Morgunblaðið - 25.11.1997, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997 C 9
Fyrsti sigur Bams-
ley á Anfíeld Road
Reuters
TEDDY Sheringham og Paul Scholes fagna fyrsta marki Man. Utd. gegn Wimbiedon.
Snilling-
amir
í sviðs-
Ijósinu
Brasilíumaðurinn Ronaldo hjá
Inter og Líberíumaðurinn
George Weah hjá AC Milan voru í
sviðsljósinu í 238. nágrannaslag fé-
laganna í ítölsku deildinni um helg-
ina en liðin gerðu 2:2 jafntefli. Diego
Simeone skoraði fyrir Inter í fyrri
hálfleik en Weah jafnaði stundar-
fjórðungi síðar. Ronaldo skoraði úr
umdeildri vítaspyrnu um miðjan
seinni hálfleik og Andre Cruz end-
urtók leikinn 10 mínútum síðar.
Fabio Capello, þjálfari AC Milan,
gagnrýndi vítið sem Ronaldo fékk
eftir samstuð. „Svona atvik koma
fyrir hvað eftir annað í leik,“ sagði
hann, en Luigi Simoni, þjálfari Int-
er, sagðist vera ámóta ringlaður
vegna úrslitanna. „Jafnteflið var
sanngjarnt en ávallt veldur von-
brigðum þegar mótherjinn jafnar
rétt fyrir leikslok," sagði Massimo
Moratti, forseti Inter.
Eins og alltaf í innbyrðis leikjum
þessara liða var mikið um pústra
og hörð samstuð en alls voru dæmd-
ar 50 aukaspyrnur og tvær víta-
spyrnur á San Siro leikvanginum
auk þess sem níu menn voru bókað-
ir. Ronaldo og Weah voru mjög at-
kvæðamiklir en sá síðarnefndi skor-
aði loks í nágrannaslag Mílanólið-
anna. „Hann var frábær í sókn og
vörn,“ sagði Silvio Berlusconi, for-
seti AC Milan, um Weah. „Ronaldo
var allt í öllu,“ stóð í umsögn eins
ítalska dagblaðsins. Hins vegar kom
víða fram að þessir snillingar þyrftu
meiri aðstoð. „Inter verður ekki
meistari fyrr en Ronaldo fær þá hjálp
sem hann á skilið," stóð í íþróttablað-
inu Gazzetta dello Sport.
„Milan getur ekki alltaf gefið
mótheijunum mann í forgjöf," hélt
blaðið áfram og sagði að Patrick
Kluivert stæði sig ekki í stykkinu
frammi með Líberíumanninum.
AC Milan byijaði illa síðsumars
en hefur tekið sig á og ekki tapað
stigi í nýliðnum sjö leikjum. Samt
sem áður er liðið enn 11 stigum á
eftir erkifjendunum, sem hafa verið
á toppnum allt tímabilið.
Juventus varð að sætta sig við
jafntefli, 2:2, á móti Parma, en er
taplaust og fylgir Inter eftir sem
skugginn. Meistararnir áttu reyndar
í erfiðleikum með gestina, sem kom-
ust tvisvar yfir með mörkum frá
Enrico Chiesa og Hernan Crespo,
en Nicola Amoruso tryggði heima-
mönnum jafntefli þegar hann skall-
aði boltann í netið skömmu fyrir
leikslok.
Piacenza er eina liðið án sigurs í
deildinni en fékk tækifæri til að sigra
Lazio, Paolo Tramezzani skaut beint
í fang markvarðarins Lucas Marche-
gianins úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik.
Liðin gerðu markalaust jafntefli og
er Lazio í fimmta sæti.
Allt gengur á afturfótunum hjá
Barcelona þessa dagana og
um helgina skaust Real Madrid upp
fyrir liðið, sem tap-
aði fyrir Oviedo,
1:0. Barcelona hef-
ur tapað þremur af
síðustu fjórum leikj-
um sínum, en liðið var með sjö
stiga forskot á Real fyrir tveimur
vikum. Þjálfarinn Van Gaal stjórn-
aði liðinu ekki, þar sem hann var
Bamsley kom mest á óvart í
ensku knattspyrnunni um
helgina með því að vinna Liverpool
1:0 á Anfield - fyrsti sigur nýlið-
anna á vellinum þar sem félögin
mættust síðast 1959. Liverpool
hafði sigrað í öllum fimm heima-
leikjunum í deildinni og stefnir á
titil sem fyrr en Barnsley var á
botninum með nokkur stór töp á
bakinu. Flestir áttu sjálfsagt von á
öruggum og jafnvel stórum sigri
heimamanna en miðheijinn Ashley
Ward sá til þess að söngur gest-
anna hljómaði hátt og lengi á pöll-
unum en hann skoraði 10 mínútum
fyrir hlé.
