Morgunblaðið - 14.03.1998, Síða 2
2 B LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998
MORGUNB LAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. MARZ 1998 B 3
ÚRSLIT
ÍÞRÓTTIR
IÞROTTIR
Knattspyrna
Deildarbikarkeppni KSÍ
Leiknir - KR.....................3:3
Haukur Gunnarsson, Daníel Hjaltason 2 -
Bjöm Jakobsson, Guðmundur Steindðrsson
2.
■Staðan í hálfleik var 2:1 fyrir Leikni sem
komst síðan í 3:1. KR-ingar jöfnuðu leikinn
þegar þijár mínútur voru eftir.
Breiðablik - í A.................4:1
ívar Siguijónsson 2, Atli Kristjánsson,
Hreiðar Biamason - Halfdán Gíslason
Þýskaiand
1. deild:
Duisburg - Le verkusen...........1:1
Markus Osthoff 4. - Emerson 35. 13.389.
Herta Berlin - Schalke...........1:4
Michael Preetz 54. - Marc Wilmots 22.,
Olaf Thon 46., Martin Max 74., Andreas
Mueller 90. 60.517.
Staðan
Kaiserslautern ,.25 16 6 3 48:27 54
Bayem Munchen., ,.25 14 5 6 49:30 47
Bayer Leverkusen26 12 10 4 52:30 46
Schalke.fl.4 .26 11 11 4 32:22 44
VfB Stuttgart „25 11 7 7 44:34 40
Hansa Rostock ..25 10 5 10 37:33 35
Duisburg ..26 9 8 9 33:34 35
Werder Bremen.... ..25 9 7 9 32:40 34
Hertha Berlín ..26 9 6 11 31:42 33
Dortmund ..25 8 8 9 42:39 32
VfL Bochum „25 8 6 11 30:37 30
Köln „25 9 3 13 41:50 30
VfL Wolfsburg „25 8 5 12 30:37 29
1860 Miinchen..... „25 7 7 11 32:44 28
Gladbach „25 6 8 11 42:47 26
HamburgSV „25 6 8 11 29:38 26
Karlsmhe SC „25 6 8 11 35:46 26
Bielefeld „25 7 4 14 31:40 25
Frakkland
1. deild:
Nantes - Girondins Bordeaux. 1:2
En Avant Guingamp - Chateauroux 0:0
3:1
2:0
Montpellier - Metz 0:1
3:1
Toulouse - Olympique Lyon 0:2
Staðan
Metz .29 16 8 5 42:24 56
RC Lens .28 16 4 8 39:28 52
Olympique .28 15 5 8 41:21 50
Mónakó .29 15 4 10 42:28 49
ParisSt Germain.. .28 13 7 8 38:27 46
Girondins .29 12 10 7 41:34 46
Olympique Lyon... .29 14 4 11 33:30 46
AJ Auxerre .29 13 6 10 48:38 45
Bastia .28 10 10 8 28:22 40
Montpellier .29 9 10 10 29:34 37
Le Havre .29 8 12 9 32:29 36
Nantes .29 10 6 13 28:33 36
Toulouse .29 8 8 13 23:40 32
Strasbourg .29 7 8 14 33:40 29
Rennes .29 7 8 14 31:42 29
En Avant .29 7 8 14 24:36 29
Cannes .29 7 6 16 28:48 27
Chateauroux .29 7 6 16 25:51 27
Holland
1. deild:
Roda JC Kerkrade -Fortuna Sittard 0:0
Heerenveen - Willem II Tilburg.... 1:3
Staðan
Ajax ...23 20 2 1 71:10 62
PSV Eindhoven.... ...23 14 8 1 64:27 50
Feyenoord ...24 13 6 5 42:28 45
Heerenveen ...25 13 5 7 41:34 44
Vitesse ...23 12 6 5 53:37 42
Willem II ...25 11 4 10 42:39 37
Fortuna Sittard.... ...25 11 4 10 35:40 37
NAC Breda ...23 9 4 10 29:28 31
Twente Enschede. ...23 7 9 7 27:26 30
Graafschap ...25 7 8 10 33:28 29
Sparta ...24 7 8 9 42:43 29
NEC Nijmegen ...24 9 1 14 27:46 28
Utrecht ...23 8 3 12 42:51 27
RodaJC ...25 7 6 12 34:35 27
Groningen ...25 6 8 11 32:43 26
MVV Maastricht... ...24 6 4 14 23:55 22
RKC Waalwijk ...24 4 6 14 27:52 18
Volendam ...24 3 6 15 20:62 15
Körfuknattleikur
1. deild karla, úrslitakeppni
Stjarnan - ÞórÞorl.............74:70
NBA-deildin
Leikir aðfaranótt föstudags:
Miami - Cleveland..............97:74
Dallas - Chicago..............104:97
■Eftir framlengingu.
