Morgunblaðið - 06.06.1997, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LIF
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997 B 7
Þróunarverkefnið „Nýja
barnið" hjá Heilsugæslu-
stöðinni á Akureyri stuðl-
ar að fjölskylduvernd
Sjálfsstyrkur foreldra skiptir
miklu í uppvexti barna
„Það er full þörf á að auka
stuðning í mæðra- og ungbarna-
vernd og einnig við fjölskylduráð-
gjöf ef uppfylla á þær þarfir sem
komið hafa í ljós að eru fyrir
hendi,“ segir Karólína. Nefnir hún
að manna þurfí eina stöðu fjöl-
skylduráðgjafa og eina stöðu í
mæðravernd til að koma til móts
við þessar þarfir, en heimild ekki
fengist til að ráða fleira starfsfólk.
„Að okkar mati er brýnt að
sinna samskiptum innan fjölskyldu
í meira mæli og auka sjálfsstyrk
foreldra, en hann skiptir miklu máli
í uppvexti barna,“ segir Hjálmar.
Þau nefna að betra sé að vinna að
þessum málum í tíma, vinna þannig
fyrirbyggjandi starf áður en í óefni
er komið. Fái foreldrar styrk og
stuðning til að vinna úr erfiðum
málum sem upp hafa komið geti
það komið í veg fyrir erfiðleika á
síðari stigum í uppvexti barna. Þau
leggja áherslu á að á tímum þar
sem vandamál barna og unglinga
fara vaxandi sé öflug heilsugaesla
áhrifamesta og hagkvæmasta leiðin
til að sinna forvörnum og geðvernd
fjölskyldunnar.
Vandamálin ekki meiri
en búist var við
Nýleg neytendakönnun stað-
festir að fólk er yfirleitt mjög
ánægt með þá þjónustu sem það
hefur fengið í tengslum við „nýja
barnið". „Það kom mér að vissu
leyti á óvart hvað fólk er tilbúið til
að nýta sér þessa nýju þjónustu,
fólk er orðið meðvitaðra um að það
er ekki aumingjaskapur að leita að-
stoðar vegna tilfinningalegrar van-
líðunar eða erfiðra samskipta held-
ur þvert á móti afar mikilvægt fyrir
heilsuna bæði til sálar og líkama,“
segir Karólína.
Hjálmar segir að þegar litið sé
yfir farinn veg nú á lokaspretti
þessa verkefnis hafi ekki komið í
ljós meiri vandamál en hann hafi
búist við fyrirfram, en hins vegar
hafi verið auðveldara að nálgast
þau. „Við viljum gjarnan gera enn
betur, auka þjónustu, því það hefur
komið í ljós að fólk vill samfellda
þjónustu. Við teljum að í þessu
verkefni felist nýir möguleikar, for-
eldrar eiga greiðan aðgang að
stuðningi, aðstoð og fræðslu hér á
heilsugæslustöðinni og hún beinist
að því að efla sjálfsstyrk þeiiTa og
auka hæfni þeirra, sérstaklega á
sviði tilfinninga og samskipta."
Að lokum leggja þau áherslu á
að það þurfi samstöðu í samfélaginu
öllu um átak til að bæta stöðu
barnafjölskyldna og auka skilning á
tilfinningalegum þörfum barna.
Var bannfæringin
merki um vanmátt kirkjunnar?
LONGUM hefur verið
litið á bannfæringar
sem tákn um vald og
sterka stöðu kirkjunnar
á miðöldum. Lára
Magnúsardóttir sagn-
fræðingur segir að
bannfæringin hafi verið
varnarvopn sem sífellt
meiri áhersla var lögð á
vegna vanmáttar kirkj-
unnar til að hafa stjóm
á trúarlífi fólks. Lára er
við nám í Háskólanum í
Genf í Sviss og hefur
undanfarið ár unnið að
doktorsritgerð um
bannfæringar. Hún
hyggst bera saman
notkun þeirra á Islandi
og í Frakklandi.
Útskúfun og útlegð
svipaðs eðlis og bann-
færingin er þekkt í nán-
ast öllum trúarbrögð-
um. Bannfæringar
hinnar kristnu kirkju
voru af ýmsu tagi, en oft var greint milli bann-
færingar hinnar meiri og bannfæringar hinnar
minni. Sterkasta bannfæringin þýddi útskúfun
úr samfélagi kristinna manna. Engir kristnir
menn máttu hafa samskipti við þá sem hlotið
höfðu þennan dóm. Þeir sem það gerðu smituð-
ust, talað var um að „sýkjast" eða „sekjast".
