Morgunblaðið - 13.02.1998, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 13.02.1998, Qupperneq 4
4 B FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1998 B DAGLEGT LÍF DAGLEGT LÍF Erlingsdóttur er lífíð ekki bara boltaleikur. Ekki lengur. Frá unga aldri hafa þær sparkað, hent, gripið og skorað og allar getið sér gott orð fyrir tilþrifin; í fótbolta, körfubolta og handbolta. Valgerður Þ. Jónsdóttir spurði hvort þær væru alltaf í boltanum og komst að því að núna hafa þær í fleiri horn að líta en þegar þær voru heimasætur í foreldrahúsum. SIGRÚN Morgunblaðið/Kristinn Þrjár i boltanum Hjá Sigrúnu Óttarsdóttur, Lindu Stefánsdóttur og Heiðu Morgunblaðið/Þorkell LINDA Morgunblaðið/Kristinn FÓTBOLTI MEISTARAFLOKKUR BREIÐABLIKS OG LANDSLIÐIÐ Sigrún Óttarsdóttir 26 ára Með boltann á tánum frá sex ára aldri Morgunblaðið/Golli FÓTBOLTAPARIÐ Sigrún ogKristján. KÖRFUBOLTI MEISTARAFLOKKUR KR OG LANDSLIÐIÐ Linda Stefánsdóttir 25 ára Forréttindi að eiga hjálpsama fjölskyldu HANDBOLTI MEISTARAFLOKKUR VÍKINGS OG LANDSLIÐIÐ Heiða Erlingsdóttir 26 ára Þakka mínum sæla að makinn er líka í íþróttum Morgunbiaoio/uom LINDA og sonurinn Stefán Þormar. Morgunblaðið/Golli HANDBOLTAHJÓNIN Heiða og Rúnar og Sigtryggnr Daði. HÆRRA hlutfall stráka en stelpna í götunni þar sem Sig- rún Óttarsdóttir ólst upp í Kópavoginum réð miklu um að hún varð snemma nokkuð sparklipur. Hún segist líka hafa elt bræður sína, sem eru fjórum og sex árum eldri en hún, og félaga þeirra á út um víðan völl til að fá að vera með í boltanum. „Þeir reyndu stundum að stinga mig af en voru annars merki- lega umburðarlyndir,“ segir Sigrún, sem gagnstætt bræðrum sínum er enn að sparka bolta. Þótt Sigrún hafí verið með boltann á tánum frá sex ára aldri, var hún orðin fjórtán ára þegar hún mætti fyrst á æfingu hjá Breiðabliki. „Ég var óskaplega feimin og því þurfti pabbi að ota mér á æf- ingu. f byrjun fannst mömmu ekkert sérstaklega sniðugt að ég væri í fótbolta og amma mín talar ennþá um að fótbolti sé ekki íþrótt fyrir kvenfólk. Ég veit að mömmu hundleiðist fótbolti. Hún hef- ur þó fremur hvatt mig en latt og meira að segja tvisvar sinnum komið á völlinn til að sjá mig spila. Ég er fyrst og fremst í fótboltanum fyrir sjálfa mig en ekki aðra og mig skiptir engu þótt fjöl- skyldan sé ekki alltaf alveg með á nótunum." Tvö á sömu nótum En Sigrúnu þykir þó lán- legra að sambýlismaður hennar, Kristján Halldórs- son viðskiptafræðingur, sé vel með á fótboltanótunum. Hann æfir með meistara- flokki ÍR og yfirleitt á sama tíma og Sigrún þannig að hvorugt getur legið hinu á hálsi fyrir að vera lítið heima. „Við erum eiginlega aldrei heima,“ segir Sigrún sem oftast burðast með þrjár töskur; skólatöskuna, æf- ingatöskuna og þessa venju- legu, út úr húsi eldsnemma á morgnana. Hún er á næstsíðasta ári í lyfjafræði í HÍ, vinnur í Reykjavíkurapóteki tvo eftir- miðdaga í viku, auk þess að hafa heimsendingarþjónust- una á sinni könnu, og skúrar í fyrirtæki eitt kvöld í viku og aðra hvora helgi. „Ég er í annað skipti á fjórða ári í lyfjafræðinni. Núna þarf ég því ekki að sitja í öllum tím- um og hef einstöku sinnum leyft mér að sofa fram eftir á morgnana í stað þess að fara að læra. Annars hef ég, eins og flestir sem æft hafa íþróttir frá unga aldri, lært að skipuleggja tímann vel. Þar sem æfingar eru alltaf á matmálstímum freistast ég til að kaupa