Morgunblaðið - 03.04.1997, Side 5

Morgunblaðið - 03.04.1997, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 D 5 b' HANDKNATTLEIKUR Heðmn Gi/sson holland ° Minden - SigurðurBj OHildesheim ...... HllmarBiarnasoi ,r Jonannesson ILKKLand n.Lm- 1DE,LD 0.m! 2 DE,LD °UD' 3. DEILD Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson t>að ævintýri verður ekki endurtekið, spurningin er hvort nýtt ævintýri á sér stað í Japan. Það er aldrei a fyrirfram. Ef stemmningin í hópnum verður eins og gegn Dönum getur allt gerst.“ , Dagur Sigurðsson, Patrekur Jóhannessom og Ólafur Stefánsson. og leikur á sunnudögum. Við höfum alltaf frí daginn fyrir leik.“ Ævintýraheimur Patrekur segir að það sé viss ævin- týraheimur að leika í Þýskalandi, ferð- ast með Essen, koma á nýja staði með iiðinu - leika gegn flestum sterkustu leikmönnum heims, sem eru frá Rúss- landi, Króatíu, Júgóslavíu, Póllandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Frakklandi, Tékklandi, Ungverjalandi, Sviss, Rúme- níu, Suður-Kóreu og landsliðsfélögum frá íslandi. „Hallirnar hér eru misstórar, það er mikill munur að leika fyrir framan rúm- lega þúsund áhorfendur í lítilli höll í Dormagen, eða fyrir fullu húsi áhorf- enda í Kiel, þar sem alltaf er uppselt - sjö þúsund áhorfendur á áhorfendapöll- unum. Þetta er allt miklu stærra hérna en heima á íslandi og önnur umgjörð í kringum leikina.“ Vona að Wuppertal komist upp Patrekur segist vona að Wuppertal kom- ist upp í 1. deild, þannig að að fleiri íslendingar leiki í deildinni. „Það er stutt að fara frá Essen til Wuppertal og ég hef mikið samband við Dag Sigurðsson, einnig Ólaf Stefánsson." Unnusta Patreks er Álfhildur Gunn- arsdóttir, sem hann kynntist á Akur- eyri þegar hann lék með KA. Þau eru saman í þýsku og þá er Álfhildur einnig í háskólanum í Essen í þýskunámi. Pat- rekur sagði að það hefði verið erfiðara fyrir hana að koma til Þýskalands, þar sem hún hafði miklu minna að gera en hann. „Ég er meira á ferðinni - á æfing- um og leikjum. Eftir að Álfhildur byrj- aði í skólanum varð lífið léttara fyrir hana og næsta vetur ætlar hún í frek- ara nám.“ Patrekur skrifaði undir tveggja ára samning við Essen - hann og Alfhildur hafa hug á að vera lengur í Þýska- landi. „Maður getur aldrei sagt hvað tíminn verður langur. Það fer eftir því hvernig mér gangur. Hér eru leikmenn að leika eins og Bogdan Wenta og Stef- an Hecker, sem eru 36 ára. Ég reikna ekki með að vera svo lengi á ferðinni, en reyni að vera eins lengi og ég get - á meðan ég hef metnað til og gaman af að leika handknattleik." Nú leika ti'u íslendingar handknatt- leik í Þýskalandi. A sá hópur eftir að stækka á næstu árum? „Því ekki? Það eru margir góðir leikmenn heima og ef þeir fá tiiboð eiga þeir ekki að hika við að koma hingað. Ég veit að það eru umboðs- menn hér sem fylgjast með leik- mönnum heima. Það er lykilatriði að við strákarnir sem erum hér fyr- ir stöndum okkur vel - ef við gerum það aukast líkurnar á að leitað verði í ríkari mæli til íslands eftir mönn- um.“ Japan er framundan Patrekur _er einn af lykilmönnum landsliðs íslands sem er að fara til Japans til að taka þátt í heimsmeist- arakeppninni í Kumamoto. Patrekur er ekki að taka þátt í sinni fyrstu heimsmeistarakeppni, hann var með í HM í Svíþjóð 1993 og á íslandi 1995. Þegar Patrekur er spurður hvort heimsmeistarakeppnin í Kumamoto verði ekki erfið, játar hann því. „Ég vona að klúðrið fyrir keppnina verði ekki eins mikið og fyrir keppnina heima, sem varð mik- ið áfall fyrir okkur leikmennina og íslensku þjóðina. Það hefur ekki góðri lukku að stýra að fara að blása upp einhveijar væntingar, hvort sem það er í fjölmiðlum eða innan liðsins - að fara að stefna á eitthvert ákveð- ið sæti. Við eigum að fara í verkefn- ið með léttleika og það hugarfar að gera sitt besta. Menn hafa rætt um að^ undirbún- ingur liðsins sé stuttur. Eg held að það sé í góðu lagi að hafa stuttan og hnitmiðaðan undirbúning, þannig að leikmenn geti dreift huganum. Menn muna eftir undirbúningnum fyrir Ólympíuleikana í Seoul 1988 þegar landsliðið var saman í tvo til þrjá mánuði. Það skapaði mikinn þrýsting og taugaspennu, sem varð til þess að draumaborgirnar hrundu