Morgunblaðið - 27.09.1997, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
ENDURVINNSLAN hætti framleiðslu á brettakubbum um síðustu mánaðamót en fyrirtækið hafði
verið með rekstur Úrvinnslunnar á leigu. í dag ríkir óvissa um framtíðina og Úrvinnsían stendur illa.
Endurvinnslan vill kaupa Urvinnsluna
Framleiðslu á
brettakubbum hætt
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Fyrsti
sunnudagaskóli vetrarins kl. 11
á morgun, sunnudag. Nýjungar
í barnastarfinu kynntar. Boðið
upp á kaffí og ávaxtadjús í Safn-
aðarheimili eftir sunnudaga-
skólann. Munið kirkjubílana.
Guðsþjónusta kl. 14, séra Svav-
ar A. Jónsson. Molasopi í Safn-
aðarheimili eftir guðþjónustu.
Spjallað um prédikun dagsins.
Messað verður á Hlíð kl. 16, sr.
Birgir Snæbjörnsson. Æsku-
lýðsfundur í kapellu kl. 17. Gos
og flögur, starfið framundan
skoðað, m.a. ferð á landsmót
æskulýðsfélaga sem haldið verð-
ur í Vatnaskógi helgina 17. til
19. október næstkomandi.
GLERÁRKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta verður í
kirkjunni kl. 11. Barnaefni vetr-
arins verður kynnt. Foreldrar
eru hvattir til að íjölmenna með
börnum sínum. Ath.: Fundur
æskulýðsfélagins sama dag kl.
18. Kyrrðar- og bænastund kl.
18 á þriðjudag í kirkjunni.
HJALPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli á morgun kl.
11, almenn samkoma kl. 17,
ath. breyttan tíma, unglinga-
samkoma kl. 20. Heimilasam-
bandið kl. 15 á mánudag, hjálp-
arflokkur kl. 20.30, krakkaklúb-
bur kl. 17 á miðvikudag. Allir
velkomnir.
HVÍTASUNNUKIRJAN: Al-
menn samkoma á morgun kl.
14. Samuel Kaniaki og Daz
hjónin prédika. Krakkakirkja
meðan á samkomu stendur fyrir
6-12 ára og barnapössun fyrir
eins til 5 ára börn. Álmenn sam-
koma með hjónunum kl. 20.30
á sunnudagskvöld. Vitnisburð-
arsamkoma kl. 20.30 á miðviku-
dagskvöld. Krakkaklúbbur kl.
17.15 á föstudag fyrir 3ja til
12 ára börn. Samkoma í umsjá
ungs fólks kl. 20.30 á föstudög-
um. Mikill og fjölbreyttur söng-
ur. Bænastundir frá 6-7 á
mánudags-, miðvikudags- og
föstudagsmorgunum og kl. 14
á þriðjudögum og fimmtudög-
um. Vonarlínan, 462-1210.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Messa kl. 18 í dag, laugardag
og kl. 11 á morgun, sunnudag.
KFUM og K, Sunnuhlíð;
Bænastund kl. 20. annað kvöld,
sunnudaginn 28. september.
FRAMLEIÐSLU á brettakubbum úr
landbúnaðarplasti og pappír hefur
verið hætt á Akureyri, í bili að
minnsta kosti. Endurvinnslan hf.
ieigði húsnæði og tæki Úrvinnslunn-
ar við Réttarhvamm til síðustu mán-
aðamóta og framleiddi brettakubba
fyrir vörubretti en framtíð þeirrar
vinnslu er nú nokkuð óljós.
Gunnar Garðarsson, forstöðumað-
ur Endurvinnslunnar á' Akureyri,
segir að fyrirtækið hafi óskað eftir
kaupum á eignum Úrvinnslunnar.
„Skuldir Úrvinnslunnar eru þó meiri
en við viljum borga fyrir eignirnar.
Við höfum áhuga á að halda fram-
leiðslunni áfram og gera miklar
breytingar á starfseminni en viljum
ekki leggja út í þær fjárfestingar
fyrr en við höfum eignast fyrirtæk-
ið,“ segir Gunnar.