tilbúinn mat og ofreyni mig ekkert við heim- ilisstörfin." Sigrún á að baki tuttugu og fimm landsleiki og hefur sex sinnum orðið Islands- meistari með Breiðabliki. Hún segist í eðli sínu vera hópíþróttamanneskja og hafa mikið keppnisskap. Sigurinn finnst henni alltaf dísætur og hún segist verða hin fúlasta ef þær stöllur tapa leik. „Sér- staklega ef við höfum átt sig- ur vísan en fáum á okkur klaufamark," segir Sigrún og bætir við að sannur íþrótta- maður megi aldrei vera sátt- ur við að tapa. í MR spilaði Sigrún oft af sér árshátíðir og ýmsar aðr- ar skemmtanir. „Fótboltinn gekk alltaf fyrir öllu. Maður einhvern veginn festist í þessu. í og með held ég að félagsskapurinn ráði miklu um að ég er ekki hætt. Bestu vinkonur mínar eru í liðinu og við bröllum ýmislegt sam- an þegar færi gefst. Við höld- um af og til partí, förum í bíó og keilu eða gerum eitthvað annað skemmtilegt saman. Leiðinlegasti fylgifiskur bolt- ans er fjáraflanir, sem þó eru nauðsynlegar. Hvort sem fjölskyldum okkar er ljúft eða leitt, eiga þær yfirleitt birgðir af klósettpappír og pítsum, sem við höfum prangað inn á þær.“ Þurfum að láta af hlédrægninni Sigrún segir vaxandi áhuga á kvennaíþróttum, mun fleiri æfi nú en áður og því hafi íþróttakonur smám saman fengið aukna umfjöll- un í fjölmiðlum. „Við þurfum bara fylgja fordæmi strák- anna og láta af hlédrægninni. Öðruvísi er ekki hægt að hafa áhrif,“ segir hún og minnist liðinna tíma þegar fótboltakonum var bannað að nota grasskó á sumum knatt- spyrnuvöllum en látið óátalið þótt karlamir lékju í slíkum skóm. „Okkur var sagt að við skemmdum grasið og við urðum að láta okkur hafa það að spila í glerhálum malar- skóm í rigningu. Óréttlæti af þessu tagi og ýmiss konar mismunun kynjanna innan íþróttafélaganna varð til þess að fyrir nokkrum árum voru stofnuð hagsmunasamtök knattspyrnukvenna til þess að hafa áhrif innan KSÍ.“ Sigrún lætur sér í léttu rúmi liggja þótt oft sé sagt að kvennaliðin séu hálfdrætt- ingar á við karlana. Hún seg- ir samanburðinn ómaklegan og hafa beri í huga að líkams- bygging kvenna sé öðruvísi en karlanna. Þeir séu stærri og hafi betri vöðvabyggingu og því þýði ekki að tefla kvennaliði á móti karlaliði í sama flokki. „Við heyrum líka að konur í fótbolta séu karlalegar. Slíkt er fráleitt, knattspyrnukonur eru bara sterklegar og vel á sig komn- ar líkt og aðrar íþróttakon- ur.“ Og alltaf segist Sigrún drífa sig á æfingu þótt stund- um gæli hún við tilhugsunina um að skrópa. Ef hún láti slíkt eftir sé finnst henni hún vera að svíkja vinkonur sínar jafnt sem sjálfa sig. „Þótt ég sé dauðþreytt er ég mjög fegin þegar æfingin er byrj- uð. Einu sinni blundaði í mér að fara í nám til útlanda. Ég vil fremur trúa því að fótbolt- inn og allt í kringum hann hafi haldið aftur af mér held- ur en eðlislægt ósjálfstæði." Sigrún segist ekki nenna að skipuleggja líf sitt langt fram í tímann. Hún býst við að einhvern tímann eignist hún börn og buru og þá verði fótboltinn ekki eins ríkur þáttur í tilverunni. Enn um sinn ætlar hún að halda sínu striki í námi, starfi og fót- bolta. „Þátttaka í íþróttum er mikil vinna en ótrúlega þroskandi og lærdómsrík." LINDA Stefánsdóttir kallar foreldra sína og fimm systkini stundum litlu mafíuna vegna samheldn- innar. Hún ítrekar þó að sam- líkingingin nái ekki lengra og segist löngu hefði verið hætt að æfa ef hún nyti ekki