Morgunblaðið - 27.09.1997, Qupperneq 56
J*
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG RITSTJ@MBL.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
1.700
1.129
hugbúnaðarfyrir-{
tækja 1990-97
i milljonum kr.
a verðlagi
hvers é
Hugbúnað-
ur út fyrir
1.700 millj.
GERT er ráð fyrir að útflutnings-
tekjur hugbúnaðarfyrirtækja nemi
1.700 milljónum króna í ár samanbor-
ið við rúmar 1.100 milljónir króna á
síðasta ári, en það voru 300 milljón-
um króna meiri útflutningstekjur en
spár gerðu ráð fyrir. Utflutningstekj-
, ur hugbúnaðarfyrirtækja hafa vaxið
v *hröðum skrefum á þessum áratug.
Þessar upplýsingar koma fram i
septemberhefti Hagfalna mánaðar-
ins, sem Seðlabanki Islands gefur út.
Niðurstaðan er byggð á könnun
meðal 40 fyrirtækja sem starfa á
sviði hugbúnaðar og tekur ekki til
fyrirtækja eins og Marels hf.
Langmest var flutt út til Banda-
ríkjanna á síðasta ári eða meira en
helmingur af öllum útflutningnum.
Útflutningur þangað nam 607 millj-
ónum króna í fyrra, útflutningur til
Norðurlandanna 207 milljónum og
útflutningur til annarra Evrópu-
landa samanlagt 186 milljónum
króna. Tekjur vegna sölu til Asíu-
landa námu 118 milljónum króna í
l^fyrra.
47% aukning
Samkvæmt bráðabirgðatölum um
viðskiptajöfnuð á fyrri helmingi árs-
ins bendir allt til þess að hallinn á
viðskiptum við útlönd verði töluvert
minni en gert var ráð fyrir. í Hagtöl-
unum segir að athyglisverðust í því
sambandi sé útkoma þjónustujafnað-
ar á fyrri hluta ársins, einkum út-
flutningur, en þar skeri sig úr 47%
aukning á fóstu gengi á annarri
þjónustu en samgöngu- og ferða-
þjónustu. Að hluta til sé hér um að
ræða mikla sölu á þjónustu til vam-
arliðsins „en einnig á sér stað veru-
leg aukning útfluttrar þjónustu á
sviði fjarskipta, fjármálaþjónustu,
i i^byggingarverktöku, hugbúnaðar og
ýmissar viðskiptaþjónustu.
---------------
tf
Leita á þyrlu
og svifnökkva
BJÖRGUNARSVEITAMENN leit-
uðu í gær Frakkans Michaels Led-
ucs við Markarfljót og í Fljótshlíð.
Svifnökkvi var notaður til að fara
eftir Markarfljóti í gær og björgun-
arsveitamenn ræddu við bændur í
Fljótshlíðinni, í þeirri von að rekja
mætti ferðir Frakkans unga, sem
síðast er vitað um á Hvolsvelli 6.
september sl.
Jónas Hallsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, sem hefur
umsjón með leitinni, sagði að um-
fangsmikil leit myndi hefjast í dag,
laugardag. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar mun þá fljúga yfir svæði, sem
líkur eru á að Michael Leduc hafi
ferðast um.
Tap botnfiskvinnslunnar
tvöfalt meira en í fyrra
BOTNFISKVINNSLAN er nú rek-
in með 9,5% tapi, samkvæmt mati
Þjóðhagsstofnunar. Verst er staðan í
frystingu, sem rekin er með 13%
halla, og tap á saltfiskvinnslu nemur
4,5%. Utreikningarnir eru byggðir á
framreikningi ársreikninga hjá fyrir-
tækjum, sem eru með yfir 42% af út-
flutningsverðmæti landfrystingar og
26% saltfískvinnslunnar árið 1996.
Þá sýna þessir útreikningar að
rækjuvinnsla og rækjuveiðar eru nú
nálægt núllinu, en stofnunin treystir
sér ekki til þess að meta afkomu
rækjuvinnslunnar sérstaklega. Af-
koma í loðnuveiðum og loðnuvinnslu
er aftur á móti með besta móti að
mati Þjóðhagsstofnunar og útlitið
bjart framundan.
