Morgunblaðið - 03.06.1997, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Donovan Bailey borubrattur eftir sigur í
keppninni „fljótasti maðurjarðar"
?fJohnson
er heigull“
Michael Johnson er ekki
spretthlaupari, hann er tvö
hundruð metra hlaupari,“ sagði
Donovan Bailey heimsmethafi í
100 m hlaupi eftir að hann hafði
sigraði í einvíginu „fljótasti maður
jarðarinnar“ í Toronto í Kanada á
sunnudaginn. Þar átti hann í
höggi, í 150 m hlaupi, við Michael
Johnson heimsmethafa í 200 og
400 m hlaupi. Eftir rúma 100 m
hætti Johnson sprettinum og
kenndi um meiðslum á hægra læri.
„Johnson meiddist ekki, hann
hætti sökum þess að hann er
heigull,“ bætti Bailey við.
Beðið hafði verið eftir einvíginu
með mikilli eftirvæntingu og var
því sjónvarpað um allan heim auk
þess sem 35.000 áhorfendur höfðu
keypt miða í sæti í SkyDom höll-
inni til að sjá einvígið. Til þess að
magna spennuna enn frekar höfðu
þeir félagar skipst á köldum kveðj-
um dagana á undan og svo virtist
þegar hlaupið byijaði að Johnson
hefði sigrað í sálfræðistríðinu. En
þar með var ekki sagan öll.
Spenna
Heimamaðurinn Bailey var ós-
part hylltur er hann var kynntur
til leiks en Bandaríkjamaðurinn
Johnson fékk ekki eins hlýjar
móttökur hjá áhorfendum. Það
mátti heyra saumnál detta þegar
skothvellur gall við og kapparnir
geystust af stað. Ljóst var strax
að Bailey hafði fengið betra start
þó hvorugur þeirra sé þekktur fyr-
ir að vera með þeim sneggstu upp
úr rásblokkunum. Bailey var á
innri brautinni sem þótti vera
verra þar sem hann er óvanur
beygjum. Hvað sem því leið var
hann fyrstur eftir 50 m á 57,4
sek. en Johnson með 58,3 og að
loknum 100 m hafði bilið breikkað
- Bailey 10,24, Johnson 10,63.
Þá stakk Johnson við, hætti nokkr-
um skrefum síðar en Bailey hélt
sínu striki allt þar til 10 m voru
eftir að hann leit aftur fyrir sig
og sá að Johnson kom ekki kjölfar-
ið. Kanadamaðurinn fagnaði gríð-
arlega ogtíminn, 14,99 sek., nokk-
uð frá besta tíma sem mælst hefur
í greininni, 14,73 sek., sem Lin-
ford Christie, Bretlandi, á.
Móðgun
„Ég tognaði, því miður,“ sagði
Johnson niðurlútur við hliðarlín-
una eftir hlaupið á meðan hugað
var að meiðslum hans. Hann vildi
ekkert um það segja hvort leikur-
inn yrði endurtekinn. „í augnablik-
inu er heilsan aðalatriði," bætti
hann við og hafði ekkert frekar
að segja.
Hvor þeirra kappa fékk um 35
milljónir króna fyrir þátttökuna
auk þess sem sigurvegarinn fékk
í sinn hlut um 70 milljónir. Bailey
sagði að hlaupinu loknu að hann
teldi ekki miklar líkur á því að ein-
vígið yrði endurtekið. „Eg tel það
móðgun við aðra spretthlaupara í
dag, s.s. Christie, Frankie Frede-
riks, Bruny Surin og Ato Bolton.“
Mike Powell/Allsport
DONOVAN Bailey frá Kanada lítur um öxl er hann nálgast marklö í einvíginu við Bandaríkja-
manninn Michael Johnson og sér keppninaut sinn langt að baki sér.
ÍÞR&mR
FOLK
■ HEIKE Dreschler langstökkv-
ari frá Þýskalandi og bandaríska
stúlkan Jackie Joyner-Kersee
háðu einvígi í langstökki í Toronto
sama kvöld og þeir Bailey og John-
son reyndu með sér í 150 m hlaupi.
