Morgunblaðið - 19.06.1998, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 19.06.1998, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Thor út- nefndur borgarlista- maður Thor Vilhjálmsson THOR Vilhjálmsson hefur verið út- neftidur borgarlistamaður Reykja- víkur árið 1998 og honum veitt viður- kenning. Thor fæddist í Edinborg 1925. Foreldrar hans voru Guðmundur Vilhjálmsson og Kristín Thors. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1944, stundaði nám við norrænudeild Há- skóla íslands 1944-46, við Háskólann í Nottingham í Englandi 1946-47 og við Sorbonne- háskóla í París 1947-52. Thor var bóka- vörður við Lands- bókasafnið 1953- 55 og starfsmaður Pjóðleikhússins frá 1956-59. Hann var einnig leið- sögumaður og fararstjóri Islendinga erlendis. Thor ákvað snemmma að gera rit- störf að sínu aðalstarfi og fetaði þar í fótspor Halldórs Laxness, sem ungur gerðist atvinnuhöfundur. Fyrsta bók Thors, Maðurinn er alltaf einn, kom úr árið 1950. Síðan hefur hann skrifað fjölda bóka, skáldsögur, Ijóð, leikrit og greina- söfn. Auk þess hafa komið út eftir hann þýðingar úr ýmsum málum, m.a. bæði frönsku og ítölsku. Hann hefur einnig fengist við myndlist, haldið málverkasýningar og skrifað um íslenska myndlistarmenn, þar á meðal bækur um Jóhannes Kjarval og Svavar Guðnason. inor vnr einn <u suurrienaam' menningartímaritsins Birtings 1955 og í ritstjórn þess til 1968. Árið 1992 sendi Thor frá sér fyrsta bindi endurminninga sinna, Raddir í garðinum og hélt áfram á sömu braut með bókinni Fley og fagrar árar, sem út kom 1996. Verk Thors hafa verið þýdd á fjölmörg er- lend tungumál. Thor Vilhjálmsson hlaut bók- menntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1987 fyrir bók sína Grámosinn glóir. Auk þess hefur hann tvisvar verið tilnefndur af Islands hálfu til sömu verðlauna. Hann hefur tvisvar hlotið bókmenntaverðlaun DV. Árið 1992 hlaut Thor bókmennta- verðlaun sænsku akademíunnar fyr- ir ritstörf. Hann hefur fengið fleiri erlendar viðurkenningar, m.a. er hann heiðursborgari í franska bæn- um Rocamadour, hann hefur hlotið frönsku orðuna Chévalier de l’art et des lettres og ítalska orðu, Cavaliere dell’Ordine dello Merito. Eiginkona Thors er Margrét Ind- riðadóttir fyrrverandi fréttastjóri og eiga þau tvo syni. Hálofuð íslensk- dönsk arkitekta- sýning Arkitektarnir Ene Cordt Andersen og Þórhallur Sigurðsson sýna verk sín í Gammel Dok, þar sem Sigrún Davíðsddttir heyrði af sýningunni. „ÞAÐ er tvöfalt kraftaverk að sýningin skuli vera opnuð,“ segir Eric Messerschmidt arkitekt og upplýsingafulltrúi hjá miðstöð danskra arkitekta í Gammel Dok á Kristjánshöfn, þegar hann talar um sýningu þeirra Þórhalls Sig- urðssonar og Ene Cordt Ander- sen. Sökum verkfallsins frestað- ist opnun sýningarinnar, sem stendur út júní, en það merkileg- asta er þó, segir Messerschmidt, „að hér gefur að Iíta verk frá arkitektastofu, sem ekki var til fyrir tveimur árum. Tvímenning- arnir hafa aldrei starfað á stofu hjá öðrum, en eru þó að koma tveimur verkefnum í byggingu pratt tynr stuttan rerrf 8g utia reynslu." Þau Ene og Þórhallur eru bæði útskrifuð sem arkitektar frá Listaakademíunni í Kaupmanna- höfn, en í staðinn fyrir að fara tryggu leiðina og leita að vinnu á stofu réðust þau strax í að stofna eigin stofu. Þau hafa nú umsjón með byggingu tveggja verka sinna, sem bæði hafa hlotið verð- laun. Annað er göngubrú yfir járnbrautarteina