Huston - New Jersey..........115:104
San Antonio - Sacramento.......97:86
Denver - Vancouver.............98:93
Portland - Minnesota...........95:92
LA Clippers - La Lakers.......85:108
Íshokkí
NHL-deildin
Leikir aðfaranótt föstudags:
Buffalo - San Jose...............3:1
Detroit - Chicago................3:0
Montreai - NY Rangers............4:1
Philadelphia - Vancouver.........3:2
Phoenix - Dallas.................5:4
Los Angeles - Toronto............1:2
Boston - Calgary.................2:5
Carolina-NewJersey...............0:2
Ny Islanders - Washington........1:2
Skíði
Heimsbikarinn
Crans Montana:
Brun karla:
1. Josef Strobl (Austurr.)..........1:30.84
2. Didier Cuche (Sviss).............1:31.36
3. Fritz Strobl (Austurr.)..........1;31.39
4. Hans Knauss (Austurr.)...........1:31.48
5. Kristian Ghedina (Ítalíu)........1:31.52
6. Jean-Luc Cretier (Frakkl.).......1:31.61
7. HannesTrinkl (Austurr.)..........1:31.80
8. Nicolas Burtin (Frakkl.).........1:31.92
9. Kjetil Andre Aamodt (Noregi) ....1:32.07
10. Adrien Duvillard (Frakkl.).......1:32.11
■IjOkamótinu í bruni kvenna, sem fram
átti að fara á sama stað í gær, var aflýst
og því er Ijóst hver lokastaðan er í brun-
keppni heimsbikarsins.
1. Katja Seizinger (Þýskal.).......520
2. Renate Goetschl (Austurr.)......392
3. Isolde Kostner (Italíu).........292
4. Melanie Suchet (Frakkl.)........237
Skfðastökk
Þrándheimur:
Stökk af 120 metra palli:
1. Masahiko Harada (Japan)......250.7
(125.5 m/123.5 m)
2. Noriaki Kasai (Japan).........249.7
(123.5/125.5)
3. Roberto Cecon (Ítalíu)........240.0
(127.0/120.5)
Staðan eftir 24 mót af 27:
1. Widhoelzl....................1.116
2. Kazuyoshi Funaki (Japan).....1.062
3. Primoz Peterka (Slóveníu)....1.037
4. Harada.......................1.004
2. DEILD KARLA
ÞÓR AK. - HÖRÐUR ................29: 22
SELFOSS- FYLKIR .................31: 22
ÞÓR AK. - HÖRÐUR ..........29: 22
SELFOSS- FYLKIR ...........31: 22
Fj. leikja U J T Mörk Stig
SELFOSS 15 12 2 1 428: 339 26
GRÓTTA-KR 15 11 2 2 452: 362 24
ÞÓRAK. 15 10 3 2 392: 292 23
FYLKIR 15 9 4 2 422: 346 22
FJÖLNIR 14 6 1 7 347: 369 13
HM 14 4 1 9 341: 388 9
ÍH 15 3 1 11 392: 469 7
HÖRÐUR 13 3 0 10 325: 369 6
ÁRMANN 14 0 0 14 287: 452 0
UM HELGINA
Handknattleikur
Laugardagun
1. deild karla
KA-heimilið: KA-lBV..................16.20
2. deild karla:
Laugardalsh.: Ármann - Fjölnir..........18
Sunnudagur:
1. deild karla:
Ásgarður: Stjaman - Haukar..............20
Digranes: HK-Valur.....................20
Framhús: Fram - Breiðablik.............20
Seljaskóli: ÍR-Víkingur.................20
Strandgata: Haukar-UMFA.................20
Körfuknattleikur
Laugardagur.
