Morgunblaðið - 29.01.1998, Side 1
................. .....
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
KNATTSPYRNA
Rúnar frá í tvo mánuði
Rúnar Kristinsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, var
skorinn upp í nára í fyrradag og
er gert ráð fyrir að hann verði
frá keppni í tvo mánuði. Hann
verður því ekki með landsliðinu
á sex þjóða mótinu á Kýpur í
næstu viku eins og til stóð og
spilar ekki með Lilleström á
Spáni í vikuferð norska liðsins
þangað um miðjan febrúar en
vonar að hann geti verið með í
fyrsta leik norsku 1. deildar
keppninnar annan í páskum þeg-
ar Lilleström tekur á móti
Kongsvinger.
„Eg hef lengi verið slæmur í
náranum hægra megin og kom-
inn var tími til að opna og
hreinsa," sagði Rúnar við Morg-
unblaðið í gærkvöldi. „Þetta var
lítil aðgerð og ég get byrjað í
endurhæfingu um helgina en
spila væntanlega ekki næstu tvo
mánuðina."
Lilleström fór í 10 daga æf-
ingaferð til Suður-Aftíku á
mánudag og er Heiðar Helguson
með í för. „Hann er duglegur og
góður strákur og þjálfarinn er
ánægður með hann,“ sagði Rún-
ar um samherja sinn, sem lék
með Þrótti í Reykjavík á liðnu
tímabih. „Fjórir miðherjar berj-
ast um tvær stöður en Heiðar
fær sín tækifæri.“
Morgunblaðið/Þorkell
Stórsigur
Eyjamanna
HEIL umferð fór fram í 1. deild
karla í handknattleik í gærkvöldi.
Óvæntustu úrslitin voru í Mos-
fellsbæ þegar Víkingar unnu
efsta lið deildarinnar, Aftureld-
ingu. Á myndinni hér fyrir ofan
skorar Haraldur Hannesson eitt
af þremur mörkum sinum fyrir
ÍBV í stórsigri á Haukum. Bjarni
Frostason, markvörður Hauka,
kemur engum vörnum við þrátt
fyrir góða tilburði.
■ Leikirnir / B4-B5
KNATTSPYRNA: HNIGNUN HJÁ SKOTUM / C3