Morgunblaðið - 08.05.1998, Blaðsíða 4
HERBERT Arnarson og félagar
hans í belgíska liðinu MP
Antwerpen leika til úrslita um
belgíska meistaratitilinn við
■_■■■ Charleroi og verður
Vaiur B. fyrsta viðureign lið-
Jónatansson anna á laugardaginn.
sknfar Það lið sem fyrr vinnur
þrjá leiki verður meistari en
Charleroi hefur verið meistari síð-
ustu tvö árin.
MP Antwerpen, eða Racing Ba-
sket Antwerpen eins og liðið heitir
réttu nafni, endaði í öðru sæti í
deildarkeppninni sem lauk í síðasta
mánuði. Sex efstu liðin komust í úr-
slitakeppnina og sátu tvö efstu liðin
hjá í fyrstu umferð. í undanúrslit-
um unnu Herbert og félagar lið Qu-
aregnon örugglega 2:0 og Charleroi
vann bikarmeistarana frá Ostende
2:1. Liðið sem verður meistari
kemst í Evrópudeildina og það er
því til mikils að vinna.
Jafnir möguleikar
„Þessir úrslitaleikir leggjast vel í
mig og ég tel okkur eiga jafna
möguleika og Charleroi, sem hefur
verið meistari hér síðustu tvö tíma-
bil. Við lékum við það tvisvar í vet-
ur, unnum fyrri leikinn heima með
tuttugu stiga mun en töpuðum á úti-
velli með átta stiga mun. Það getur
því allt gerst,“ sagði Herbert, sem
hefur gert að meðaltali sjö stig í
leikjunum í vetur og spilað að með-
altali 23 mínútur í leik. Hann gat
ekki verið með í sex leikjum vegna
meiðsla.
Herbert sagði að belgíska deildin
væri nokkuð sterk, enda allt at-
vinnumenn sem spiluðu þar. í liði
hans eru fimm útlendingar; tveir
Bandaríkjamenn, Englendingur,
Kanadamaður með belgískt vega-
bréf og síðan Herbert. ,A- tímabili í
vetur var byrjunarliðið skipað fjór-
um útlendingum og einum Belga.
Liðið endaði í sjöunda sæti deildar-
innar í fyrra og komst þá ekki í úr-
slit. Nú hefur gengið framar vonum
og við höfum unnið nítján leiki og
tapað sjö og erum komnir í úrslit.
Það er mikil stemmning fyrir úr-
slitaleikjunum og þegar orðið upp-
selt á þá alla, hvort sem þeir verða
þrír eða fimm. Heimavöllur okkar
tekur um fjögur þúsund áhorfendur
og það er mun stærri íþróttahöll í
Charleroi.“
Áfram í Belgíu?
Hann sagði að sér líkaði vel í
Belgíu. „Það er ekki ákveðið hvort
ég verð hér áfram, en mér líkar vel
og gæti vel hugsað mér að vera hér
lengur. Ég veit að þeir vilja fram-
lengja samninginn en það var
ákveðið að ræða ekki framhaldið
fyrr en eftir úrslitaleikina til að
trufla ekki einbeitingu leikmanna,“
sagði Herbert. „Ég held að þessi
mál ráðist líka svolítið af því hvem-
ing okkur vegnar í leikjunum sem
Fannar í
landsliðs-
hópinn
EINN nýliði, Fannar Ólafsson úr
Keflavík, er í íslenska landsliðs-
hópnum sem Jón Kr. Gíslason
landsliðsþjálfari tilkynnti í gær fyr-
ir leikina gegn Norðmönnum á
sunnudag og mánudag. Norðmenn
koma hingað með ungt lið og sagði
Jón Kr. að íslenska liðið ætti að
sigra eins og það gerði í tveimur
landsleikjum 1 Noregi á síðasta ári.
„Það yrðu mér mikil vonbrigði ef
við töpuðum,“ sagði hann.
Fyrri leikurinn verður á Isafirði á
sunnudaginn kl. 20. Þetta er annar
landsleikurinn í körfuknattleik sem
fram fer á ísafirði en íslenska liðið á
ekki góðar minningar frá fyrsta
leiknum sem var á móti Dönum í
fyrra og tapaðist stórt. Síðari leik-
urinn verður í Laugardalshöll á
sama tíma á mánudagskvöld.
