Morgunblaðið - 06.06.1997, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997 B 5
DAGLEGT LIF
Morgunblaðið/Ásdís
EINSTÆÐIR feður virðast hætta að eiga börnin skrái þeir sig í sambúð.
óðminjasafninu. Sú upphaflega var
er með útskurðarsaumi úr roði.
listakonan. „Það væri gaman að búa
til séríslenska ímynd og sækja fyr-
irmyndirnar í þær hefðir sem við
eigum. Austurríkismenn og
Múnchenbúar eiga til dæmis sér-
staka búninga sem þeir ganga í
dags daglega og ég vona að ís-
lensku búningarnir festist þannig í
sessi. Það verður líka að bjóða er-
lendum ferðamönnum upp á fjöl-
breyttari varning en bara lopapeys-
ur, sem eiga reyndar ekki nema
nokkurra áratuga sögu og voru
hannaðar með hliðsjón af græn-
lensku perlumynstri."
Góð hönnun mikilvæg
Gerla segir að hægt sé að skapa
íslenska ímynd á fleiri sviðum en í
textíl. „Eg held að möguleikarnir
séu miklir og það er hægt að ýta
undir þróun framleiðslugreinanna
með því að veita hönnuðum styrki.
Islenskur textíliðnaður verður til
dæmis að byggja á gæðum og góðri
hönnun en ekki magni, því við erum
ekki samkeppnishæf varðandi vöru-
verð við Asíulönd þar sem launa-
kostnaður er mjög lítill. Það er
nauðsynlegt að framleiðendur geri
sér grein fyrir mikilvægi góðrar og
frumlegi'ar hönnunar, það hefur
komið í ljós að það skilar sér marg-
falt.
Á PAPPÍRUM geta börn skipt um
foreldra án þess að vilja það og for-
eldrar glatað börnunum þrátt fyrir
mótmæli. Ef til vill taka ekki öll
hjón eftir því að í bréfum og reikn-
ingum vegna barnanna er stundum
látið eins og aðeins annað þeirra sé
til. Konan í fjölskyldunni virðist
samkvæmt opninberum stofnunum
vera aðaleigandi barnanna og faðh'-
inn stundum eins og ekki til.
„Mér fannst undarlegt eftir að ég
hóf sambúð, að það var eins og ég
ætti ekki lengur börnin mín,“ segir
Teitur Gunnarsson efnaverkfræð-
ingur því öll bréf og reikningar eru
sendir konunni á heimilinu.
Eiginkona og móðir barnanna
hans varð bráðkvöld og Teitur varð
þriggja barna einstæður faðir sam-
kvæmt kerfinu. Síðai- kynnist hann
annarri konu og hóf sambúð með
henni en þau gerðu með sér sátt-
mála um að hvort þeirra kostaði
eigin börn. Hann var faðir sinna
barna og hún sinna.
„Þá byrjuðu mikil og undarleg
tíðindi," segir Teitur „og fóru
reikningar sem áður voru stílaðir á
mig að vera til sambýliskonu minn-
ar. Allir reikningar vegna dvalar
dóttur minnai' á skóladagheimili á
vegum Reykjavíkurborgar voru
sendir henni. Eg brást við með því
að neita að borga en það var ekki
hægt að prenta mitt nafn á þá.
Faðirinn
hunsaður af
opinberum stofnunum
Loks ákvað forstöðu-
konan að handskrifa
gjaldið á mig.“
Teitur hafði sótt um
pláss á leikskóla fyrir
son sinn en nú tóku bréf
og svör að berast sam-
býliskonu hans. Allir
reikningar frá Dagvist
barna voru svo stílaðir á
hana, þrátt fyrir að hún
væri ekki móðir þeirra
og hefði aldrei verið
nefnd á umsóknareyðu-
blöðum.
„Ég neitaði að borga
reikningana nema þeir
væru á mínu nafni,“ seg-
ir Teitur, „en fékk að-
eins þau svör að kerfið
Hér segir frá
glímu föður
við stofnanir
um að fá
reikninga og
bréf rituð á
sitt nafn og
að geta talist
faðir þeirra
gagnvart til
dæmis
skólum.
væri þannig að það væri
ekki hægt. Hinsvegar
vai- í lagi að taka pen-
inginn beint af greiðslu-
kortinu mínu og varð
samkomulag um það.“
Á kona í skráðri
sambúð öll böm á
heimilinu?
Mál Teits er marg-
þætt bæði er það um
jafnrétti kynjanna rétt-
lætismál gagnvart feðr-
um, sambýlisfólki, hin-
um látnu og fólki sem
hefur slitið sambúð og
síðast en ekki síst börn-
unum.
