Morgunblaðið - 03.04.1997, Page 2

Morgunblaðið - 03.04.1997, Page 2
2 D FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA Þjálfarar til sölu! Mikil hreyfíng er á þjálfurum á Ítalíu þessa dag- ana. Einar Logi Vignisson segir þau lið teljandi á fingrum annarrar handar sem öruggt er að verði með sömu þjálfara næsta keppnistímabil. að hefur reyndar aldrei verið sérlega trygg atvinna að vera þjálfari á Ítalíu en ástandið núna er ótrúlegt, nánast algjör uppiausn, og kenna margir Bosman-úrskurð- inum um þótt hann hafi í sjálfu sér ekki bein áhrif á þjálfarana sem hafa alltaf mátt starfa í hvaða landi sem er óháð þjóðerni. Hinsvegar hafi Bosman-úrskurðurinn orðið til þess að hreyfíngar á leikmönnum jukust til muna og mögulegt er fyrir lið að kaupa leikmenn sem ekki var kostur á að fá fyrir einung- is tveimur árum. Samsetning leik- mannahópanna hefur breyst og lið skipta um þjálfara í ljósi þess. Valdamiklir forsetar Áður en litið er á hvaða þjálfarar eru að færa sig um set er vert að huga að því hver staða þjálfara er innan ítalskra félaga, en hún er allfrábrugðin því sem gerist t.a.m. á Englandi sem íslenskir knatt- spyrnuáhugamenn þekkja best til. Á Englandi eru þjálfarar gegn- umsneitt mun valdameiri en á Italíu, heitið „knattspyrnustjóri" (mana- ger) vísar til þess að þeir eru i raun hálfgerðir framkvæmdastjórar fé- laganna, rétt eins og um venjulegt fyrirtæki væri að ræða. Þeir sjá um ýmiskonar fjármál og rekstur og kaup og sala á leikmönnum sem og samningar um kjör eru yfirleitt al- gerlega á þeirra könnu. Þannig þarf Alex Ferguson knattspymustjóri bara að spytja Martin Edwards stjórnarformann Manchester United hvað hann megi eyða miklum pen- ingum í leikmannakaup og launa- hækkanir og svo spilar hann úr því eins pg hann vill. Á Ítalíu hafa þjálfarar hinsvegar sáralítið um leikmannakaup að segja og samninga við leikmenn. Forsetar félaganna eða stjórnar- menn sjá algerlega um slík mál, verk þjálfarans er einungis að þjálfa liðið sem hann fær upp í hendum- ar. Hafi þjálfarinn náð mjög góðum árangri og séu samskiptin við for- seta og stjórnarmenn góð getur hann að vísu ráðið allnokkru um hvaða leikmenn em fengnir til fé- lagsins en úrslitavaldið liggur alltaf hjá stjórninni. Þannig ákváðu t.d. stjórnarmenn Juventus að láta þá Vialli, Ravanelli og Paolo Sousa fara síðasta vor eftir að liðið varð Evrópumeistari og réðu þar fjár- hagslegar ástæður. Stjórnin bar þetta undir þjálfarann Marcello Lippi og hann veitti samþykki sitt gegn því að ákveðnir leikmenn, eða „tegund af leikmönnum" væm fengnir til félagsins og lét hann stjórninni í té óskalista sem síðan var keypt eftir. Vegnir og metnir eftir taktík Vegna þess hve vald þjálfaranna er takmarkað eru ítalskir fjölmiðlar afar sólgnir í að vita skoðanir for- seta félaganna og annarra hátt- settra manna á gengi liðsins þá og þá stundina. Það er einfaldlega miklu meira á þeim að græða! Þjálf- arar eru látnir í friði með spurning- ar um hreyfingar á leikmönnum og eru ekki gagnrýndir fyrir að kaupa ekki nýja leikmenn í tilteknar stöð- ur o.s.frv. ítalir hugsa mest um hvernig þeir fara taktískt með mannskapinn sem þeir hafa úr að moða. Auðvitað sleppur þjálfari alltaf að mestu við gagnrýni ef liðinu gengur vel og að sama skapi þarf þjálfari alltaf að taka ábyrgð á slæmu gengi en samt sem áður em ítalskir fjölmiðlar nokkuð hlutlausir í mati á getu þjálfara, á suðrænan mælikvarða náttúrlega! Þannig þykir Roy Hodgson þjálfari Inter t.d. hafa staðið sig mun verr en Gigi Simoni þjálfari Napolí í vetur þótt Inter sé i fjórða sæti og í und- anúrslitum Evrópukeppni félagsliða á meðan Napolí er í sjötta neðsta sæti en reyndar í úrslitum bikar- keppninnar. Hodgson er með mun stærri klúbb og þykir þrátt fyrir þolanlegan árangur hafa gert ótrú- lega mörg taktísk mistök sem hafi reynst dýrkeypt. Simoni hafí hins- vegar náð að láta fremur slappan mannskap leika oft og tíðum mjög FABIO Capello, þjálfarl Real Madrld og fyrrum þjálfari AC Milan. Itölsk blöð hafa verið uppfull af spádómum um hugsanlega endurkomu hans til Mílanóliðsins. vel