Morgunblaðið - 25.07.1997, Side 7

Morgunblaðið - 25.07.1997, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1997 B 7 DAGLEGT LÍF Morgunblaðið/Árni Sæberg ÍSLENSK hús eru kassalaga, vaxlit, nútímaleg, á hverju strái og ófáanleg. Stál og vaxiit steinsteypa Húsin í borginni eru að mati greinarhöfundar annað hvort nú- tímaleg og á hveiju strái eða ófáanleg og úr tré. „Miðbærinn er að stórum hluta ferhyrnt stál eða mýkri vaxlit steinsteypa. Þar búa ungir reykvískir heimsborgarar í sólríkum þriggja herbergja íbúð- um, sem hægt er að leigja fyrir 70.000 krónur á mánuði. Einbýlis- hús í næsta nágrenni fást fyrir 15 milljónir.“ í lokin klykkir höfundur út með setningarkorni sem Austurfaran- um væntanlega þykir hollt að leggja á minnið. „Thetta er stór lax sem thú ert með. Má bjóða thér drykk?“ Fjallað er um Island í 14 síðna grein í ferðatímaritinu Condé Nast Traveler sem út kemur í Bandaríkj- unum í næsta mánuði. Þar er því líkt við skemmtigarð með jarð- fræðisýnum. Kaffihúsin eru þéttsetin mæðr- um með með glæsilega Hermés- trefla og dætrum í gúmfötum. Gamalmenni með „tvíd“-pottlok sitja að tafli og kaupahéðinn hrað- ar sér til vinnu, með hárið blautt eftir morgunsprett í jarðhitalaug- inni. „Og sá sem vill komast til botns í Reykjavík verður að kunna að meta röndótta sólarupprás klukkan þrjú að morgni, kassalaga smáhýsi í leikskólalitum og bjartan klukknahljóm Hallgrímskirkju. Leggðu frá þér myndavélina og líttu í kringum þig!“ Endahnút á lofgjörðina ríður Newsweek, og finnur höfuðborg- inni helst til foráttu að þurfa að bera nafnið fram. „Hvað sem líður ísilagðri eldfjallaauðninni er Reykjavík einn svalasti staður á jarðríki." ísland er skemmtilegt „ÞAÐ er gífurlega mikið fjall- að um ísland um þessar mund- ir,“ segir Einar Gústafsson forstöðumaður skrifstofu Ferðamálaráðs í New York. „Síðastliðinn föstudag var stór grein í USA Today og Condé Nast Travelere r eitt mesta lúxus-ferðatímarit Bandaríkjanna. Maður fær vatn í munninn, íslandsmynd- irnar í næsta blaði eru svo flottar." Einar segir líka verið að undirbúa komu tökuliðs frá fimm sjónvarpsstöðvum til hingað til lands. Island er í tisku um þessar mundir og segir Einar hluta skýringarinnar felast í kynn- ingarherferð skrifstofunnar, sem hefur sent á sjötta tug bandarískra blaðamanna til Reykjavíkur á hveiju ári und- anfarin fimm ár. „Þetta hefur skilað sér í mjög flottri umfjöll- un og maður verður var við mikinn meðvind, sem ekki var áður. Það er ekki minna fjallað um Island en stóru Evrópu- löndin þessa dagana. Þegar átakið hófst var kannski minnst á landið 5-8 sinnum á ári.“ Umfjöllunin skilar sér líka í auknum áhuga bandarískra ferðamanna á að koma til ís- lands einhvern tíma á lífsleið- inni. „Reykjavík þykir sérstök og skemmtileg og íslandi er alltaf lýst á þann veg að gaman sé að koma þangað í heimsókn. Það er til mikið af fallegum og yndislegum stöðum en Bandaríkjamenn vilja skemmtilegheit og umhverfið heima sér til þess. Á íslandi er mikið um að vera, fólk er vingjarnlegt og hresst, allir tala ensku og amerísk menning er sýnilegri en til dæmis í Frakklandi, sem á vel við marga.