Morgunblaðið - 27.09.1997, Side 1
80 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
219. TBL. 85. ÁRG.
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
BJÖRGUNARLIÐAR að störfum við flak Airbus A-300 þotu Garuda flugfélagsins á slysstað á Súmötru.
234 farast með Airbus
þotu Garuda í Indónesíu
Jakarta, París. Reuter.
AIRBUS A-300 þota indónesíska
flugfélagsins Garuda fórst í gær á
eynni Súmötru og með henni 234
farþegar og flugliðar. Engar fregn-
ir hafa borist af orsökum slyssins.
Vélin var að koma frá Jakarta og
átti um 45 km ófama til borgarinn-
ar Medan, sem er nyrst á Súmötru,
er hún fórst í skógi vöxnu fjall-
lendi. Petta er mannskæðasta flug-
slys sem orðið hefur í Indónesíu.
Skyggni í Medan var takmarkað
vegna reyks frá skógareldum, en
að sögn embættismanna var flug-
völlurinn eigi að síður opinn og
skyggni þar 500-600 metrar.
Framkvæmdastjóri Garuda sagði
að þotan hefði hrapað klukkan
13.55 að staðartíma (kl. 5.55 að ís-
lenskum tíma). Skömmu síðar var
flugvellinum lokað vegna slæms
skyggnis.
Fulltrúi Garuda sagði að 222 far-
þegar hefðu verið um borð og 12
flugliðar. Indónesíska ríkisútvarpið
hafði eftir samgönguráðherra
landsins að allir hefðu farist. Tals-
maður björgunarsveita sem fóru á
slysstað sagði að kviknað hefði í
vélinni er hún kom niður. í gær-
kvöldi þegar björgunarmenn hættu
störfum höfðu fundist 212 lík, flest
illa brunnin. í dag verður haldið
áfram að fjarlægja hina látnu úr
flakinu.
Ekki var ljóst hvort reykur frá
skógareldunum, sem undanfarnar
vikur hafa valdið verstu loftmeng-
un í Suðaustur-Asíu sem um getur,
var að einhverju leyti orsök slyss-
ins. Margir flugvellir á þessu svæði
hafa verið lokaðir vegna reyksins.
Fréttastofa Reuters hafði í gær
eftir blaðamanni sem var á slysstað
að vélin hefði brotnað í tvennt er
hún kom niður. Aðstæður á slys-
stað væru erfíðar.
Framleiðandi vélarinnar, evr-
ópska samsteypan Airbus
Industrie, greindi frá því í gær að
sendir yrðu sérfræðingar á vegum
fyrirtækisins til þess að aðstoða yf-
irvöld í Indónesíu við rannsókn á
orsökum slyssins. Vélin var af
gerðinni Airbus A-300 B-4, breið-
þota, knúin tveim Pratt&Whitney
hreyflum. Hún var afhent Garuda
ný 1984. í lok síðasta mánaðar
hafði henni verið flogið 26.950 klst.
í 16.500 flugferðum.
Reuter
JEVGENÍ Prímakov (t.v.) og
Javier Solana stinga saman
nefjum á fundi samstarfsráðs
Rússa og NATO í gær.
Samstarfsráð
NATO og Rússa
Stuðlað
að auknu
trausti
New York. Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) og
Rússlands samþykktu nýja sam-
starfsáætlun á fyrsta fundi sameig-
inlegs fastaráðs NATO og Rússa í
New York í gær. Verður hún próf-
steinn á heitstrengingar um aukið
samstarf í kjölfar kalda stríðsins.
Aætluninni er til skamms tíma
ætlað að stuðla að auknu trausti í
samskiptum Rússa og NATO og
leggja grunn að metnaðarfyllri verk-
efnum þegar til lengri tíma er litið.
Kveður hún m.a. á um aukið samráð
í málum á borð við Bosníudeiluna,
sem verið hefur ásteytingarsteinn,
um aukið samstarf á sviði friðar-
gæslu, hernaðar- og kjamorkumála,
baráttu gegn alþjóðlegri hryðju-
verkastarfsemi ásamt því að Rússum
verður boðið að hafa sérstakan her-
málafulltrúa í höfuðstöðvum NATO.
Aukinheldur er í henni gert ráð fyrir
samstarfi um endurþjálfun rúss-
neskra herforingja til nýrra starfa
og þjálfun hermanna til að takast á
við umhverfisvandamál.
Hvati til afvopnunar?
Bandaríkjamenn og Rússar undir-
rituðu í gær nokkra samninga um af-
vopnunarmál sem taldir eru geta
leitt til nýrra samninga um umfangs-
mikla fækkun kjamorkuvopna. Þeim
er m.a. ætlað að fullvissa Rússa um
að fækki þeir kjamavopnum frekar
muni Bandaríkjamenn ekki reyna að
ná hernaðarlegum yfirburðum með
nýjum varnarflaugakerfum.
Tíu farast í jarðskjálftum
Róm, Collecurti, Assisi. Reuter.
TÍU manns að minnsta kosti létu lífið
og 20 slösuðust er tveir snarpir jarð-
skjálftai- riðu yfir stórt svæði á Mið-
Italíu í gær. Mikið tjón varð af völd-
um skjálftanna. Sá íyrri varð klukkan
hálfþrjú að staðartíma í fyrrinótt og
mældist 5,5 á Richterskvarða. Fólk
vaknaði af vondum draumi og þusti
skelkað út á götur en sex manns
a.m.k. biðu bana er byggingar nálægt
upptökum skjálftans í Appennína-
fjöllutn hrundu yfír sofandi íbúa.
Seinni skjálftinn mældist 5,6 stig
og varð klukkan 11.42 í gær. I hon-
um skemmdust nokkrar sögufrægar
byggingar, þeirra á meðal fræg 13.
aldar basilíka heilags Frans frá Ass-
isi, í samnefndum bæ. í henni er
meðal annars grafhýsi dýrlingsins
og þangað koma þúsundir ferða-
JARÐSKJÁLFTAR Á ÍTALÍU
manna ár hvert. Hópur matsmanna
og munka vai1 að kanna skemmdir
eftir fyrri skjálftann er hluti loft-
hvelfingar kirkjunnar hrundi. Náð-
ust lík tveggja matsmanna og
tveggja munka úr rústunum og talið
var að fleiri hefðu lokast inni í rúst-
unum. Óvíst er hversu miklar
skemmdir urðu á listaverkum í
kirkjunni en ómetanlegar freskur
virtust hafa skemmst minna en ótt-
ast var, þar á meðal brautryðjenda-
verk eftir Giotto og Cimabue.
Skjálftanna varð greinilega vart í
Rómaborg sem er í 100 km fjarlægð.
Fjölmargir eftirskjálftar fylgdu og
flúðu margir íbúar heimili sín. Fólk
hafðist við úti eða í bflum sínum.
Jarðskjálftai’ eru algengir á Ítalíu
og bera fjölmargar byggingar í
Umbríu og Toskana merki þess. Arið
1980 vai-ð jarðskjálfti 2.570 manns að
bana í héruðunum Campaníu og
Basilicötu á suðurhluta Italíu.
Reuter
BJÖRGUNARMAÐUR leitar í rústum húss í þorpinu Collecurti sem
hrundi f jarðskjálfta á Italfu í gær. Tveir biðu bana er húsið hrundi.