Úrslitakeppni kvennæ
Hagaskóli: KR- UMFG.....................16
Keflavík: Keflavík-lS...................16
Sunnudagur.
Úrslitakeppni 1. deildar karla:
Kennarahásk.: ÍS-Snæfell.............20.30
Þorlákshöfn: Þór-Stjaman................16
Mánudagur
Úrslitakeppni kvernui:
Grindavík: UMRJ-KR......................20
Kennarahásk.: ÍS - Keflavík..........20.15
Blak
Sunnudagur.
Úrslitakeppni kvenna
Húsavík: Völsungur - Víkingur.......14.00
Knattspyma
Laugardagun
Deildarbikarkeppni KSl (karlar)
Ásvellir Haukar - Víkingur R.........11.00
Leiknisvöllun UMFA-Stjaman...........11.00
Ásvellin Grindavík - FH..............13.00
Leiknisvöllur Reynir S. - Þróttur R.13.00
Ásvellir Selfoss - Keflavík..........15.00
Ásvellir Fram - Skallagrimur.........17.00
Leiknisvöllur Fjolnir-IR.............17.00
Sunnudagur.
Ásvellir Víðir-Valur................13.00
Ásvellir. Njarðvík-HK................15.00
Blak
I dag fara fram bikarúrslitaleikimir í karla
og kvennaflokki. ÍS og Þróttur N. leika til
úrslita í kvennaflokki og hefst leikur þeirra
kl. 14.30 í íþróttahúsinu Austurbergi. Karla-
leikurinn hefst kl. 16.00 á sama stað.
Fimleikar
íslandsmótinu í fimleikum verður framhald-
ið í Laugardalshöl! í dag og á morgun. Keppni
hefst báða dagana kl. 14.00 og lýkur með
verðlaunaafhendingu kl. 16.00.
Skíði
Bikarmót SKÍ, Hermannsmótið, verður í
Hlíðar§alli við Akureyri um helgina. Keppt
verður í stórsvigi karla og kvenna f dag og
svigi karla og kvenna á morgun. Keppni hefst
kl. 10 báða dagana.
Badminton
Unglingameistaramót íslands í badminton
fer fram í Stykkishólmi um helgina. 200 krakk-
ar em skráðir til leiks.
Kraftlyftingar
fslandsmót unglinga og öldunga í kraftiyft-
ingum fer fram í íþróttahúsinu í Njarðvik í
dag, laugardag, og hefst kl. 14.00.
Tennis
Islandsmót unglinga í tennis innanhúss fer
fram í Tennishöllinni f Kópavogi um helgina.
Akstursíþróttir
Keppt verður í ísakstri á Leirtjöm undir
Úlfarsfelli á morgun, sunnudag, kl. 13.00.
Keppt verður bæði á mótorhjólum og bílum á
ísilagðri braut. Að lokinni keppni, um kl. 15.00,
gefst almenningi kostur á að keppa á sínum
eigin bfl í brautinni.
KNATTSPYRNA
Uppgjör
í aðsigi
ENSKA knattspyrnan er skrítin.