Bjarni Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar
og stjórnarformaður Úrvinnslunnar,
segir að reksturinn hafi verið erfiður
frá upphafi og svo gæti farið að
fyrirtækið yrði tekið til gjaldþrota-
skipta. Akureyrarbær er stærsti
hluthafinn í Úrvinnslunni með tæp-
lega fjórðungs eignarhlut. Aðrir
stórir hluthafar eru Gúmmívinnslan,
Endurvinnslan, Iðnþróunarfélag
Eyjaijarðar og Gámaþjónusta Norð-
urlands.
„Þeir sem standa að fyrirtækinu
hafa tapað töluverðu af peningum.
Það er engin framleiðsla í gangi nú
en það er töluvert til af kubbum á
lager og nægt hráefni. Úrvinnslan
stendur ekki vel og það er spurning
hversu lengi fyrirtækið lifir ef engin
framleiðsla er í gangi. Vélarnar sem
keyptar voru til framleiðslunnar á
sínum tíma voru haugslitnar og hafa
bilað mikið og það hefur verið eitt
stærsta vandamálið," sagði Bjarni.
Starfsmenn sýnt þolinmæði
Verð á innfluttum timburkubbum
til brettaframleiðslu lækkaði mjög
mikið á árinu og fyrir vikið þurfti
Endurvinnslan að horfa á eftir stór-
um viðskiptavinum. Fyrirtækið hefur
þó fullan hug á að halda framleiðsl-
unni áfram og tekur áfram á móti
pappír og landbúnaðarplasti. Þeir
starfsmenn sem unnið hafa fram-
leiðsluna hafa verið færðir til innan
Endurvinnslunnar eða farið í önnur
störf tímabundið. „Starfsmennirnir
hafa sýnt mikla þolinmæði en þeim
hefur verið sagt upp nánast um hver
mánaðamót,“ sagði Gunnar.
Bæjarráð Akureyrar
Prentskil
verðiá
Amtsbóka-
safni
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur
mælt með því að vistunarstaður
prentskilasafns verði áfram á Amts-
bókasafninu á Akureyri.
Um skeið hafa umræður staðið
yfir um hvort flytja ætti prentskilin
yfir í bókasafn Háskólans á Akur-
eyri, en það flutti fyrir skömmu í
nýtt húsnæði. Ingólfur Ármannsson
sviðstjóri hjá Akureyrarbæ sagði
að lögum samkvæmt væri gert ráð
fyrir prentskilum á tveimur söfnum
í landinu, í Þjóðarbókhlöðu og
Amtsbókasafninum á Akureyri og
væri það bæði af öryggis- og þjón-
ustuástæðum. Því þyrfti að fara
fram á lagabreytingar ef færa ætti
prentskil yfir á háskólabókasafnið
frá Amtsbókasafninu. Með sam-
þykkt bæjarráðs mun því á þessu
stigi ekki verða farið fram á að
lögunum verði breytt. Ingólfur
sagði að samstarf milli safnanna
tveggja yrði skoðað sem og samnýt-
ing ýmis konar.
Húsnæðismál enn í biðstöðu
Bæjarráð vísaði á fundi í vikunni
hugmyndum um húsnæðimál og
aðra uppbyggingu Amtsbókasafns-
ins á Ákureyri til gerðar fjárhags-
áætlunar fyrir næsta ár og þriggja
ára áætlunar um rekstur og fram-
kvæmdir bæjarsjóðs. „Þetta þýðir
að biðstaða er áfram í málinu,"
sagði Ingólfur, en benti á að í sam-
þykkt bæjarráðs fælist sú stefnu-
mörkun að úrbætur yrðu gerðar í
húsnæðismálum safnsins við
Brekkugötu en ekki einhvers staðar
annars staðar. Áætlað er að kostn-
aður við nýbyggingu safnsins nemi
um 150 milljónum króna. Tíu ár
eru nýlega liðin frá því samþykkt
var á hátíðarfundi þáverandi bæjar-
stjórnar, á 125 ára afmæli Akur-
eyrarbæjar 1987, að reisa viðbygg-
ingu við Amtsbókasafnið sem þá
þegar bjó við húsnæðisskort.