stuðnings ogþjálpsemi sinna nánustu. í sameiningu rekur fjöl- skyldan Litlu kaffistofuna í Svínahrauni. Þar er löngum skrafað og skeggrætt við gesti og gangandi um íþróttir, enda Linda og hennar fólk allvel heima á þeim vettvangi. Flest hafa verið liðtæk í hinum ýmsu íþróttagreinum og öll eru vita- skuld einlægir áhangendur KR kvennakörfuboltaliðsins. Af systkinunum hefur Linda hald- ið lengst út sem keppnismann- eskja. Alltaf hætt við að hætta Hún segist tvisvar sinnum hafa lýst yfir að nú væri hún endanlega hætt í körfunni, en þá hafi „litla mafían" lagst á eitt um að telja sér hughvarf. „Eins og sjá má hefur þeim orðið vel ágengt, ég er enn í boltanum, enda hvetja þau mig með ráðum og dáð og leggja á sig ómælt erfiði til að ég komist á allar æfingar og leiki.“ Frá sjö ára aldri hefur Linda stundað ýmsar íþróttir af miklu kappi. Fyrst í Vík í Mýrdal, þar sem hún bjó sem barn, og síðar í Reykjavík, en þá heillaðist hún, fjórtán ára, af körfuboltanum. Hún byrjaði að leika með ÍR, rokkaði svo- lítið milli liða næstu árin en hefur nú leikið með meistara- flokki KR í tvö ár. Körfubolt- inn hefur átt hug, hjarta og tíma Lindu í ellefu ár og hún segist aðeins hafa slegið af á tímabili árið 1993 þegar sonur hennar, Stefán Þormar, var í heiminn borinn. „...sama ár og ég tók stúdentspróf, var valin besti leikmaður íslandsmóts- ins í körfubolta og landsliðið æfði stíft fyrir Smáþjóðaleik- ana á Möltu,“ segir Linda, sem komin átta mánuði á leið var fjarri góðu gamni. Strik í reikninginn Eins og bama er háttur setti Stefán Þormar svolítið strik í líf og tilveru móður sinnar, sem ekki hafði ráðgert að eignast barn svona ung. Leiðir Lindu og barnsfóður hennar lágu ekki saman og þar sem hann býr erlendis hefur uppeldið verið í höndum Lindu og fjölskyldu hennar. Þau mæðginin búa nálægt miðborginni, en foreldrar Lindu í Breiðholti þar sem Stefán Þormar er í leikskóla. „Hann er hálfgerð sameign fjölskyldunnar," segir Linda. „Mér fannst mikil viðbrigði að verða mamma og þurfa að hugsa um emhvern annan en sjálfa mig. A árunum áður hafði ég alla mína hentisemi; gat leyft mér að slappa af eftir leiki og æfingar, horft á NBA í sjónvarpinu og þess háttar. Núna verð ég að vera mjög kröfuhörð við sjálfa mig og skipuleggja hverja einustu mínútu. Vinna frá níu til hálf sex virka daga og aðra hvora helgi, hálftíma keyrsla fram og til baka, auk æfinga fjóra daga vikunnar frá sex til átta og leikja þá helgina sem ég er ekki að vinna gefur mér ekki mikið svigrúm til að vera með syni mínum. Ég tek hann stundum með mér á æfingar og reyni að nýta þann stutta tíma sem ég hef með honum eins vel og ég get. Við spjöll- um mikið saman og á kvöldin hef ég fyrir ófrávíkjanlega reglu að setjast á rúmstokk- inn og lesa fyrir hann. Þessar samverustundir eru mér afar kærar og ég er ekki sammála þeim sem segja að ég sé með þessu að gera hann of háðan mér.