Morgunblaðið - 19.05.1998, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998 D 7
1 FASTEIGNASALA
FÉLAG k 1 FAS
Brynjar Harðarson
viðskiptafrœðingur
Guðrún ÁRNADÓTTIR
löggiltur fasteignasali
ÍRIS BJÖRNÆS
ritari
SlGRÚN ÞORGRÍMSDÓTTIR
rekstrarfraðingur
©568 2800
HÚSAKAUP
Opið virka daga
9 - 18
Suðurlandsbraut 52, við Faxafen • Sími: 568 2800 • Fax: 568 2808 • Heimasíða: www.habil.is/husakaup/
ÞJONTJSTUÍBÚÐIR
MIÐVANGUR - HF. - LYFTUHÚS stór
2ja herb. íbúð. Verð 5,3 millj.-sjá nánari lýsingu í
2ja herbergja dálk hér að neðan.
NAUSTAHLEIN V/Hrafnistu Hafnarf.
Fallegt 60 fm raðhús er til sölu og afhendingar
mjög fljótlega. Húsið skiptist í forstofu, rúmgóða
stofu, með útgang út á skjólsæla suðurverönd.
Gott svefnherbergi með innbyggðum skápum.
Flísalagt baðherbergi. Fallegt eldhús og síðan
sérþvotthús og geymsla. Þó húsið sé ekki stórt
nýtist það einstaklega vel. Húsið ertengt
þjónustukerfi Hrafnistu. Frá húsinu er skemmti-
legt útsýni og umhverfi allt mjög fallegt og
snyrtilegt. Áhv. byggsj. kr. 2 millj. Verð kr. 7,6
millj.
HVASSALEITI-VR-BLOKKIN íhinni
glæsilegu VR blokk er til sölu 94 fm 3ja herb.
ibúð á jarðhæð með sérsuðurgarði. Mjög vel
skipulögð íbúð. Allt sér. Parket og flísar. Mikil
lofthæð i íbúð. Þjónustumiðstöð Rvík.borgar á
hæðinni. Áhv. byggsj. 3,4 millj. Laus strax.
SERBYLI
DOFRABORGIR ENDARAÐHÚS Faiiegt
raðhús á tveimur hæðum m. innbyggðum bílskúr
á fallegum útsýnisstað i jaðri byggðar. Góð
svefnherbergi og rúmgóðar stofur. Ekki alveg
fullbúin eign. Áhv. 6 millj. Verð 12,6 millj.
SKILDINGANES Fallegt 176 fm parhús á
einum eftirsóttasta stað í Rvík. Sjávarlóð. Mjög
sérstök og skemmtileg hönnun. 3 svefnherbergi
og stórar stofur. Nýflísal. bað. Ný glæsileg
verönd. Frábært útsýni. Áhv. 6,0 millj. Verð kr.
16,5 millj.
ÁLFHÓLSVEGUR Fallegt 125 fm raðhús
ásamt bilskúr. Góðar stofur og 3 svefnherbergi.
Fallegur lítill garður. Góðar innréttingar og gól-
fefni. 20 myndir á netinu. Áhv. tæpar 6 millj. Verð
11,3 millj.
HVANNALUNDUR - GBÆR Faiiegtein-
býli á einni hæð ásamt góðum bílskúr. Sérstak-
lega fallegur ræktaður garður. Allt að 4 svefn-
herbergi og góðar stofur. Verð 13,2 millj.
HOLTSBÚÐ - GÓÐ KAUPI Faiiegt raðhús
á tveimur hæðum ásamt innbyggðum bílskúr.
Eign í mjög góðu standi. Allt að 5 rúmgóð svefn-
herbergi. Fallegur ræktaður garður og mikið
útsýni. Verð aðeins 12,9 millj.
SERHÆÐIR
HLÉGERÐI - KÓP Björt og falleg 135 fm efri
sérhæð i tvíbýli. Húsið er Steni-klætt á tvo vegu.
Rúmgóðar stofur, stórt eldhús og 3 svefnherb.
Parket. Allir fataskápar nýir. Sérinngangur og
sérþvottahús. Fallegt útsýni. Áhv. tæpar 6 millj.
húsbréf. Verð 9.950 þúsund.
ÞINGHÓLSBRAUT - KÓP Rúmgóð og
skemmtileg neðri sérhæð í tvíbýli. Gluggar og
gler eru að mestu nýleg og nýbúið að endurnýja
hitalagnir í eldri hluta hússins. Verð 7,5 millj. 14
myndir á netinu.