„Við höfum fengið marga skelli
og því voru þetta frábær úrslit,“
sagði Danny Wilspn, knattspyrnu-
stjóri Barnsley. „Ég get ekki hælt
leikmönnunum nóg. þeir lögðu mjög
mikið á sig en satt best að segja
hefur mér fundist að svona úrslit
yrðu fyrr en síðar. Heppnin var
með okkur. Liverpool fékk mörg
færi og Roy Evans er ekki ánægður
með hvemig farið var með þau.“
Liverpool sótti stíft eftir markið
en gestirnir pökkuðu í vöm, Lars
Leese varði vel og sóknir heima-
manna mnnu auk þess oft út í
sandinn vegna rangstöðu, sem þeir
sættu sig reyndar yfirleitt ekki við,
sögðu línuvörðinn á villigötum. „Við
vorum undir miklu álagi og línu-
vörðurinn einnig en hann lét ekki
undan þrýstingi,“ sagði Wilson.
Áhangendur Liverpool púuðu á
leikmenn sína þegar þeir gengu af
velli og stjórinn Evans sagðist skilja
vonbrigði þeirra. „Stuðningsmenn-
imir voru óánægðir vegna þess að
við sigruðum ekki og ég skil þá
vel. Þeir komu til að sjá okkur sigra
botnliðið en við gerðum það ekki
og því getum við ekki búist við fagn-
aðarlátum. Ég er argur og leik-
mennirnir líka. Við lékum ekki vel
en sköpuðum nógu mörg færi til
að sigra.“
Paul Ince og Robbie Fowler tóku
út leikbann og Rob Jones var meidd-
ur en það átti ekki að koma að sök
hjá Liverpool. Vörnin hafði lítið að
gera en sóknarmennirnir brugðust.
„Karlheinz Riedle er einn af heiðar-
legustu mönnum sem ég hef kynnst
en hann sagðist hafa átt að gera
þrennu," sagði Evans. „Varnar-
mönnum er kennt um þegar lið fá
á sig mörk en að þessu sinni fá
sóknarmennirnir orð í eyra fyrir að
koma boltanum ekki í netið.“
Atklnson byrjaði með sigri
Ron Atkinson fór frá Sheffield
Wednesday til að taka við Aston
Villa fyrir sex árum og fékk skömm
í hattinn frá stuðningsmönnum
Sheffield en þeir tóku honum fagn-
andi eftir 2:0 sigur á Arsenal.
„Þetta er mun betra lið en ég tók
við hérna síðast,“ sagði Atkinson.
í Hollandi vegna fráfalls móður
sinnar.
Sá maður sem lék aðalhlutverk-
ið var dómarinn, Perez Burrull,
sem kom mjög við sögu.
Á 64 mín. braut Oviedo-leikmað-
urinn Dely Valdez á Fernando
Couto innan vítatetigs, með þeim
afleiðingum að Couto féll og rak
hönd í knöttinn. Perez dæmdi víta-
spymu á Couto og sýndi honum
sitt annað gula spjald - rak hann
„Við héldum því liði uppi og við
getum haldið þessu liði í deildinni.
Aðalatriðið er að vera ekki í fall-
sæti og allt umfram það er bónus.“
Arsenal hafði aðeins tapað einum
deildarleik en vamarmistök
skömmu fyrir hlé kostuðu mark -
Andy Booth skoraði eftir sendingu
frá mótheijanum Gilles Grimandi -
og undir lokin innsiglaði Guy Whitt-
ingham sigur heimamanna. „Útlitið
var bjart en sköpunin var ekki fyr-
ir hendi,“ sagði Arsene Wenger,
stjóri Arsenal. „Þetta var frábær
dagur,“ sagði Atkinson. „Við vorum
heppnir á stundum en gæfan var
með þeim hugrökku og við gáfum
hvergi eftir. Eg beið spenntur eftir
leiknum og átti erfitt með að bíða
eftir lokaflautinu."
Ferguson hissa á sigri
Alex Ferguson, stjóri Manchester
United, andaði léttar eftir 5:2 sigur
á Wimbledon. „Úrslitin komu á
óvart. Við hefðum getað verið
þremur mörkum undir í hléi og
vörðumst illa allan leikinn en sókn-
arleikurinn var góður í seinni hálf-
leik.“
Fyrri hálfleikur var markalaus
en Nicky Butt skoraði fyrir United
fljótlega eftir hlé og David Beck-
ham, sem var ekki í byijunarliðinu,
bætti öðru marki við með fyrstu
snertingu sinni um miðjan hálfleik.
Neil Ardley og Michael Hughes
jöfnuðu en Beckham svaraði að
af leikvelli. Argentínumaðurinn
Pompei skoraði úr vítaspyrnunni.
Stuttu síðar lét Pizzi hjá Barcel-
ona sig falla inni í vítateig Oviedo
og fékk „gefins“ vítaspyrnu fyrir
leikaraskapinn. Rivaldo tók spyrn-
una og knötturinn hafnaði í stöng.
