Morgunblaðið - 27.09.1997, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
WH4' ARE YOU HIDIN6
UNPER YOUR BED?
Af hveiju ertu að fela þig Skólinn byrjar
undir rúminu þínu? næstu viku ...
í Þú faldir þig undir rúmi í
fyrra en það stoðaði ekk-
ert...
Eg er
núna...
leiknari
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
DÓMKIRKJAN
Safnaðarlífið í
Dómkirkjunni
Frá sr. Hjalta Guðmundssyni og
Jakobi Ágústi Hjáimarssyni:
NÚ ER að hefjast vetrardagskrá
Dómkirkjunnar í Reykjavík. Safn-
aðarlífið þar byggir á ríkum hefð-
um og mótast mest af helgihald-
inu. Almenn guðsþjónusta er kl.
11 sérhvem helgan dag allan árs-
ins hring í hinni öldnu kirkju. Þar
er flest með hefðbundnum hætti,
virðulegt og vandað. Dómkórinn
sem er í fremstu röð kóra í landinu
syngur við guðsþjónusturnar undir
stjóm Marteins H. Friðrikssonar.
Dómkirkjuprestarnir skiptast á um
messumar sína helgina hvor. Sr.
Hjalti Guðmundsson stendur dygg-
an vörð um hefðirnar en sr. Jakob
Agúst Hjálmarsson er jafnan með
altarisgöngur sem hafa færst í
aukana með árunum eftir óskum
um persónulega þátttöku og til-
beiðslu af hálfu margra þeirra sem
kirkju sækja. Þetta er undirstrikað
í flestöllum guðsþjónustum með
aukinni þátttöku leikmanna í fram-
kvæmd helgisiðanna, ritningar-
lestri og bænagjörð. Síðdegisguðs-
þjónustur á sunnudögum kl. 14
markast af tilefnum og eru með
fjölbreyttu sniði. Þegar svo stendur
á eru þær skírnarguðsþjónustur,
stundum fyrir fermingarbörnin,
aldraða, í léttari dúr fyrir fjölskyld-
una alla, annars bænaguðsþjón-
ustur.
Hádegisbænir eru á miðvikudög-
um kl. 12:10 og léttur málsverður
á eftir. Þangað sækir fólk sem vinn-
ur í miðborginni og hefur mótað
með sér þægilegt samfélag, ber
uppi bænir hvert annars og spjallar
margt undir borðum. Félagsstarf
er burðarás í starfi kirkjusafnaða.
Safnaðarfélagið heldur mánaðar-
lega hádegisfundi á sunnudögum
með fræðsluerindum og er félagið
öllum opið. Kirkjunefnd kvenna
Dómkirkjunnar starfar að samfé-
lagseflingu og líknarstörfum og
heldur reglulega fundi.
Sunnudagaskóli fyrir börn er í
Safnaðarheimilinu, Lækjargötu
14a, á sunnudögum kl. 11. Tilval-
ið er fyrir foreldra að sækja guðs-
þjónustu í kirkjunni á sama tíma
eftir að hafa fylgt börnunum til
samfélags við sitt hæfi þar sem
söngur, frásögur og brúðuleikur
miðla þeim fagnaðarerindinu.
Samverustundir eru í Safnaðar-
heimilinu fyrir 11-12 ára á þriðju-
dögum kl. 16:30 og fyrir börn
9-10 ára á fimmtudögum kl.
17:15. Þar er dagskrá við hæfi
eldri barna og lögð áhersla á skap-
andi starf og upplifun. Barna-
starfið og leikskólaheimsóknir eru
í umsjá Auðar Ingu Einarsdóttur,
guðfræðinema. Fermingarbörnin
hittast annan hvern laugardag kl.
10 og nú fyrst laugardaginn 27.
september.
Samvera fyrir foreldra og lítil
börn (mömmufundir) er í Safn-
aðarheimilinu á þriðjudögum kl.
13:30-16 með spjalli og stuttum
fræðsluþætti. Helgistundir fyrir
aldraða eru í Félagsmiðstöðinni á
Vesturgötu 7 fyrsta og þriðja
fimmtudag í mánuði kl. 10:30.
Opið hús fyrir alla aldursflokka
er í Safnaðarheimilinu á fimmtu-
dögum frá kl. 14-16, veitingar við
hóflegu verði eru í boði og ýmis-
legt á dagskrá. Sóknarnefnd held-
ur mánaðarlega fundi. Formaður
er Auður Garðarsdóttir, varafor-
maður og safnaðarfulltrúi Marinó
Þorsteinsson.
Viðtalstíma sína hafa prestarnir
í Safnaðarheimilinu kl. 11:30-12:
30 alla virka daga. Síminn er
562 2755. Nánari upplýsingar
gefa kirkjuhaldarinn Júlíus Egilson
og Guðrún Ólafsdóttir kirkjuvörður
í kirkjunni, sem er opin alla virka
daga kl. 10-18. Síminn þar er
551 2113.
HJALTI GUÐMUNDSSON,
JAKOB ÁGÚST HJÁLMARSSON,
dómkirkjuprestar.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.