Dreschler hafði betur, stökk 6,82
m en Kersee 6,79 m.
■ CHARLES Austin keppti við
Svíann Patrick Sjöberg í há-
stökki, en Sjöberg kom í stað
heimsmethafans Javiers Sotomay-
ors. Bandaríski ólympíumeistarinn
stökk 2,30 m og lét þar við sitja
því Sjöberg virtist vera langt frá
því að vera í góðri æfingu og felldi
í þrígang 2,25 m.
■ EKKERT varð úr einvígi Ser-
keis Bubka og Okkert Brits í
stangarstökki sökum meiðsla
Bubka. Britis mætti til leiks og
atti kappi við Bandaríkjamanninn
Lawrence Johnson. Brits stökk
5,90 en Johnson 5,70 m. Síðan
átti Brits tvær misheppnaðar til-
raunir við heimsmetsjöfnun innan-
húss, 6,15 m.
■ LUDMILA Enquist sigraði
Michelle Freeman í einvígi í 100
m grindahlaupi kvenna, en Free-
man kom í stað Gail Devers sem
er meidd. Enquist byijaði illa, en
átti frábæran endasprett og sigraði
á 12,83 sek., en Freeman kom í
mark á 12,96.
■ FRANK Bussemnn tugþrautar-
kappi frá Þýskalandi er kom öllum
á óvart á Ólympíuleikunum í Atl-
anta í fyrra, er hann hreppti silfur-
verðlaun, sigraði um helgina á tug-
þrautarmóti í heimalandi sínu, hlaut
8.550 stig.
■ LINFORD Christie kom fyrstur
í mark ásamt Jamaíkamanninum
Micheal Green á alþjóðlegu móti
í Hengelo í Hollandi á laugardag-
inn, tími þeirra var 10,23 sek.
■ EL Guerrouj Hicham frá Mar-
okkó hljóp 1.500 m á sama móti á
besta tíma ársins, 3.29,51 mín. og
hafði yfirburði.
■ LOKS tókst Ólympíu- og heims-
meistaranum í kringlukasti karla,
Lars Riedle að sigra í sinni grein
á móti en honum hefur ekki vegnað
sem best fyrri part sumars. Á móti
í Hengleo kastaði hann kringlunni
lengst 65,98 m.
■ KIM Batten heimsmethafi í 400
m grindahlaupi kvenna sigraði í
þeirri grein í Hollandi, hljóp á
54,41 sek og var 71/100 úr sek-
úndu á undan Nezha Bidouane,
Marókkó.
■ ASTRID Kumbernuss heims-
og Ólympíumeistari í kúluvarpi náði
að varpa kúlunni 20,86 í Hengelo,
en það er besti árangur ársins.
Haile Gebrselassie
náði ekki takmark-
inu í Hengelo og
varðaf 70 milljón-
um króna
Tíminn er dýrmætur, en vafa-
laust nagar Haile Gebrse-
lassie, heimsmethafi í 5.000 m
hlaupi, sig í handarbökin fyir þá
rúmu sekúndu sem hann hefði þurft
að hlaupa hraðar í tveggja mílna
hlaupi í Hengelo í Hollandi um helg-
ina. Þar háði hann einvígi við Nour-
eddine Morceli og sá er myndi
hlaupa vegalengdina undir 8 mínút-
um átti að fá í sinn hlut rúmar 70
milljónir króna. Gebrselassie kom
fyrstur í mark á 8.01,08 mínútum,
bætti besta tíma sinn í greininni
hingað til, en það nægði ekki, þrátt
fyrir að vera ákaft studdur af fjöl-
mörgum áhorfendum. Besta tímann
fvrir hlaupið átti Daniel Komen, frá
Kenýa, 8.03,54 mín.
