Morgunblaðið - 01.06.1997, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.06.1997, Qupperneq 1
JEPPABLANDA ÚR ÓLÍKUSTU BÍLTEGUNDUM - M-JEPPINN KYNNTUR ÍBANDARÍKJUNUM - BÍLLINN SÓTTUR í AUDI CENTER - ALFA ROMEO 146 REYNSL UEKIÐ Berline ÁRMÚLA 13, SÍMI: 568 1200 BEINN SÍMI 553 1236 fltanQtntiriteMfr 1997 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ BLAÐ Lítill, snöggur, snotur! VERÐ AÐEINS 1.095.000 kr. 879.000 kr. án vsk Nýr Pajero með GDI vél MITSUBISHI Pajero með nýju útliti var kynntur í Tókíó um miðj- an mánuðinn. Bfllinn er með nýja vatnskassahlíf og nýir stuðarar eru að framan og aftan. Megin- breytingin á Pajero er hins vegar ekki sjáanleg íyrr en vélarhlífin er opnuð. Bíllinn er nefnilega með nýrri 3,5 lítra, V-6 vél með beinni strokkinnspýtingu, svokallaðri GDI vél sem verður valbúnaður í bflinn fyrir japanska kaupendur. Ekki er vitað hvort Pajero verður boðinn með þessari nýju spar- neytnu vél í Evrópu. í Japan væntir Mitsubishi þess að selja 4.400 Pajero á mánuði, þar af um 60% með GDI-vélinni. Honda CR-V uppseldur HONDA CR-V jepplingurinn, sem er frumkynntur hjá Honda umboðinu um helgina, er þegar uppseldur hjá umboðinu. Fyrsta sendingin, 30 bílar, seldust áður en formleg kynning hófst á bílnum. Þá er von á tíu bflum til viðbótar 10. júní nk. og eru þeir allir seldir líka. Seinna í sumar koma 30 bílar og segir Geir Gunnarsson hjá um- boðinu að farið sé að ganga veru- lega á þá pöntun. Bfllinn er vel búinn, m.a. sjálf- skiptur og með tveimur líknar- belgjum og kostar 2.270.000 krón- ur. CR-V er stærri en Suzuki Vit- ara og Toyota RAV 4, sem hann mun líklega keppa við á markaði hérlendis. Hann er með sítengdu aldrifi eins og RAV 4 en ekki með millikassa. Prowler smíðaður í næsta mánuði FRAMLEIÐSL A á fyrstu Plymouth Prowler tveggja sæta sportbflunum hefst í næsta mánuði, fimm mánuðum síðar en Chrysler samsteypan ætlaði sér í upphafi. Fyrstu bflarnir verða sendir til um- boðsaðila Plymouth í Bandaríkjun- um sem mesta sölu hafa á stærstu mörkuðunum, svo sem New York, Los Angeles, Texas og Detroit. Ráðgert er að 2 þúsund Prowler bflar verði framleiddir á þessu ári en það nægir ekki til þess að hver einasti umboðsaðili í Bandaríkjun- um fái einn bíl. Talið er að það verði í fyrsta lagi í árslok 1998 sem allir umboðsaðilarnir verði búnir að fó bíl. Chrysler samsteypan átti við- skipti við 2.940 Plymouth umboðs- aðila í byrjun þessa árs. Chrysler tilkynnti fyrir þremur vikum að þessi kraftalegi sportbíll myndi kosta 39 þúsund dollara með afhendingarkostnaði, sem samsvar- ar um 2,7 milljónum ISK. Upphaf- lega áætlaði Chrysler að bíllinn myndi kosta 35 þúsund dollara. Mikill áhugi er íyrir bflnum í Bandaríkjunum og hefur Chrysler borist meira 100.000 íyrirspurnir símleiðis, bréfleiðis eða í gegnum vefsíðu Plymouth á alnetinu. Bfllinn verður framleiddur verksmiðju Chrysler í Detroit, þeirri sömu og Dodge Viper er smíðaður. Framleiðslugetan á þessu ári verður um 2 þúsund bílar. Á fjórða árshlúta þessa árs er þess vænst að framleiðslan verði komin upp í 20 bíla á dag. Á næsta ári ráð- gerir Chrysler að smíðaðir verði 5 þúsund bflar. PLYMOUTH Prowler kostar seni svarar til 2,7 milljóna ÍSK í Bandaríkjunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.