Þegar Arsenal og West Ham
skildu jöfn á mánudag í liðinni viku
var öllu lokið. I það minnsta voru
veðbankar í Englandi
Orn Páll Þess sinnis> brugðu
Ormarsson slagbrandi fyrir dyr
skrifar sinar og tilkynntu að
Manchester United
væri orðið meistari - í fimmta sinn á
síðustu sex árum. Þótti mönnum
þetta misgóð tíðindi, eins og gengur,
en fáir sáu ástæðu til að hreyfa mót-
mælum. Þá gerist það að United
magalendir á Hillsborough í Shef-
field og nær aðeins jafntefli við West
Ham á meðan Arsenal leggur hið tor-
drepna lið Wimbledon að velli. Allt
var breytt. Spenna er á ný hlaupin í
baráttuna um meistaratitilinn og veð-
bankar hafa lokið upp dyrum á ný - í
hálfa gátt að minnsta kosti. Hugsan-
lega verður þó slagbrandurinn aftur
kominn á sinn stað klukkan eitt í dag.
að er eins gott fyiir áhugamenn um
enska knattspymu að sofa ekki yfir
sig í dag því úrslitin í baráttunni um
meistarabikarinn eftirsótta gætu leg-
ið fyrir laust eftir hádegi. Klukkan
11.15 stundvíslega stíga toppliðin tvö,
Manchester United og Arsenal,
nefnilega á svið í sjálfu Leikhúsi
draumanna, Old Trafford í
Manchester, og trúið því, þar verður
enginn gamanleikur á boðstólum,
heldur leiftrandi dramatík - barist
verður til síðasta blóðdropa. Einvígi,
þessara liða í millum, um meistaratit-
ilinn er skollið á eftir að Chelsea, Liv-
erpool og Blackbum Rovers, sem til
skamms tíma voru líkleg til að blanda
sér i baráttuna, hnigu niður, eitt af
öðm voru þau örend.
Meistarar United standa óneitan-
lega betur að vígi í rimmunni sem
framundan er, hafa 60 stig úr 30
leikjum en Arsenal 51 stig úr 27
leikjum. Liðin hafa með öðmm orð-
um tapað jafnmörgum stigum en
ekki verður um það deilt að betri eru
stig í húsi en leikir á hendi. Gefum
okkur það til dæmis að United fari
með sigur af hólmi í dag. Þá er mun-
urinn orðinn 12 stig og þó Arsenal
eigi þrjá leiki til góða verður á bratt-
ann að sækja. Verði lyktir leiksins
þessar má gera því skóna að úrslitin i
ensku knattspyrnunni séu ráðin á
þessum vetri.
Ljúki leiknum aftur á móti með
sigri gestanna er óhætt að búa sig
undir æsispennandi endasprett.
Munurinn verður þá kominn niður í 6
stig og Arsenal hlýtur að teljast eiga
möguleika á að ná alla vega 6 stigum
úr leikjunum sem liðið á inni - úti við
Bolton (24.3.), úti við Blackburn
(13.4.) og heima við Derby (28.4.). Á
þessum dagsetningum sést á hinn
bóginn að Arsenal kemur, að öllu
óbreyttu, ekki til með að ná United
að leikjum fyrr en í lok api-fl, sem
skekkir myndina vissulega allnokk-
uð.
Enginn hlátur
Þriðji möguleikinn er sá, eins og í
öllum öðrum deildarleikjum, að
bræðrabylta verði á Old Trafford.
Sennilega kæmu þau úrslit United
betur en yrðu alls ekki óviðunandi
fyrir Arsenal. Á það ber líka að líta
að Arsenal hefur ekki unnið á Old
Trafford síðan veturinn 1990-91 -
síðast þegar félagið varð meistari.
Sigur í dag gæti því vissulega verið
góður fyrirboði.
