Morgunblaðið - 01.08.1997, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
ttgttiwlíwlp
C
1997
FOSTUDAGUR 1.AGUST
BLAD
Fæst hjá
Omar
Evrópu-
meistari
ÓMAR Halldórsson frá Akur-
eyri varð Evrópumeistari ungl-
inga í golfl er hann hafði betur
í viðureign við ítalann Reale
Stefano í bráðabana í keppni
unglinga undir 18 ára aldri í
Torínó í gær. Ómar lék síðasta
hringinn á 74 höggum - sam-
tals 219, en Stefano setti niður
sitt síðasta högg utan af velli,
lék á 75, en jafnaði við Ómar
á samtals 219 höggum.
Ómar varð síðan sterkari í
bráðabana og varð sigurveg-
ari og hann og Stefano
tryggðu sér rétt til að leika í
Rayder-unglingaliði Evrópu,
sem mætir Bandaríkjamönn-
um á Valderama-vellinum á
Spáni í september, eða á sama
velli og Ryder-keppni atvinnu-
manna verður haldin nokkrum
dögum síðar.
Stefán
samdi við
Bayern
STEFÁN Logi Magnússon,
markvörður 18 ára landsliðsins
í knattspyrnu og varamark-
vörður Framara, hefur gert
tveggja ára samning við þýska
stórliðið Bayern MUnchen.
Hann gekk frá félagaskiptun-
um í gær og heldur til Þýska-
lands í næstu viku. Hann mun
æfa með unglingaliði félagsins
næstu tvö árin eða þar til hann
verður 18 ára og mun þá koma
í Ijós hvort hann fær atvinnu-
mannasamning við félagið.
Liverpool
vann Noreg
LIVERPOOL lék æfingaleik
við landslið Norðmanna í Ósló
í gærkvöldi og sigraði, 3:1.
Robbie Fowler kom Liverpool
í 2:0, en varð síðan að yfirgefa
völlinn vegna meiðsla. í fyrstu
var talið að meiðsli hans væru
alvarleg en síðar kom í ljós
að svo var ekki. Þriðja markið
gerði Michael Owen fyrir leik-
hlé en mark heimamanna
gerði Tore Andre Flo.
KNATTSPYRNA
Amór Guðjohnsen
næsli þjálfari Örebro?
SÆNSKA blaðið Expressen greindi frá því í gærkvöldi að margt
benti til þess að Arnór Guðjohnsen yrði næsti þjálfari Örebro-
liðsins, sem hann hefur leikið með síðan 1995. Núverandi þjálf-
ari, Sven Dahlkvist, hefur lýst yfir því að þetta verði síðasta ár
hans sem þjálfari og hyggst helga sig starfinu sem framkvæmda
stjóri félagsins.
GRÆNIR af öfundl Félagl Arnórs skoðar grænu skóna hans,
eftir að hann hafði sett tvö mörk gegn Orgryte á 36 ára
afmælisdegi sínum og var maður lelkslns.
Grétar Þór
Eyþórsson
skrífar
frá Svíþjóö
Forráðamenn Örebro eru þegar
byrjaðir að skyggnast um eft-
ir eftirmanni Dahlkvist og
samkvæmt Expressen er Arnór
langheitasta nafnið
í því sambandi. í
samtali við blaðið
segir Arnór að hann
vilji þó leika knatt-
spyrnu á meðan meiðsli stöðvi
hann ekki, en fái hann beiðni um
að taka við liðinu muni hann að
öllum líkindum segja já eftir eins
og viku umhugsun.
„Eins og málin líta út núna vil
ég starfa sem þjálfari og ég vil
gjarnan starfa í Svíþjóð," segir
Amór.
Stjórn Örebro er þó nokkur
vandi á höndum, þar sem Arnór
hefur staðið sig mjög vel á vellinum
og gerði t.a.m. bæði mörk liðsins
gegn Örgryte á miðvikudaginn
var. Við þeirri spumingu hvort til
greina kæmi að gerast spilandi
þjálfari segir Arnór: „ Vafasamt,
en það gæti þó gengið ef ég hef
mjög dugmikinn aðstoðarþjálfara."
Expressen gefur Arnóri Guð-
Forseta og þjálfara Dinamo sagt upp eftirtapið á móti KR
Skömm að tapa
Fjölmiðlar í Rúmeníu fóru ekki
fögram orðum um frammi-
stöðu liða sinna í Evrópukeppninni
í fyrrakvöld. Þeir segja að Steau
Búkarest hafi bjargað heiðri þjóðar-
innar, en hin rúmensku liðin féllu
úr keppni fyrir minni spámönnum.
Fyrirsagnir á borð við „Svartir dag-
ar“ - „Hneyksli“ og „Skömm“ sáust
í rúmenskum dagblöðum í gær.
Stóra áfallið var hjá Dinamo
Búkarest sem tapaði fyrir áhuga-
mannaliði KR-inga 4:1 samanlagt.
Eftir fyrri leik liðanna í Reykjavík,
sem KR vann 2:0, var þjálfara liðs-
ins, Talnar, vikið úr starfí tíma-
bundið og forseti félagsins, Cornel
Dinu, sem var landsliðsþjálfari
Rúmeníu 1992 og 1993, stjórnaði
liðinu í síðari leiknum í Búkarest.
Eftir leikinn í fyrrakvöld var bæði
þjálfaranum Talnar og forsetanum
sagt upp og í gær var nýr þjálfari
ráðinn í staðinn. Hann heitir Vioral
Hizo (54 ára) og þjálfaði Dinamo-
liðið fyrir tveimur áram áður en
hann tók við Rapid Búkarest.
Árangur KR-inga og ófarir rúm-
enskra knattspyrnumanna hefur
verið í heimspressunni.
Herald Tribune... / C3
johnsen hæstu einkunn fyrir leik
hans gegn Örgryte á miðvikudag-
inn, eða 5 af 5 mögulegum. Arnór
gerði bæði mörk Örebro í 2:0-sigri
gegn Örgryte og var allt í öllu hjá
Örebro-liðinu. Bæði mörkin vora
þramuskot af 25 metra færi.
„Það var gaman að spila og ég
fylltist eldmóði eftir fyrra markið
en það síðara held ég að sé það
besta á öllum mínum ferli,“ segir
Amór við blaðið, sem lýsir leik
Amórs svo: „Fyrir utan mörkin tvö
hélt hann sýningu í þeirri list að
gefa sendingar sem opna vömina
og eins að leika á vamarmenn
maður gegn manni“. Sigurður
Jónsson lék einnig með Örebro í
leiknum og fékk góða einkunn, eða
3 af 5. Stefán Þórðarson sem gerði
jöfnunarmark Öster gegn Nor-
rköping fær einnig góða einkunn
hjá Expressen, eða 3.
Ólafur fær
nýjan félaga
hjá Hibs
ÓLAFUR Gottskálksson,
landsliðsmarkvörður frá
Keflavík, mun leika sinn
fyrsta leik með Hibernian
gegn Celtic í fyrsta leik liðs-
ins í úrvalsdeildiimi í Skot-
landi á sunnudaginn, á East-
er Road í Edinborg. Annar
nýliði mun einnig leika -
franski leikmaðurinn Jean-
Marc A^jovi-Boco, sem Hibs
keypti í gær frá franska lið-
inu Lens. Boco er varnar-
leikmaður, sem getur einnig
leikið sem miðvallarleik-
maður. Leikurinn verður
sýndur beint í sjónvarpi í
Skotlandi.
KNATTSPYRNA: FRAKKAR VÖRÐU EVRÓPUMEISTARAHTIUNN í LAUGARDAL / C3