Morgunblaðið - 06.06.1997, Qupperneq 1
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997
BLAÐ B
J RADDLAUS, NAKINN OG PIKKFASTUR/2 ■ VÍNLANPIÐ HEIMSÓTT/3 la
SÓLGLERAUGU/5 ■ ÍSLENSK FATAHÖNNUN/5 ■ BÆTT SAMSKIPTI OG
HEILSA/6 ■ EINSTÆÐIR FEÐUR HUNSAÐIR/7 ■ MYNDASAGAN/8
„HVAR ertu í nöglum? spyrja stjörnurnar í
Bandaríkjunum á sama hátt og við spyrjum
gjarnan hver klippir þig? Hjá þeim er afar vin-
sælt að fá sér gervineglur eða naglaskraut," sagði
Hanna Kristín Didrikssen en hún á og rekur
snyrti- og nuddstofu. Hún segist vera búin að
læra svo til allt innan snyrtifræðinnar hér heima
og hefur hún bætt við sig þekkingu erlendis frá.
Öll viðurkenningaskjölin sem hanga á veggjum á
snyrtistofunni eru sönnun þess.
Ásetningu gervinagla og naglaskraut lærði
Hanna Kristín í Bretlandi. I byrjun maí síðast-
liðnum tók hún þátt í opnu bresku meistaramóti í
naglaásetningu og lenti þar í þriðja sæti, en þátt-
takendur voru um eitthundrað.
Mel B hjá Hðnnu Kristínu
„Naglaásetningu- og skraut var ekki hægt að
læra af nokkru viti héma heima. Það var ekki
f'yrr en ég fór á snyrtivörusýningu í Bretlandi ár-
ið 1994 að ég komst í kynni við lítið fyrirtæki sem
heitir Naileplace, en það sérhæfir sig á þessu
sviði. Ég fór í einkatíma hjá konu sem heitir
Karen en hún er framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins“, sagði Hanna Krístín.
Morgunblaðið/Arnaldur
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Eftir að Hanna Kristín kom heim fór hún út
reglulega í tvö ár til að bæta við þekkingu sína.
„I febrúar 1996 komst ég í kynni við Marion
Neyman sem er forseti INA, International Naile
Assoeation. Hún kenndi mér mikið í
naglaásetningu og það var hún sem hvatti mig til
þess að taka þátt í þessu stóra opna meistara-
móti. Marion er mjög þekkt á sínu sviði í Bret-
landi. Hún vinnur mikið með hárgreiðslumeistara
sem greiðir meðal annarra Díönu prinsessu, en
hann og Marion vinna mikið saman fyrir stærstu
tískublöðin eins og Cosmopolitan og Vogue.“
Og nú er Hanna Kristín sjálf farin að vinna fyrir
stjömurnar því Mel B í Spice Girls hljómsveitinni
kom til hennar um daginn. „Ég kynntist „elítunni"
í naglafaginu í Bretlandi hjá Marion, meðal ann-
arra Sue sem hugsar um neglurnar á Mel B. Sue
vissi að hún væri á leiðinni hingað og sagði henni
frá mér. Mel lenti nefnilega í vandræðum með
neglumar," sagði Hanna Kristin og brosti.
Negl
vaxa að vinsæl
i #. « /sr~
\ l\J '
A Grillað lambakjöt
}< Leiktæki fyrir börnin
«r Svalabræður skemmta
JV
}< Stvinar Viktorsson moð þátt Q
sinn í beinni frá Rofabæ á : T —
Við verslun
frá kl 16:00 til 19:00 í daq
t< Þurrkryddaðar qrillsneiðar frá Goða kr. S99,- pr. kq
}< Heimaís frá Kjörís, tveir fyrir einn. Æ i
•& Brazzi frá Sól, tvcir fyrir einn. I j 111 'W
Tilboðþessiqildaaðeinsmeðanlukkustundstenduryfir. ^ Í /*^
fyig-