Morgunblaðið - 24.09.1997, Side 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
T
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997 C 3
HANDKNATTLEIKUR
HANDKNATTLEIKUR
„Hef verið lengi
á leiðinni heim“
„Það hefur alltaf verið draumurinn hjá mér að
enda ferilinn heima - ég hef veríð lengi á leið-
inni heim,“ sagði Júlíus Jónasson, þegar Sig-
mundur O. Steinarsson þáði morgunverðarboð
hans á dögunum í bænum Gossau fyrir utan
St. Gallen í Sviss. Júlíus leikur þar með liðinu
St. Otmar, sem er til alls líklegt í vetur.
Duranona leik-
ur sinn 25.
landsleik
RÓBERT Julian Duranona
leikur sinn 25. landsleik gegn
Sviss í kvöld. Hann lék sinn
fyrsta landsleik í Sviss fyrir
rúmu ári, er íslendingar unnu
Svisslendinga 23:21 í Aarau.
Þorbjöm sigursæll
gegn Sviss
ÞORBJÖRN Jensson lands-
liðsþjálfari veit ekki hvað það
er að tapa fyrir Svisslending-
um. Hann lék sex landsleiki
gegn Sviss áárunum 1982 til
1985 án þess að tapa og
stjómaði landsliðinu í tveimur
sigurleikjum í Sviss fyrir
rúmu ári.
Tveir leikir í
Sursee
Seinni leikm• íslands og Sviss
verður I Sursee á sunnudag-
inn. Bærinn er norð-vestur af
Luzern. ísland hefur leikið tvo
landsleiki þar áður, en ekki
gegn Svisslendingum. íslenska
landsliðið tók þátt í móti í
Sviss 1989 og lék þá gegn
Sovétmönnum og A-Þjóðverj-
um í Sursee. Báðir leikimir
töpuðust - 32:28 og 27:25.
Þrír leikmenn sem nú em í
landsliðshópnum léku þessa
leiki; Guðmundur Hrafnkels-
son, Valdimar Grímsson og
Bjarki Sigurðsson.
Þegar ég kom á heimili Júlíus-
ar, var hann nýkominn frá
bakaranum til að höndla glóðvolg
rúnstykki - og ilmandi kaffilykt
barst úr eldhúsinu. „Eigum við
ekki að setjast út á svalir í góða
veðrið?“ sagði Júlíus og ég þáði
boðið. Júlíus var einn heima, þar
sem eiginkona hans, Helga
Helgadóttir og sonurinn Alexand-
er Orn, sem er að verða Jmggja
ára, brugðu sér heim til Islands.
Það liggur beinast við að spyija
Júlíus hvernig hann kunni við sig
hjá nýju félagi? „Ég kann mjög
vel við mig hér hjá St. Otmar, sem
er mjög gott og vel skipulagt lið,
sem hefur góða leikmenn í her-
búðum sínum. St. Otmar er eitt
af bestu liðunum hér í Sviss og
hefur stefnan verið sett á meist-
aratitilinn. Þá er liðið í Evrópu-
keppni, þannig að það er mikið
um að vera hér hjá okkur. Ég hef
ekki leikið í Evrópukeppninni i
fjögur ár, eða síðan ég varð Evr-
ópumeistari með Valencia. Það
er spennandi verkefni framundan
og markið er sett hátt,“ sagði
Júlíus, sem kom til St. Otmar frá
öðru svissnesku liði Suhr, sem
hann lék með eitt keppnistímabil.
Júlíus kom til liðsins frá Gum-
mersbach, sem vildi fá hann aftur
til sín.
„Mér fannst það meira spenn-
andi að vera hér í Sviss og leika
með mjög góðu liði, heldur en að
fara aftur til Gummersbach, en
mikil óvissa var hjá liðinu þegar
það vildi fá mig aftur. Að sjálf-
sögðu er alltaf gaman að leika í
Þýskalandi, þar sem handknatt-
leikur hefur verið á mikilli upp-
leið. Liðin í Þýskalandi hafa verið
að kaupa marga af bestu hand-
knattleiksmönnum heims frá
löndum eins og Frakklandi, ís-
landi, Þýskalandi, Tékklandi,
Króatíu, Júgóslavíu, Rússlandi,
Hvíta-Rússlandi, Svíþjóð, Noregi
og Danmörku.
