Morgunblaðið - 05.11.1997, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
Fyrsti meistaratitill / B2
KNATTSPYRNA
T ryggvi til Aberdeen?
SKOSKA úrvalsdeildarliðið Aberd-
een ákveður í dag, samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins í Skotlandi,
hvort Tryggva Guðmundssyni,
markakóngi Islandsmótsins úr IBV,
verði boðið út til reynslu.
„Ég hef ekki heyrt neitt í þessa
veru en á von á símtali vegna máls-
ins,“ sagði Tryggvi spurður í gær-
kvöldi um áhuga Aberdeen. „Félagið
vildi fá mig á mánudagsmorgun til
að spila með varaliðinu seinni part
sama dags en ég var rétt kominn til
Islands og fyrirvarinn var of naumur."
Tryggvi var hjá Ikast í Danmörku
fyrir skömmu og síðan hjá norsku
félögunum Válerenga og Brann. „Ég
er með tilboð frá Ikast, sem vill gera
samning til tveggja ára, og bíð eftir
svari frá Brann en Válerenga er að
Heimir Guðjónsson hættir
að öllum líkindum hjá KR
leita að hávaxnari manni. Ég veit
ekki hvað verður en Skotland er
vissulega spennandi ef tækifærið
býðst.“ Umboðsmaður Tryggva hef-
ur einnig verið að kynna hann í Sví-
þjóð og eru Elfsborg og Örebro að
kanna málið.
Heimirfrá KR
Heimir Guðjónsson, miðvallarleik-
maður í KR, er að öllum líkindum á
förum frá félaginu samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins. Heimir, sem
er 28 ára og hefur alla tíð leik með
KR - fyrir utan eitt sumar með KA
á Akureyri - er samningsbundinn
vesturbæjarfélaginu í tvö ár til við-
bótar. Hann og forráðamenn knatt-
spyrnudeildar hafa ræðst við undan-
farna daga og gagnkvæmur áhugi
mun á því að harin yfirgefi félagið
og mjög líklegt að sú verði niðurstað-
an.
„Heimir er mjög góður leikmaður
en hefur ekki náð sér á strik með
KR að undanförnu. Það gæti því
verið gott fyrir hann að skipta um
umhverfi," sagði einn forystumanna
KR við Morgunblaðið í gær. Ekki er
ljóst hvert Heimir fer, en það gæti
orðið ofan á að hann færi úr landi;
möguleikar hafa verið kannaðir á því
hvort hann komist að í Noregi eða
Skottandi og ekki er loku fyrir það
skotið að hann gangi til liðs við ann-
að íslenskt félag.
Einar Þór Daníelsson, útheiji KR-
inga, verður hins vegar að öllum lík-
indum áfram með KR, en íslands-
meistarar ÍBV hafa m.a. sýnt honum
áhuga. Flest bendir aftur á móti til
þess að hinn útheiji KR-liðsins, Hilm-
ar Björnsson, gangi til liðs við
Tromsö i Noregi.
Þorvaldur Makan heim
Þorvaldi Makan Sigbjörnssyni úr
Leiftri, sem var til reynslu hjá Shef-
field United í tvær vikur, var ekki
boðinn samningur.
KARATE
1997
MIÐVIKUDAGUR 5. NOVEMBER 1997
BLAD
Ingólfur meistari í fyrsta sinn
INGÓLFUR Snorrason frá Selfossi varð íslandsmelstarl í karate um helgina, sigraðl bæði í
sínum þyngdarflokki og í opnum flokki. Þetta er í fyrsta slnn sem Selfyssingur verður meistari
í karate, en Ingólfur segist ætla sér stóra hluti í íþróttinni á næstu árum.
Zmejik kemur
til íslands
TÉKKNESKI tugþrautarkappinn Róbert Zmelik
hefur samþykkt að koma til landsins í janúarlok
nk. og vera á meðal keppenda á ÍR-mótinu í
frjálsíþróttum sem þá fer fram í Laugardals-
höll. Zmelik galt ÍR-ingum jáyrði sitt i gær, en
hann keppti einnig á mótinu sl. vetur. Þá varð
hann að sætta sig við annað sætið í keppni við
Jón Amar Magnússon í þríþraut sem saman stóð
af 50 m grindahlaupi, langstökki og kúluvarpi.
Zmelik hefur verið einn besti tugþrautarmað-
ur heims á þessum áratug og varð m.a. Ólympíu-
meistari 1992 og heimsmeistari í sjöþraut á
heimsmeistaramótinu innanhúss í París í mars
sl. Auk hans hefur Chris Huffins frá Bandaríkj-
unum boðað þátttöku sína i þríþrautarkeppni
mótsins og tfóst að Jón Amar og frændi hans
Ólafur Guðmundsson fá verðuga keppni.
-------- Yfirburðir
Liverpool
höfðu
ekkert
að segja
LIVERPOOL er úr leik í Evr-
ópukeppni félagsliða þrátt
fyrir 2:0 sigur á Strasbourg á
Anfield í gærkvöldi. Franska
liðið vann fyrri leikinn 3:0 og
hugsaði fyrst og fremst um
að verjast í Liverpool og tókst
ætlunarverkið - er komið í
þriðju umferð en Liverpool
situr eftir með sárt ennið.
Heimamenn sóttu nær lát-
laust en tókst ekki að skora
fyrr en um miðjan seinni hálf-
leik. Robbie Fowler var ör-
yggið uppmálað þegar hann
tók vítaspyrnu í kjölfar brots
á Þjóðverjanum Karl-Heinz
Riedle. Riedle, sem var ekki
í byrjunarliði Liverpool, bætti
öðru marki við fimm mínútum
fyrir leikslok og oft skall hurð
nærri hælum við franska
markið en fyrst og fremst
frábær markvarsla Alexand-
ers Vencels kom í veg fyrir
fleiri mörk.
Morgunblaðið/Kristinn
Urslit/B2
Aston/B4
Skorað
úr mark-
spyrnu
INIGO Arteaga, markvörð-
ur Racing Ferrol á Spáni,
skráði nafn sitt í knatt-
spyrnusöguna um helgina
þegar hann varð fyrstur
spænskra atvinnumanna til
að skora mark beint úr
markspyrnu.
Artega kom liði sínu, sem
leikur í 3. deild, í 2:0 á 70.
mínútu leiks við Moralo.
Hann spyrnti knettinum um
100 metra áður en hann
skoppaði einu sinni og fór
framhjá Jose Peralta mark-
verði Moralo.
Reglunum var breytt 1.
júlí og nú má skora beint úr
markspyrnu.
HANDKIMATTLEIKUR: BJÖRGVIN Á FUÓTANDIFÆÐI í MÁNUÐ / B2