Morgunblaðið - 11.04.1997, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 11.04.1997, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997 C 3 ÍÞRÓTTIR RÓBERT Jullan Duranona hefur verlö geysllega öflugur hjð KA í úrslitarlmmunnl og Einar Gunnar Sigurðs- son ðtti í erfiAleikum með að stöðva hann í gœrkvöldl eins og flelri. Bjarki Sigurðsson eftirtapið Féllum á eigin klaufaskap BJARKI Sigurðsson, leikmaður Aftur- eldingar, náði sér ekki á strik í fyrri hálfleik, átti þá sex skot að marki án þess að skora. „Ég viðurkenni að ég fann mig alls ekki í fyrri hálfleik," sagði Bjarki. Eftir hlé lék hann hins vegar mun betur og sama má segja um liðið í heild. „Við féllum á eigin klaufaskap í fyrri hálfleik. Eftir að hafa náð góðu forskoti fórum við að missa boltann, senda beint í hendurnar á þeim og eins létum við verja of mörg skot frá okkur. Við féllum líka í þá gryfju að hætta að spila sem lið og einstaklingsframtakið fékk að ráða ferðinni. Það var ekki nægilega mikil barátta og samstaða í liðinu í fyrri hálfleik og það reyndist okkur dýr- keypt. Það var erfitt að vinna upp for- skot KA-manna, en við vorum farnir að narta all verulega í hælana á þeim í síð- ari hálfleik og það vantaði aðeins smá heppni til að jafna. Þetta var erfiður leikur og hann tekur gríðarlegan toll, enda var þetta þriðji íeikur- inn á fimm dögum. Það fer auðvitað mikil orka í þetta en það var ekki það sem varð okkur að falli í þessum leik. Ég veit að við getum leikið betur og það gerum við á Akur- eyri á laugardaginn. Við vorum ekki að spila vel í þessum leik og ætlum ekki að láta KA-menn hafa ís- landsbikarinn á Akur- eyri. Við ætlum okkur að mæta þeim í oddaleik í Mosfellsbæ," sagði Bjarki. Þorbjöm Jensson: fer í oddaleik Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari, fylgdist með leiknum í Mosfellsbæ í gærkvöldi. Hann sagði að leikurinn hefði verið spennandi en töluvert um mistök í sókn beggja liða. „Það er ósköp eðli- legt að leikmenn geri mistök í svona leik. Sveiflurnar voru mjög miklar, sér- staklega í fyrri hálfleik. Áfturelding byij- aði af miklum krafti og komst í 6:2 en síðan missti liðið þetta niður og KA hafði yfirhöndina eftir það. Mosfellingar voru oft nálægt því að jafna í síðari hálfleik en heppnin var ekki með þeim. Þó svo að KA hafi unnið þennan leik í Mos- fellsbæ held ég að Afturelding sigri á Akureyri og þessi rimma fari í fimm leiki.“ „Það er mikið í húfi fyrir bæði liðin sem hafa ekki unnið ís- landsmeistaratitilinn áður. Aftureldingar- menn hugsa sem svo að viðureignin á Akur- eyri sé þeirra síðasti möguleiki og því koma þeir mjög grimmir til leiks. Eg hef tekið þátt í svo mörgum svona úrslitaleikjum að þó manni fínnst titillinn vera í höfn er það mesti misskilningur. Hann er ekki í höfn fyrr en það er búið að ná í þriðja sigurinn og það eiga KA-menn enn eftir,“ sagði Þorbjörn. ■ GABRIEL Batistuna, framheiji og fyrirliði Fiorentina, fékk gult spjald í Barcelona í gærkvöldi og missir af seinni leiknum. Fer í eins leiks bann því þetta var annað gula spjaldið sem hann fær í keppninni í vetur. ■ GHEORGHE Popescu hjá Barcelona er á sama báti og Bati- stuta; fékk einnig gult spjald í gær- kvöldi og missir af seinni leiknum. Popescu, sem er rúmenskur landsl- iðsmaður, er fyrirliði Barcelona. ■ NOKKRA snjalla leikmenn vant- aði í lið Barcelona í gær. Miðju- mennirnir Ivan de la Pena og Josep Guardiola voru í leikbanni og verða með