Munurinn að leika í Sviss eða
Þýskalandi er sá að það eru mun
færri atvinnumenn hér í hveiju
liði. Hér eru leikmenn sem vinna
með og eru í námi,“ sagði Júlíus,
sem leikur undir stjórn Danans
Erik Veje Rasmussen, sem leikur
einnig með liðinu. „Erik Veje er
ótrúlega frískur þó að hann sé
orðinn 38 ára. Hann hefur engu
gleymt og er með betri leikmönn-
um í Sviss. Erik Veje leggur mik-
ið á sig bæði á æfingum með
okkur og þá æfir hann aukalega.
Hann er mjög góður þjálfari og
er fljótur að vinna traust leik-
manna, enda er maðurinn með
afbrigðum léttur og skemmtileg-
ur. Það er mjög létt yfir öllum
æfingum hjá honum, en æfing-
arnar byggjast mikið upp á dönsk-
um leikjum. Léttleiki svífur hér
yfir vötnunum. Mér finnst mjög
gaman að starfa með þessum
gamla ref.“
Hugsað vel
um leikmenn
Það sagði mér svissneskur
blaðamaður er ég hitti hann á
HM í Kumamoto, að St. Otmar
væri framtíðariiðið í Sviss. Hvað
segir þú?
„Forráðamenn liðsins hafa ver-
ið að vinna vel. Öll umgjörð í
kringum liðið er eins og hjá góð-
um liðum í Þýskalandi - það er
hugsað vel um leikmenn. St. Otm-
ar er gamalt og rótgróið félag,
sem hefur náð að festa sterkar
rætur í svissneskum handknatt-
leik og á undanförnum þremur
árum hefur liðin verið uppleið
eftir smá lægð.“
Hvernig fyrirkomulag er á
deildarkeppninni í Sviss?
„Það er ekki ósvipað og heima.
Fram að áramótum er keppt í
deildarkeppninni, en eftir áramót
hefst úrslitakeppni. Átta efstu lið-
in af tólf fara í úrslitakeppnina,
þar sem liðin leika með deildarfyr-
irkomulagi heima og heiman.
Fjögur efstu liðin í þeirri keppni
S ísland - Sviss E3I
Ár Leikstaður Urslit
1961 HM í Þýskalandi 14:12
1974 Winterthur í Sviss 21:21
1976 Akranesi 18:20
1976 Reykjavík 24:18
1982 Júgóslavía 22:22
1983 B-keppni í Hollandi 19:15
1984 Otten í Sviss 18:14
1984 Aarau í Sviss 18:16
1984 ÓL í Los Angeles 26:16
1985 Luzern í Sviss 26:17
1987 Reykjavík 20:16
1987 Reykjavík 17:15
1987 Aarau í Sviss 19:18
1987 Noregur 24:21
1987 Danmörk 22:22
1988 Reykjavík 19:20
1989 B-keppni í Frakklandi 19:18
1989 St. Gallen í Sviss 18:22
1990 Reykjavík 77:77
1990 Reykjavik 25:21
1991 Spánn 22:17
1992 B-keppni í Austurriki 22:21
1993 Frakkland 28:26
1995 HM í Reykjavík 21:24
1996 Aarau í Sviss 23:21
1996 Wettingen í Sviss 27:26
LAND
hefur Hsfl
hetur _ a r r
mm ^VI I
Árangur í landsleikjum gegn Sviss
LEIKIÐ Leikir U J T Mörk Hlutfall
Á íslandi 8 4 13 166:156 56%
í Sviss 8 6 11 170:155 81%
Á hlutlausum velii 10 8 2 0 218:190 90%
Samtals: 26 18 4 4 554:501 77%
fjfe Krístján Stefánsson, FH, skoraði fyrsta markið gegn Sviss
í Wiesbaden á HM íÞýskalandiáríð 1961
leika síðan með bikarfyrirkomu-
lagi - undanúrslit. Sigurvegar-
arnir jeika síðan um meistaratitil-
inn. Ég sé ekki annað en keppnin
verði spennandi í vetur, þar sem
mörg lið hafa verið að styrkja sig
verulega frá síðastliðnu keppnis-
tímabili. St. Otmar tapaði í úrslit-
um fyrir Winterthur sl. keppnis-
tímabil og flestir veðja á þessi lið
og einnig kemur Schaffhausen til
með að blanda sér í baráttuna.“
Kynslóðaskipti
Hvað með landslið Svisslend-
inga, sem leikur gegn íslending-
um í undankeppni EM?