á einni nóttu - álagið var meira en þjálfari og leikmenn þoldu. Landsl- iðsmenn okkar eiga að vera í mjög góðri æfingu og ef meiðsl setja ekki strik í reikninginn, þá er ég óhrædd- ur. Við leikum í riðli með Júgó- slavíu, Japan, Litháen, Alsír og Saudi-Arabíu. Það er vitað að Júgóslavar eru sterkari en við á pappírnum, Japan- ir leika á heimavelli og verða erfið- ir, einnig Litháar. Lið Alsírs og Saudi-Arabíu eru óþekktar stærðir, en við komum til með að sjá liðin leika áður en við mætum þeim. Það er aðalatriðið hjá okkur að ná einu af þremur efstu sætunum í riðlinum og komast í sextán liða úrslit. Á þeim tímapunkti hefst ný keppni - hrein útsláttarkeppni eins og bikarkeppni. Þá verður um líf og dauða að tefla. Það getur svo farið að lið vinni alla sína leiki í riðla- keppninni, en tapi síðan í sextán liða úrslitum. Það er aðalatriðið að vinna réttu leikina, leikina sem skipta máli. Við getum verið sendir heim eftir sextán liða úrslitin, ef heppnin er með okkur getum við komist i átta liða úrslitin. Ég ætla ekki að hugsa svo langt að þessu sinni.“ Nú var geysileg stemmning í landsliðshópnum fyrir leikina gegn Dönum í Reykjavík og Alaborg, þeg- ar þið tryggðuð ykkur farseðilinn til Japans. Telur þú að þið getið náð upp þannig stemmningu á ný í Kumamoto? „Danaævintýrið var stórkostlegt. Það ævintýri verður ekki endurtekið, spurningin er hvort nýtt ævintýri á sér stað í Japan. Það er aldrei hægt að segja fyrirfram. Ef stemmningin í hópnum verður eins og gegn Dön- um getur allt gerst.“ Patrekur sagðist ekki eiga sér- staklega góðar minningar frá þeim tveimur heimsmeistarakeppnum sem hann hefur tekið þátt í. „Ég var hálfgerður farþegi í keppninni í Svíþjóð 1993, fékk lítið að spreyta mig. Heimsmeistarakeppnin á ís- landi var lítt skemmtiieg fyrir okkur og aðra, eins og allir vita. Menn hafa oft velt vöngum yfir, hvað gerð- ist - hvers vegna hrundi allt? Það eru eflaust til margar ástæður fyrir slæmu gengi liðsins þá. Ég veit að ein þeirra var mikil óvissa á meðal leikmanna - það var aldrei nein ákveðin skýr lína hveijir væri í byrj- unarliði eða ekki. Óöryggið var mik- ið á meðal leikmanna." Þegar hér var komið sögu, sagði Patrekur: „Handknattleikur er það skemmtilegur, að ég vil ekki skemma þá ánægju með því að fara að rifja upp hvað gerðist í heims- meistarakeppninni á íslandi. Keppn- in tilheyrir fortíðinni." Patrekur var á ferðinni með landsliðinu á ísafirði í gærkvöldi, þar sem Kínveijar voru mótheijar og þeir glíma á ný við Kínveija á Sel- fossi í kvöld. Liðið tekur þátt í fjög- urra þjóða móti á Spáni í byijun maí, þar sem mótheijar verða Þjóð- veijar, Hvít-Rússar og Spánveijar. íslenska liðið heldur til Japans 12. maí. „Hef gefið mömmu loforð" PATREKUR og félagi hans úr Stjömunni Sigurður Bjarnason vöktu athygli í HM í Svíþjóð 1990, er þeir krúnurökuðu sig fyrir leik gegn Ungveijum. Patrekur hefur síðan luTinur- akað sig sem leikmaður með KA og einnig í HM á íslandi 1993. Ætlar hann að endurtaka leikinn í Japan? „Nei, ég hef gefið mömmu loforð - að krúnuraka mig ekki. Hún hef- ur ekki verið ánægð með uppá- tæki mitt. Ég ætla að standa við það loforð,“ sagði Patrek- ur. „Ég og Sigurður vorum saman í herbergi í Svíþjóð - þá sem hálfgerðir farþegar. Það var létt yfir okkur og einn dagiun ákváðum við að krún- uraka okkur. Þegar hinir leik- mennirnir sáu okkur, sprungu þeir úr hlátri og við vorum strax uppnefndir; Patti Bar- kley og Siggi Jordan, eftir bandarísku körfuknattleik- sköppunum. Hárleysið fer mér ágætlega, en loforðið mun standa.“ Er kallaður Kumomoto P ATREKUR segir að það sé sárt fyrir Þjóðveija að hafa setið eftir - ekki komist í heimsmeistarakeppnina í Kumomoto. „Tveir leikmenn í þýska landsliðshópnum leika með mér hér í Essen. Þeir voru nyög öruggir með að komast, en síðan kom áfallið - Þjóð- veijar gerðu óvænt jafntefli við Sióvakiu. Þjóðveijar voru svo öruggir að þeir yrðu með á HM, að það var búið að merkja inn í æfinga- leikja- planið hjá Essen hvenær undir- búningur þýska liðsins fyrir HM yrði. Nú er það svo að ég er eini leikmaðurinn sem fer til Japans og strákamir hafa kailað mig Kuraomoto. i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.