Morgunblaðið - 19.12.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.12.1997, Blaðsíða 1
Eefið út í tilefni heimsfrumsýningar ngjustu James Band mgndarinnar „ Tamnrrnw IMever Bies“ Auglýsingablað Föstudagur 19. desember 1997 Sambíóin / Háskólabíó Þriðja heimsstyrjöldin á næsta leyti 9 Bretland og Kína á barmi styrjaldar Yfirvöld vilja ekki staðfesta hvort leyniþjónustumaðurinn 007 vinni að lausn mála Dularfullir atburðir undan strönd Kína gætu leitt til þess að þriðja heimsstyrjöldin brytist út. Bresk freigáta og að minnsta kosti ein kínversk herþota urðu fyrir skotárás og er allt á huldu um afdrif þeirra. Kínversk stjórnvöld halda því fram að freigátan HMS Devonshire hafí skotið niður kínverska MIG-þotu, en bresk yfirvöld vilja ekkert tjá sig um málið að svo stöddu. Myndband frá óþekktum aðila sýnir að þeir sautján áhafnarmeðlimir breska skipsins sem komust h'fs af, voru skotnir til bana þar sem þeir svömluðu hjálparvana í sjónum. Ljóst er að ástand heimsmála hefur ekki verið jafn válegt síðan í Kúbudeilunni 1962. 007 enn að? Flotaforingi bresku leyniþjónustunnar, James Bond, sást í dag yfirgefa höfuðstöðvar breska varnarmálaráðuneytisins ásamt yfirmanni sínum, M. Ml6 neitar með öllu að njósnarinn 007 sé enn að störfum og segja tilhæfulausar þær sögusagnir að yfirvöld vilji njóta krafta hans við að leysa þá erfiðu stöðu, sem komin er upp í samskiptum við Kína. Samkvæmt okkar heimildum er staða málsins mun verri en yfirvöld vilja vera láta. Getur beiting valds verið eina lausnin? Er Bond rétti maðurinn til að leysa málin? en ekki hefur fengist staðfest hvar hún er tekin. Samskipti Breta og Kínverja er í uppnámi vegna málsins og er jafnvel talin hætta á að styrjöld brjótist út. Þessi einstæða fréttamynd er tekin í þann mund sem breska freigátan verður Ægi konungi að bráð. Morgundagurinn birtir hana fyrst allra fjölmiðla, Vlnsælasta Bond-mynd allra tíma 18. Bond myndin, Tomorrow Never Dies, var alheimsfrumsýnd samtímis á íslandi og í Bretlandi um síðustu helgi við frábærar viðtökur. í Bretlandi þénaði myndin rúmlega 435 milljónir króna, sem er mun betri árangur en náðist með fyrirrennara hennar, Goldeneye. Þar með er hér á ferðinni stærsta opnun allra tíma á Bond mynd og það í miðri jólavertíðinni. Tomorrow Never Dies hefur fengið frábæra dóma á meðal áhorfenda og kvikmyndagangrýnenda í Bretlandi. í könnun sem gerð var á meðal bíógesta um helgina kom í ljós að 69% aðspurðra mæla eindregið með Tomorrow Never Diessamanborið við 55% þeirra sem mæltu eindregið með Goldeneye. Fréttnæm aðsókn Ekki síðri var árangur Tomorrow Never Dies á íslandi þar sem rúmlega 12.000 manns sáu myndina í Sambíóunum Álfabakka og Háskólabíói á þessari frumsýningarhelgi. Þetta eru 2.000 fleiri áhorfendur en sáu Goldeneye á sinni fyrstu sýningarhelgi um jólin 1995. íslenskir áhorfendur og gagnrýnendur hafa lofað myndina í hástert og er það mál manna að hér sé á ferðinni hvort-tveggja besta Bond myndin og besti Bond leikarinn; þ.e. Pierce Brosnan. Meðal annars fékk myndin fjórar stjömur í stjörnugjöf DV á dögunum. Þessi árangur myndarinnar á íslandi varð að fréttaefni í þættinum ShowBiz Tonite á sjónvarpsstöðinni CNN. Frumsýnd víða um heim á næstu vikuin Um næstu helgi verður Tomorrow Never Dies frumsýnd víðsvegar um Evrópu, Mið-Austurlöndum og í Bandaríkjunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.