og verði ekki sakaður um tap- leiki liðsins, þar ráði getumunur. Hodgson hefur fengið nóg af gagnrýninni sem honum fínnst afar ósanngjörn og hyggst halda til Englands og taka við stjórninni hjá Blackburn Rovers. Simoni er hins- vegar talinn líklegasti arftaki hans hjá Inter þótt einnig séu nefndir til sögunnar Jorge Valdano þjálfari Valencia og Daniel Pasarella þjálf- ari argentínska landsliðsins. Fáir öruggir Þegar stórliðin skipta um þjálfara veldur það róti niður allan skalann þar sem þau ræna iðulega þjálfur- um frá liðum sem eru afar ánægð með sinn mann. Þannig vill Napolí halda Simoni og Sampdoria Sven Göran Eriksson sem talið er vist að taki við Lazio næsta sumar, en Dino Zoff stjórnar liðinu nú til bráðabirgða eftir að Zeman var rekinn. Stóru liðin eru einnig vís til að bjóða í Uliveiri þjálfara Bo- logna og Guidolin þjálfara Vicenza. Hjá stóru liðunum er öruggt að Marcello Lippi hjá Juventus og Carlo Ancelotti hjá Parma verða með liðin áfram. Einnig er talið ólíklegt að Carlos Bianchi verði rek- inn frá Roma þrátt fyrir miðlungs- árangur. Stærstu spurningamerkin fyrir utan Inter og Lazio eru AC Milan, Fiorentina og Sampdoria. Nái Arr- igo Sacchi að fylgja eftir góðum árangri að undanfömu og koma Milan í Evrópukeppnina heldur hann sennilega stöðu sinni. Ekkert nema endurkoma Fabio Capello getur breytt því en ítölsk blöð hafa verið uppfull af spádómum um hugsanlega endurkomu hans. Þar spilar þó margt inní, t.d. hefur Capello sagt að vinni Madrid spænsku deildina vilji hann fylgja liðinu eftir í Evrópukeppni meist- araliða næsta tímabil. Fiorentina hefur leikið mjög illa í vetur og miðað við hversu skapbráður hinn litríki forseti félagsins, Vittorio Cecchi Gori, er, þykir með ólíkind- um að Claudio Ranieri skuli hafa haldið starfinu. Forsetinn hefur meira að segja boðið honum nýjan samning en gárungar segja að það sé einugis vegna þess að önnur fé- lög séu á eftir Hanieri og Cecchi Gori vilji eins og venjulega fá að ráða, hann vilji frekar reka Ranieri og þurfa að borga honum skaða- bætur en að Ranieri geti farið hvert sem hann vill hvað sem Cecchi Gori segir. Sven Göran Eriksson hefur náð feikigóðum árangri með Sampdoria og talið er að hinn ungi forseti fé- lagsins, Enrico Mantovani, sé í mun að fá þjálfara með svipaðar áhersl- ur. Þjálfara sem sé lagið að ná miklu úr takmörkuðum mannskap og sé ekki það plássfrekur að hann skyggi á forsetann unga. Vitað er að Samp hefur rætt við Simoni en Oscar Washington Tabarez, fyrrum þjálfari Milan, þykir líklegastur þessa stundina þótt Mantovani hafi reyndar ítrekað gefið i skyn að valið muni koma á óvart. 5. apríl 1 Manchester Utd. - Derby 2 Aston Villa - Everton 3 Newcastle - Sunderland 4 Tottenham - Wimbledon 5 Nottingh. For. - Southampton 6 Bolton - Q.P.R. 7 Wolves - Norwich 8 Barnsley - Birmingham 9 Sheffield Utd. - W.B.A. 10 Crystal Palace - Huddersfield 11 Portsmouth - Grimsby 12 Oxford - Port Vale 13 Chariton - Manchester City úrslit Árangur á heimavelli frá 1984 0 0 1 3 1 1 2 8:6 1 14:7 0 6:2 4 17:17 2 21:10 0:1 0:2 7:13 7:4 6:5 20:8 7:4 7:4 Slagur spámannanna: I Ásgeir - Logi 20:17 Hversu margir réttir síðast: Hve oft sigurvegari (vikur): Hvað marga rétta í heild: Meðalskor eftir 27 vikur: Ásgeir Logi m Þín spá 1 1 1 X 1 X 1 1 X 1 1 1 1 X X 2 1 X 1 1 X 2 1 1 X 1 1 1 X 1 2 1 X 1 1 1 1 1 1 1 1 X 1 1 1 1 1 X 2 1 X 2 1 X 2 1 X 2 1 X 1 X 2 7 7~~\ 7 16 12 | 13 223 209 | 218 8,2 7S.\ 8,0 ITALIA SVÍÞJÓÐ 7. apríl 1 Parma - Sampdoria 2 Udinese - Atalanta 3 Perugia - Napoli 4 Cagliari - Roma 5 Lazio - Piacenza 6 Vicenza - Verona 7 Bologna - Reggiana 8 AIK - Helsingborg 9 Degerfors - Halmstad 10 Elfsborg - Göteborg 11 Malmö FF - Vesterás 12 Örgryte - Trelleborg 13 Öster - Örebro úrslit Árangur á heimavelli frá 1988 9:4 5:3 0:0 2:5 5:1 3:0 0:0 8:4 6:6 0:0 0:0 2:5 10:8 Slagur spámannanna: lÁsgeir - Logi 18:14 Hversu margir réttir síðast: Hve oft sigurvegari (vikur): Hvað marga rétta i heild: Meðalskor eftir 27 vikur: Ásgeir 9 15 240 8,9 Logi 9 10 230 A5 8 232 8,6 Þín spá

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.