Aðstæður voru allar þær hag-
stæðustu á Hengelo á laugardaginn
til þess að hægt væri að hlaupa
vel. Líkt og þegar Roger Bannister
hljóp fyrstu einnar mílu hlaup und-
ir fjórum mínútum í Oxford árið
1954 lægði vind rétt fyrir hlaupið.
Hlaupið var hins vegar of hægt
allt frá byijun og er á leið heltist
aðalkeppinautur Eþíópíumannsins
úr lestinni þannig að Gebrselassie
varð að hlaupa einn síðustu hring-
ina á vellinum sem margir segja
Phil Cole/Allsport
HAILE Gebrselassie var borinn á gullstól um leikvanglnn í Hengelo eftir tveggja mílna hlaupið
þrátt fyrir að takmarkið, að hlaupa undlr 8 mín., næðist ekki, og kappinn sparaði ekki brosið.
að sér hans heimavöllur. Þar hefur
hann oft hlaupið vel, sett heimsmet
og er þess vegna í miklum metum
hjá heimamönnum.
Hlaupið fór rólega af stað og
kapparnir tveir fylgdust grannt
hvor með öðrum, en forystusauður
hlaupsins, sá er átti að halda hrað-
anum uppi stóð ekki í stykkinu.
Fyrstu 400 m voru hlaupnir á 59,59
sek., og 800 m á 2.00,53 mín. Eft-
ir 1.200 m var tíminn 3.02,04 mín.,
og er það var hálfnað 4.00,77 mín.
Fljótlega upp úr því fór Morceli að
dragast aftur úr og forystusauðirn-
ir hrukku úr skaptinu hver á fætur
öðrum, sá síðasti við 2 km markið
er rúmir 1.200 m voru eftir. Þegar
hér var komið við sögu hafði Morc-
eli einnig hætt keppni og Ólympíu-
meistarinn í 10 km hlaupi og heims-
methafinn í 5 km hljóp einn síns
liðs það sem eftir var. Er 400 m
voru eftir var tími hans 7.00,25 og
ljóst að litlar líkur væri á að tak-
markið, að hlaupa undir 8 mínútum,
myndi nást. Gebrselassie lagði sig
allan fram á síðustu metrunum og
meira segja Morceli var kominn í
hvatningarhópinn, en allt kom fyrir
ekki, það eina sem Gebrselassie
náði að sanna var, að hann er mann-
legur eins og allir aðrir.
Slaney og Farmer-
Patrick í bann
MARY Slaney og Sandra Farmer-
Patrick, tvær af fremstu fijáls-
íþróttakonum Bandaríkjanna, voru
dæmdar í keppnisbann um helgina
af Alþjóða fijálsíþróttasambandinu
vegna ólöglegrar lyfjaneyslu. Báð-
ar féllu þær á lyfjaprófi í júní í
fyrra en vegna seinagangs banda-
ríska fijálsíþróttasambandsins gat
Alþjóðasambandið ekki tekið málið
fyrir fyrr en um sl. helgi. Sýni hjá
Slaney sýndi að hún hafði of hátt
hlutfall testersterones á móti epi-
testosterone. Farmer-Patrick hefur
ekki haft uppi neinar mótbárur og
keppir ekki næstu fjögur árin.
Bandaríska frjálsíþróttasam-
bandið hefur staðfest bannið yfir
Farmer-Patrick en hefur ekki enn
gert svo í máli Slaney. Áður en til
þess kemur verður henni leyft að
bera hönd fyrir höfuð sér og flytja
vörn fyrir dómstól sambandsins.
Þess má geta að báðar fengu
þær að keppa á ólympíuleikunum
í fyrra þrátt fyrir að vitað væri að
þær hefðu fallið á umræddu lyfja-
prófi. Slaney náði sér ekki á strik
á leikunum en Farmer-Patrick var
einn andstæðinga Guðrúnar Arnar-
dóttur í 400 m grindahlaupi og kom
rétt á undan henni í mark í 2. riðli
undanúrslitanna en það nægði
henni ekkitil að koamst í úrslit.
Dýrkeyptsekúnda