Morgunblaðið - 13.03.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.03.1998, Blaðsíða 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA PlirrgnwMalrili 1998 FÖSTUDAGUR 13. MARZ BLAD íms©: Birgir Leifur í 33. sæti eftir fyrsta hring á Opna Marokkó-mótinu „Nokkuð sáttur“ Jafnaði vallarmetið írinn Des Smyth lék frábærlega í gær og jafnaði vallarmet Darrens Cole - lék á 64 höggum, eða átta höggum undir pari. Hann þurfti aðeins að nota 26 pútt á öllum 18 holunum. Smyth, sem er 45 ára, hefur aðeins unnið eitt mót í evr- ópsku mótaröðinni og var það árið 1993 á Opna Madridarmótinu. Næstir á eftir Smyth koma Mathi- as Grönberg frá Svíþjóð og Pedro Linhart frá Spáni, sem báðir léku á 67 höggum, eða 5 höggum undir pari. Birgir Leifúr Hafþórsson, kylfíngur frá Akranesi, lék fyrsta hringinn á 74 höggum, eða tveimur höggum yfir pari, á Opna Marokkó-mótinu í goífi sem hófst á D’Agadir-vellinum í gær. Hann er í 33. sæti af 160 eftir fyrsta keppnidaginn. „Ég er nokkuð sátt- ur við hringinn, sérstaklega vegna þess að ég náði ekki að fara æf- ingahring fyrir keppnina og þekkti því völlinn ekki neitt. Eg var ánægður með teighöggin en púttin hefðu getað gengið betur. Ég þurfti þó aldrei að þrípútta. Flat- irnar eru rosalega harðar, nánast eins og teppi," sagði Birgir Leifur í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. Gerði vonskuveður Mótið er eitt af mótum evrópsku mótaraðarinnar og eru margir af bestu kylfingum heims meðal keppenda. Þegar Birgir Leifur lék var veðrið mjög gott, sannkölluð bongó-blíða eins og hann orðaði það sjálfur. Þegar líða tók á dag- inn hvessti mjög og áttu margir keppendur í hinu mesta basli. Sem dæmi um það lék ítalinn Costantino Rocca á 77 höggum og var í 81. sæti og Spánverjinn Severiano Ballesteros var 13 högg- um yfír pari eftir aðeins tólf holur. Rocca lék í Ryder-liði Evrópu í fyrra, þegar það sigraði Bandarík- in, og Ballesteros var þá fyrirliði liðsins. Meistarinn frá í fyrra, Clinton Whitelaw frá Suður-Af- ríku, lék í gær á 73 höggum eða einu höggi betur en Birgir Leifur. Eftir annan hring í dag verður skorið niður og þá fá aðeins 50 efstu að halda áfram. Grindayík mætir ÍA LOKAUMFERÐIN í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik var leikin í gærkvöldi. Þá réðst hvaða lið leika saman í 8-liða úrslitakeppninni, sem hefst fimmtudaginn 19. mars. Til að komast í undanúrslit þarf að vinna tvo leiki til að komast lengra, en þegar kemur að undanúrslitum og úrslitum þarf að vinna þrjá leiki. Eftirtalin lið mætast í 8-liða úr- slitum, það lið sem fyrr er talið upp fær fyrst heimaleik: Grindavík-IA, KR-Tindastóll, Haukar-Keflavík, Njarðvík-KFÍ. Morgunblaðið/Sigfus Gunnar Guðmundsson BIRGIR Leifur Hafþórsson, fyrrverandi íslandsmeistari af Akranesl, undlrbýr pútt á flöt Hann kveðst nokkuð ánægður með fyrsta hringinn á evrópsku mótaröðinni í Agadlr ( Marokkó. Guðni til tveggja ára? KNATTSPYRNA Semur GUÐNI Bergsson, fyrirliði Bolton, hefur verið í samningavið- ræðum við enska félagið að undan- fömu. Rætt hefur verið um tveggja ára samning til viðbótar, en núgildandi samningur hans við félagið rennur út í vor. „Það er áhugi af beggja hálfu að ég verði áfram og við erum að ræða saman. Það kæmi mér ekki á óvart að um semjist á næstu vikum,“ sagði Guðni við Morgunblaðið. Bolton er í næstneðsta sæti úr- valsdeildarinnar og hefur ekki unnið leik í deildinni síðan 1. des- ember á síðasta ári, en þá vann liðið Newcastle. „Staðan er alls ekki vænleg og það hefur gengið vægast sagt brösuglega undan- farnar vikur. Við erum búnir að gera mikið af jafnteflum, eða tólf, og þau gefa ekki mikið. En við eigum enn eftir ellefu leiki þannig að enn er von. Næstu þrír leikir eru á heimavelli og því mikilvægt að vinna þá til að eygja möguleika á að halda sætinu í deildinni. Þetta er mikil barátta og ekkert gefið í þessu,“ sagði Guðni. Hann sagði ástæðurnar marg- ar fyrir slöku gengi liðsins og nefndi m.a. meiðsli lykilmanna. „Þó svo að félagið hafi eytt 11 milljónum punda í leikmanna- kaup hefur það ekki skilað tilætl- uðum árangri. Það hefur einnig spilað inn í að nokkrir lykilmanna liðsins hafa verið meiddir. Við höfum verið að tapa og missa leiki niður í jafntefli sem við átt- um að vinna. Það þarf því líka heppni til að allt gangi upp. Við höfum oft verið að spila vel á móti sterkari liðunum í deildinni, en aftur verr á móti hinum,“ sagði fyrirliðinn. Bolton fær Sheffield Wednes- day í heimsókn á laugardaginn. Valur hug- leiddi kæru STJÓRN handknattleiksdeildar Vals samþykkti á fundi í gær, með þremur atkvæðum gegn tveimur, að kæra ekki úrslit deildarleiksins gegn Fram í meistaraflokki karla í fyrra- kvöld. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem stjómin sendi frá sér í gær. í frétt Valsmanna segir: „Stjóm Hkd Vals telur þó ein- sýnt, sé miðað við sömu sjónar- mið og byggt var á í hinum ógilta dómi Sérdómstóls HSÍ um bikarúrslitaleiks Vals og Fram þann 7. febrúar sl„ þá beri að ógilda úrslit leiksins og endurtaka hann vegna mistaka sem urðu við tímatöku undir lok leiktíma. Valsmenn virða hinsvegar lögmál leiksins og íþróttarinnar meira en málsskotsrétt fyi-ir dómstólum og óska því Frömur- um innilega til hamingju með sigurinn í leiknum." GOLF i KNATTSPYRNA: ÞORÐJÖRN ATLI SVEINSSON HJÁ BRÖNDBY TIL REYNSLU / C3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.