Morgunblaðið - 25.07.1997, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 25.07.1997, Qupperneq 4
4 B FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1997 B DAGLEGT LÍF DAGLEGT LÍF AU brugðu sér til Akur- eyrar verslunarmanna- helgina 1990. í göngu- ferð um Innbæinn sáu þau gamalt hús; lúið og vanhirt og illa farið eftir bruna en heillandi engu að síður. í febrúar 1992 fluttu hjónin Ólafur Óskar Óskarsson og Aðalbjörg Hafsteins- dóttir frá Selfossi til höfuðstaðar Norðurlands til þess að gera þetta hús upp. „Við höfum alltaf átt þennan draum,“ segja þau. Mánuði eftir komuna til Akur- eyrar gengu Ólafur Óskar og Aðal- björg ásamt vinahjónum sínum, Auðuni Eiríkssyni og Hrefnu Rún- arsdóttur, frá kaupum á þremur fjórðu hlutum hússins við Aðal- stræti 16. Hluti þess hafði komist í eigu Brunabótar eftir bruna árið 1989, þegar efri hæðin fór illa. „Mér er minnisstætt að Ingi R. Helgason, forstjóri tryggingafé- lagsins, hélt að við værum orðin rugluð að hafa áhuga á þessu húsi, en eftir að okkur hafði tekist að fullvissa hann um að svo væri ekki, reyndist hann okkur ómetanleg hjálparhella," segir Ólafur. Fjórir gámar af rusli Sumarið sem fór í hönd leið við að hreinsa úr hús- inu minjar um fyrri íbúa. „Fjórir gámar af rush og skít,“ segir Ólaf- ur. „Við rifum niður sjö til átta lög af veggfóðri og spónaplötur af veggjum. Sums staðar var þetta þannig að gereft- in við dymar sáust varla. Á gólfunum voru tvö lög af gólfdúk og teppi. Að ótöldu alls konar öðru dóti sem hafði bæst við á níutíu árum.“ Síðasti hluti þessa 400 fermetra húss fékkst loks keypt- ur. I heildina nam kaupverð hússins um þremur millj- ónum króna en eftir kostnaðar- samar endurbæt- ur segja eigend- umir að líklega sé heildarkostnaður farinn að nálgast tuttugu milljónir. „E>ví er ekki hægt að neita að lottó- vinningur sem við fengum stuttu eft- ir að við fluttum til Akureyrar reyndist vel,“ seg- ir Aðalbjörg. „Eg er ekki viss um að við hefðum klofíð þetta í upphafi án hans.“ Auðun og Hr- efna sem keypt höfðu húsið með Aðalbjörgu og Ólafí, drógu sig til baka og önnur hjón komu í púkk- ið; Akureyring- amir Karl Frímannsson og Bryndís Björg Pórhallsdóttir. „Við Karl em vin- ir og skólafélagar úr Iþróttakenn- araskólanum á Laugavatni, sem og reyndar Auðunn," segir Ólafur. „Það er ómögulegt annað en að vera í góðum tengslum þegar farið er út í svona mikla samvinnu.“ Karl og Bryndís vom þama ný- komin heim úr námi frá Noregi, peningalítil eins og lög gera ráð fyrir, en sannfæringarkraftur vin- anna réði úrslitum. „Við brettum upp ermar, tókum fyrir eina hlið í einu að utan, klámðum haustið 1993 og rifum þá vinnupallana af,“ segir Karl. í mars árið eftir fluttu Ólafur og Aðalbjörg á efri hæðina og síðar sama ár fluttu Karl og Bryndís á þá neðri. „Okkur lá svo á að flytja inn að við bjuggum fyrstu vikurnar með einn lítinn vatns- krana, ekkert eldhús og litla sem enga innanstokksmuni. Sváfum á beddum innan um allt draslið," segir Aðalbjörg. Kunnuglegur víxill á milli þilja Við endurbygginguna var helsti höfuðverkurinn að gera hlutina sem best á sem ódýrastan hátt. „Við fengum félaga okkar, tækni- fræðing að mennt, til þess að teikna húsið í uppmnalegri mynd. Síðan fómm við að leita fyrir okkur með smið. Það varð okkur til mik- illar gæfu að vera bent á Hólmstein Snædal. Hann er með vandvirkari mönnum og svo vildi til að hann er fæddur og uppalinn hér í húsinu. Það sama á reyndar við um aðstoð- armann hans og mág, Sverri Mel- dal,“ sagði Ólafur. „Þessum heið- ursmönnum eigum við mikið að þakka.