Morgunblaðið - 08.04.1997, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.04.1997, Blaðsíða 18
18 C ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÚTLITSTEIKNING af fyrirhuguðum sumarhúsum I landi Urriðaár á Mýrum. Hönnuður er Páll Björgvinsson arkitekt. Húsin eru frá 45-60 ferm. og þeim fylgir gestahús, ef vill, en þau eru seld sér. Verð húsanna eru á bilinu 4,2-5.4 millj. kr., fullbúin og komin á lóð, en húsin má einnig fá á mismunandi byggingarstigum. Innifalið í verðinu er hönnunargjald, lóðarinntökugjald og leigugjald í eitt ár. Tími sumarhúsanna framundan Framboð er mikið og markaðurinn hagstæð ur fyrir kaupendur Þegar nær dregur vorí, fer sumarhúsamark- aðurinn af stað. Hann hefur þó tekið hægar við sér en oft áður og það má sennilega kenna köldu tíðarfari, Magnús Sigurðsson kynnti sér markaðinn. HJÁ Lögmönnum, Suðurlandi, er til sölu þetta glæsilega sumar- hús í landi Úthlíðar í Biskupstungum. Það er 65 ferm. og á einni hæð, með stórri verönd og heitum potti. Ásett verð er 7 millj. kr. Lóðin er leigulóð, um hálfur hektari og kjarri vaxin. HJÁ Fasteignamiðstöðinni er nú til sölu fallegt sumarhús við Hæðarenda í Grímsnesi. Það er 69 ferm. og stendur á eignar- lóð, sem er um einn hektari. Húsið er með góðri verönd. Asett verð er 6 millj. kr. eða tilboð. MEÐ hækkandi sól eykst áhugi fólks á sumarhúsum. En veðráttan hefur verið köld og víða eru heimkeyrslur enn fullar af snjó. Síðustu daga hefur þó mátt fínna fyrir vaxandi áhuga fólks, enda veturinn senn að baki. Fram- boð á sumarhúsum er nú töiuvert og verð á notuðum bústöðum hag- stætt fyrir kaupendur. Lang fjölmennasta sumarhúsa- byggðin er í uppsveitum Árnes- sýslu, en þar eru nú tæplega 3.000 bústaðir, þar af um 1.500 í Gríms- neshreppi einum. Sumarhús í Kjós- inni og Borgarfírði eru einnig eftir- sótt. Þessi svæði eru í góðu öku- færi frá höfuðborgarsvæðinu. Stað- ir sem eru lengra í burtu eru ekki jafn eftirsóttir. Með batnandi sam- göngum fara fjarlægðir samt minnkandi og um leið fá staðir, sem áður þóttu ekki fýsilegir, meira aðdráttarafl. Fólk á höfuðborgar- svæðinu sækir því æ lengra í vest- ur og austur. Um 8.000 sumarhús er nú skráð hjá Fasteignamati ríkisins og sennilega eru þau enn fleiri í land- inu öllu, því að sum þeirra eru ekki skráð sem siík. Uppi á hálend- inu eru mörg hundruð skálar og við þetta bætast veiðihús, sumar- hús við sveitabæi og uppgerð eyði- býli, sem notuð eru sem sumarhús. Þegar allt þetta er talið með, eru sumarhús eða orlofshús í landinu vart færri en 9.000. Húsbréfalán fást ekki út á sum- arhús og kaup og sala á þeim er því frábrugðin því, þegar um íbúð- arhúsnæði er að ræða. Að sjálf- sögðu er þó hægt að nota húsbréf, sem fólk á fyrir, sem gjaldmiðil í slíkum viðskiptum líkt og önnur verðbréf. Greiðslukjör mismunandi Við greiðslu kaupverðs er engin ákveðin regla til, en algengt að borga helming á árinu og afgang- inn með veðskuldabréfí til einhvers tíma. Alls konar eignaskipti eru líka til og bílar jafnvel teknir upp í kaupverðið. Eftir því sem sumar- húsin eru nýrri og betri, koma að sjálfsögðu betri tilboð í þau og beztu húsin eru jafnvel greidd út í hönd. Góð og gróin lóð á eftirsóttum stað skiptir auðvitað máli og stund- um eru verðmætin fyrst og fremst fólgin í henni. Eignin kann því að seljast á góðu verði, þó að húsið sé orðið gamalt og lítils virði. Þá skiptir það líka máli, að ekki sé langt í sundlaug og verzlun og annað af því tagi. Hestamenn sækjast eftir góðri aðstöðu fyrir reiðhesta og fyrir aðra skiptir vatn og veiðiskapur miklu máli. Góðar gönguleiðir hafa mikið aðdráttarafl fyrir marga og ekki síður góðir golfvellir, en áhugi