að taka þvi er landið
svo framandi að ég efast um að ég
slái til. En sjálfsagt gæti ég lært mik-
ið og öðlast rosalega mikla reynslu."
GUÐBJÖRG Guðmannsdóttir
Bjarni skrif-
ar undir hjá
Newcastle
BJARNI Guðjóns-
son fer til Eng-
lands á mánudag
og skrifar undir
samning við New-
castle til þriggja
ára. Að sögn Gylfa
Þórðarsonar, for-
manns Knatt-
spyrnufélags ÍA,
verður rammasam-
komulag félag-
anna fínpússað á
næstu dögum með
það í huga að málin
verði komin á
hreint strax eftir
helgi; Bjarni leikur
með IA fyrri hluta
sumars en á að
vera kominn til
Newcastle 7. júlí.
Skaga-
menn til
Króatíu
Skagamenn léku
tvo æfingaleiki í
Skotlandi í liðinni
viku, töpuðu 2:1
fyrir Livingstone
og unnu Queen of
the South 1:0. Þeir
fara í 10 daga æf-
ingaferð til
Dubrovnik í Króa-
tíu 17. apríl.
Ung-
mennaliðið
til Lúxem-
borgar
UNGMENNALIÐ
íslands í knatt-
spyrnu (Leikmenn
tuttugu og eins árs
og yngri) fer til
Lúxemborgar 14.
apríl og leikur tvo
æfingaleiki, fyrst
við félagslið frá
Belgíu samdægurs
og síðan ung-
mennalið Lúxem-
borgar 16. apríl.
Þetta verða einu
leikir liðsins fyrir
Evrópuleikina á
móti Makedóníu og
Litháení júní en
liðið er í öðru sæti
í sínum riðli.
KNATTSPYRNA
Guðbjörg með tilboð
frá Energy í Rússlandi
HANDKNATTLEIKUR: VIÐTALVIÐ PATREK JÓHANNESSON í ESSEN / D4,D5