Smitið þýddi að þeir voru sjálfir bannfærðir, að
vísu aðeins með bannfæringu hinni minni, sem
ekki var smitandi.
„Mér finnst að mikil áhersla hafi verið lögð á
það í sögukennslu hvað kirkjan hafi verið valda-
mikil og haft tök á öllu,“ segir Lára. „Bannfær-
ingar ei'u eitt af táknunum um þetta mikla vald
kirkjunnar. Sama er að segja um rannsóknar-
réttinn erlendis. En rannsóknarrétturinn var
stofnaður í Frakklandi vegna örvæntingar kirkj-
unnar yfir því að almenningur væri nánast hætt-
ur að vera kaþólskur."
Lára vitnar í þessum efnum til kenninga
enska sagnfræðingsins Bernhard Hamilton um
að rannsóknarrétturinn hafi ekki áorkað miklu á
meginverksviði sínu, sem var að uppræta villu-
trú. Aðrar aðstæður hafi hjálpað til við að út-
lýma hennni, en rannsóknarrétturinn hafi í stað-
inn skilið eftir sig mikla andúð á kirkjunni.
Kirkjuna skorti tök á trúarlífi
„Ég er að nota svipaðar hugmyndir þegar ég
segi að bannfæringar hafi verið varnarvopn
kirkjunnar. Bannfær-
ingin varð sífellt meira
og stærra verkfæri í
höndum kirkjunnar, en
það er ekki vegna þess
að kirkjan hafi verið
valdamikil heldur vegna
þess að hún réð ekki
nógu miklu. í frum-
kristni byggðist bann-
færingin á sjálfviljugri
einangrun þeirra sem
hefðu syndgað. Nauð-
ungin sem seinna kom
til ber vott um vanmátt
kirkjunnar.“
Lára vill einnig að
notkun íslensku kirkj-
unnar á bannfæringum
verði skoðuð í nýju ljósi.
„í íslenskri sögu hefur
verið sagt frá baráttu
kirkjunnar á miðöldum
eins og hún hafi verið
persónuleg barátta ein-
stakra biskupa. Sér-
staklega á þetta við um
frásagnir af Arna Þorlákssyni biskup, sem kall-
aður var Staða-Arni. Hann kom með nýjan
kristnirétt 1275 og kynnir bannsakir upp úr því.
Honum er lýst sem ágjörnum og vondum manni.
Þetta lítur öðruvísi út ef það er skoðað í sam-
hengi við alþjóðlega löggjöf kirkjunnar. Að
mestu leyti virðist barátta íslensku biskupanna
vera byggð á henni, en íslenskii- höfðingjar sáu
hana ekki í því samhengi."
íslensk óhlýðni ólík seriendri
Hugsanlega hafa þó íslensku biskuparnir ver-
ið duglegri við bannfæringarnar en erlendir
starfsbræður þeirra, að minnsta kosti höfðu þeir
til þess umboð, samkvæmt íslenskri túlkun á
kirkjurétti. „Hugtakið contumacia, eða óhlýðni,
virðist hafa verið skilgreint í miklu víðara skiln-
ingi á íslandi, en til dæmis á Englandi og Frakk-
landi. Erlendis var bannfæringu hinni meiri að-
eins beitt ef fólk mætti ekki fyrir rétt eða
óhlýðnaðist dómi, og var slík óhlýðni nefnd
contumacia. Á íslandi virðist hugtakið hafa verið
skilið sem óhlýðni í almennari merkingu þannig
að ef einhver var óhlýðinn við valdsmenn kirkj-
unnar mátti biskupinn grípa til bannfæringar-
vopnsins. Ég veit ekki ennþá hvort þetta hafi
gert það að verkum að raunverulegur munur
hafi verið á notkun bannfæringa hér og erlendis,
en það verður rannsóknarefni mitt næstu árin,“
segir Lára að lokum.
BISKUPSVÍGSLA á 14. öld.
CHARLOTTA María Hauksdóttir.
Ljósmyndir
í Róm og Reykjavík
UNGUR íslenskur ljósmyndancmi í Rómarborg
hefur unnið það sér til frægðar að vera með eina
ljósmyndasýningu á sama tíma í hvorri borginni,
aðra í Reykjavík og hina í Róm.