“ Aldrei kvartað Bandarískum ferðamönnum á Islandi hefur fjölgað um 10.000 síðastliðin fjögur ár og eru nú um 32.000 á ári. Þar af koma 65% utan háannatíma og til algerra undantekninga heyrir að farþegar séu óánægðir. „Það er bara ekki kvartað, sem er alveg einstakt. Island er erfitt að selja, nafns- ins vegna og þeirrar ímyndar sem landið hefur, en þeir sem fara eru oftast gífurlega ánægðir," segir Einar. ■ ,MANNESKJAN getur í raun hjálpað sér ótrúlega mikið sjálf, segir Ingunn Thorarensen. íjórar bækur í flokknum Sjálfs- hjálparbækur - Leiðarvísir - Vasa. Þær heita: 1. Þunglyndi, eftir Sue Breton. 2. Kvíði, fælni og hræðslu- köst, eftir Elaine Sheehan. 3. Lyst- arstol og lotugræðgi, eftir Júlíu Buckroyd. og 4. Sorgarviðbrögð, eftir Úrsúlu Markham, en þær eru allar starfandi sálfræðingar á Bret- landi. Bækurnar eru færðar að ís- lenskum aðstæðum með viðaukum. Eins og útgefendur benda á duga sjálfshjálp- arbækur ekki einar og sér til lækninga. Sérstak- lega ekki þegar um al- varlegri stig sjúkdóma eins og þunglyndis og ________ lystarstols er að ræða. En í þannig tilfellum eru bækumar samt gagnlegar aðstandendum. Einnig má benda á að enginn lækn- ast nema hann vilji það sjálfur og því er heldur ekki nóg að fara til læknis og/eða taka lyf án þess að vinna sjálfur með meðferðinni. Sjúklingur er líka færari um að lýsa sjúkdómi sínum ef hann hefur þekk- ingu á því hvaða myndir sjúkdómur- inn getur tekið á sig. „Svarti hundurinn", eins og þunglyndi er stundum nefnt, er Hjálp til sjálfs- hjálpar hefur alltaf þótt heilladrjúg þess eðlis að hann hamlar því að sjúklingur leiti sér hjálpar. Oft er stutt á milli þess að vera sjúkling- ur og heilbrigður og því veit ein- staklingurinn ekki alltaf hvort eitt- hvað er að eða hvort hann sé ein- faldlega „aumingi“ eins og sumir segja. I bókinni „Hvað er til ráða gegn þunglyndi?" er gerð grein fyrir ólík- um gerðum þunglyndis og öðrum _________ geðrænum sjúkdómum sem fela í sér þunglyndi. Astæður þunglyndis eru skoðaðar - og viðbrögð líkamans og gagnverkun hans á þunglyndi könn- uð- Því er lýst hvemig er að vera þunglyndur og í sjálfsvígshugleiðingum. Síðast en ekki síst eru gefin ráð um hvar hjálp sé að finna, hvernig fjölskylda og vinir geti orðið að liði, hvað sé hægt að gera til sjálfshjálpar og hvernig megi veijast þunglyndi. Bækurnar „Sorgarviðbrögð. Huggun harmi gegn“, „Kvíði, fælni og hræðsluköst" og „Lystarstol og Lotugræðgi" taka á málunum með svipuðu sniði. Ástandi er lýst og flokkað, og spáð í hvað valdi og hvernig vinna megi að bata. Listar em í bókunum með ábendingum um frekari lestur og hvar leita megi hjálpar og svo er greint frá hjálparsamtökum. Glæta við fjallsröndina getur með öðrum orðum gefið von sem hjálpar einstaklingnum yfír verstu hjallana, kunni hann að klifra. Ein er hugpn, ei fær grandað ólgusjór - né fær á skeri dauðans hann í dimmu strandað drottinn sjálfur stýrir kneri. Þetta er lokaerindið í ljóði sem birtist fýrst nafnlaust á forsíðu Þjóðólfs 1872, en síðar kom í ljós að það var eftir Grím Thomsen. Kvæðið, ásamt Sonartorreki