Morgunblaðið - 18.02.1998, Page 2
2 D MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Þjónsnef og þvottaklemma
EKKI lofar maturinn góðu ef
marka má svip og háttu þjóns-
ins. En við höfum ekki áhyggj-
ur af því heldur spyrjum hvaða
litlu myndarammar fyrir ofan
og til hliðar við stærri myndina
passa inn í hana?
’xos
3o nfj(f ‘wfd Jdiunu jvuiuivjvpuAffl :uiusnvrj
Kallið mikla
Mosfellsbæ, 14. janúar 1998.
KÆRU Myndasögur Moggans.
Ég heiti Bryndís Vigfúsdóttir og er ellefu
ára. Mig langar að senda ykkur sögu í fímm
hlutum, sem er um refí. Ég sendi einn og
einn í einu og langar mig að þið birtið þetta
sem fyrst.
Hýri sagði við Dröfn móður sína: Þú
ert búin að sýna mér ást og samúð svo
ég ætti að veita þér ósk þína.
Dröfn sagði: Þú ert líka búinn að sýna
mér ást og samúð þegar maki minn dó,
hann Smári, en ég skal segja þér ósk
mína. Að ættin megi ganga áfram með
hjálp þinni.
Hvað áttu við með því? spurði Hýri.
Dröfn svaraði: Kallaðu strax í kvöld
eins og ég.
Svo kom kvöld og það var fullt tungl
og stjörnurnar tindruðu hver af
annarri uppi á himninum. Hýri vaknaði
við það að Dröfn ýtti við honum með
trýninu.
Nú byrjum við að kalla, sagði Dröfn.
Hún fór upp á stall og kallaði. Hún beið
smá stund og fékk kall á móti og hún
svaraði um hæl.
Dröfn sagði við Hýra: Nú skiljum við,
þú færð grenið. Bless Hýri.
Og hún stökk af stað. Hýri sá skottið
hverfa sjónum sínum. Hýri stökk á stall-
inn en hann þurfti ekki að kalla því að
hann heyrði kall. Það var ræfílslegt kall
en eitthvað er betra en ekkert. Hýri
kallaði á móti og fékk aftur svar. Hann
beið smá stund og þá kom tófa á móti
honum og stökk upp á stallinn. Þar
horfðust þau í augu. Þá sagði tófan:
Ég heiti Jensína og er tveggja ára og
er eldisrefur. Hvað heitir þú?
Þá svaraði Hýri: Ég heiti Hýri og er
tveggja ára og hef alltaf lifað villtur.
Hvernig slappst þú út og af hverju?
Jensína svaraði svona: Annar refur
sagði mér að ég ætti að reyna að sleppa
því ég yrði drepin í næstu viku vegna
loðins felds míns og ég slapp út þegar
það var verið að þrífa búrið mitt.
Hýri og Jensína elskuðu hvort annað.
Framhald síðar.
Kínamúrinn
HVAÐ haldið þið að
eitt af mestu mann-
virkjum á jörðinni,
Kínamúrinn, sé lang-
ur? 1.100 kílómetrar
(km), 2.400 km, 5.300
km eða 10.500 km?
■jjf'}
Pfo npjofj vjj jo suvq ifn[i[ r[8[3
’jnpiojq m pv 3o jvq
vjfdui uvymmij /i? xas ‘p3uo[ pv
myf pnjpunq jnSoCJ 3o punsruf
oai Jd uuunmvuryj :uiusnvq
ERUM VlÐ NOKKODAÐ \ í HVAPAN FEKXSTU
SVINDtA.ERþAÐ? ) N þÁ r'
s_ ( HUGAAyNDV