„Það eru kynslóðaskipti hjá
Svisslendingum. Nýr þjálfari hef-
ur tekið við stjórninni og þá eru
margir undir leikmenn komnir í
liðið, sem hafa enn ekki öðlast
nægilega reynslu. Við getum ekki
vanmetið Svisslendinga og reikna
ég með tveimur hörku leikjum
þegar við mætum þeim. Ég er
alltaf bjartsýnn og hef trú á að
Þrír leikmenn hafa skorað 11 mörk I landsleik gegn Sviss:
Aifreð Gíslason i Klopp í Noregi 1987, Sigurður Sveinsson
i Besancon í Frakklandi 1993 og Ólafur Stefánsson í Aarau 1996.
Sigurlíkur
aukast
við komu
Júlíusar
„VIÐ urðum að sætta okkur við ann-
að sætið á síðasta keppnistbnabili.
Nú þegar Júiíus er kominn til okkar
aukast líkumar á að við getum snúið
dæminu við og orðið meistarar,“
sagði hinn síungi danski landsliðs-
maður Erik Veje Rasmussen, sem er
38 ára og enn i fullu fjöri sem þjálf-
ari og leikmaður með St. Otmar.
Erik Veje er að hefja sitt fjórða
keppnistímabil með St. Otmar og
hann segir að það sé sitt síðasta.
„Vonandi næ ég að snúa heim sem
meistari. Við hjónin erum með þrjú
ung böm og nú er komið að því að
sonurinn sem er að verða sjö ára,
þarf að byija í skóla heima í Dan-
mörku. Okkur hefur likað vel hér hjá
St. Otmar - það eitt að hafa verið
hér í þijú ár segi sína sögu um það.
Ég hef verið heppinn með leikmenn
og þá er liðið mjög vel rekið af dug-
legum og áhugasömum mönnum."
Erik Veje og fjölskylda, eiginkonan
Hanne og börnin þijú, Nikolay, Matt-
hilde og Sara, ætla að koma sér fyrir
út í sveitinni um 100 km frá Kaup-
mannahöfn, þar sem hann byggði hús
í litlum bæ. Hann er 38 ára gamall
og hefur leikið með liðum fyrir utan
Danmörku í sextán ár - hóf að leika
með Bjarna Guðmundssyni hjá Nett-
elstedt í Þýskaiandi, lék síðan með
Gummersbach og Essen áður en hann
hélt til Sviss. Ætlar hann að halda
áfram að leika handknattleik í Dan-
mörku? „Það veit ég ekki - hef
enga ákvörðun tekið. Ég reikna þá
fastlega með að ég taki að mér þjálf-
un þegar ég sný heim,“ sagði Erik
Veje, sem er búinn að leika hand-
knattleik síðan hann var sjö ára, 16
ára hóf hann að leika mcð meistara-
flokki.
Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson
JÚLÍUS og Erlk Veje Rasmussen - norrænu víkingarnir hjá St. Otmar í Sviss.
við náðum að leggja Svisslend-
inga að velli.