Listamaðurinn heitir Charlotta Marfa Hauksdótt-
ir, hún er 25 ára gömul og er í þann mund að
ljúka ljósmyndanámi frá Istituto Europeo
di’Design í Róm á Italíu.
Ljósmyndasýningin í Róm mun standa yfir
næstu tvær vikur en hún er liður í lokaverkefni
hennar í skólanum og sýnir sjö myndir af íslensk-
um tvíburasystrum. „Þetta er samsýning nokk-
urra skólafélaga og þemað er í stórum dráttum
lífshamingjan, sagði Charlotta María í samtali við
Daglegt líf.
Myndir hennar skreyta einnig stofu í gömlu
húsi sem eitt sinn var Lækjargata 4 en tilheyrir
nú Árbæjarsafninu í Reykjavík. „Myndirnar eru
tólf og tengjast allar liðnum tíma á einhvem
hátt.“
Charlotta María segir það vera skemmtilega til-
viljun að svona skyldi hittast á. „Auðvitað finnst
mér gaman að þessu en reyndar hafði ég ekki
hugmynd um að sýning stæði yfir á verkum mín-
um í Arbæjarsafni. Eg tók myndirnar um síðustu
áramót og seldi þær síðan safninu."
Gaman 1 Róm
I Róm unir Charlotta María hag sínum vel.
„Þetta er heimsborg en er samt sveitaleg í þeim
skilningi að íbúarnir em mun hlýlegri og vin-
gjarnlegri en í öðmm stórborgum sem ég þekki.“
Hvað framtíðin ber í skauti sér er ennþá
óljóst hjá Charlottu Maríu. „Ég er opin fyrir öllu
en mig langar að koma heim og starfa sem heim-
ilda- eða blaðaljósmyndari. Er nokkuð laust starf
hjá ykkur þama á Morgunblaðinu?“
Wonderland
100%
bómull
Hvérs vegna
Wonderland?
• Vegna þess að Wonderland hágæða
dýnur laga sig fullkomlega að
líkamanum. Þær eru hannaðar á
grundvelli lífeðlisfræðilegrar þekkingar,
og er notað aðeins besta hráefni sem
til er á markaðnum, jafnvel þótt það
sé eilítið dýrara.
• Vegna þess að rammadýnurnar frá
Wonderland eru þannig gerðar
(aftakanlegt áklæði) að þeim má snúa
við og nýta dýnuna báðum megin.
þannig er hægt að dreifa álaginu og
auka endinguna verulega.
• Vegna þess að í Wonderland dýnurnar
eru einungis notuð hráefni sem ekki
valda ofnæmi.
• Vegna þess að Wonderland dýnurnar
eru framleiddar með aðferð sem er
varin einkaleyfi (Europa-patent), en
sú aðferð felur m.a. í sér að fjaðrir og
bólsturefni eru steypt saman i eina
heild. Með þessu móti fæst dýna sem
er mjög þægileg að liggja á og veitir
fullkomna aðlögun og stuðning við
líkamann.
• I dýnunni eru engin laus lög sem geta
gengið til - og engin hætta er á að
tjaðrirnar losni eða núist saman og
brotni.
• Vegna þess að Wonderland veitir
þér lifstiðarábyrgð gegn
fjaðrabroti og 5 ára
heildarábyrgð.
Þú getur verið örugg(ur) þegar
þú velur Wonderland.
Góðan daginn
i
Ómenguð vellíðan
Líkaminn losar sig við um hálfan annan lítra af svita yfir nóttina. Ennfremur setjast
húðagnir og ryk í rúmdýnuna og þar með er rykmaurum, sem geta valdið ofnæmi,
tryggt gott viðurværi. Samt hefur fram að þessu verið nánast útilokað að þvo rúmdýnur.
Lausnin:
Á nýju Wonderland-
dýnunum er slitsterkt 100% ,
bómullaráklæði, bæði á
yfirdýnu og á rúmdýnunni
sjálfri. Áklæðið er auðvelt
að losa af og þvo I þvottavél
við 60 gráður. (Rykmaurinn
drepst við 58 gráður).
Með þessu móti er einfalt
að tryggja fullkomið
hreinlæti.
Poka-
fjaðrir
Náttúru-
latex
Þvottur
við 60”
LFK
ÉSg
Góða
Skeifunni 6, Reykjavik, slmi 568 7733 fax 568 7740
ðSBSSS'SP