“ Vinna Hólmsteins smiðs er þeim ofarlega í huga og virðingin aug- ljós. „Það kom iðulega fyrir eftir að við höfðum hent einhverju Q FRÁ pallinum framan á neðri hæð hússins er gengið inn í stórt og bjart eldhús. □ ÞAÐ er hugað að hveiju smá- atriði. □ MIKIL VINNA var lögð í að halda upprunalegum hurðum og gólfí. Bækur Karls og Bryndísar sóma sér vel þarna. „draslinu" að Hólmsteinn sendi okkur út eftir því aftur því hann vildi nota það. Til dæmis þetta,“ segir Karl, og bendir á gluggafest- ingai-nar í íbúð þeirra Bryndísar. Til þess að halda kostnaði í lág- marki var samið við smiðina um að þeir sæu um fagvinnuna en þau um niðurrif, tiltelct og annað sem til félli. I raun allt sem ekki krefðist sérfræðiþekkingar. „Vinnan var gífurleg," stynur Aðalbjörg og það er ekki laust við að hópurinn fölni við minninguna. „Við vorum hér á hverju kvöldi þegar dagvinnunni lauk.“ Þau voru ófá handtökin sem þurfti að sinna og talið berst að heyi sem var inni í öllum innveggj- um, möl sem notuð hafði verið sem einangrun milli hæða, sag og spæni milli þilja sem og vinnugalla, dag- blöð og víxla, en Hólmsteinn fann einmitt á milli þilja víxileyðublað sem faðir hans hafði skrifað uppá áratugum áður. „Eg held að gróf- lega talið höfum við eytt um fímm þúsund vinnustundum í húsið,“ segir Karl. Vinirnir veltu lengi íyrir sér skiptingunni þegar kom að því að flytja inn. „Það kom til tals að skipta húsinu þannig að hvor fjöl- skylda væri með kjallara, tvær hæðir og ris,“ seg- ir Karl. „Við íhug- uðum jafnvel að skipta í kross þannig að hvorug lenti alveg í norð- urhlutanum." „Við vorum næstum búin að gera eignaskiptasamn- inginn þegar Hólmsteinn smið- ur komst í málið. Hann tók ekki í mál að húsinu yrði skipt öðruvísi en það er nú,“ segir Bryndís, en þau Karl búa ásamt tveimur ungum sonum, Bjarna og Pétri, í 108 fm íbúð á neðri hæð hússins og eiga einnig stærstan hluta kjallarans sem er 91 fm. Aðalbjörg og Ólafur búa með unglingsdóttur sinni, Þóru, í 146 fm. íbúð á efri hæðinni að við- bættu 50 fm. risi. Talandi um fer- metra, lóðin er litlir 2.500 fer- metrar sem að miklu leyti felast í brattri brekku bak við hús, en lóðarmörkin eru við kirkjugarð bæjarins. Endurbygging gamalla húsa Það væri óðs manns æði að reyna að lýsa á prenti þeim hand- tökum sem þurfti til þess að koma húsinu í lag. Fyrst var húsið tekið í gegn að ut- an, rétt af með þvingum, klætt hátt og lágt; veggir, þakið, smíðaðar svalir, pallurinn rifinn og nýr smíðaður og svo framvegis, og svo framveg- is. „Það var ekki fúavottur á bog- unum við svalirnar þegar við hreinsuðum málninguna af,“ segir Ólafur. „Þetta vekur óneitanlega upp þá spurningu hvað þeir hafi vitað um fúavarnir í gamla daga sem við vitum ekki í dag. Eini hluti hússins sem var virkilega illa farinn, eiginlega ónýtur, var við- byggingin sem bættist við um miðja öldina." Þegar inn var kom- ið snerist málið um að innrétta ■w1 'w1 m ^ Husið í bænum ÞESSAR svalir voru byggðar við húsið þegar það var tekið í gegn. Fyrir neðan þær er aðal- inngangurinn í neðri íbúðina. Frá vinstri eru hjónin Karl Frímannsson og Bryndís Björg Þórhallsdóttir, þá Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Ólafur Ósk- ar Óskarsson og á milli þeirra hjóna dóttirin Þóra. Gomli bærinn i Akureyrl vekwr mkisÉQ |afnt sem erlendrn. Rútvr með utleniisifem: eru alfenf sptt og saga bAssltts við Aðai’ stræti 16 er koitttit inn i prégrammid bp smmmm iesð- safwtstmmitwm* Q BAÐKAR í stíl við húsið. Q VERÐANDI sólstofa í risinu. Q STIGI upp í ris. Til hægri er gamli reykháfurinn. Q GAMALL uppgerður skápur við hlið matarborðsins og dyr inn í stofu. Það stendur hátt og reisulegt, eins og veg- legur minnisvarði um liðna tíma, byggt aldamótaárið 1900. Hanna Katrin Friðrik- sen og Kjartan Þorbjörnsson ljósmyndari bönkuðu uppá á sunnudagsmorgni og töluðu við stolta íbúa húss sem hefur gengið