SKIPASUND + BÍLSKÚR Björtogfalleg
143 fm hæð og ris ásamt góðum 36 fm sérbyggð-
um bílskúr með gryfju. Mikið endurnýjuð eign
þ.m.t. rafmagn, gler og gluggar, eldhús o.fl. Stór
svefnherbergi og 2-3 stofur. Sérinngangur. Hiti i
tröppum og verönd . Sér ræktaður fallegur garð-
ur. Gott útsýni. Verð 11,9 millj.
4 - 6 HERBERGJA
HLIÐARHJALLI + BILSKUR Stór4ra herb.
íbúð á 2. hæð í mjög góðu húsi m. verðlaunag-
arð. Björtog sérstaklega skemmtilega hönnuð
íbúð m. sérþvottahúsi, stórum herbergjum og
sérhönnuðu beyki-eldhúsi. Parket. Suðursvalir
og mjög gott útsýni. Eftirsóttur og skemmtilegur
staður f. fjölskyldufólk. Verð 9.950 þúsund. Áhv. 5
millj í Byggsj. Rvik. Skipti á sérbýli i Kópavogi
möguleg.
■m r"
i ~ gw
U j»
fS f
m
Sii
m
E!
FELLSMÚLI 108 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjöl-
býli utna umferðaskarkala. Húsið hefur verið
Steni-klætt á þrjá vegu. íbúðin er mjög björt og
snyrtileg. Flisalagt baðherbergi, nýlegt eldhús og
parket. Lau 1. júni. Verð 8,3 millj.
DÚFNAHÓLAR + BÍLSKÚR Stórglæsileg
117 fm 5 herb. ibúð á 7. og jafnframt efstu hæð í
mjög góðu lyftuhúsi, sem allt hefur verið klætt og
svalir yfirbyggðar. íbúðin er öll endurnýjuð, þ.e.
innrétL, gólfefni og bað. Óviðjananlegt útsýni. 26
fm góður bílskúr. Skipti á raððhúsi eða einbýli í
Seljahverfi æskileg. Verð 9.9 millj.
SKÓGARÁS -BÍLSKÚR 110 fm íbúð á 2.
hæð i góðu húsi ásamt bílskúr. 4 svefnherbergi
og sérþvottahús. Parket. Mjög snyrtilegur garð-
ur. Skipti á stærri eign í hverfinu æskileg. - Verð
9,8 millj.
MÁVAHLÍÐ Góð 4ra herbergja rishæð. Gott
þak, nýlegir gluggar og gler. Rúmgóð herbergi,
endurnýjað eldhús. Parket á gólfum. Verð 6,4
millj.
VEGHÚS - BÍLSKÚR Mjög stór og falleg 4-5
herbergja 130 fm íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli
ásamt innbyggðum 30 fm bílskúr. Parket og flisar.
Fallegar innréttingar. Verðlaunagarður. Hús og
sameign nýlega tekið i gegn og er í toppstandi.
Áhv. byggsj. 5,4 millj. Verð kr. 10,8 millj. Æskileg
skipti á rað- eða einb.húsi
VESTURBERG - GOTT HÚS Björt og rúm-
góð ibúð á 2. hæð í góðu nýlega viðgerðu húsi.
Endurnýjað bað, innihurðir og gólfefni. Vel stað-
sett hús á rólegum stað. Stutt i skóla og verslan-
ir. Verð 6,5 millj. áhv. 2,5 millj. Byggsj. rík.
KRÍUHÓLAR- LÍTIÐ HÚS H6fm5her-
bergja íbúð á efstu hæð i litlu fjölbýli. Stutt i alla
þjónustu. Áhv. 4,4 millj. m. grb. 28 þúsund pr.
mánuð. Verð 6,9 millj.
ENGJASEL - „PENTHOUSE" 175 fm íbúð á
tveimur hæðum í góðu fjölbýli ásamt stæði í bíl-
geymslu. Möguleiki á allt að 6 svefnherbergjum.
Þrennar svalir og óviðjafnanlegt útsýni. Sérþvhús
og góðar geymslur. Falleg eign, vandað tréverk.
Nýlegt parket og flísar. Verð aðeins 9,3 millj.
KJARRHÓLMI 90 fm 4ra herb. íbúð á 2. hæð.
Góðar innréttingar. Parket á gólfum. Þvottahús í
íbúð. Útsýni. Verð 7,5 millj. Áhv. 4,3 millj.
Greiðslub. pr. mán. 26 þús.
SKÓGARÁS - 4 SVEFNHERB. I30fm íbúð
á tveimur hæðum. Mjög rúmgóð herb.
Sérþvottahús. Parket íbúð sem gefur mikla
möguleika. Vel koma til greina skipti á 3ja herb.
ibúð. Áhv. 3,6 millj. mjög hagstæð byggsjl. Verð
10,2 millj.