“ Andleg og líkamleg vellfðan En Linda er samt ekld alveg laus við samviskubitið, sem hrjáir flestar mömmur nú til dags. Hún segist stundum standa sig að þvi að gera ýmis- legt, sem gengur á skjön við allar formúlur í bamauppeldi. „Þá freistast ég til að kaupa hann, eins og sagt er, til að bæta fyrir fáar samverustund- ir,“ viðurkennir Linda rétt eins og hún sé eina mamman í heiminum sem stundum verði um of eftirlát við afkvæmi sitt. Að áeggjan fjölskyldunnar hélt Linda áfram í körfuboltan- um fljótlega eftir bamsburð- inn. Akvörðunin var erílð en löngunin réði ferðinni. „Iþrótt- in gefur mér bæði andlega og líkamlega vellíðan auk þess sem félagsskapurinn er ein- stakur. Við æfum saman, vinn- um að ýmis konar fjáröflun og höldum líka hópinn út á við. Um helgar fóram við stundum saman út að skemmta okkur og þá fremur á dansstaði en á krá- arrölt. Ég fæ félagsþörf minni fullnægt með stelpunum í lið- inu, en gæti þó alveg hugsað mér að hafa líka tíma til að um- gangast aðrar vinkonur mínar meira." Linda segir að oft veki ná- kvæmar tímasetningar sínar mikla furðu enda eigi fólk ekki því að venjast að mæla sér mót klukkan til dæmis ná- kvæmlega níu fimmtíu eins og hún þurfi stundum að gera til að halda áætlun. „Eg nýt þeiraa forréttinda að eiga fjöl- skyldu, sem styður mig og hjálpar á alla lund. Öðra vísi gæti ég ekki stundað körfu- boltann af nokkurri alvöru. íþróttakonur eiga að mörgu leyti erfiðara uppdráttar en karlar í íþróttum, oft vegna þess að þær hugsa meira um heimili og börn en þeir. Þær verða líka stundum að leggja meira á sig við fjáröflun." Sem nærtækt dæmi nefnir Linda að stelpurnar í meistara- flokknum þurfi sjálfar að afla tekna til að greiða laun er- lends liðsmanns, sem þær fengu til að styrkja liðið. Lindu er engin eftirsjá að árunum í körfuboltanum. Áform hennar um að fara í íþróttakennaraskólann á Laugarvatni eftir stúdents- próf fóru fyrir bí þegar sonur hennar fæddist og hún er ekki frá því að körfuboltinn hafi svolítið dregið á langinn að hún hæfi nám að nýju. „Þótt foreldrar mínir byðust til að aðstoða mig fjárhagslega, kaus ég að koma undir sig fót- unum sjálf og láta frekara nám bíða betri tíma. Ég stefni ekki lengur á að verða íþrótta- kennari, býst frekar við að fara í skemmra nám áður en ég verð þrítug. Körfuboltinn er hluti af lífsmynstrinu, veitir mér útrás og ég kem alltaf endurnærð af æfingum," segir Linda sem ætlar ekki að gefa boltann upp á bátinn í bráð. SEM barn lék Heiða Erl- ingsdóttir í lúðrasveit og æfði borðtennis og fót- bolta, en hætti þrettán ára, þegar hún ílentist í handbolt- anum hjá Víkingi. „Ætli vina- hópurinn hafi ekki svolítið stýrt áhuganum, að minnsta kosti á ég ekki ættir að rekja til gamalla íþróttakempna," segir Heiða, sem er yngst sex systkina og það eina sem hef- ur stundað keppnisíþróttir. Hún segir að þótt foreldrar hennar séu mikið útivistarfólk hafi þeir ekki verið sérstak- lega áhugasamir um boltaleiki. „Mamma og pabbi fylgdust þó vel með og komu yfirleitt á völlinn þegar ég var yngri. Mér fannst þau alltaf mun ró- legri og yfirvegaðri en margir aðrir foreldrar, sem hvöttu krakkana áfram með miklum hrópum og tilþrifum.“ En hróp og læti þurfti ekki til. Árið 1989 var Heiða valin í landsliðið og hefur, með nokkram hléum, leikið með því þar til í sumar að hún hætti vegna anna. Hún út- skrifaðist frá íþróttakennara- skólanum á Laugarvatni fyrir fimm áram, en starfar nú sem almennur kennari í Réttar- holtsskóla og finnst meira en nóg að sinna starfinu, uppeldi sonar síns, Sigtryggs Daða, sem er nítján mánaða, og æfa með meistaraflokki Víkings i handbolta. Boltinn hjá íþróttafélögunum Nýbakaður eiginmaður Heiðu, Rúnar Sigtryggsson, lætur líka til sín taka á vellin- um, en hann leikur með meist- araflokki Hauka í handbolta og hefur sitthvað til málanna að leggja þegar handbolta ber á