Morgunblaðið - 27.09.1997, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
--------------------------------------- I
íslensk erfðagreining hf. væntanlega skráð á hlutabréfamarkað 1998
Stefnt að áframhaldandi
meirihlutaeigu Islendinga
Morgunblaðið/Kristinn
STARFSMENN verðbréfafyrirtækja og fagfjárfestar sýndu
starfsemi Islenskrar erfðagreiningar mikinn áhuga þegar þeim
var gefinn kostur á að skoða fyrirtækið í gær.
EF íslensk erfðagreining hf. á
áfram að vera í meirihlutaeigu ís-
lendinga þá verður að koma nýtt
íslenskt hlutafé inn í fyrirtækið.
Stofnhlutafé íslenskrar erfða-
greiningar eru 12 milljónir dollara,
eða 864 milljónir króna. Erlendir
áhættufjárfestar sem eiga hlut í
fyrirtækinu eru um þessar mundir
að ljúka við að greiða sína hluti
sem gerir það að verkum að ís-
lensk erfðagreining verður ekki
lengur í meirihlutaeigu íslendinga.
Þetta kom meðal annars fram á
fundi sem fyrirtækið hélt með hópi
íslenskra fagfjárfesta í gær.
Að sögn Kára Stefánssonar,
framkvæmdastjóra íslenskrar
erfðagreiningar, hefur ekki endan-
lega verið ákveðið hve mikil hluta-
fjáraukningin verður né heldur
hvort íslendingar muni eiga 51%
hlut eða meira. Kári segir jafn-
framt að þeir íslendingar sem nú
eiga meirihlutann í fyrirtækinu
telji það mikilvægt að Islendingar
eigi áfram meirihlutann í fyrirtæk-
inu meðal annars vegna þess að
starfsemi þess byggist upp á arf-
leifð íslensku þjóðarinnar og vegna
þeirra áhrifa sem fyrirtækið geti
Endurmenntunar-
stofnun HÍ
Námskeið
um afleiðu-
samninga
og áhættu-
stjórnun
Endurmenntunarstofnun Há-
skóla íslands mun standa fyr-
ir námskeiði um afleiðusamn-
inga og notkun þeirra við
áhættustjómun hjá fyrirtækj-
um og fjármálastofnunum 1.
og 2. október nk.
Námskeiðið er einkum ætl-
að framkvæmdastjórum fjár-
málastofnana og fyrirtækja,
forstöðumönnum og starfs-
mönnum fjárstýringa- og
reikningshaldsdeilda, endur-
skoðendum og starfsmönnum
innri endurskoðunardeilda.
Helstu tegundir
afleiðusamninga kynntar
Á námskeiðinu verður farið
yfir helstu tegundir afleiðu-
samninga sem í boði eru hér
á landi og erlendis. Kynnt
verður hvernig nota má af-
leiðusamninga við áhættu-
stjórnun hjá fyrirtækjum og
fjármálastofnunum, áhættur
sem tengdar eru slíkum
samningum og hvemig má
forðast þær.
Fyrirlesarar verða þeir Sig-
urður Einarsson, forstjóri
Kaupþings hf., og Siguijón
Geirsson, forstöðumaður end-
urskoðunar Landsbanka Is-
lands.
Upplýsingar og skráning í
símum 525-4923 og
525-4924, myndsíma
525-4080 og tölvupósti end-
urmrhi.hi.is
haft á íslenskt athafnalíf þar sem
miklar líkur séu á því að það sé
einungis upphafið að uppbyggingu
á öflugum líftækniiðnaði á Islandi.
Viðræður við stór
lyfjafyrirtæki
Meðal markmiða íslenskrar
erfðagreiningar auk uppbyggingar
á líftækniiðnaði hér á landi er að
vinna að erfðagreiningu á íslend-
ingum til að auka skilning á orsök-
um sjúkdóma og nota þekkinguna
til þess að hjálpa lyfjafyrirtækjum
og öðrum stofnunum í heilbrigðis-
geiranum til að bæta greiningu og
meðferð sjúkdóma. Kári segir
erfðafræðirannsóknum fyrirtækis-
ins miða vel áfram þrátt fyrir stutt-
an starfsaldur og samningaviðræð-
ur séu langt komnar við nokkur
af stærstu lyfjafyrirtækjum heims
um samstarf.