Egils Skalla-Grímssonar er að finna í bókinni Sorgarviðbrögð, og getur flokkast með ráðum í bókunum sem nýtast við sjálfshjálpina til lífs án innri hindrana. Hver bók fjallar svo ýtarlega um sérhvern sjúkdóm, bæði á hefðbundinn og óhefðbund- inn hátt. Aðstandendum er engu síður hollt að vita að „Rífðu þig uppúr þessu“ viðkvæðið er frekar fallið til að viðhalda sjúkdómnum en að vera einhver hjálp. „Margir nútímasjúkdómar or- sakast ef til vill af andlegu álagi, streitu, mataræði, mengun og mörgu öðru sem læknavísindin hafa ekki náð nægum árangri í lækningu á. En þetta er nú mikið að breytast og heilbrigðiskerfið er í ríkara mæli að viðurkenna að einstaklingurinn getur líka hjálp- að sér sjálfur," segir Ingunn. „Hluti af vandanum er að al- menningur hér, sérstaklega í dreifbýli, á ekki jafn greiðan að- gang að sálfræðingum og víðast á Vesturlöndum," segir hún, „Tryggingastofnun tekur ekki þátt í kostnaði við sálfræðiaðstoð og verður hann því mörgum þung- ur baggi. Sjálfslyálparbækurnar eru yfirleitt skrifaðar af sálfræð- ingum sem eru viðurkenndir er- lendis sem aðilar sem lækna.“ Bókin um lystarstol er Ingunni greinilega hugfólgin. Bæði er lítið til um efnið og þar eru sagðar sjúkrasögur íslenskra stúlkna. I bókinni er vitnað í Sæunni Kjart- ansdóttur hjúkrunarfræðing, sem hefur rannsakað lystarstol, og kemur hjá henni meðal annars fram gagnrýni á atferlislækningar sem mest er beitt hér. Áherslan í meðferðinni er á að fá stúlkurnar til að borða og verðlauna þær. „En aðalatriðið er ekki fá þær til að borða, segir Ingunn, „heldur þarf að finna orsök lystarstolsins svo var- anleg lækning geti átt sér stað.“ Bókaflokkurinn sem kom út í Bretlandi árið 1996 „sló í gegn“ eins og sagt er. Aðferðir sem þær eru byggðar á hafa líklega skilað góðum árangri, en erfitt er að mæla árangur bókar. Hér komu þær út í apríl og júní og viðbrögð- in verið góð. „En,“ segir Ingunn „auðvitað er þetta þungur róður fyrir litla útgáfu að standa að svona hugsjónaútgáfu. Bækurnar eru forvarnir sem eru hinsvegar til sparnaðar. Ég held að nálgunin á efninu sé þannig að hún lijálpi, komi fólki á sporið og þá ekki síður fyrir að- standendur.“ Eftir spjallið við Ing- unni fer ég út ákveðin í að athuga betur eigið mataræði og ákveðin í að lesa „Létta leiðin til að hætta reyking- um“ eftir Allen Carr, sem heldur námskeið út um allan heim, og ég er jafnvel reiðubúin til að leggja á mig að taka eina matskeið af þorskalýsi á fastandi maga til að komast hjá gigtinni sem liggur í ættarlitningunum. ■ Sálfræði- aðstoð oft þungurbaggi Notaðu aðeins það besta, notaðu TREND snyrtivörur Með TREND nærðu árangri. TREND naglanæringin styrkir neglur. Þú getur gert þínar eigin neglur sterkar og heilbrigðar. TREND handáburður með Duo- liposomes, ný tækni sem vinnur inni húðinni. Einstök gæðavara. Snyrtivörurnar frá TREND eru fáanlegar í apótekum og snyrtivöruverslunum um land allt. •heNiy li\E!SD COSMETICS Einkaumboð og heildsala S. Cunnbjörnsson £ CO, Iðnbúð 8, 2ioCarðabæ. CÁC ÁÍI7 nn ftQ7 7717 Fax cftc ft?!7

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.