góma. „... sem er fremur oft, bæði okkar á milli og í sam- eiginlegum kunningjahópi," segir Heiða, sem þakkar sín- um sæla fyrir að eiginmaður- inn er líka á kafi í íþróttum. Ái'ið áður en sonur þeirra fæddist störfuðu þau hjónin í eitt ár í Danmörku og æfðu jafnframt handbolta með þar- lendum liðum. „í Danmörku er mikil og rótgróin hefð fyrir kvennaíþróttum gagnstætt því sem tíðkast hefur hér heima. Þar er íþróttastarf hluti af uppeldi stelpna jafnt sem stráka og fyrir vikið verða stelpurnar ekki jafn ungar uppteknar af útliti og tísku og hér. Boltinn er hjá íþróttafélögunum, þau þyrftu að gera átak til að laða fleiri stelpur að. Eins og nú háttar til bjóða sum þeirra ekki einu sinni upp á íþróttir fyrir þær.“ Heiða telur að enn sé langt í land að kvennaíþróttum sé gert jafn hátt undir höfði og karlaíþróttum. Sem landsliðs- kona í handbolta og félags- maður í HSÍ segist hún stundum hafa fengið á tilfinn- inguna að þar á bæ sé litið á kvennalandsliðið sem auka- númer. „Slíkt viðhorf finnst mér ekki sanngjarnt í sameig- inlegu hagsmunafélagi, jafn- vel þótt karlalandsliðið hafi náð lengra en við og sé eitt það besta í heiminum." Þau hjónin æfa fimm daga vikunnar og leikir eru yfirleitt einu sinni til tvisvar í viku hjá báðum. Þau eru þó heppin að því leyti að æfingarnar eru á sama tíma auk þess sem Sig- tryggur Daði er í góðum höndum á meðan. „Við búum í kjallaranum hjá foreldrum mínum og hann er alltaf aufúsugestur hjá þeim. Samt segir samviskubitið alloft til sín. Mér finnst stundum að ég láti hann sitja á hakanum og alltof mikill tími fari í að sinna áhugamáli mínu. Ég veit líka að svona getur þetta ekki gengið til lengdar og senn fer að líða að því að ég hætti,“ segir Heiða, sem þó hefur ekki nákvæma tíma- setningu á takteinum. „...enda erfitt að hætta öllu sem er orð- ið vanabindandi,“ bætir hún við og upplýsir að þau hjónin lifi engu fyrir- myndarfjölskyldulífi. „Oreglulegir matmálstím- ar, röskun á svefnvenjum Sigtryggs Daða og fáar samverustundir fjölskyld- unnar eru vitaskuld helstu ókostirnir við að æfa svona mikið. Það er bara svo margt sem kemur á móti. Ég myndi sakna stelpnanna í liðinu og ýmis konar félagsstarfs sem jafnan fylgir þátttöku í keppnisíþróttum. I hand- boltanum hef ég eignast margar góðar vinkonur. Við höldum mikið hópinn, hittumst oft heima hver hjá annarri, fórum á kaffi- hús og stundum út að borða. Einn sá sætasti En Heiða myndi þó ekki sakna þess að safna dós- um og auglýsingum eða starfa að öðru áþekku fjáröflunarstarfi fyrir fé- lagið. Hún segist löngu vera búin að fá nóg af slíku stússi, sem sé óhjá- kvæmilegt en lítt skemmtilegt. Vinna af því tag- inu finnst henni þó léttvæg miðað við allt sem handboltinn hefur gefið henni. Sætir sigrar segir hún að standi upp úr, til dæmis þegar Víkingsstúlkur urðu bikar- og íslandsmeistar- ar árið 1994 og sjálf var hún kosin besti leikmaður Islands- mótsins sama ár. „Ungt fólk í íþróttum nýtur ýmissa forrétt- inda umfram aðra, en þó má ekki gleymast að það hefur lagt á sig mikla vinnu til að verðskulda þau,“ segir Heiða. HORNBAÐKÖR Mótuð úr akrýli, níðsterk, hita- og efiiaþolin og auðveld að þrífa. Fást með eða án nuddkerfa Verð firá kr. 59.313 Ennfremur sturtubotnsbaðker frá kr. 36.000 Trefjar ehf. Hjallahrauni 2, Hafn. S: 555 1027 HeimasOa www.itn.is/trefjar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.