Einn af þeim sem neituðu að
leggja árar í bát, þrátt fyrir uppá-
tæki veðmangara, er Arsene Wenger
knattspyrnustjóri Arsenal. „Fyrir
tveimur vikum hlógu menn þegar ég
sagði að möguleikar okkar væru ekki
úr sögunni. Nú heyri ég engan hlát-
ur! Pressan er öll á United, þótt hún
mætti vissulega vera meiri, sem þýð-
ir að leikurinn á laugardag [í dag] er
afar mikilvægm'. Jafntefli undir þess-
um kringumstæðum kæmi sér meii'a
að segja alls ekki illa fyrir okkur.“
Jafnvel þótt úrslitin í dag verði
Arsenal hagstæð dregur Wenger
enga dul á að mikill galeiðuróður sé
framundan. „Við eigum eftir að leika
marga erfiða leiki, auk þess sem lið
okkar er ekki enn fullskipað vegna
meiðsla leikmanna. En ef hlutirnir
halda áfi’am að ganga okkur í hag
getur allt gerst! Sigurinn gegn
Wimbledon færði okkm- heim sann-
inn um það að það er mikill karakter
í þessu liði.“
Og ekki veitir af gegn United-liði
sem borið hefur ægishjálm yfir önn-
ur félög í Englandi á þessum áratug
og leikur, þar fyrii’ utan, jafnan best
þegar mest er í húfi. 1-0 útisigur á
Chelsea, 3-1 útisigur á Liverpool og
4-0 heimasigur á Blackburn, svo
dæmi séu tekin frá þessu tímabfli. Að
vísu lutu meistararnir í gi'as á High-
bury sem ætti að gefa Arsenal byi' í
seglin. Á móti kemur að United er
ugglaust í mun að hefna þeirra ófara.
Misjafnt gengi
Veturinn hefur um margt verið
undarlegur hjá meisturunum. Þeh'
byi'juðu svo sem ekkert alltof vel en
tóku síðan einhverja mestu rispu síð-
ustu ára - voru í þvílíkum ham að lið
vildu helst ekki verða á vegi þeirra.
Þeim kapítula lauk á Stamford
Bridge í byrjun janúar, þegar
United kjöldró Chelsea í bikar-
keppni enska knattspyi'nusambands-
ins. Ailai' götur síðan hefur gengi
liðsins verið misjafnt. Það hefur
lengst af verið að leika langt undir
getu og tapað dýrmætum stigum
gegn liðum á borð við Southampton,
Leicester og Bolton, sem þykir ekki
viðunandi. Nú er svo komið að
United hefur sex sinnum lotið í
lægi'a haldi í deildinni og dæmin
sanna að lið sem tapar oftar en sex
sinnum verður yftrleitt ekki meist-
ari. Til samanburðar má geta þess að
Arsenal hefur aðeins fjórum sinnum
verið ofurliði borið.
Engu að síður er Manchester
United „á áætlun" miðað við gömlu
þumalputtaregluna sem segir að ætli
lið sér að verða meistari í Englandi
þurfi það að taka að meðaltali tvö
stig úr leik. United hefur fengið 60
stig úr 30 leikjum í vetur - nær verð-
ur ekki komist. Og manni segir svo
hugur að haldi meistararnir upp-
teknum hætti á lokasprettinum, fái
16 stig úr síðustu átta leikjunum,
dugi það þeim til að halda titlinum.
75 stig fékk United í fyrra, sjö fleiri
en næstu lið, og Arsene Wenger hef-
ur lýst því yfir að sennilega komi 73
stig til með að duga til sigurs - og
hann er hagfræðingur að mennt!
Eftir 1-0 sigur United á Chelsea
fyrir hálfum mánuði mátti lesa út úr
orðum Alex Fergusons knattspymu-
stjóra að titillinn væri í höfn. Forms-
atriði væri að ljúka keppninni og
þægilegt væri fyrir menn hans að
snúa sér að nýju að Meistarakeppni
Evrópu við þau skilyrði. Eins og
margoft hefur komið fram er Evr-
ópubikarinn eftirsótti nefnilega efst-
ur á óskalista Fergusons í vetur -
missi United af honum yrði það mik-
ið áfall, ekki síst fyrir stjórann sjálf-
an.