Hjá íslenskri erfðagreiningu er
unnið að því að byggja upp gagna-
grunn sem ætlunin er að selja lyfja-
fyrirtækjum og stofnunum í heil-
brigðisgeiranum áskrift að; Jafn-
framt er hugmyndin sú að Islensk
erfðagreining fái greiddan ákveð-
inn hlut af sölu lyfja sem byggja
LANDSBANKI íslands og Vá-
tryggingafélag íslands kynntu í
gær nýja þjónustu sem nefnist
LÍFÍS og er fyrsta skrefið í sam-
starfi félaganna tveggja á sviði
fjármála- og tryggingaþjónustu en
fyrr á þessu ári eignaðist Lands-
bankinn helmings hlut í VÍS.
Á fyrsta sameiginlega fundi
starfsmanna Landsbankans, VÍS
og dótturfyrirtækja þeirra sem
haldinn var í Háskólabíói í gær
voru starfsfólki fyrirtækjanna
kynntar ýmsar nýjungar sem ætl-
unin er að kynna fyrir almenningi
á næstunni.
Meðal nýjunga er þjónusta á
sviði fjárhagsverndar sem nefnist
LÍFÍS þar sem mætast fjármála-
þjónusta og persónutryggingar.
Innan LIFIS þjónustunnar verður
fyrst um sinn boðið upp á líftrygg-
ingar, sjúkdómatryggingar og
á upplýsingum úr gagnagrunnin-
um.
Á fundinum kom fram að hafinn
er undirbúningur að skráningu ís-
söfnunartryggingar. LÍFÍS verð-
ur tengd Vörðunni, fjármálaþjón-
ustu Landsbankans fyrir einstakl-
inga, og F+tryggingu Vátrygg-
ingafélags Islands.
Á kynningunni kom fram að
Landsbankinn hefur fært Vörð-
una, fjármálaþjónustu fyrir ein-
staklinga, í nýjan búning. Meðal
annars fá viðskiptavinir Vörðunn-
ar gull-debetkort og gull-kredit-
kort sem hægt verður að nota til
þess að safna punktum sem eru
innleysanlegir til ferðalaga eða
innborgunar hjá Landsbankan-
um. Þeir viðskiptavinir Vörðunn-
ar sem eru með F+ tryggingu hjá
VÍS fá jafnframt punkta vegna
tryggingarinnar. Innan tíðar
munu útibú Landsbankans hefja
afgreiðslu á F+ tryggingum í
samvinnu við Vátryggingafélag
Islands.
lenskrar erfðagreiningar á almenn-
an hlutabréfamarkað, annaðhvort
í London eða New York á næsta
ári.
JÓNAS Fr. Jónsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs, segir
ekki mikinn sáttatón að finna í
ummælum skrifstofustjóra fjár-
málaráðuneytisins um álit Sam-
keppnisráðs á fjárhagslegum að-
skilnaði aðfangadeildar ÁTVR frá
söludeild fyrirtækisins. Kallar hann
eftir skoðun fjármálaráðherra á
þessu máli og spyr hvort hún sé
sú sama og skrifstofustjórans.
Eins og fram hefur komið álítur
Samkeppnisráð núverandi fyrir-
komulag fjárhagslegs aðskilpaðar
aðfanga- og söludeildar ÁTVR
ófullnægjandi, og hefur ráðið Iagt
til að stofnað verði sérstakt hluta-
félag um aðfangadeildina. Skorti
lagastoðir til þess beinir ráðið því
til Q'ármálaráðherra að fullnægj-
andi aðskilnaður verði tryggður
með öðrum leiðum og nefnir nokk-
ur skilyrði sem slíkur aðskilnaður
þurfi að uppfylla.
Indriði H. Þorláksson, skrif-
stofustjóri í fjármálaráðuneytinu,
sagði í Morgunblaðinu í gær að
þessu niðurstaða hefði komið sér
á óvart. Hann teldi rök Verslunar-
ráðs, sem óskaði eftir áliti Sam-
keppnisráðs í þessu máli, veik og
sér sýndist sem Samkeppnisráð
hefði tekið undir þau án ítarlegrar
skoðunar.