í heild er sjávarútvegurinn nú rek-
inn með 1,2% hagnaði, en á sama
tíma í fyrra var hagnaðurinn 2,2% og
4,5% árið 1995. Þorsteinn Pálsson,
sjávarútvegsráðherra, sagði á aðal-
fundi Samtaka fiskvinnslustöðva í
gær að ljóst væri að munur á afkomu
innan sjávarútvegsins héldi áfram að
aukast og stæði fiskvinnslan í því
samhengi augljóslega frammi fyrir
hvað erfiðustu málunum. „A heildina
litið er þó að mínu mati ekki ástæða
til of mikillar svartsýni. Ef litið er til
reynslu undanfarinna missera, má
vænta þess að mál þróist til betri
vegar.“
Loðna og sfld bera
uppi heildarafkomuna
„Þessir útreikningar Þjóðhagsstofn-
unar á afkomu sjávarútvegsins leiða
ótvírætt í ljós að frysting og söltun
botnfisktegunda á við mikinn vanda
að stríða,“ sagði Amar Sigurmunds-
son, formaður Samtaka fiskvinnslu-
stöðva. ,jMtur á móti varð 12% hagn-
aður af loðnubræðslum á síðasta ári
og kemur það heim og saman við út-
tekt Samtaka fiskvinnslustöðva.
Nokkur halli varð á rækjuvinnslu á
síðasta ári, síldarsöltun var rekin
með 10% hagnaði en nokkurt tap
varð á vinnslu hörpudisks, að mati
Þjóðhagsstofnunar. Meginniðurstað-
an í útreikningum Þjóðhagsstofnun-
ar er að veiðar á síld og loðnu og
mjöl- og lýsisvinnsla beri uppi heild-
arafkomu í sjávarútvegi um þessar
mundir,“ sagði hann ennfremur.
■ Afkomumunur/17
S Morgunblaðið/NASA
Island tært
úr 700 km
fjarlægð
ÍSLAND er sjaldan að sjá úr
bandarískri geimferju þvf í flest-
um ferðum þeirra liggur spor-
baugurinn það sunnarlega. Annað
var uppi á teningnum í ferð
Discovery í ágúst sl. Samkvæmt
upplýsingum Bandarísku geim-
ferðastofnunarinnar (NASA) var
tærleiki loftsins svo mikill á norð-
urslóðum að Bjarni Tryggvason og
félagar hans í áhöfn Discovery sáu
Island (hægra megin á myndinni)
skýrt og greinilega úr 700 kfló-
metra fjarlægð. Við sjóndeildar-
hring sáu þeir og strandlengju
Grænlands 1.200 km í burtu. A
miðjum haffletinum beint undir
stéli Discovery sjást brúnleitir
flekkir sem NASA segir sýna öll
einkenni þörungablóma.
17 milljóna króna rekstrarhalli hjá Sorpu fyrri hluta ársins
Tap vegna
útflutnings
á pappír
FRAMBOÐ á pappir til endur-
vinnslu hefur stóraukist í heiminum
undanfarið og hefur verð á endur-
vinnslupappír því farið hríðlækk-
andi. Sorpa hefur flutt út pappír til
endurvinnslu allt frá árinu 1991 og
nú er svo komið að fyrirtækið verður
að greiða 3-4 krónur með hverju
kílói pappírs sem það flytur út. Þetta
hefur valdið því að tap er nú á
rekstri fyrirtækisins í fyrsta skipti í
nokkur ár.
Fyrri helming þessa árs var hall-
inn á rekstri Sorpu rúmar 17 milljón-
ir króna, en á sama tímabili í fyrra
var 14,5 milljóna króna hagnaður af
rekstrinum. Tap á pappírsútflutn-
ingnum er helsta ástæða rekstrar-
hallans og að sögn Ögmundar Ein-
Morgunblaoið/Golh
GÍFURLEGT magn af pappír berst daglega til endurvinnslu.
arssonar, framkvæmdastjóra Sorpu,
væri staðan hagstæðari um 13 millj-
ónir ef pappírinn hefði ekki verið
fluttur út. Hann telur að stjórnvöld
verði að setja lög um þennan mála-
flokk en sjálfur telur hann skynsam-
legt að pappírinn verði unninn hér á
landi og notaður til landgræðslu.
■ Vinna ætti pappírinn/28