Morgunblaðið - 27.02.1998, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1998 23
Aö aá laagt í Lífinu ...
Söludeild Armula, sími: 550 7800 • Elko, Smaratorgi 1, Köpavogi, simi: 544 4000• Söludeild Kringlunni, sími: 550 6690
Þjónustumiöstöd í Kirkjustræti, sími: 800 7000* Post- og simstöövar um land allt
Geislamengun
meðfram Noregi
NATO-
aðild efst
á dagskrá
Vilnius. Reuters.
VALDAS Adamkus sór í gær emb-
ættiseið sem nýr forseti Litháens, sá
annar í röðinni frá því landið endur-
heimti sjálfstæði sitt frá Sovétríkj-
unum fyi'ir sjö árum. Við þetta tæki-
færi lýsti Adamkus því yfir að hann
hygðist í embættistíð sinni leggja
mesta áherzlu á að koma Litháen í
Evrópusambandið (ESB) og Atl-
antshafsbandalagið, NATO.
Adamkus, sem er 71 árs, hefur
heitið því að nýta 50 ára reynslu sína
af störfum á Vesturlöndum til að
bæta horfur Litháens á að hljóta að-
ild að þessum helztu bandalögum
vestrænna þjóða, sem og til að
reyna að breyta ímynd landsins,
sem hefur liðið fyrir hina sovézku
fortíð og hægfara umbætur.
Adamkus tók við embætti af
Algirdas Brazauskas með hátíðlegri
athöfn í þjóðþinginu, Sejmas, en
þinghúsið er enn umkringt vega-
tálmum úr steinsteypu frá því í sjálf-
stæðisslagnum við Moskvuvaldið í
kring um áramótin 1990-1991.
Adamkus flúði heimaland sitt 1944
eftir að hafa tekið þátt í baráttunni
gegn Rauða hernum, sem réðst inn í
landið í kjölfar þess að Þjóðverjar
fóru halloka í stríðinu á austurvíg-
stöðvunum. í Bandaríkjunum varð
hann háttsettur hjá umhverfísvernd-
aryfírvöldum, U.S. Environment
Protection Agency, en sneri aftur til
heimalands síns eftir að hann komst
á eftirlaun. Hann sigraði naumlega í
forsetakosningum, sem fóru fram í
tveimur umferðum 21. desember og
4. janúar sl.
Fyrir íslenskt afreksfólk sem oft er áferðalögum erlendis er
nauðsynlegt að geta verið í góðu sambandi viðfjölskyldu sína
- hvar sem er og hvenær sem er.
Landssíminnn óskar Jóni Arnari góðs
gengis á Evrópumeistaramótinu í
Sevilla á Spáni um helgina.
LANDS SÍMINN
Ertu búiiin að s tnaik: \<sl þesi
gómsætu salöt?
Hefur stóraukist síðan Bretar leyfðu
50-falda losun á teknesíum-99
Salötin frá Hollt og Gott eru frábær
ofan á brauð eða með fersku grænmeti.
Salötin fást í öllum helstu matvöruverslunum.
Mest hefur geislunin mælst í
humri við Hörðaland að því er fram
kemur í Aftenposten. Er hún 270
becquerel, sem er alþjóðleg mæliein-
ing fyrh- geislun, en í Evrópusam-
bandinu er leyfilegt hámark í sjávar-
fangi 1.250 becquerel í kflói.
Á eftir að aukast
Per Strand, starfsmaður norsku
geislavarnanna, segir, að þótt ekki sé
ástæða til að vara fólk við fiski eða
öðru sjávarfangi, þá sé það öruggt, að
geislunin eigi eftir að aukast enda
berst sífeflt meira af henni með haf-
straumum úr Irlandshafi.
Norskir vísindamenn ætla að
fylgjast grannt með geislamengun-
inni og þeir benda á, að ekki séu allir
á einu máli um hvenær hún verði
hættuleg mönnum. Raunar var haf-
ist handa við rannsóknirnar þegar
árið 1994 en þá leyfðu bresk stjórn-
völd Sellafield-stöðinni að 50-falda
það magn af teknesíum-99, sem bær-
ist þaðan út í náttúruna.
Fyrst varð vart við geislunina 1996,
i Óslóarfirði og við Vesturlandið, og
síðan hefur hún aukist stöðugt. I des-
ember sl. var hún 79 becquerel í kflói
í þangi við Troms en aðeins mánuði
síðar var hún komin í 124 becquerel.
Lítið hefur hins vegar mælst í la-æk-
lingi og rækju.
Til íslands um aldamótin
Sigurður Magnússon, forstöðu-
maður Geislavarna ríkisins, sagði
fyrir skömmu í viðtali við Morgun-
blaðið, að geislavirkar teknetínagnir
myndu berast að hluta norður og
austur fyrir Noreg en að hluta með
hafstraumum í vestur og síðan í suð-
ur með Austur-Grænlandsstraumn-
um. Að íslandsströndum myndu þær
líklega ná um aldamótin.
GEISLAVIRKT teknesíum-99 frá
kjai’norkuendui’vinnslustöðinni í
Sellafield í Bretlandi mælist nú í
sjávardýrum og sjávargróðri með
næstum allri Noregsströnd eða frá
Óslóarfirði í suðri til Troms í norðri.
Kemur það fram í skýrslu, sem
geislavarnir norska ríkisins birtu í
fyrradag. Er þessi mengun komin til
að vera því að helmingunartími
teknesíum-99 er 213.000 ár.
Reuters
VALDAS Adamkus, nýr forseti
Litháens, kyssir eiginkonu sína
Ölmu eftir að hann sór embætt-
iseið í gær.
Nýr forseti Litháens
sver embættiseið
ESB- og