á þeirri íþrótt fer vaxandi hér á landi með hveiju árinu. Lítið er um, að nýir bústaðir séu keyptir á teikningum. Fólk vill helzt fá þá tilbúna og komna á staðinn. Algengt er, að húsin séu flutt tilbú- in á viðkomandi lóð í heilu lagi eða í hlutum og þar er því í reynd um verksmiðjuframleidd hús að ræða. Hitt er þó líka til, að einstaklingar iáti byggja fyrir sig sumarhús á lóðinni sjálfri, spýtu fyrir spýtu. Þýðing sumarhúsa og orlofshúsa fyrir sum sveitarfélög er mikil og á sumum stöðum eins og Selfossi er smíði sumarhúsa mikil atvinnu- grein og snar þáttur í starfsemi byggingarfyrirtækjanna. en bær- inn liggur mjög vel við sumarhúsa- byggðinni í Árnesýslu. Fólk gerir ólíkt meiri kröfur til sumarhúsa nú, enda eru þau ólíkt betur úr garði gerð en áður. Af þeim sökum er Iíka unnt er að nýta þau miklu lengur á hveiju ári en áður tíðkaðist. I flestum hinna nýrri eru rafmagn og heitt vatn sjálfsagðir hlutir. Þegar svo er komið, er hægt að vera í þessum húsum allt árið og varla réttnefni lengur að kalla þau sumarhús. Þau eru orðin heilsárshús og svo vel útbúin, að þau mætti alveg eins kalla vetrarvirki eins og sumarhús. Og kröfurnar fara enn vaxandi. Þannig má fastlega gera ráð fyrir því, að innan tíðar verði kominn sími í marga bústaði, sérstaklega eftir að þráðlausir símar eru orðnir jafn algengir og raun ber vitni. Sama máli gegnir um tölvur og alnetið. Allt á þetta eftir að hafa áhrif á viðhorf fólks til sumarhús- anna og sennilega verða þau notuð enn meira en nú er gert. Ný sumarhúsahverfi í Árnessýslu Að sögn Ólafs Björnssonar hjá Lögmönnum, Suðurlandi, sem hafa aðsetur á Selfossi, eru nýjustu sum- arhúsahverfin í uppsveitum Árnes- sýslu aðallega í Biskupstungum og Hrunamannahreppi. Á eldri stöðum eins og í Vaðnesi í Grímsnesi er einnig búið að skipuleggja gott sumarhúsahverfi. — Á undanförnum fimm árum hefur verið byggður gríðarlegur ijöldi húsa í uppsveitunum og þau eru nú farin að ganga kaupum og sölum, segir Ólafur. — En það er offramboð á sumarhúsalóðum á þessu svæði og þær eru af ýmsum stærðum og gerðum. Afleiðingin er sú, að það eru fyrst og fremst þær lóðir, þar sem boðið er upp á heitt vatn, sem ganga út. En það er alltaf hreyfíng á góð- um sumarhúsum. í landi Úthlíðar í Biskupstungum er Ólafur nú með til sölu 65 ferm. glæsilegan bústað, sem er á einni hæð og með stórri verönd og heitum potti. í honum eru þijú svefnherbergi, stofa, eld- hús og bað. Ásett verð er 7 millj. kr., en engin lán áhvílandi. — Ég tel þetta mjög sanngjarnt verð fyr- ir jafn gott hús, segir Ólafur. — Lóðin er leigulóð til 25 ára. og er hún hálfur hektari, kjarri vaxin og mjög falleg. Stutt er í alla þjónustu svo sem sundlaug, þjónustumiðstöð, veit- ingastað og á golfvöll. Húsið er árs gamalt og í mjög góðu ástandi. Bústaðir af þessu tagi staldra yfír- Ieitt ekki lengi í sölu, en kaupendur eru einkum starfsmannafélög, fyr- irtæki og svo stórar fjölskyldur, sem þá standa saman að kaupunum. Bústaðurinn stendur á mjög vin- sælu og eftirsóttu sumarhúsasvæði miðja vegu milli Laugarvatns og Geysis, en þar hefur risið talsverð sumarhúsabyggð á undanförnum tíu árum og komið hefur verið upp góðri þjónustu við sumarhúsaeig- endur og ferðamenn. Að sögn Ólafs hefur verð á sum- arhúsum heldur lækkað á undan- förnum tveimur árum vegna aukins framboðs. — Verð á góðum húsum er þó ekki undir 4-5 millj. kr., seg- ir hann. — En það er til mikið af húsum, sem fuilnægja ekki nútíma kröfum um að húsin séu heils árs hús og þau eru þar af leiðandi ódýr- ari. Oft er borgað 60-70% af kaup- verðinu á árinu en afgangurinn lánaður til einhvers tíma. Stað- greiðsla á öllu kaupverðinu er hins