Það eru fimm svissneskir
iandsliðsmenn sem ieika með mér
hjá St. Otmar og höfum við lengi
verið að ræða um leikina og skjóta
ýmsum skotum í sambandi við þá.
Svissneska landsliðið hefur undir-
búið sig vel fyrir leikina gegn
okkur - liðið hefur komið saman
einu sinni í viku í langan tíma og
þá leikur liðið tvo leiki við Pól-
veija áður en það kemur heim.“
Viss kostur að leika
með landsliðinu
íslenska landsliðið á möguleika
á að tryggja sér rétt til að_ taka
þátt í úrslitakeppni EM á Ítalíu,
ef liðið verður í einu af tveimur
efstu sætunum í riðlakeppninni,
þar sem leikið er gegn Sviss, Lit-
háen og Júgóslavíu. Á Italíu er
leikið um sex til sjö sæti á HM í
Egyptalandi 1999. Hefur Júlíus
hug á að komast til Egyptalands,
þar sem iandsliðið getur endur-
tekið leikinn frá því í Kumamoto
eða jafnvei gert betur?
„Ég er ekki farinn að hugsa
svo langt. Ég ætlaði mér upphaf-
iega að hætta með landsliðinu
eftir HM heima 1995, síðan var
stefnan að hætta eftir HM 1997.
Valur,
Reykjavík,
-1989
Júlíus Jónasson
á ferh og flugi /fe
, frá 1989
ÞÝSÍ^ALAND
■ / Giimmersbach,
Asnieres, . ) .© C^ersbach'
París, 1989-91 \\\ 11994-96
Paris St.Germain-^snieres,-—Æ ///llj „ JE . r iooA 97
FRAKKLAND ///) 4^ÍS|i99l
Bidasoa,
Irún, 1991-
Ji*
J
Lí , ®Avidesa,
kSPANN, Valencia,
Eins og þú sást í Kumamoto þá
gekk vel hjá okkur - það var
gaman að taka þátt í ævintýrinu
þar með mjög góðum félögum.
Eftir það tók ég þá ákvörðun að
gefa kost á mér áfram - að
minnsta kosti út þetta keppnis-
tímabil. Það er ljóst að á einhveij-
um tímapunkti þarf Þorbjörn
Jensson, landsliðsþjálfari, að fara
að yngja lið sitt upp - að losa
sig við okkur þessa gömlu. Þó við
eldri höfum getu og krafta til,
verður Þorbjörn að fara að hugsa
um framtíðina - taka yngri leik-
menn inn og láta þá öðlast reynslu
áður en út í alvöruna verður farið.
Það eitt að fá að vera með
landsliðinu. Það er viss kostur
fyrir okkur leikmennina sem erum
í útlöndum að leika með landslið-
inu. Við fáum tækifæri til að hitt-
ast og fara heim, komum síðan
aftur út endurnærðir. Þetta er
mikil tilbreyting fyrir okkur. Á
meðan ég hef gaman að því að
leika handknattleik og hef krafta
til þess, mun ég leggja mig fram
í þau verkefni sem ég er valinn.
Það segir enginn að leikmenn eigi
að hætta á ákveðnum aldri. Eg
tel að það eigi að gefa leikmönn-
um sem eru komnir á aldur tæki-
færi til að draga smátt og smátt
saman seglin. Til dæmis með því
að æfa aðeins minna og leggja
áherslu að þeir skiii öðruvísi hlut-
verki en áður til liðsins. Að leik-
mennirnir séu ekki alltaf aðal-
mennirnir, heldur að finna þeim
ákveðið hlutverk í vörn eða þá
sókn.“
Lengiá
leiðinni heim
Júlíus hefur verið atvinnumað-
ur í Frakklandi, á Spáni, í Þýska-
landi og Sviss síðan hann gerðist
leikmaður með Parísarliðinu
Asnieres 1989. Hann hefur oft
sagt að hann ætli að ljúka hand-
knattleiksferli sínum heima. Er
Júlíus farinn að búa sig til heim-
ferðar?
