Morgunblaðið - 27.09.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997 21
ERLEIMT
Þýzk skattbreytingaáform stranda
Gæti kostað Hel-
mut Kohl völdin
Nýtt hús kanslara-
embættisins
Bonn. Reuter.
HELMUT Kohl Þýzkalandskanzlari
lagði í gær hornsteininn að nýrri
kanzlarahöll í Berlín, en skipbrot
áforma hans um endurskoðun þýzka
skattakerfisins, sem varð endanlegt
rétt áður en athöfnin hófst, gæti
orðið til þess að það falli ekki í
hans hlut að fá lyklavöldin að bygg-
ingunni, þegar kanzlaraembættið
flytur þangað 1999.
Stjórnmálaskýrendur og hag-
fræðingar sögðu í gær, að svo gæti
farið að kjósendur refsuðu sam-
steypustjórn Kohls fyrir að hafa
mistekizt að koma áformunum í
framkvæmd þegar þeir ganga að
kjörborðinu eftir rétt ár.
„Ríkisstjómin er í vanda,“ sagði
Bemhard Wessels, stjórnmálafræð-
ingur við Freie Universitát í Berlín.
„Ef efnahagslífið tekur ekki við sér
á hún við mikinn vanda að stríða."
En skattbreytingaáformunum var
einmitt ætlað að stuðla _að bættu
ástandi efnahagslífsins. Án greini-
legra batamerkja á því telja hag-
fræðingar ólíklegt að Kohl takist
að gera nokkurn skapaðan hlut til
að bæta úr atvinnuleysi, sem hefur
aldrei eftir lok síðari heimsstytjaldar
verið eins mikið og nú.
Ríkisstjórn Kohls, sem sækist eft-
ir fjórða endurkjöri sínu, hafði sett
saman áætlun um breytingar á
skatta- og lífeyriskerfi Þýzkalands
sem fól m.a. í sér skattalækkanir
upp á 30 milljarða marka, um 1.200
milljarða íslenzkra króna. En þessi
róttæku áform komast ekki til fram-
kvæmda þar sem báðar deildir
þingsins í Bonn þurftu að sam-
þykkja hana. í efri deildinni,
Bundesrat, þar sem fulltrúar frá
sambandslöndunum 16 sitja, ráða
jafnaðarmenn yfir meirihluta at-
kvæða, en þeir eru í stjórnarand-
stöðu og ætla í komandi þingkosn-
ingum að freista þess að komast
að stjómartaumunum með því að
ná meirihluta þingsæta í neðri deild-
inni, Bundestag, með fulltingi flokks
græningja.
Gert út af við vonir Kohls
Samningaviðræður milli fulltrúa
stjórnarinnar og stjórnarandstöð-
unnar höfðu staðið mánuðum saman
um að skattbreytingaáformin fengju
fram að ganga, en í gær gerðu jafn-
aðarmenn endanlega út af við vonir
flokksmanna Kohls og hindruðu
áformin á þeirri forsendu að skatta-
lækkanirnar myndu einungis koma
þeim sem betur mega sín til góða
og stefndu ríkisfjármálum í hættu.
Með þessari hindrunarstefnu
sinni taka jafnaðarmenn áhættuna
á því að vera sakaðir um að láta
hagsmuni flokksins ganga fyrir
þjóðarhagsmunum, en virðast veðja
á að þessi ásökun muni ekki há
þeim í kosningabaráttunni sem
framundan er. í skoðanakönnunum
að undanförnu hefur SPD ásamt
tilvonandi samstarfsflokki, græn-
ingjum, verið með 5-8% prósentu-
stiga forskot á núverandi stjórnar-
flokka, CDU, CSU og FDP.
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
lands, sagði í gær að hann væri
þess fullviss að stjórn landsins
myndi flytja aðsetur sitt til Ber-
línar 1999 eins og áætlað væri.
Þrátt fyrir andstöðu margra við
fyrirhugaða flutninga yrði ekki
aftur snúið. Kanslarinn lagði í
gær fyrsta steininn í grunn nýs
húss kanslaraembættisins.
Byggingin á að verða tilbúin í
árslok 1999, áður en Berlín verð-
ur aftur stjórnarsetur Þýska-
lands.
Samþykkt var með naumum
meirihluta á þingi 1991 að flytja
aðsetur stjórnarinnar til Berlín-
ar, en andstæðingar flutning-
anna hafa reynt að fá ákvörðun-
inni hnekkt. Nýja húsið mun rísa
nálægt þinghúsinu, en endurbót-
um á því á að ljúka á næsta ári.
Tyrkir
ráðast inn
í Norður-
Irak
Diyarbakir, Ankara. Reuter.
TYRKNESKAR hersveitir eru
komnar að minnsta kosti 50 km
inn í Norður-írak eftir innrás fyrr
í vikunni. Innrásinni er beint gegn
kúrdískum uppreisnarmönnum
sem undanfarin 10 ár hafa barist
fyrir sjálfstjórn Kúrda í Suðaust-
ur-Tyrklandi og notað verndar-
svæði Kúrda í Norður-írak sem
bækistöð.
Hersveitirnar hafa, samkvæmt
upplýsingum tyrkneskra yfir-
valda, náð til Dohuk sem er höfuð-
borg verndarsvæðisins og sett upp
farartálma á fjallvegum milli Do-
huk og borjgarinnar Zakho við
landamæri Iraks. Þá hafa þær
fellt a.m.k. 44 uppreisnarmenn og
jafnað 10 bækistöðvar þeirra við
jörðu.
15.000 manns eru í innrásarliði
Tyrkja en við hlið þeirra beijast
liðsmenn Demókrataflokks írak-
skra Kúrda, KDP, sem styðja
stjórnina í Ankara. KDP hefur
barist gegn uppreisnarmönnun-
um, sem kalla sig Verkamanna-
flokk Kúrdistans, PKK, og studdi
tyrknesk stjórnvöld í svipaðri inn-
rás í maí. Tyrknesk stjórnvöld
hafa hindrað aðgang fréttamanna
að svæðinu líkt og þau gerðu þá.
Stjórnin í Bagdad, sem missti
yfirráð yfir norðurhéruðum lands-
ins í kjölfar Persaflóastríðsins,
hefur fordæmt innrás Tyrkja.
Gulldebetkort
Traustið er hjá |>ér
ábi/rgðm er hjé okkur!
Ék
Hvað táknar
þetta gulldebetkort?
Gult debetkort LandsbankaTis táknar
traust. Með þátttöku í Vörðunni njóta
traustir viðskiptavinir betri fyrirgreiðslu
og þjónustu með gulldebetkorti.
Hvað segir
|>etta gulldebetkort
um þig?
Þú ert virkur viðskiptavinur og gerir
kröfu um að viðskipti þín séu metin
að verðleikum. Þú ert traustsins verður.
Hvað segir
þetta gulldebetkort
um batikarm j>irm?
Landsbankinn er í viðskiptum hjá þér.
Þín viðskipti eru metin að verðleikum og
bankinn ábyrgist þig.
L
Landsbanki íslands
Ei-nstaklingsviðskipti