vegar algeng og hefur þá að sjálf- sögðu áhrif til lækkunar á verði. Ársleiga fyrir venjulega lóð er gjaman miðuð við 3-4 lambsverð. og er þá um 30.000 kr. Þar að auki þarf að borga fyrir viðhald og heitt og kalt vatn, þar sem það er. snjómokstur og viðhald á vegum. Algengt er því, að heildarkostnaður á lóð sé 70.000-80.000 kr. á ári. Yfir 80 sumarhús á söluskrá Að sögn Magnúsar Leópoldsson- ar hjá Fasteignamiðstöðinni, sem er með um rúmlega 80 sumarhús á söluskrá, er áhugi fólks á þeim nú að vakna svo að um munar. Ásóknin er mest í hús á Suður- landi, Borgarfirði og Snæfellsnesi. — Það er þó ekki mikið framboð á Snæfellsnesi, en alltaf til staðar viss áhugi á sumarhúsum þar, sagði Magnús. Sumir hafa áhuga á að kaupa jarðir, sem eru ekki í ábúð. Þá standa oft fleiri en ein fjölskylda að baki kaupunum. Yfirleitt eru nýtt þau hús, sem fyrir eru og kannski önnur byggð til viðbótar. Hjá Fasteignamiðstöðinni er nú til sölu fallegt sumarhús við Hæðarenda í Grímsnesi. Það er 69 ferm. og stendur á eignarlandi. — Þetta hús ber heitið Hrauntún og er óvenju vandað, sagði Magnús. Það er panelklætt að utan sem innan og skiptist í stofu, eldhús, þijú svefnherbergi og baðherbergi ásamt fullfrágengnu svefnlofti með vönduðum stiga upp. Húsið er með góðri verönd og lóðin, sem er um einn hektari, er mjög skemmtileg með góðum grasflötum og fallegum lautum. Ásett verð er 6 millj. kr. eða tilboð. Ég spái því, að sumarhúsamark- aðurinn í ár verði keimlíkur því, sem var í fyrra, sagði Magnús enn- fremur. — Það er mikið framboð á notuðum bústöðum og ekki vafa- mál, að það er hagstæðara að kaupa þau, frekar en að fá lóð og byggja nýtt hús. — Margir hafa miklar taugar til sumarhússins síns og eru tregir til að láta það af hendi, sagði Magn- ús Leópoldsson að lokum. — Samt er það svo, að sumarhúsin eru oft það fyrsta sem fólk selur, ef breyt- ingar verða á högum þess. Sumarhúsalóðir á Mýrum Með Hvalfjarðargöngunum styttist leiðin vestur á land um 40 km. Þetta á vafalaust eftir að efla sumarhúsabyggðina í Borgarfirði til muna. I landi Urriðaár við Brókarvatn á Mýrum, i 14 km. fjarlægð frá Borgarnesi, er áform- að að koma upp ferðamiðstöð. Hún verður eins konar þorp, sem skipt- ist í 7 orlofshús og 25 svefnskála ásamt hestaleigu og tjaldstæði. Á svæðinu verður ennfremur 51 leigulóð fyrir almenning undir sumarhús. Hver lóð er um 2500 ferm. Þarna eru að verki hjónin Guð- rún Sigurðardóttir og Sigurbjörn Garðarsson, húsasmiður og bóndi á Leirulæk, en ferðamiðstöðinni hefur verið gefið nafnið Mýrasól. Hönnuður skipulagsins og ferða- miðstöðvarinnar er Páll Björgvins- son arkitekt. Þetta svæði hefur mikla kosti. Þarna eru klettaborg- ir og kjarr frá náttúrunnar hendi og mjög skjólsælt. Samanlagt er allt skipulagssvæðið um 14 hekt- arar Svæðið ætti að hafa mikið að- dráttarafl fyrir hestamenn, en þarna er m. a. stutt í skemmtilegar fjörur, bæði fyrir hestamenn og aðra, en Sigurbjörn hyggst taka að sér hesta í hagagöngu fyrir hestamenn, þannig að þeir geti komið á hestum sínum. Sigurbjörn smíðar sjálfur sumar- húsin á hlaðinu heima hjá sér, en hægt er að fá þau á mismunandi byggingarstigum eða fullgerð. Veggir og þök húsanna eru úr timb- urvirki en klædd með liggjandi bárujárni og panel utan á. Að innan eru húsin klædd með panel og plöt- um. Veggir úr klömbruhleðslu og steinhleðslu eru notaðir til þess að gefa húsunum yfirbragð gamalla tíma, jafnframt því sem þeir eru notaðir sem skjólveggir. Lóðimar undir sumarhúsin eru misdýrar, eftir því hvar á svæðinu þær eru. Vegagerð um svæðið er langt komin, en Sigurbjörn annast hana sjálfur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.