„Ég hef verið nokkuð lengi á
leiðinni heim - bætt við árum á
erlendri grund. Ég gerði tveggja
ára samning við St. Otmar. Þegar
samningurinn rennur út er aldur-
inn farinn að segja til sín. Þar sem
það hefur alltaf verið minn
draumur að enda ferilinn heima,
er skemmtilegra að vera vel frísk-
ur til þess. Ég vil segja sem
minnst að þessu sinni - ég sé til
eftir tvö ár hvernig ástandið verð-
ur. Hvort ég verð þá tilbúinn að
snúa heim. Með hveiju árinu sem
ég er úti styttist í heimferðina.
Maður þarf að fara að stíga það
skref að fara að huga að öðru en
handknattleik. Því fyrr sem það
er gert, því betra.“
Styrkjast og öðlast mikla
reynslu í atvinnumennsku
Júlíus sagði að hann hefði farið
í gegnum strangan skóla sem
handknattleiksmaður, að hafa
leikið í Frakklandi, Þýskalandi,
Sviss og á Spáni. „Það er styrkur
fyrir íslenskan handknattleik að
sem flestir leikmenn leiki í útlönd-
um. Þá á ég sérstaklega við
landsliðið. Ég fann það sjálfur
þegar ég fór út, að þá breyttist
maður bæði sem persóna og leik-
maður. Ég fékk meiri tíma til að
æfa og maður var ekki alltaf að
leika gegn sömu leikmönnunum,
eins og heima. Það kom meiri fjöl-
breytni í leikinn. Leikmenn sem
fara í atvinnumennskuna styrkj-
ast og öðlast mikla reynslu, sem
kemur landsliðinu til góða. Þegar
menn taka þá ákvörðun að fara
út, eiga þeir ekki aðeins að fara
til að fara - menn verða að velja
sér rétta umhverfið, lið sem hent-
ar þeim.“
Júlíus og samheijar hans hjá
landsliðinu verða í sviðsljósinu í
Laugardalshöllinni í kvöld, þegar
leikinn verður fyrri leikurinn í
Evrópukeppni iandsliða gegn
Sviss. Þar mætir hann þremur
félögum sínum hjá St. Otmar.
„Finnsl einsog
verið sé að
kúga okkur“
Magnús Már Þórðarson æfir með Aftur-
eldingu en leikur líklega ekkert ívetur
Málið hefur ekki tekið aðra
stefnu þrátt fyrir að ég hafi
hitt stjórnarmenn í handknattleiks-
deild IR, þar á meðal formanninn
og því tel ég nær engar líkur vera
fyrir því að Magnús leiki með okkur
í vetur,“ sagði Jóhann Guðjónsson
formaður handknattleiksdeildar Aft-
ureldingar. Málið sem Jóhann vitnar
til eru félagsskipti Magnúsar Más
Þórðarsonar úr ÍR í Aftureldingu.
Magnús er samningsbundinn ÍR en
Mosfellingar vilja fá hann í sínar
raðir og vilji Magnúsar stendur einn-
ig til þess að leika í Mosfellsbænum.
„Handknattleiksdeild Aftureld-
ingar er tilbúin að greiða 300.000
krónur sem er líklegt félagsskipta-
gjaldið auk þess sem það er til um-
ræðu að greiða upp eins árs samning
Magnúsar við ÍR. Forráðamenn ÍR
eru hins vegar á allt öðrum nótum
og vilja fá mikið meira fyrir hann
en þetta, án þess þó að hafa nefnt
íslenski
hópurinn
ÞORBJÖRN Jensson hefur val-
ið 16 leikmenn til undirbúnings
fyrir leikina á móti Sviss. Þeir
eru (landsleikir í sviga);
Markverðir:
Guðmundur Hrafnkelsson, Val (267)
Bergsveinn Bergsveinss., UMFA
(132)
Reynir Þór Reynisson, Fram (8)
Aðrir leikmenn:
Bjarki Sigurðsson, Drammen (191)
Gústaf Bjarnason, Haukum (82)
Róbert Sighvatsson, Dormagen (41)
Geir Sveinsson, Wuppertal (312)
Daði Hafþórsson, Fram (0)
Konráð Olavson, Niederwiirzbach
(152)
Oiafur Stefánsson, Wuppertal (72)
Dagur Sigurðsson, Wuppertal (86)
Jason Ólafsson, UMFA (16)
Róbert Julian Duranona, Eisenach
(24)
Rúnar Sigtryggsson, Haukum (13)
Valdimar Grímsson, Stjömunni (224)
Júlíus Jónasson, St. Gallen (251)
■Fyrri leikur liðanna verður í Laugar-
dalshöll í kvöld kl. 20 en síðari leikur-
inn í Sviss á sunnudag.
