Morgunblaðið - 18.02.1998, Side 1
BRANPARAR|
[þrautir!
Heimilisfang:
MYNDASÖGUR
MOGGANS
Morgunblaöinu
Kringlunni 1
103 Reykjavík
Gleðin við völd
MIKIÐ er gott að vera glaður, gæti þessi krakki verið að
segja um leið og hann fagnar öllum heiminum með útbreidd-
um faðminum og glaðlegu andlitinu. Þórdís, 7 ára (sennilega
orðin 8), Rofabæ 43 í Reykjavík, sendi okkur myndina fyrir
margt löngu.
Penna-
vinir
Ég heiti Ester og mig lang-
ar að eignast pennavini á
aldrinum 8-11 ára. Ég er
sjálf 9. Áhugamál mín eru
hestar, hundar, Spice Girls
og margt fleira. Bæði strák-
ar og stelpur mega senda.
Áður en ég kveð segi ég
bara gleðilegt ár og bæ, bæ
og bless. Svara öllum bréf-
um.
Ester Ó. Árnadóttir
Hólsgerði 2
600 Akureyri
Ég heiti Helga og mig
langar til að eignast penna-
vinkonur á aldrinum 10-12
ára. Áhugamál mín eru:
Spice Girls (úrklippm*,
plaköt, póstkort og myndir í
albúm), Toni Braxton, ftí-
merki, fimleikar og fleira.
Helga L. Grétarsdóttir
Ásbúð 53
210 Garðabær
Hlutir og karlmenn
Á ÞESSARI mynd eru fjórir hlutir og Qórir
karlmenn eða strákar. Hlutirnir eru
stígvél, kassi, blóm og pera. Allir eru þeir
mannabústaðir og líklega eru það íbúarnir
sem baða út öllum öngum í forgrunni
myndarinnar. Jón Birgisson, 7 ára, Lang-
holtsvegi 163a, 104 Reykjavík, er höfundur-
inn.
VIRÐING
FYRIR
SKÁLDI
SAMFÉLAGIÐ syrgði
Halldór Laxness í liðinni
viku. Sigursteinn J. Gunn-
arsson, 8 ára strákur í
3.E. í Melaskóla, gerði
þessa minningarmynd
mánudaginn 9. febrúar
þegar fánar voru dregnir í
hálfa stöng vegna andláts
skáldsins á Gljúfrasteini.
Halldór varð 95 ára gam-
all.