Morgunblaðið - 27.02.1998, Side 13
V
=5?== Aptiva S44
svört margmiðlunartölva
Intel Pentium MMX 233 Mhz örgjörvi
15" litaskjár meS innbyggSum BOSE hátölurum
32MB SDRAM, má auka í 384MB
4.2GB harður diskur
Ati 3D Rage Pro með 2MB SGRAM
24 hraSa geisladrif
HljóSkort
Bassabox
33.000 bps mótald
Windows 95
Leikjapakki frá Lon&Don
Nú er létt leið inn á InternetiS - úr sófanum heima
í stofu í gegnum sjónvarpió méb hálp NETgáttarinnar.
Þú tengir símalínu aftan í NETgáttina, þú ert me&
einfalda fjarstýringu, aðlaðandi notendaviðmót
+ á skjánum með skemmtilegum valmyndum og
íslenskum texta. Notendaleiðbeiningarnar eru
innbyggðar og á íslensku.
Hvab er NETgáttin?
NETgáttin er aðgangslykill fjölskyld-
unnar að Internetinu og Veraldarvefn-
um (www) sem er gífurlegur hafsjór
upplýsinga um öll hugsanlega atriði
sem aðeins hafa verið aðgengileg í
gegnum dýrar og flóknar tölvur til
þessa. En ekki lengur!
NETgáttin veitir þér aðgang að Inter-
netinu í gegnum sjónvarpið þitt. Hún
er einföld, hraðvirk og hagkvæm í
notkun. 33.6 kb innbyggt mótald
tryggir þér hraðann sem þarf.
NETgáttin veitir notendum einnig
NETgáttarþjónustu, sem veitir stað-
bundið efni og auðveldar tengingar
við þekktar og áhugaverðar vefsíður
með hjálp einfalds valmyndakerfis.
Þar má nefna upplýsingar um ferða-
lög, færð, fréttir, verðbréfamarkaðinn,
heimaverslun, heimabanka o.fl. —og
það um allan heim. Netgáttin er með
valmyndum á íslensku.
Símalína tengd í tækib
og þú ert á Internetinu
NETgáttin tengist sjónvarpinu mjög
auðveldlega. Ef þú átt prentara getur
þú einnig tengt hann við tækið.
Tengdu símalínuna aftan í tækið og þú
ert í sambandi við Internetið.
Einföld fjarstýring er sérstaða NETgátt-
arinnar. Fjarstýring er allt sem þú þarft
til að skoða netið. Netskoðun hefur
aldrei verið auðveldari! Þú getur slak-
að á uppi í sófa á meðan þú rannsak-
ar víðlendur Internetsins. Ef þú vilt
geturðu einnig keypt þráðlaust lykla-
borð NETgáttar til þess að skrifa tölvu-
póst.
Lágur stofnkostnabur
Ef þú átt sjónvarp og síma er NETgátt-
in það eina sem þú þarft. Þú þarft
ekki að hafa áhyggjur af háum
stofnkostnaði eða dýrri uppsetningu.
Þú færð NETgáttina fyrir aðeins brot
af því verði sem nú fylgir því að fá að-
gang að Internetinu.
Auðvelt að tengja, auðvelt í notkun.
NETgáttinni er einfaldlega stungið í
samband við sjónvarpið (eins og
myndbandstæki). Símalínan er svo
tengd við NETgáttina og þar með ertu
með 33.6 kb hraða tengingu.
Engin auka útgjöld - stöbug
uppfærsla hugbúnabar
NETgáttin er nánast viðhaldslaus.
Best af öllu er að hún verður ekki úrelt.
Það þýðir að þú þarft ekki lengur
að eyða peningum í viðhaldskostnað
eða dýran uppfærslubúnað. Hugbún-
aður Netgáttarinnar verður uppfærður
reglulega, þér að kostnaðarlausu, eftir
því sem nýjungar bjóða.
Hægt er að fá þráðlaust lyklaborð
og er það selt sérstaklega.
Leitarskrár
NETgáttin býður upp á aðgang að
flest öllum leitarforritunum, s.s. Yahoo,
Web Crawler, Lycos og mörgum fleiri.
Aukahlutir sem fylgja tækinu:
1. AC rafmagnsnúra
2. Símatengi og Y-splitter
3. Myndbandstækjasnúra
4. S- myndbandstækjasnúra
5. Hljóðsnúra
6. Fjarstýring
1