upphæðina. Svo má hins vegar skilja 1
á þeim að þessi upphæð sem ég er
með í huga séu hreinir smáaurar
miðað við það sem þeir hafa áhuga
á. Ég er ekki tilbúinn að borga
hærra, mér finnst eins og verið sé
að kúga okkur.“
Jóhann sagði ennfremur að hann
skildi ekki þess stífni af hálfu ÍR.
Magnús væri ekki uppaiinn hjá fé-
laginu heldur hefði hann komið til
liðs við það fyrir þremur árum frá
Stjörnunni fyrir 150.000. Hins vegar
er hann alinn upp hjá handknatt-
leiksdeild Njarðvíkur er fékk
100.000 fyrir pilt frá Stjörnunni er
hann flutti sig um set. Hefði Magn-
ús alist upp hjá félaginu fyndist sér
ákveðin afstaða ÍR-inga vera skilj-
anlegri. „Nú er málum þannig háttað
að Magnús æfir með okkur í vetur,
en ég er svartsýnn á að hann leiki
með okkur, altjent ekki á þessari
leiktíð."
„Eins og
erfið þrek-
æfing“
RÓBERT Sighvatsson hand-
knattleiksmaður með Bayer
Dormagen í Þýskalandi segir
að nokkuð sé um að nýja regl-
an um að hefja megi leik að
loknu marki þrátt fyrir að
andstæðingarnir séu ekki
komnir inn á sinn vallarhelm-
ing sé nokkuð notuð þar í
landi. Henni hafi t.d. miskunn-
arlaust verið beitt í leik Rhein-
hausen og Dormagen um síð-
ustu helgi, í leik sem Rhein-
hausen vann 34:29.
„í leiknum var þessari reglu
beitt miskunarlaust og varð
leikurinn mjög hraður og ekk-
ert sérlega vel leikinn fyrir
vikið,“ sagði Róbert í samtali
við Moi-gunblaðið. „Það var
mikið um 10 sekúndna sóknir
og þaðan af styttri svo þetta
var eins og erfiðasta þrekæf-
ing.“
Leiðréttingar
í BLAÐINU í gær misritaðist nafn
Gísla Jóhannssonar handknattleiks-
dómara, sem dæmdi viðureign Aftur-
eldingar og Fram í Mosfellsbæ á
sunnudagskvöld ásamt Hafsteini Ingi-
bergssyni. Er beðist velvirðingar á
mistökunum.
Þá var sagt að Michael Owen hefði
gert þriðja mark Liverpool gegn Aston
Villa. Hann lagði reyndar upp markið
en Karlheinz Riedle skoraði.
Ikvöld
Handknattleikur
Landsleikur
Undankeppni HM:
Höllin: tsland - Sviss.....20
körfuknattleikur
Reykjavíkurinótið
Úrslitaleikur kvenna:
Austurberg: KR - ÍS........18
Úrslitaleikur karla:
Austurberg: KR - UMFT......20
FRAMHALDSSK0LAM0T
í KNATTSPYRNU
Þatttaka tilkynnist fyrir 30. september á
skrifstofii KSÍ á faxi 568 9793.
Leildð í 7 manna bolta.
Nánari upplýsingar
veitir skrifstofa KSÍ.
Mótanejnd