Datt af hjóli og braut hjálminn
Allir í bekknum nota
hjálm - nema einn
„ÉG VAR að hjóla í Skarðshlíð-
inni, þá lenti ég á steini og flaug
fram af hjólinu og datt á haus-
inn,“ sagði Víkingur Þór Björns-
son sem er sjö ára og í 2. bekk
í Glerárskóla. Hann var eins og
ævinlega þegar hann fer út að
hjóla með hjálm á höfðinu, en
hann sprekk eftir endilöngu við
höggið. Þetta er i annað sinn sem
Víkingur dettur af hjóli þannig
að stórsér á hjálmi hans, en í
fyrra sinnið hjólaði hann á kant-
stein og steyptist fram fyrir sig
beint á höfuðið.
„Ég meiddi mig svolítið í
hausnum þegar ég datt, en það
hefði örugglega verið ennþá
verra ef ég hefði ekki verið með
hjálminn," sagði Víkingur Þór.
Foreldrar hans, Björn Víkings-
son og Þórunn Árnadóttir fara
aldrei út að hjóla öðru vísi en
með hjálm á höfðinu og hafa þau
lagt ríka áherslu á það við börn
sin að vera með hjálm við hjól-
reiðar. Þau mega ekki fara af
stað á hjólunum nema með hjálm-
inn. „Ef börnin venjast þessu
strax er ekkert mál að fá þau til
að vera með hjálminn," segir
Þórunn, „það er skylda að hafa
hjálm á skíðaæfingum og þau æfa
skíða, þannig að þau eru vön að
vera með hjálma."
Tólf ára gömul dóttir þeirra
er eins og aðrir í fjölskyldunni
með hjálm og segja þau Björn
og Þórunn að henni finnist það
ekki hallærislegt. „Hún heldur
sínu striki og hefur hjálminn,
sama þó sumar vinkonur hennar
noti ekki hjálm,“ sagði Þórunn.
Víkingur fékk hjálm frá Kiw-
anisklúbbnum Kaldbak síðasta
vor en klúbburinn gefur öllum
sjö ára börnum á Akureyri reið-
hjólahjálma. Eftir að hann datt
og skemmdi hjálminn sinn í vik-
unni brugðust kiwanismenn
skjótt við að fengu honum nýjan.
„Ég ætlað alltaf að vera með
hjálm þegar ég er úti að hjóla.
Það eru allir í bekknum mínum
með hjálm þegar þeir hjóla, nema
einn og við erum stundum að
segja honum að hann verði að
nota hjálm,“ sagði Víkingur Þór.
Allir verði
með hjálma
Þau Björn og Þórunn telja að
lög sem taka gildi 1. október
næstkomandi og kveða á um að
allir 14 ára og yngri skuli bera
hjálm við hjólreiðar nái of
skammt. Það verði að skylda alla
sem nota reiðhjól til að bera
hjálm, slysin geta allt eins hent
hina fullorðnu eins og börnin.
Sjálfstæðismenn athugið k
w
ir
Af óviðráðanlegum orsökum er aðalfundi
fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri frestað
til fimmtudagsins 9. október kl. 20.30.
Stjórnin
Ath. Aðalfundur Sleipnis, Varnar og Sjálfstæðisfélagsins verða
mánudaginn 29. september skv. auglýsingu.
Morgunblaðið/Kristján
VIKINGUR Þór Björnsson á miðri mynd með félögum sínum,
Jóhanni Guðmundssyni til vinstri og Rúnari Birni Reynissyni.
FORELDR-
ARNIR
nota alltaf
hjálma
þegar farið
er út að
hjóla, Þór-
unn Árna-
dóttir og
Björn Vík-
ingsson að
leggja í
hann.