KARLAGATA 75 fm ibúð á tveimur hæðum í
góðu tvíbýli. Tvær samliggjandi stofur og tvö
svefnherbergi. Nýlegt eldhús og nýlegt bað. Góð-
ur aflokaður garður. Áhv. 1,3 millj. Verð 6,9 millj.
FRAKKASTÍGUR - NÝLEGT HÚSI Góð
3ja herb. ibúð í nýlegu húsi Grettisgötumegin við
Frakkastíg ásamt stæði í bilgeymslu. Ibúðin er á
tveimur pöllum með mikla lofthæð i stofu. Vönduð
eign m. parketi, marmara og flísum. Verð 8,5 millj.
ÁLFHÓLSVEGUR -ALLT SÉR 90fm4ra
herb. ibúð á jarðhæð í þríbýli m. sérinngangi og
sér þvottahúsi. 3 ágæt svefnerhbergi og rúmgóð
stofa. Rólegur staður neðan við götu . Áhv. 3,8
millj. Verð aðeins 6,3 millj.
BÁRUGATA - RISHÆÐ Stór 3ja herb. ris-
hæð í virðulegu steinhúsi ásamt efra lofti. Stórir
kvistir og mjög lítil súð. „Sjarmerandi" gamal-
dags íbúð. Verð 7,7 millj.
VÍKURÁS - BÍLSKÝLI Stór 3ja herb. íbúð á
efstu hæð í nýlega klæddu húsi ásamt stæði i
bílgeymslu. Suðursvalir og fallegt útsýni. Parket
á allri íbúðinni. Skipti á stærri eign möguleg.
Áhv. 2,1 byggsj. Verð 7,3 millj.
NÝLENDUGATA - MIÐHÆÐ 3ja her-
bergja miðhæð i eldra þríbýli. Mikið uppgerð að
innan I gömlum stíl. Tvöfalt gler og endurnýjað
rafmagn og hiti. Áhv. 2,1 millj. Verð 4,9 millj.
VÍKURÁS - BÍLSKÝLI 85 fm íbúð á jarðhæð
m. sérgarði og stæði í nýlegri bílgeymslu. Vönd-
uð ibúð og gott hús. Áhv. 3,3 millj. í byggsj. Verð
7,3 millj.
ÁRKVÖRN - SÉRINNG . Stórglæsileg íbúð
á efri hæð í litlu fjölbýli. Allt sér þ.m.t inngangur
og þvotta-hús. Sérsmíðaðar innréttingar og mer-
bau parket Góðar útsýnissvalir. Verð 8,2 millj. 16
myndir á netinu.
ESKIHLÍÐ Falleg 3ja herbergja ibúð á 1. hæð i
góðu fjölbýli. Húsið er í góðu standi og ibúðin
björt og nýtist mjög vel. Nýtt rafmagn, endur-
nýjað baðherbergi, hvítt eldhús. Mjög snyrtileg
eign. Laus fljótlega. Verð 6.950 þús.
REYKÁS - STÓR 104 fm fbúð á annarri hæð f
sérstaklega vel staðsettu húsi með fallegu
útsýni. Tvennar svalir. Rúmgott eldhús,
sérþvottahús og flisalagt bað. Áhv. lán 3,6 millj.
Gott verð 7,5 millj. Laus fljótlega. 14 myndir á
netinu.
ENGIHLÍÐ Góð 3ja herb. 68 fm íbúð í kjallara.
íbúðin nýtist mjög vel með 2 góðum herbergjum.
Laus fljótlega. Verð kr. 5,7 millj. 10 myndir á net-
inu.
2 HERBERGI
FÁLKAGATA Rúmgóð 2ja herb. 60 fm ibúð á
2. hæð i litlu fjölbýli. Sér inngangur af svölum.
Parket. Suðursvalir. Laus strax. Áhv. 1,5 millj.
Verð kr. 5,7 millj.
MIÐVANGUR Rúmgóð 2ja herb. íbúð í lyftu-
húsi sem verið er að Ijúka viðgerðum og máln-
ingu á. íbúðin er m. sérinng. frá svölum og sér
þvhúsi i ibúð. Gott eldhús og nýlegt parket Fal-
leg íbúð m. glæsilegt útsýni yfir Hafnarfjörð og
sjóinn. Úll þjónusta við hendina. Hentart.d. eldri
borgurum mjög vel. Verð 5,3 millj. áhv. 3 millj.
LANGHOLTSVEGUR Ósamþykkt íbúð á
tveimur hæðum. Allt ný innréttað - mjög snyrti-
leg eign. Sér inng. og sérþvottahús. Lau 1. júni
n.k. Verð 3,2 millj.
