Morgunblaðið - 27.02.1998, Side 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
Heimsmet
hjá Kínveija
í sundi
KÍNVERSKA stúlkan Xia-
owen Hu setti heimsmet í 100
metra fjórsundi í heimsbikar-
keppni í stuttri laug í Peking
í gær. Hún synti á 1.00,60
mín. en heimsmet sænsku
stúlkunnar Louise Karlssons
frá 1992 var 1.01,03.
„Næsta skref er að bæta
metið í 200 metra fjórsundi,“
sagði Hu, sem er 18 ára. Kín-
verjar höfðu mikla yfirburði í
greininni og voru í þremur
efstu sætunum. Xue Han
fékk silfrið, fór á 1.02,81, og
Guiling Sun bronsið.
Meira en 200 sundmenn
frá 19 löndum voru með í
keppninni en heimsbikar-
keppnin samanstendur af níu
tveggja daga mótum víðs
vegar um heiminn á hverju
ári.
Kxnverjar fengu 12 gull-
verðlaun á mótinu, Þjóðveij-
ar sjö og Astralir fimm.
Bikarúrslita-
:í
■
Hálfgerður brandari
Knútur G. Hauksson, formaður
handknattleiksdeildar Fram, sagði
að félagið hefði í gær sótt um heimild
til ÍSÍ að hefja málarekstur að núju
og senda kæru til íþróttabandalags
Reykjavíkur, ÍBR, sem er fyrsta
dómstig samkvæmt reglum ÍSÍ. „Við
munum byrja á því að leita eftir
heimild frá ISÍ og taka síðan ákvörð-
un hvað við gerum í framhaldinu,“
sagði hann.
Knútur sagði að þessi niðurstaða
væri auðvitað mikið kjaftshögg fyrir
HSÍ. „Við erum fyrst og íremst
undrandi á hvemig HSÍ hefur haldið
á málinu. Þegar við kærðum spurð-
um við dómstól HSÍ að því hvort
málsmeðferðin væri örugglega í rétt-
um höndum hjá dómstól HSÍ. Við
fengum þau svör að svo væri. Nú
kemur allt annað á daginn. Þetta mál
er að verða hálfgerður brandari,"
sagði formaðurinn.
Þrjú dómstig
í dómi sínum segir Dómstóll ÍSÍ
að dómstig íþróttahreyfingarinnar
séu þijú. Fyrsta dómstigið geti verið
skipað með tvennum hætti. Viðkom-
andi héraðssamband, (í Reykjavík
ÍBR), skipi héraðsdómstól og ef
starfandi sé sérráð íþróttagreinar
skipi það sérráðsdómstól sem sé þá
fyrsta dómstig í viðkomandi íþrótta-
grein innan íþróttahéraðsins. Á öðru
dómstigi skipar viðkomandi sérsam-
band dómstól og þriðja dómstig sé
Dómstóll ÍSÍ, kosinn á íþróttaþingi.
DÓMSTÓLL íþróttasambands
íslands hefur ómerkt úrskurð
dómstóls Handknattleikssam-
bands íslands um bikarúrslita-
leik Vals og Fram. Dómstóll
HSÍ dæmdi að leika skyldi bik-
arleikinn aftur en dómstóll ÍSÍ
segir að formgallar hafi verið á
málsmeðferðinni og því er hún
ómerkt. Vaismenn halda því
bikarmeistaratitlinum sam-
kvæmt þessu.
Samkvæmt úrskurði dómstóls ÍSÍ
hefði þurft að leggja málið fyrir
héraðsdómstól Iþróttabandalags
Reykjavíkur, áður en því var vísað til
dómstóls HSÍ. Þurfa Framarar, sem
skutu málinu til HSÍ, því að hefja
málareksturinn að nýju, Kjósi þeir það.
leikjunum í
blaki frestað
HANDKNATTLEIKUR
„Kjaftshögg fyrir HSÍ,“ segir formaður handknattleiksdeildar Fram
Dómstóll ÍSÍ ómerkti,
úrskurð dómstóls HSÍ
Morgunblaðið/Golli
FRÁ bikarúrslitaleiknum umdeilda. Valsmaðurinn Ari Allansson reynir að komast í gegnum vöm
Framara. Valur sigraði og úrslitin standa samkvæmt niðurstöðu dómstóls ÍSÍ.