íslenska liðið er þannig skipað
(landsleikir í sviga):
Falur Harðarson, Keflavík .........(77)
Baldur Ólafsson, KR ................(6)
Friðrik Stefánsson, KFÍ ............(9)
Guðjón Skúlason, Keflavík ........(115)
Guðmundur Bragason, UMFG .... (139)
Helgi Jónas Guðfinnsson, UMFG .. (29)
Jón A. Ingvarsson, Castors Brain . .(90)
Páll Kristinsson, UMFN ............(13)
Teitur Örlygsson, UMFN............(110)
Páll Axel Vilbergsson, Skallagr......(3)
Pétur Ingvarsson, Haukum ..........(20)
Fannar Olafsson, Keflavik ..........(0)
Sigfús Gizurarson, Haukum, og
Nökkvi Már Jónsson, KR, gáfu ekki
kost á sér í liðið vegna prófa í Há-
skólanum. Herbert Amarson gat
heldur ekld tekið þátt í leikjunum
vegna þess að hann er að leika með
liði sínu til úrslita um belgíska
meistaratitilinn og Hermann
Hauksson hefur verið veikur.
Jón Kr. segir að íslenski lands-
liðshópurinn sé nánast tvískiptur,
„litlir gamlir og stórir ungir, sem fá
tækifæri." Liðið hefúr verið með
fimm landsliðsæfingar síðustu vik-
urnar til undirbúnings fyrir þessa
leiki á móti Norðmönnum. Næsta
verkefni íslenska liðsins verður
þátttaka í Norðurlandamótinu sem
fram fer í Danmörku í lok júlí og
síðan er það Evrópukeppnin í haust.
I norska liðinu eru þrír nýliðar og
sá leikjahæsti er aðeins með 23
landsleiki. Það er því ljóst að Norð-
menn eru að byggja upp nýtt lið.
Það er reyndar athyglisvert að að-
eins einn leikmaður þeirra er yfir 2
metrar. Norðmenn eru að undirbúa
lið sitt fyrir forkeppni Evrópumóts
landsliða sem fram fer í Finnlandi í
sumar.Þess má geta að aðgangur á
leikinn í Laugardalshöll verður
ókeypis.
framundan eru.“ „Það er mikil
stemmning hér í Antwerpen fyrir
úrslitaleikjunum, enda er þetta eina
liðið frá borginni í efstu deild.
Knattspyman hefur reyndar alltaf
verið númer eitt í Antwerpen, en
eftir að liðið féll nú í 2. deild er
meira talað um körfuboltaliðið en
áður. Við getum bjargað heiðri
Antwerpen með því að verða meist-
arar. Við trúum því sjálfir að við
getum það,“ sagði íslenski landsliðs-
maðurinn.
Fyrsti leikur liðanna verður í
Antwerpen á laugardag, en síðan
verða næstu tveir í Charleroi á
þriðjudag og föstudag. Ef til fjórða
leiks kemur verður hann í
Antwerpen og sá fimmti, ef þarf, i
Charleroi.
Morgunblaðið/ökapti Hallgrímsson
HERBERT Arnarson leikur
ekki með fslenska landsllð-
inu gegn Norðmönnum um
helgina vegna þess að hann
er að leika um belgíska
meistaratitilinn með MP
Antwerpen á sama tfma.
Hann er hér f leik með fs-
lenska landsliðlnu á móti Lit-
háen í febrúar.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Herbert Arnarson og félagar komnir í úrslit um belgíska meistaratitilinn
„Getum bjargað
heiðri Antwerpen
Ajaxá
hlutabréfa-
markað
FORRÁÐAMENN hollenska
knattspyrnufélagsins Ajax ætla
ad auka hlutafé í félaginu til að
tryggja afkomu þess og það
verði í fremstu röð í Evrópu í
framtíðinni. Þeir ráðgera að
bjóða út hlutabréf í næstu viku
sem geti fært félaginu um 4,4
milljarða króna. Félög víða í
Evrópu hafa í auknum mæli
farið þessa leið til að styrkja
fjárhagsgrundvöllinn. Þetta
gerir það að verkum að félögin
eiga auðveldara með að halda
bestu leikmönnum sínum á
langtíma samningum og gera
áætlanir til lengri tíma en áður.
Tveir leikir
við Norðmenn