í seinni leiknum og þá voru bakverðimir sókndjörfu, Sergi Barjuan og Luis Enrique Mart- inez, báðir meiddir. Reiknað er með að þeir leiki í Fiorentina eftir hálfan mánuð. ■ CESAR Menotti, þjálfari Inde- pendiente í Argentínu, sagði í gær að 90% líkur væru á að hann þjálf- aði Sampdoria á Ítalíu næsta keppnistímabil í staðinn fyrir Sven- Goran Eriksson sem tekur við Lazio. ■ MENOTTI, sem er 59 ára, sagði að fulltrúar Sampdoria hefðu verið í Argentínu í vikunni og samkomu- lag hefði náðst í veigamestu atriðum en hann yrði að taka endanlega ákvörðun fyrir næstu mánaðamót. ■ MENOTTI var landsliðsþjálfari Argentínu 1974 til 1982 og varð liðið heimsmeistari undir hans stjórn 1978. ■ DORTMUND ætlar að sjá til þess að Manchester United ljúki þátttöku í Evrópukeppninni á Old Trafford að þessu sinni. „Margir leikmenn okkar léku þar með lands- liðinu í Evrópukeppni landsliða og sú reynsla kemur okkur til góða,“ sagði Andy Möller, miðjumaður þýska Iiðsins. SÓKNARNÝTING , Þriðji leikur karlaliðanna í úrslitum íslandsmótsins, leikinn í Mosfellsbæ fimmtudaginn 10. apríl 1997. Afturelding Mörk Sóknir % 1 KA Mörk Sóknir % 12 28 43 F.h 15 28 53 14 23 61 S.h 14 23 61 26 51 51 Alls 29 51 57 4 Langskot 12 4 Gegnumbrot 5 5 Hraðaupphlaup 3 5 Horn 2 2 Lína 3 6 Vítí 4 KNATTSPYRNA PSG burstaði Uverpool LEIKMENN París Saint Germain stigu stórt skref að öðrum úr- slitaleiknum f röð í Evrópu- keppni bikarhafa er þeir sigruðu Liverpool 3:0 á Parc des Princes leikvanginum í París ígærkvöldi í fyrri viðureign liðanna f undan- úrslitum. Parísarliðið stefnir að því að ná því takmarki fyrst allra að sigra í keppninni tvö ár í röð. Og strax í byijun blés byrlega fyrir það; Brasilíumaðurinn Leonardo skoraði á 10. mín. í kjölfar slæmra mistaka Davids James, markvarðar enska liðsins. James var aftur um að kenna þegar PSG gerði annað markið þremur mín. fyrir ieikhlé. Honum mistókst að grípa fyrirgjöf frá Jerome Leroy og Benoit Cauet átti auðvelt með að skora. Ekki var hins vegar hægt að kenna James um þriðja markið sem Leroy gerði af stuttu færi á 83. mín. Varnarmað- urinn Cyrille Pouget tætti vörn Liv- erpool í sig, sendi inn að markteign- um þar sem Leroy var óvaldaður og skoraði laglega. „Keppnistímabilið hefur verið David erfitt en honum til málsbóta verð ég að segja að vörn okkar lék ekki mjög vel í kvöld,“ sagði Roy Evans, knattspyrnustjóri Liverpool eftir leikinn í gær. Brasilíumaðurinn Ricardo, þjálfari Parísarliðsins, bar saman gott gengi liðsins í Evrópu- keppni og slæmt gengi í frönsku deildinni. „Við erum eins og annað lið í Evrópukeppninni. Ekki spyija mig hvers vegna, en við verðum að halda okkur á jörðinni og minnast þess að síðari viðureignin er eftir.“ Vörn Liverpool var afleit gegn reyndum ieikmönnum franska liðs- ins, sem var þarna að taka þátt í undanúrslitum í Evrópukeppní fimmta árið í röð. Leonardo var sér- lega góður og var maðurinn á bak við margar hættulegustu sóknir PSG, en hann skoraði fyrsta markið sem fyrr segir og átti stóran þátt í því næsta. Mark hans svo snemma leiks var grunnurinn að svo stórum sigri. „Fyrsta markið var gríðarlegur léttir - við urðum mjög afsiappaðir eftir það,“ sagði markvörðurinn Bernard Lama, sem lék mun betur en starfsbróðir hans hjá Liverpool. Hafði reyndar mun minna að gera. „Þeir voru erfiðir mótheijar í seinni hálfleiknum og þriðja markið skiptir gífurlegu máli því það verður erfitt að sigra þá á Anfíeld," sagði