„Ráðuneytið hætti að
berja höfðinu við stein“
Jónas Fr. segist ósáttur við þessi
ummæli Indriða. „Ráðuneytið er
búið að halda því fram frá upp-
hafi af lítillæti sínu að við höfum
Sölu á hlut ríkissjóðs
í Bifreiðaskoðun lokið
*
Islensk end-
urtrvgging
kaupir 13%
ÍSLENSK endurtrygging hf. hefur
keypt 12,8% hlut ríkissjóðs í Bif-
reiðaskoðun hf. Um er að ræða
10,4 milljónir króna að nafnvirði
og var sölugengi bréfanna 2,75 eða
10% hærra en í nýloknu almennu
útboði ríkissjóðs á bréfunum.
Bjarni Þórðarson, framkvæmda-
stjóri íslenskrar endurtryggingar,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að félagið væri að kaupa þessi
bréf til eignar að sinni í það minnsta
en í framhaldinu yrðu þeir mögu-
leikar sem í stöðunni væru skoðað-
ir. Hann segir að fyrir hafi félagið
átt 2,4% og því sé heildarhlutur
þess í Bifreiðaskoðun nú 15%.
Þau hlutabréf sem seld voru nú
höfðu ekki verið greidd í fyrri hluta
útboðsins og því voru þau boðin
hæstbjóðanda til kaups, líkt og
kveðið var á um í útboðslýsingu.
Með þessari sölu er sölu á hluta-
fé ríkissjóðs í Bifreiðaskoðun hf.
að fullu lokið. Áður höfðu tæplega
360 einstaklingar og starfsmenn
keypt hlutafé í fyrirtækinu að sölu-
virði 64 milljónir króna á genginu
2,5. Söluverðmæti bréfanna til ís-
lenskrar endurtryggingar var sem
fyrr segir 29 milíjónir og var heild-
arsöluverðmæti á hlut ríkisins í fyr-
irtækinu því 93 milljónir króna.
sýnt misskilning og vanþekkingu
á þessu máli. Þeir héldu því fram
þegar þeir settu fram reglugerð
um fyrirkomulag fjárhagslegs að-
skilnaðar og við bentum á galla
hennar. Þeir héldu því líka fram
fyrir Samkeppnisstofnun, er hún
tók erindi okkar til athugunar, og
rökstuddu þá skoðun sína ítarlega.
Samkeppnisstofnun fór mjög ít-
arlega ofan í þetta mál og það var
lengi til skoðunar og mikil vinna
lögð í það. Nú þegar þessi hlut-
lausi og þar til bæri úrlausnaraðili
hefur komist að niðurstöðu fer
ráðuneytið enn í þann gír að kalla
þetta þekkingarleysi og misskiln-
ing. Ráðuneytið ætti því að velta
því fyrir sér hvort það séu ekki
aðrir sem sýni misskilninginn og
hætta að beija höfðinu við stein
og viðurkenni ósigur sinn í þessu
máli.“
„Þetta snýst um fijálsa sam-
keppni og jafnræði milli aðila.
Hver er afstaða fjármálaráðherra
í þessu máli? Ætlar hann að sýna
sama virðingarleysi gagnvart sam-
keppnislögum og samkeppnisyfir-
völdum og skrifstofustjórinn,“ spyr
Jónas.
Hann segir að geri fjármála-
ráðuneytið engar breytingar á
þeim reglugerðum sem Samkeppn-
isráð hafi gert athugasemdir við í
áliti sínu, muni Verslunarráð leita
annarra leiða og komi málshöfðun
þar vel til greina. Hins vegar sé
nú beðið eftir því að ráðherra geri
afstöðu sína til frjálsrar samkeppni
ljósa.
Morgunblaðið/Rax
INGÓLFUR Guðmundsson, Landsbankanum, Axel Gíslason, VÍS,
Björn Líndal, Landsbankanum, Eggert Sverrisson, VIS ,og
Gunnar Helgi Hálfdanarson, Landsbréfum, voru á fyrsta sam-
eiginlega starfsmannafundi fyrirtælganna í gær.
Landsbankinn og VIS í samstarf
Fj ármálaþjónusta
og persónutrygg-
ingar í eina sæng
VÍ ósátt við afstöðu fjármálaráðu-
neytisins til úrskurðar Samkeppnisráðs
„Kölliun eftir
afstöðu fjár-
málaráðherra “
>
>
>
i
>
l
i
i
l
.
i