Dómstóll ÍSÍ segir það hafa almennt
gildi fyrir íþróttahreyfinguna í heild
að grundvallarreglum hennar um
dómstóla sé fylgt. Samkvæmt dóms-
og refsiákvæðum ÍSÍ megi skjóta úr-
skurði fyrsta dómstigs til hlutaðeig-
andi sérsambandsdómstóls. í þessu
felist að mál beri að höfða á fyrsta
dómstigi og að annað dómstig sé
áfrýjunardómstig.
Málsmeðferðin
rðng
„Mál þetta hefur einungis verið til
meðferðar hjá einum dómstól, þ.e.
dómstól HSI sem er áfrýjunardóm-
stóll á öðru dómstigi. Þessi málsmeð-
ferð fær ekki staðist samkvæmt
þeim reglum sem hér að framan er
lýst. Sérstökum reglum HSÍ sem
stangast á við þær verður ekki beitt
án löglegrar breytingar á dómskerfi
íþróttahreyfingarinnar, sem ekki
hefur verið gerð. í málinu nr. 1/1990
ómerkti dómstóll ÍSÍ meðferð máls
fyrir dómstól HSÍ þar sem það hefði
aðeins verið dæmt á einu dómstigi.
Þrátt fyrir það hefur Handknatt-
leikssamband íslands ekki samræmt
reglur sínar lögum og dóms- og
refsiákvæðum ÍSÍ. Þá er það að-
finnsluvert að dómendur voru fjórir
er málið var dæmt í dómstól HSÍ. í
þessu máli var heldur ekki neytt
þess úrræðis að höfða það fyrir dóm-
stól ÍBR sem er héraðsdómstóll á
fyrsta dómstigi.
Af framangreindum ástæðum
verður að ómerkja alla meðferð
málsins fyrir dómstól HSÍ og vísa
þvi frá þeim dómstól, sbr. 1. tölulið ö.
greinar dóms- og refsiákvæða ÍSÍ,“
segir m.a. í dómi dómstóls ÍSÍ, en í
honum sátu Björgvin Þorsteinsson,
Karl Gauti Hjaltason og Magnús
Óskarsson.
FRJALSIÞROTTIR
Vala
keppni í
Vála Flosadóttir, heimsmethafi
innanhúss í stangarstökki, fær
væntanlega harða keppni á mótinu
í Laugardalshöll 5. mars. Samning-
ar hafa náðst við tvo fyrrverandi
Evrópumethafa í stangarstökki
innanhúss, Anzhelu Balakhonovu
frá Úkraínu og Eszter Szemeredi
frá Ungverjalandi, um að koma
hingað til lands og keppa við Völu og
Þórey Elíasdóttur. Balakhonova og
BIKARÚRSLITALEIKIRNIR
í blaki karla og kvenna verða
14. mars í íþróttahúsinu Aust-
urbergi í Breiðholti. Þeir áttu
upphaflega að fara fram um
helgina. Það eru ÍS og Þrótt-
ur Neskaupstað sem leika i
kvennaflokki og Stjarnan og
Þróttur Reykjavík í karla-
fiokki.
harða
Höllinni
Szemeredi settu báðar Evrópumet í
Karlsruhe í Þýskalandi 25. janúar,
stukku 4,33 metra. Vala og Daniela
Bartova frá Tékklandi hafa síðan
bætt Evrópu- og heimsmetið og eru
þær einu sem hafa stokkið hærra
innanhúss í ár. Bartovu var einnig
boðið að vera með á mótinu í Höllinni
en hún varð að afþakka það vegna
þess að hún var búin að ákveða að
keppa á móti í Berlín 6. mars.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR: FETAR VALA í FÓTSPOR GUNNARS HUSEBY? / C2, C3