Lama. Liverpool hefur ætíð tapað á úti- velli gegn frönskum liðum í Evrópu- keppni en alltaf sigrað á heimavelli og komist áfram. Nú er hins vegar ljóst að liðið þarf að leika stórkost- lega á Anfield Road að hálfum mán- uði liðnum til að eiga möguleika á að komast í úrslit - og næla í þann eina Evrópubikar sem Liverpool hef- ur aldrei unnið til. „Ekkert gekk hjá okkur í kvöld. Við lékum ekki sem lið, lékum allt of rólega og einstakl- ingsframtakið var mönnum efst í huga,“ sagði Roy Evans, stjóri enska liðsins. „Frammistaða PSG kom mér ekki á óvart því leikmenn liðsins eru mjög hæfileikaríkir. Okkur skorti hins vegar þolinmæði og stolt í leikn- um.“ Fiorentina í góðristöðu GABRIEL Batistuta, argentínski fyrirliðinn hjá Fiorentina tryggði ítalska félaginu jafntefli gegn Barcelona á Spáni í fyrri leik lið- anna í undanúrslitum Evrópu- keppni félagsliða i knattspyrnu. Miguel Angel Nadal kom heima- mönnum yfir skömmu fyrir leik- hlé en Batistuta jafnaði á 62. mín. Nadal skoraði með skalla á 42. mín. eftir aukaspyrnu frá hægri; þessi sterki vamarmaður stökk hæst allra í vítateignum og hamraði knöttinn í netið með höfð- inu. Það kom mjög óvart að ítalirnir lögðu talsverða áherslu á sóknarleik í gærkvöldi. Þeir eru þekktir fyrir flest annað, sérstaklega á útivelli, en hafa greinilega ætlað sér að koma Barcelonamönnum á óvart með því. Það tókst og gestirnir fengu mun betri færi í fyrri hálfleiknum. Bati- stuta, Oliveira, Giulio Falcona og Rui Costa léku allir mjög vel með ítalska liðinu, sem nýtti sér stærð vallarins á Camp Nou leikvanginum mjög vel. Batistuta fékk fyrsta umtalsverða færi leiksins á 15. mín. Argentínu- maðurinn skallaði þá framhjá eftir að hafa skotið sér framhjá varnar- manninum Fernando Couto, Port- úgalanum sem hafði hann í strangri gæslu allan leikinn. Miðað við gang leiksins hefði verið sanngjarnt að Fiorentina hefði forystu í leikhléi, en gestirnir fóru illa með nokkur færi í fyrri hálfleik og mistök í vörn þeirra voru dýrkeypt: Nadal skoraði sem fyrr er lýst. Heimamenn byijuðu seinni hálf- leikinn mun betur. Réðu þá lögum og lofum, Giovanni og Stoichkov fengu báðir ákjósanlegt færi til að skora en mistókst. En segja má að réttlætinu hafi engu að síður verið fullnægt þegar Batistuta jafnaði. Heimamenn voru í sókn en dæmd var á þá rangstaða og ítalirnir voru fljótir að átta sig; komu knettinum í leik og Batistuta fékk langa send- ingu fram völlinn. Hann var í víta- teigsjaðrinum, tók knöttinn snilld- arlega niður með bijóstkassanum og skoraði með þrumuskoti sem markvörðurinn Vitor Baia átti ekki möguleika á að veija. Brasilíumaðurinn Ronaldo - af mörgum talinn besti knattspyrnu- maður heims í dag - hafði sig lítið í frammi í gær. Hann skaut ítölunum þó skelk í bringu einu sinni, seint í leiknum, þegar hann skaut í stöng úr ágætis færi eftir að hafa farið illa með varnarmann. Bobby Robson, þjálfari Barcelona, sendi framheijann Juan Pizzi inná síðasta stundarfjórðunginn, í stað Hristos Stoichkovs sem hafði ekki leikið vel - í þeirri von að hressa upp á sóknarleikinn, en skiptingin breytti engu. Gestirnir sóttu meira undir lok- in og þegar dómarinn blés til merkis um leikslok var Fiorentina í skyndi- sókn, sem virtist geta orðið hættuleg. „ítalir veijast alltaf vel. Leikurinn í kvöld var engin undantekning," sagði fyrirliði Barcelona, Rúmeninn Gheorgie Popescu að leikslokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.