Núna eru um fjögur
ár síðan nafn hans fór að hverfa af
blöðum merktum börnum hans.
Þegar þau byrjuðu í skóla fyllti
hann út eyðublöð en það er sama
sagan: Bréfi em undantekningar-
laust send til konunnar á heimilinu.
Skattstjórinn í Reykjavík og
Hagstofa Islands vísa hvor á aðra
stofnun þegar Teitur gerir athuga-
semdir. ,yUveg frá framtal 1994 hef-
ur skattstjóri talið börnin á framtali
konunnar en ég á engin börn sam-
kvæmt skattframtalinu," skrifar
hann í bréfi til Karlanefndar Jafn-
réttisráðs í mars síðastliðnum, og
skattframtal eldri sonai' hans fylgir
hennar framtali en ekki foðursins.
„Staðan er sú að allar opinberar
stofnanh', bæði sveitarfélags og rík-
is, telja börnin mín vera sambýlis-
konu minnar, en það er ekki talið
öruggt að ég eigi þau,“ segir hann.
Teitur sættir sig ekki við að eina
leiðin til að vera skráður faðir
barna sinna sé að slíta sambúðinni.
Hann sendi því erindi til Karla-
nefndar jafnréttisráðs.
Nýjustu fréttir eru þær að skól-
arnir senda nú bréfin á nafn Teits.
Hinsvegar er honum sagt hjá emb-
ætti Skattstjórans að samkvæmt
lögum eigi að telja börnin til kon-
unnar á heimilinu hvort sem hún sé
móðir þeirra eða ekki, ef hún er í
skráðri sambúð.
Gunnar Hersveinn
Beðið eftir svari
Ríkisskattstjóra
KARLANEFND Jafnrétt-
isráðs hefur leitað svara
hjá þeim stofnunum sem
Teitur Gunnarsson hefur
átt við að glíma. Blaða-
maður innti Ingólf V.
Gíslason starfsmann eftir
árangri.
„Við sendum bréf til
skattyfirvalda í Reykja-
vík,“ segir Ingólfur „en
þar var vísað á Ríkis-
skattsljóra.11 Karlanefnd-
in hefur sent því embætti bréf en
engin svör hafa borist.
„Við skrifuðum svo Dagvist
bama,“ segir hann. Þar var málið
skoðað og Ingólfur fékk í liðinni
viku svar um að stefnt
yrði að því að stfla öll al-
menn bréf og erindi á
báða foreldra. „Banka-
menn treystu sér hins-
vegar ekki til að rita
báða foreldra á reikn-
inga, einfaldlega vegna
þess að ævinlega sé um
einn greiðanda að
ræða.“
Fram kemur í bréfi
frá Dagvist barna að á
stuttu tímabili hafi nöfn feðra
verið rituð á alla reikninga, en að
því hefði verið mótmælt kröftug-
lega, m.a. vegna feðra sem ekki
byggju lengur á heimilunum.
Ingólfur
V. Gíslason
arangurmn
með hraðvirka brúnkuflýtinum Banana Boat Tan Express
Þú þekkir sólarmargtaldarann Banana Boat Sun Amplifier (magnar sólarljósið), Banana Boat
djúpsóibmnkugelið (dýpri húðlög framleiða einnig sólbrúnku), Banana Boat dökksólbrunkukremið/oliuna
(framkallar svart-brúna sólbrúnku) og sólbrúnkufestinn Banana Boat Dark Accelerator (lengir endingu
sólbrúnkunnar um 7 - 9 vikur). Nú hafa þessir eiginleikar verið sameinaðir i eitt í hraðvirka brúnkuflýtinum
Banana Boat Tan Express. Með Hrað-brunkuflýtinum Banana Boat Tan Express nærðu á mettíma
dýpstu, dekkstu, fallepustu og endingarbestu sólbrúnku sem völ er á. Um leið nærir þú húðina með
A og E vitamíni, sólblomaolíu, Aloe Vera, kókos, kvöldvorrósarolíu og öðru heilsufæði húðarinnar. 6
gerðir: Olía, krem, gel, mjólkur-sprey, sólbrúnkufestandi After Sun lotion og friskandi After Sun spray.
Onnur Banana Boat nýjung: Bitvörnin Banana Boat Bite Block, skordýrafælandi sólkrem með sólvörn
#15.
Banana Boat fæst í vönduðum sólbaðsstofum, apótekum, snyrtivöruverslunum, í öllum heilsubúðum
utan Reykjavikur og í Heilsuvali, Barónsstig 20 í Reykjavík, simar 562 6275 og 551 1275.