Undir lok leiksins kom Josep
Guardiola inná sem varamaður hjá
Barcelona, en hann hefur verið frá
um tíma vegna meiðsla. Viðvera
hans var ekki löng, þar sem hann
bragði áður en Paul Scholes og
Andy Cole lögðu sitt af mörkum.
„Wimbledon hlýtur að naga sig
í handarbökin," sagði Ferguson.
„Það er alltaf erfitt að leika héma
og litið verður á þetta sem góðan
sigur því mörg lið eiga eftir að tapa
stigum á þessum velli.“
Blackbum hafði það af
Gary Croft gerði fyrsta mark sitt
fyrir Blakburn snemma leiks á
móti Chelsea og það nægði til sig-
urs í góðum leik. Hins vegar fékk
Chelsea mörg færi til að skora,
einkum Gianfranco Zola, en lánið
lék ekki við Lundúnaliðið. „Við lék-
um mjög vel í seinni hálfleik," sagði
Roy Hodgson, stjóri Blackburn, en
ég verð að þakka Gianfranco fyrir
að missa marks.“ Ruud Gullit, stjóri
Chelsea, var ekki ánægður með
uppskeruna. „Við spiluðum vel og
sköpuðum mörg færi en lukum ekki
við dæmið.“
Derby var þremur mörkum yfír
á móti Coventry eftir 40 mínútur -
Francesco Baiano, Stefano Eranio
og Paulo Wanchope skoruðu - og
að þessu sinni hélt liðið öllum stig-
unum en Darren Huckerby minnk-
aði muninn í seinni hálfleik.
Kevin Davies skoraði fyrir South-
ampton í fjórða leik sínum í röð á
St. James’ Park en John Barnes
svaraði með tveimur mörkum fyrir
Newcastle í seinni hálfleik. „Við
lékum mjög vel,“ sagði Kenny
fékk að sjá tvö gul spjöld með
aðeins sjötíu sek. millibili!
Atletico Madrid fékk óskabyijun
gegn Real Madrid, þegar táningur-
inn Etxeberría skoraði mark fyrir
liðið eftir aðeins tólf sek. Leikmenn
Real fengu fjölmörg tækifæri til
að jafna, en það var ekki fyrr en
tíu mín. fyrir leikslok að Morient-
es, sem kom inná sem varamaður
fyrir Davor Suker, skoraði jöfn-
unarmarkið fyrir Real, 1:1.
Dalglish, stjóri Newcastle. „þeir-
gerðu gott mark en björguðu þrisv-
ar eða fjórum sinnum á línu og þó
þeir hefðu getað skorað seint í
leiknum var sigur okkar sanngjarn
þegar á heildina er litið.“
Sama staða kom upp á Villa
Park. Gary Speed skoraði fyrir
Everton úr vítaspymu en Savo Mil-
osevic og Ugo Éhiogu sáu til þess
að stigin urðu eftir hjá Aston villa.
Leeds nýtti tímann
Leeds gerði tvö mörk á síðustu
þremur mínútunum og vann West
Ham 3:1. Frank Lampard gerði
fallegt mark um miðjan seinni hálf-
leik en Hollendingurinn Jimmy
Floyd Hasselbaink jafnaði skömmu
síðar úr fyrsta markskoti Leeds.
Norðmaðurinn Alf-Inge Haaland
skallaði í net West Ham eftir horn-
spymu og Hasselbaink átti síðasta
orðið á lokamínútunni.
„Ég taldi að ekki yrði skorað,"
sagði George Graham, stjóri Leeds.
„Við vöknuðum til lífsins þegar
West Ham skoraði en ég vildi vita
hvers vegna við vorum svona Iengi
í gang. Hins vegar er hvetjandi að
vera í fjórða sæti og skemmtilegt
fyrir stuðningsmennina en við erum
ofar á töflunni en ég átti von á á
þessum tíma.“
Haaland hélt upp á 25 ára afmæl-
ið með því að skora. „Það er frá-
bært að gera þessi mörk undir lok'-
in en við viljum samt ekki bíða
svona lengi eftir þeim,“ sagði Norð-
maðurinn.
Bolton nálægt sigri
Guðni Bergsson og samheijar
voru nálægt því að fagna fyrsta
sigrinum á útivelli á tímabilinu en
Nathan Blake gerði vonina að engu
þegar hann missti marks fyrir opnu
marki Leicester. Engu að síður var
Colin Todd, stjóri Bolton, ánægður
með framfarirnar hjá liði sínu.
„Menn lögðu sig vel fram, höfðu
viljann og liðið vann vel. Þetta var
sannkölluð barátta.“ Hann sagði
að áhersla hefði verið lögð á að
stöðva skipulögð kerfí Leicester,
sem hefðu fellt mörg lið, og það
hefði tekist. „Mikið býr í þessu liði
og það veitir mér von. Eftir 5:0
skell eru framfarimar hvetjandi.“
Enn tapar Barcelona
Ivar
Ragnarsson
skrífar
frá Spáni