í endurnýjun lífdaga. íbúðirnar tvær alveg sem nýjar en þó með þeim formerkjum að nýta það sem nýtanlegt var. Það er víða verið að gera upp gömul hús í Innbænum, en fjór- menningamir segja þó uppbygg- ingu bæjarins ganga hægt. „Það er smá hreyfing en alls ekki nóg,“ segir Karl og Aðalbjörg tekur und- ir: „Hér eru hús í niðurníðslu sem væri slegist um í Reykjavík." Þau segja að ástæðuna megi að vissu leyti rekja til bæjaryfirvalda, þar sé engin stefna í gangi um viðhald gamalla húsa og líkt og Akureyr- ingar geri sér ekki giæin fyrir því hvað þeir hafi í höndunum. „Það sést kannski einna best á því að hér fyrir framan gamla hverfið er búið að byggja glerhús, þvottahús og nýtísku fjölbýlishús sem gömlu húsin em í felum á bakvið.“ Þau segjast hafa átt í basli með fjármögnunina framan af. „Þegar verið er að endurbyggja þarf fyrst að fjármagna framkvæmdirnar, svo er hægt að sækja um lán hjá Húsnæðisstofnun. Við enduðum hins vegar á því að fara út í svo miklar endurbætur á húsinu að við gátum sótt um nýbyggingarlán. Þessi reynsla sýndi okkur að það er eifitt að standa í endurbótum gamalla húsa og ef vel á að vera þarf Akureyrarbær að stuðla að því að gömul hús bæjarins verði gerð upp. Hér er af nógu að taka,“ segir Ólafur. íþróttir og heilsa Það er fleira sem sameinar vin- ina fjóra en húsið að Aðalstræti 16. Karl og Ólafur starfa báðir sem íþróttakennarar og stjóma auk þess göngu- og hlaupahópum yfir sumartímann ásamt Aðalbjörgu sem er meinatæknir á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri og kennir líka líkamsrækt flest kvöld vikunn- ar. Bryndís er hjúkrunarfræðingur og vinnur líkt og Aðalbjörg á Fjórðungssjúki-ahúsinu á Akureyri. Það er nóg að gera á öllum víg- stöðvum og álagið því mikið á með- an nýtt gamalt hús var í byggingu. „Þetta var erfitt, en við höfðum rosalega gaman af þessu, allan tím- ann. Það var alltaf nýr áfangi að halda uppá,“ segir Aðalbjörg. „Ég gleymi aldrei ánægjunni eftir að hafa lakkað yfir gólfið í þriðja skipti," segir Karl og fjórmenning- arnir rifja upp tilhugsunina. „Eg lagðist á gólfið og harðneitaði að fá húsgögnin inn strax,“ segir Aðal- björg. En húsgögnin eru komin núna. í húsinu við Aðalstræti eru tvær glæsilegar, bjartar og rúm- góðar íbúðir sem greinilegt er að eigendurnir hafa lagt sál sína í. Og húsið við Aðalstræti 16 er aftur orðið bæjarpi-ýði. Morgunblaðið/Rúnar Þór Ef pallinn mætti nota sem gangstétt f bókinni Akureyri, fjaran og innbærinn, sem Torfusamtökin gáfu út árið 1986, er saga húss- ins við Aðalstræti 16 rakin. Sig- tryggur Jónsson snikkari frá Espihóli fékk byggingarleyfið 25. maí á því herrans ári 1900. Hann sótti um að fá að gera tveggja álna breiðar tröppur við austurhliðina á húsinu ásamt palli meðfram húshliðinni. „Ofan á pall þennan vildi hann láta súl- ur ganga úr efsta lofti svo að það gæti orðið tveimur álnum breiðara en neðri hluti hússins. Byggingarnefnd samþykkti ósk- ir hans en áskildi að frá þessu yrði þannig gengið að það yrði til prýði fyrir bæinn, enda mætti nota pallinn sem gangstétt ef á þyrfti að halda.“ Á neðri hæð hússins við Aðal- stræti 16 var tölubúð, skrifstofa og trésmíðaverkstæði Siglryggs auk geymslu og forstofu við AÐALSTRÆTI16 brann árið 1989. bakhlið. Á efri hæð var íbúð Sig- tryggs og á lofti var eitt íbúðar- herbergi auk geymslna. Undir liúsinu var hár hlaðinn kjallari. Húsið komst í eigu Útvegsbanka Islands árið 1934 og var þá selt í hlutum og skipt í fjórar íbúðir. Lýsingunni lýkur svo: „Húsið er stórt og stæðilegt, óvenjulegt að gerð, og setja svalirnar sér- kennilegan svip á það. Húsið er vel viðað og traustbyggt. Þó er húsið mjög illa farið af van- hirðu.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.