Síðan hefur liðið aftur á móti að-
eins fengið eitt stig úr tveimur leikj-
um. Ferguson er engu að síður sann-
færður um að nú sé lag að tryggja
sér titilinn. „Ef við vinnum á laugar-
dag [í dag] eru úrslitin ráðin. Ars-
enal nær okkur varla úr því. Beri Ar-
, Reuters
FRAMHJA þessum manni verða leikmenn Arsenal að koma knettinum i dag ætli þeir sér sigur! Danski landsliðsmaðurinn Peter Schmeichel hefur átt misjafna leiki að undanförnu
en á góðum degi standast fáir markverðir, ef nokkur, honum snúning. Það fengu leikmenn West Ham að reyna síðastliðinn miðvikudag í deildinni.
senal aftur á móti sigur úr býtum opnast hins
vegar allt upp á gátt.“
Ferguson segir sína menn vana stórleikjum og
því óttist hann ekki Arsenal. „Þessi barátta er
okkur ekki framandi. Á síðustu sex árum höfum
við alltaf verið með í slagnum um titilinn - fjórum
sinnum orðið efstir og tvisvar í öðru sæti. Við
gerum ráð fyrir því að vera með í baráttunni um
meistaratitilinn á hverju ári og ég er ekki í
minnsta vafa um að mínir menn verða klárir í
slaginn á laugardag [í dag]. Við hlökkum til leiks-
ins.“
Wenger tekur í svipaðan streng. „Ég nýt bar-
áttunnar um meistaratitilinn fram í fingurgóma.
Sömu sögu er að segja um leikmennina enda
jafnast ekkert á við að leika mikilvæga leiki.“
Margir meiddir
Hvorki Arsenal né Manchester United geta
stillt upp sínu sterkasta liði í dag. Heimamenn
verða örugglega án lykilmannanna Gary Pall-
isters og Ryans Giggs auk þess sem litlar líkur
eru á að Nicky Butt geti leikið vegna meiðsla sem
hann hlaut gegn West Ham. Þá er Roy Keane
fyrirliði frá sem fyrr. Á móti kemur að Phil
Neville er gróinn sára sinna, en hann missti af
leiknum á Upton Park, og Ronny Johnsen verður
væntanlega í leikmannahópnum líka.
Hjá Arsenal eru ensku landsliðsmennirnir
David Seaman og Ian Wright fjarri góðu gamni
vegna meiðsla, ásamt Steve Bould og David
Platt, sem gerði sigurmarkið í viðureign liðanna á
Highbury fyrr í vetur. Markvörðurinn Alex
Manninger, sem enn hefur ekki þurft að hirða
tuðruna úr netinu í úi-valsdeildinni, og Nigel
Winterburn eru hins vegar sagðir hafa náð sér af
meiðslum sem þeir hlutu gegn Wimbledon og
verða með í dag.
Líkleg liðsskipan: Man. Utd.: Schmeichel; G.
Neville, May, Berg, Irwin; Beckham, P. Neville,
Johnsen, Scholes; Sheringham, Cole.
Arsenal: Manninger; Dixon, Keown, Adams,
Winterburn; Parlour, Petit, Vieira, Overmars;
Bergkamp og Wreh. ^
Reuters
HOLLENSKI útherjinn hjá Arsenal, Marc Overmars, hefur verið
að sækja í sig veðrið eftir rólega byrjun í Englandi.
Hertha steinlá
á heimavelli
Eyjólfur Sverrisson og félagar
hans í Hertha Berlín fengu
skell á heimavelli í þýsku knatt-
spyrnunni. Schalke kom í heim-
sókn og sigraði 4:1. Leverkusen
gerði jafntefli, 1:1, við Duisburg
og hefur ekki tapað í síðustu 19
leikjum.
Duisburg fékk óskabyrjun þeg-
ar Markus Osthoff skoraði eftir
aðeins fjögurra mínúlna leik.
Markvörður Leverkusen, Dirk
Heinen, reiknaði með fyrirgjöf
frá Osthoff, enda ekki í góðri að-
stöðu til að skora. Heinen fór of
langt út úr markinu og það nýtti
framherjinn sér og skoraði
óvænt. Leverkusen var nálægt
því að jafna á 33. mínútu er Ulf
Kirsten átti skot í stöng. En að-
eins mínútu síðar kom jöfnunar-
markið og var Brasilíumaðurinn
Emerson þar að verki með marki
af stuttu færi.
