Morgunblaðið - 11.04.1997, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JHtttngttnHftMfe
1997
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL
BLAD
C
Fæst hjá
HANDKNATTLEIKUR
Alfreð Gíslason eftir mikilvægan sigur KA á Aftureldingu í Mosfellsbænum
Mikill léttir
en baráttan
er ekki búin
ALFREÐ Gíslason, leikmaður og
þjálfari KA, var ánægður eftir
sigur á Aftureldingu 29:26 í
þriðja leik liðanna um íslands-
meistaratitilinn í handknattleik
í Mosfellsbæ f gærkvöldi. KA
hefur unnið tvo leiki af þremur
gegn Mosfellingum og getur því
tryggt sér íslandsmeistaratitil-
inn á heimavelli á Akureyri á
morgun, með sigri ífjórða leik
liðanna.
Valur B.
Jónatansson
skritar
Það var mikill léttir að vinna þenn-
an leik,“ sagði Alfreð. „Satt að
segja leist mér ekki á blikuna í byij-
un þegar Afturelding
komst í 6:2 og við
nánast að spila eins
og byijendur. En eft-
ir það small vömin
saman hjá okkur og við beittum hrað-
aupphlaupum með góðum árangri.
Síðan fannst mér að Mosfellingar
hefðu ekki þrek í svona erfiða fram-
liggjandi vöm eins og þeir spiluðu.
Hún tekur gífurlegan toll og var far-
in að þreytast eftir fyrsta stundar-
fjórðunginn eins og við bjuggumst
við. Þá fóm þeir að bakka og réðu
ekki við neitt. Við áttum slakan kafla
í síðari hálfleik eins og svo oft áður
en náðum að rétta úr kútnum í lokin
og tryggja okkur verðskuldaðan sig-
ur,“ sagði þjálfarinn.
Hann sagði að það hafi verið mjög
mikilvægt að sigra í þessum leik,
„en við emm ekki orðnir meistarar
og þurfum að vinna einn leik í við-
bót til þess og það verður erfitt. Ég
var búinn að spá því að þetta færi
í fimm leiki og stend enn við það.
Ég óttast að akureyrskir áhorfendur
og mitt lið nái ekki að einbeita sér
nægilega vel því við höldum að þetta
verði léttara en það er. Afturelding
hefur aldrei unnið okkur á Akureyri
og því telja kannski sumir að þetta
verði öruggt hjá okkur. Ég veit að
það verður erfitt en ég get lofað því
að við þurfum að taka á öllu sem
við eigum ætlum við okkur sigur.
Afturelding er með gott lið og við
höfum ekki efni á að vanmeta það
í þessari stöðu.“
Alfreð hefur aldrei orðið íslands-
meistari og KA reyndar ekki heldur.
„Það hefur verið_ draumur minn svo
lengi að hampa íslandsbikarnum að
ég ætla ekki að leyfa mér að halda
að hann sé loksins að rætast. Það
væri ekkert sætara en að vinna Is-
landsmeistaratitilinn, en reynsla mín
að baráttunni um þennan titil sýnir
annað og því get ég ekki leyft mér
að vera of bjartsýnn,“ sagði Alfreð.
W?wXj£r f í pP*|:
í' yf < ,
ISB:
Morgunblaðið/Golli
KNATTSPYRNA
United íhugar áfrýjun
Otmar
JÚLÍUS Jónasson, landsliðsmað-
ur í handknattleik sem hefur
leikið með Suhr í svissnesku 1.
deildinni í vetur, hefur skrifað
undir tveggja ára samning við
St. Otmar sem leikur í sömu
deild. St. Otmar hefur verið eitt
af þremur bestu liðum Svisslend-
inga undanfarin ár, en þjálfari
liðsins er Daninn Erik Veje Ras-
mussen.
STJÓRN ensku úrvalsdeildarinnar
í knattspyrnu hafnaði í gær ósk
Manchester United um að tímabil-
ið yrði lengt vegna mikils álags.
Síðasta umferð verður 11. maí og
á United eftir sex leiki og a.m.k.
einn Evrópuleik eins og Liverpool,
en Arsenal á fimm leiki eftir. Þessi
þijú félög beijast um Englands-
meistaratitilinn. Tvö síðarnefndu
félögin voru á móti breytingu en
nokkur félög studdu United í mál-
inu. Martin Edwards, formaður
Manchester United, var öskuillur
vegna fyrrnefndrar ákvörðunar,
sagði að stjórnarmenn deildarinnar
hefðu hegðað sér eins og áhuga-
menn, United myndi áfrýja sam-
þykktinni og jafnvel höfða mál.
„Gengið er út frá því að úrvals-
deildin sé besta deild í heimi og
ég hélt að gert væri ráð fyrir að
besta liðið yrði meistari en svo
verður ekki með þessum hindrun-
um,“ sagði Edwards. Hann bætti
við að aðgerðirnar sýndu að
áhugamenn stjórnuðu ferðinni og
áfrýjun væri óhjákvæmileg. „Ef
Knattspyrnusambandið vísar
áfrýjun okkar frá veit ég ekki
hvort við getum farið í mál en við
könnum það því þetta er mjög
alvarlegt."
Geysilegur
fögnuður
KA-MENN fögnuðu vel og lengi
ásamt fjölmörgum stuðnings-
mönnum sínum eftir sigur á Aft-
ureldingu í Mosfellsbæ i gær-
kvöldi. Stemmningin að Varmá
var frábær og staðan er nú þann-
ig að KA getur tryggt sér ís-
landsmeistaratitilinn í fyrsta
skipti á Akureyri á morgun, tak-
ist liðinu að sigra Aftureldingu
í fjórða leik liðanna. Hér er Al-
freð Gíslason, þjálfari og leik-
maður KA, skælbrosandi með
Jakob Jónsson á bakinu.
KÖRFUBOLTI: DAMON JOHNSON BESTURAÐ MATIMORGUNBLAÐSINS / C4