Morgunblaðið - 28.05.1998, Qupperneq 4
Hvort sem þú ert aö leggja grunninn
að garöinum eöa breyta þeim gamla
áttu erindi í BYKO. Þar færöu allt efni
og áhöld - og einnig góð ráð.
Þú getur auöveldlega byggt þinn eigin
sælureit í garðinum. Þú ákveöur
stæröina, velur þér eitt mynstur eöa
blandarfleirum saman. Kemur síöan
til okkar og á 10 mínútum getum viö
sagt þér hvaö efnið í pallinn kostar.
Mundu, að pallaefnisbæklingur BYKO
er fullur af góðum hugmyndum.
HORKUTÓL
AHALDALEIGA BYKO
Trébútasög
Stór og öflug
skuröarsög.
Ómissandi í
pallavinnuna.
erbergin I garðin
Mikilvægasta svæöiö er dvalarsvæöiö. Vlð gerum ráö fyrir einu eöa tveimur
dvalarsvæðum viö húsiö, allt eftir því hvar viö höfum sólina á mismunandi tímum
dags. Dvalarsvæöið er einskonar stofa í garöinum. Hér viljum viö hafa hlýlegt
yfirborösefni, hæfilega mikiö pláss, fallega veggi og aöstöðu fyrir hluti eins og borð
og stóla. Svæöiö má ekki vera langt og mjótt eins og gangur því þá höfum viö á
tilfinningunni aö viö ættum að vera á hreyfingu. Þess vegna eiga svæöin helst aö
vera í laginu eins og við myndum vilja hafa stofu og herbergi innan dyra. Hér safnast
fjölskyldumeölimir saman og því þarf aö vera pláss til að sitja viö borö og grilla.
Huga þarf aö hlutum eins og hvar eigi aö grilla og hvar á pallinum eigi aö geyma
grilliö þegar ekki er veriö aö nota þaö.
Viö erum alltaf aö hugsa um umhverfl okkar, jafnt innan dyra sem utan. Þegar kemur
að garöinum, standa margir frammi fyrir ómótuöum og úr sér vöxnum garöi, þar sem
oft nýtur meiri skugga en sólar. Viö horfum yfir garöinn og hugsum: Hvaö á ég aö
gera næst? Ein leiö til þess aö nálgast þetta viöfangsefni er að sjá fyrir sér garöinn
eins og íbúö. Hér á ég við aö garöurinn skiptist í herbergi sem hvert hefur sinn
tilgang. Viö gefum herbergjunum nöfn eins og morgunsvæði, bílastæöi, anddyri,
kvöldsvæöi, baðsvæöi (heiti potturinn), leiksvæöi o.s.frv. Staösetning flestra
svæöanna ræðst af nálægö við húsiö en þau eru einnig staösett miðaö viö sólargang
og rtkjandi vindáttir. Þannig er til dæmis kvöldsvæöiö þar sem sólar nýtur lengst á
daginn og skjólveggir staösettir þannig aö þeir skýli fyrir ríkjandi áttum.
Þegar viö erum búin aö raða niöur svæðunum getum viö farið að spá í gólfefnl,
veggjaefni og loftiö. Gólfefnin eru í mörgum tilfellum gras, stéttar eöa trépallar.
Veggirnir eru veggir hússins, gróöur, útsýniö eöa skjólveggir. Loftið er svo aftur
himininn og í sumum tilfellum hávaxin tré.
Tró gefa hlýleika og mýkt 1 garöinn
Tré gefur skjól, hefur hlýleika og mýkt. Skjólveggir úr timbri bjóða upp á margar
útfærslur varöandi útlit. Viö getum veriö með einfalda veggi meö lóörétta klæöningu
en einnig getum viö brotiö veggina upp útlitsins vegna. Þetta gerum vlð meö
misþykkum boröum í klæðningunni. Við getum snúiö klæöningunni en einnig er
hægt að brjóta veggina upp með hálfgagnsæjum grindum. Trépallar hafa mýkt, á
þeim er þægilegt aö ganga berum fótum, börnin geta leikiö sér og lltið fall veldur
ekki stórskaða.
Veljum útsýní og staösetjum skjólveggi
í hvaöa lít á ég aö mála herbergiö? Þegar viö erum aö búa tll rými ? garöinum höfum
viö skemmtilega möguleika. Ef viö tökum útveggina fyrst höfum við úr ýmsu aö
velja. Grindverk, skjólveggir, fallega raöaöar plöntum, og í mörgum tilfellum útsýni.
Þessir hlutir geta allir spilaö saman. Viö byrjum á að velja þaö útsýni sem við viljum
halda í. Þar næst staösetjum viö skjólveggi þanníg aö viö fáum vistleg og skjólsæl
svæöi. Aö lokum staösetjum viö gróöurinn. Gróður er eins og veggur með lifandi
veggfóöri. Viö getum valiö um mismunandi blaölit, blómlit, áferö og lögun en allt
breytist þetta meö árstíðunum. Á vorin er gróöurinn að þétta sig og tekur þá hvert
viö af öðru. Yfir sumartímann blómstra plönturnar hver á sínum tíma. Á haustin fara
laufin úr grænu litunum og yfir I rauöleitari liti sem gefa annars konar svip. Þegar
aö vetri kemur eru flestar plönturnar berar en þá geta sígrænar plöntur gefiö græna
litinn sem oft vantar á þeim árstíma.
Góður garður lengir sumarið
Fyrir þá sem dvelja mikiö úti viö getur vel skipulagöur garöur lengt sumarið um
nokkra mánuöi. ÁÖur en lagt er af stað I framkvæmdir er rétt aö skoða vel aöstæður
í garöinum og hafa I huga þætti eins og sólargang, vindáttir og þarfir þeirra sem
búa í húsinu. Viö getum síöan gert óskalista þar sem allar okkar kröfur koma
fram eins ogt.d. snúrur, heitur pottur, staöurtil aö grilla og rósasvæöi. Þessi
óskalisti myndar svo grunninn fyrir skipulagiö. Því skýrari hugmyndir sem viö
höfum, því betri veröa samskiptin viö þann sem á að framkvæma. Þess vegna getur
ráögjöf frá landslagsarkitekt eða öörum fagmanni skipt verulegu máli fyrir endanlega
útkomu. Mestu máli skiptir þó aö viö höfum ánægju af því aö móta umhverfi okkar
og njótum þess sem þaö hefur upp á að bjóöa.