Leverkusen, sem endaði í öðru
sæti deildarinnar síðasta tímabil,
er nú í þriðja sæti og aðeins einu
stigi á eftir Bayern, sem er í öðru
sæti og á einn leik til góða.
Schalke náði að hita vel upp
fyrir UEFA-leikinn á móti Inter í
næstu viku með því að bursta
Hertha Berlín fyrir framan 60
þúsund áhorfendur á Ólympíu-
leikvanginum í Berlín, 4:1. Belg-
inn Marc Wilmots gerði fyi'sta
markið um miðjan fyrri hálíleik
eftir góða sendingu frá Tékkan-
um Jiri Nemec. Olaf Thon kom
liði sínu í 2:0 eftir frábæran ein-
leik á upphafsmínútum síðari
hálfleiks. Hertha náði aðeins að
klóra í bakkann með skallamarki
Michaels Preetz á 54. mínútu.
Þetta var 10. mark hans á tíma-
bilinu. En gestirnir voru ekki
hættii' og bættu tveimur mörkum
við áður en yfir lauk, fyrst Martin
Max á 74. mínútu og síðan vara-
maðurinn Andreas Miiller rétt
fyrir leikslok. Schalke hefur ekki
tapað í síðustu ellefu leikjum og
er í fjórða sæti, tveimur stigum á
eftir Leverkusen.
BLAK
Víkingsstúlk-
ur unnu létt
VÍKINGSSTÚLKUR höfðu betur í
fyrsta leiknum í undanúrslitunum í
blaki kvenna þegar þær mættu
Völsungi í íþróttahúsinu Austur-
bergi í gærkvöldi. Leiknum lauk
með 3:0 sigri og enduðu hrinurnar
15:4, 15:5 og 15:13. Það var hægur
og látlaus leikur sem liðin buðu
uppá. Það var ekki eins og verið
væri að spila í úrslitakeppni og lítil
spenna. Telja má nær öruggt að
Víkingsstúlkur fari áfram í keppn-
inni, enda mótspyrna Völsunga ekki
mikil.
HANDBOLTI
Þjóðverjar
unnu Frakka
ÞJÓÐVERJAR unnu Frakka 27:22
á átta þjóða handknattleiksmótinu í
Þýskalandi, í hinu árlega móti sem
Þjóðverjar kalla Super Cup. Þetta
var fyrsta tap Frakkanna í keppn-
inni. Króatar burstuðu Rúmena
32:13 eftir að staðan í hálfleik hafði
verið 18:7. Þessi lið leika í A-riðli, en
þar eru Þjóðverjar eftir með 5 stig,
Frakkar hafa fjögur, Króatar 3 og
Rúmenar ekkert.
í B-riðli sigruðu Júgóslavar lið
Svía, 32:27, en staðan í hálfleik var
19:15 fyrir Júgóslava. Loks sigruðu
Rússar B-lið Þjóðverja 29:23 eftir
að staðan í hálfleik hafði verið 13:13.
Júgóslavar og Rússar hafa bæði 5
stig, B-lið Þjóðverja hefur 2 stig en
Svíar reka lestina og hafa ekki hlot-
ið stig!
Beðist afsökunar
í FRÁSÖGN af leik Stjörnunn-
ar og ÍR í 1. deild karla í hand-
knattleik í Morgunblaðinu sl.
fimmtudag, sagði undirritaður
m.a.: „Leikurinn var annars afar
leiðinlegur, varla fyrir svartan
mann að horfa á.“ Þetta orðalag
er ósæmilegt með öllu og bið ég
Morgunblaðið og lesendur þess
afsökunar á því.
Sindri Bergmann Eiðsson.
OLAF Thon og félagar hans í
Schalke höfðu ástæðu til að
fagna í Berlín í gærkvöldi. K