HRAUNBÆR - 81 FM Sérstaklega stór 2ja
herb. ibúð á 1. hæð í góðu fjölbýli. Suðursvalir.
Stór stofa. Sérsvefnherb.gangur. Hentar ekki
sistfólki sem er að minnka við sig. Gott aðgengi,
engar tröppur. Verð 5,9 millj.
ARAHÓLAR + BÍLSKÚR Rúmgóð og falleg
íbúð á 4. hæð í góðu lyftuhúsi ásamt 26 fm bíl-
skúr. Nýl. parket Yfirb. svalir. 6 myndir á netinu.
NYBYGGINGAR
BREIÐAVlK kynnum nýtt hús frá HÚSVIRKI.
BREIÐAVÍK 6. Stórar og vandaðar þriggja og
fjögurra herbergja ibúðir. Leitið frekari uppl. á
skrifstofu eða pantið litprentaðan bækling.
NÚ FER HVER AÐ VERÐA SÍÐASTURI
Eigum enn nokkrarfjögurra herbergja íbúðirtil
afh. i sept í húsinu númer 4 við Lækjasmára i
Kópavogi. Þetta er miðhúsið af þremur álklædd-
um lyftuhúsum sem eru að risa þarna í hjarta
dalsins. íb. eru allar rúmgóðar m. vönduðum inn-
r., sérþvhúsi, stórum svölum og góðri sameign.
Lágmarksviðhaldskostn. Leitið uppl. á skrifst,
fáið sendan litprentaðan bækling eða heimsækið
heimasíðu Húsvirkis http:\www.isholf.is/HUS-
VIRKI/.
ASPARFELL-LAUS 60 fm íbúð í góðu lyftu-
húsi. Stórar suðursvalir. Ný máluð og yfirfarin
eign. Laus strax. Verð aðeins 4,8 millj.
VÍKURÁS 40 fm einstaklingsibúð laus nú þeg-
ar. Vandaðar innr. og óvenjugóð nýting. Sér
garður. Verð 3,8 millj. Áhv. 1,3 millj. i Byggsj. rik.
Æ
Akranes
Fjölbýlishus rís í
hjarta bæjarins
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
FJÖLBÝLISHÚSIÐ stendur við Garðabraut á Akranesi. íbúðirnar eru
hver um sig 115 ferm., tvær á hvorri hæð með fjórum svefnherbergj-
um. Verð þeirra er 9,2 millj. kr. niiðað við fullfrágengna íbúð. Bygg-
ingaraðili er Trésmiðj'an Höldur hf.
TRÉSMIÐJAN Höldur hf. á Akra-
nesi er um þessar mundir að ljúka
byggingu fjögurra íbúða fjölbýlis-
húss við Garðabraut á Akranesi.
Ibúðirnar eru hver um sig 115 ferm,
tvær á hvorri hæð með fjórum svefn-
herbergjum. Mikil gróska er í bygg-
ingariðnaðinum á Akranesi um þess-
ar mundir, ólíkt við það sem hefur
verið undanfarin ár.
Höldur hf. mun byggja annað
sams konar hús við hlið hins. Þessar
íbúðir eru að því leyti sérstakar, að
þær eru sem næst viðhaldsfríar að
utan. Hvítt ál er á þaki og pólýúreþ-
an álsamloka á veggjum með inn-
brenndum lit og gluggar og hurðir
eru úr p.v.c. plastefni. Þetta eru
fyrstu hús með þessari klæðningu
sem byggð eru hér á landi.
Sérinngangur er í allar íbúðirnar
og afhendast þær fullfrágengnar að
utan og að vissu marki einnig að inn-
an, þó án gólfefna. Innréttingar eru
að eigin vali. Svalir fylgja íbúðum
efri hæðarinnar. Möguleiki er að fá
32 ferm. bifreiðageymslur með
íbúðunum.
Fyrra húsið er nær fulibúið og að
sögn Bjama Guðmundssonar sem
rekur Höld hf. ásamt Vilhjálmi bróð-
ur sínum hafa margar íyrirspumir
verið um íbúðimar og er hann
bjartsýnn á að þær seljist fljótt. Verð
þeirra er 9,2 millj. kr. miðað við fuli-
frágengna íbúð. Það er Almenna
verkfræði- og teiknistofan á Akranesi
sem hefur teiknað húsin og séð um
hönnun þeirra að öðru leyti.
Sandur í borðplötu
ITALINN Enzo Berti hefur hannað þetta frumlega sófa-
borð. Það er innblásið af hugmyndum um zen-garða í
Japan.
Gamall
borðspegill
GAMAN væri að geta speglað sig
í þessum litla fellispegli sem er
frá því um 1850 og er í Karl Jo-
han stfl.