Morgunblaðið - 17.09.1997, Page 1
BLAÐ ALLRA
LANDSMANNA
1997
f$Uj>trgttttM«i&ít>
■ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER
BLAÐ
Ajax í kröppum dansi
AJAX varð að gera sér 1:1 jafntefli að góðu á útlvelii gegn Marlbor frá Slóveníu. Flnninn Jari Litmanen jafn-
aðl metin fyrir hollenska stórllðið á 66. mín. Hér glímir Michael Laudrup við varnarmenn Maribor í leiknum.
■ Evrópukeppnin / C3
Eyjamenn fá
Litháa
LIÐIÍBV í efstu deild karla í handknattleik,
Nissan-deildinni, sem hefst í kvöld, mun ber-
ast liðsstyrkur frá og meðfimmtu umferð-
inni, þann 15. október, er ÍBV heimsækir
Breiðablik. Gengið hefur verið frá samningi
við litháiska ieikmanninn Robertas Pauzuolis,
en hann leikur með Granitas Kaunas í Lithá-
en, sem mætir KA í Evrópukeppni meistara-
liða í byijun október og svo aftur um miðjan
mánuðinn. Pauzuolis hefur leikið 42 landsleiki
og gert 191 mark í þeim. Hann lék meðal
annars gegn íslendingum í HM í Japan og
gerði þá tvö mörk, annað úr vitakasti. Hann
er 25 ára gamall, tveir metrar á hæð og getur
Ieikið í ölium stöðunum þremur fyrir utan.
Magnús leikur
ekki með UMFA
LJÓST er að linumaðurinn Magnús Már
Þórðarson leikur ekki með Aftureldingu í
kvöld í 1. umferð 1. deildar karla í handknatt-
leik, en þá heimsækja Mosfellingar leikmenn
Víkings í Víkinni. Ekki hefur enn tekist sam-
komulag á milli Aftureldingar og IR um skipti
Magnúsar úr ÍR, en Magnús er samningsbund-
inn IR næstu tvö árin. Vijji Aftureldingar er
hins vegar til þessað kaupa upp samning
Magnúsar við IR. ÍR-ingar hafa hins vegar
ekki verið tilbúnir til þess að sögn Jóhanns
Guðjónssonar, formanns handknattleiksdeilar
UMFA.
„Formaður og gjaldkeri handknattleiks-
deildar ÍR koma til landsins á morgun [í dag]
og vonandi finnum við flöt til lausnar mál-
inu,“ sagði Jóhann í samtali við Morgunblaðið
í gær. „Við leggjum á það ríka áherslu að
málið Ieysist fyrir næstu mánaðamót. Takist
það ekki er málið úr sögunni af okkar hálfu
og Ijóst að ekkert verður af því að Magnús
leiki með okkur á þessari leiktíð."
Rögnvald og
Stefán dæma úti
RÖGNVALD Erlingssyni og Stefáni Arnalds-
syni hefur verið falið að dæma þijá Ieiki í
Evrópukeppninni í handknattleik. Hinn 4.
október nk. dæma þeir fyrri viðureign þýska
liðsins THW Kiel og Porto frá Portúgal, en
hún fer fram í Kiel.
Þeir fara skammt út fyrir borgarmörkin
daginn eftir til að blása í flauturnar í fyrri
leik Flensburg-Handewitt og franska liðsins
Montpellier. Báðir leikirnir eru í Evrópu-
keppni félagsliða. Þeir munu að auki sjá til
þess að reglum verði fylgt í síðari viðureign
Olimpija Ljubljana og norka liðsins Bækkelag-
et í Slóveníu hinn 12. október nk.
HANDKNATTLEIKUR
Wuppertal sigraði þýska landsliðið en ástandið í herbúðum liðsins er þó ekki gott
„Eilrf vandræði
með svo margt"
WUPPERTAL, sem Viggó Sigurðs-
son þjálfar í þýsku 1. deildinni í
handknattleik, sigraði landslið
Þýskalands í vígsluleik nýrrar
íþróttahallar í Wuppertal í fyrra-
kvöld, 24:23. En þrátt fyrir að vel
gangi innan vallar er ástandið ekki
gott hjá félaginu, að sögn Viggós.
Ólafur Sigurðsson gerði 7 mörk,
Geir Sveinsson 4, Dagur Sigurðsson
3 og Dmitrí Filippov, fyrrum leik-
maður Stjörnunnar gerði 5, þegar
Wuppertal sigraði landsliðið.
Viggó hefur átt í harðvítugum
deilum við framkvæmdastjóra Wup-
pertal-liðsins, Meister að nafni, um
nokkurt skeið, en Meister er einnig
aðalstyrktaraðili félagsins og ræður
flestu varðandi liðið.
Fyrst slettist upp á vinskapinn
hjá þeim Viggó og Meister í fyrra-
vetur, og segir Viggó að ástandið
hafi verið slæmt síðan. „Við vorum
með tíu leikmenn á æfíngum fram-
an af undirbúningstímabilinu í sum-
ar; Meister segir að við þurfum
ekki fleiri því ég notaði ekki nema
átta menn í leikjunum í fyrra. Ég
sagði á móti að ég þyrfti að geta
stillt upp í tvö lið á æfingum, en
það breytti engu. Svo meiddust tveir
á fyrstu 10 aögunum eftir að-æfing-
ar hófust og Norðmennirnir tveir -
sem komu til félagsins í sumar -
eru komnir í leikbann, þannig að
ég hef ekki verið með nema sex
útileikmenn í öllum æfingaleikjum,"
sagði Viggó við Morgunblaðið í
gær.
Norðmennirnir, Stig Rask og
Sjor Tollefsen, eru í eins mánaðar
leikbanni vegna „klúðurs hjá Wup-
pertal" eins og Viggó orðaði það.
Vandræði voru vegna félagaskipta
þeirra, og eftir að þeir léku í æfinga-
móti með Wuppertal í Belgíu á dög-
unum voru þeir settir í leikbann.
Viggó segir þá þó aðeins missa af
tveimur leikjum í deildinni en fyrsta
leik liðsins í deildinni, sem átti að
vera um síðustu helgi, var frestað.
Wuppertal leikur í Minden á laug-
ardag og kvaðst Viggó aðeins fara
með átta útileikmenn þangað (auk
tveggja markvarða) og einn þeirra
yrði Þröstur Helgason, fyrrum leik-
maður Víkings, sem alla jafna leik-
ur með B-liði Wuppertal, sem er í
3. deild.
Viggó segir erfitt að starfa hjá
félaginu við þessar aðstæður. „Eg
hef gagnrýnt [Meister] því það eru
eilíf vandræði með svo margt; til
dæmis íbúðir fyrir nýju leikmennina
og hallir til að æfa í, ég hef jafnvel
þurft að ýta á eftir launagreiðslum
til strákanna. Ég hef staðið uppi í
hárinu á honum og hef fullan stuðn-
ing þeirra forráðamanna sem koma
frá LtV, eldra rótgrónara félaginu
í borginni,11 sagði Viggó, en Wup-
pertal er sameiginlegt lið tveggja
félaga. „Ég hef fullan stuðning allra
frá LtV og jafnvel er talað um að
samstarfið verði ekki langlíft. Þeim
finnst Meister nefnilega hafa náð
of miklum völdum, og hann hefur
bolað nánast öllum starfsfmönnum
LtV í burtu.“
HAIMDKNATTLEIKUR: AFTURELDIIMGU OG HAUKUM SPÁÐ EFSTA SÆTIIMU / C3