í Nivá á Norð- ur-Sjálandi og hitt er leikskóli á Jótlandi. Verkefnin skortir ekki og þau tvö, sem ekki aðeins vinna saman, heldur eru einnig sambýlisfólk, hafa nóg að gera. Messerschmidt, sem skrifar formála sýningarskrárinnar, er ekki í vafa um að verk tvímenn- inganna hafa í raun orðið betri af að þau hafa skapað sér reynslu sína sjálf og ekki alist upp á stofu. „Við erum mörg sammála um að verk þeirra séu einstök, en það er erfitt að festa hendur á hvað það sé nákvæm- VERK eftir Þórhall og Ene. Þórhallur Ene Cordt Sigurðsson Andersen lega, sem geri verk þeirra svo sérstök. Hugmyndir þeirra eru ekki nein færibandavinna, en þó má sjá að þær koma úr sama stað.“ Messerschmidt segir einnig að þau Þórhallur og Ene hafi fundið sér sinn stað og skapað stofu sinni sess. Þau vinni ekki með heldur noti tíma og iðjusemi til að fín- vinna hugmyndir sín- ar og teikningar. „Og ég er ekki í neinum vafa um að þau eiga eftir að gera margt gott. Þau halda sínu striki og ég er sannfærður um að þau verða áfram trú si'num stfl, en leita ekki í eitthvert meðalmennskufar, “ segir Messerschmidt um leið og hann lítur með hrifningu í kringum sig, þar sem teikningar þeirra Ene og Þórhalls hanga í fallegum útfærslum. Arkitektamiðstöðin heldur reglulega sýningar. Nú undan- farið og út þetta ár er athyglinni beint að ungum arkitektum. Sýn- ing þeirra Ene og Þórhalls er lið- ur í þeirri dagskrá. KVIKMYJVPIR Háskólabíó GINGERBREAD MAN ★★★ Leikstjóri: Robert Altman. Handrits- höfundur: A1 Hayes eftir bók John Grishams. Aðalhlutverk: Kenneth Branagh, Darryl Hannah, Embeth Davidtz, Tom Berenger, Robert Dow- ney Jr., Femke Jansson og Robert Duvall. 1998. ÞAÐ HAFA eflaust margir kvikmyndaaðdáendur beðið spennir eftir næstu mynd Altmans og margir eftir næstu mynd byggðri á bók eftir Grisham. En það eru endilega'ekki þeir sömu, og því er gaman að sjá svo sér- stæðan leikstjóra sem fer sínar eigin leiðir takast á við efni sem Hollywood hefur sótt í hingað til. Útkoman er líka býsna sérstök og virðist fólki líka annaðhvort mjög vel eða illa. Nú er það fráskildi lögfræðing- urinn Rick sem kynnist þjónustu- stúlkunni Mallory og kemst fljótt að því að hún á í útistöðum við föð- ur sinn sem er mikill furðufugl. Ert þú Þar sem Rick laðast að stúlkukindinni ákveður hann að hjálpa henni, en hann grunar alls ekki að fjölskyldan öll og hans bestu vinir eigi eftir að dragast inn í glæpamál sem engin lausn virðist á. Án þess að gefa meira upp um söguþráðinn þá eru flestir frásagn- arþættir myndarinnar eiginlegir „noir“-myndunum, sem virðast vera komnar í tísku aftur. Altman heimfærir því útlitseinkenni þeirra mynda; sífelldri rigningu og dökku yfirbragði, yfir á þessa sögu. Per- sónumar eru frekar óaðlaðandi, fjarlægar og jafnvel illþolanlegar sumar. Þetta gerir myndina í fyrstu fráhrindandi, og áhorfendur þurfa meiri tíma en vanalega til að komast inn í myndina, og eru jafn- vel hissa á öllu saman. En Altman hefur lag á að notfæra sér „noir“- stílinn einnig á gamansaman hátt og kemur það fram í mörgum smá- atriðum en kannski helst í einka- refur? spæjaranum Clyde Pell sem Ro- bert Downey jr. leikur. í „noir“- myndunum vora aðaltöffararnir einkaspæjarar með hatt, í frakka og gátu drakkið endalaust af whisky á skuggalegum böram. Clyde er hins vegar algjör fylli- bytta, útjaskaður og misheppnað- ur kvennabósi sem tekur sig og spæjarahæfileikana full alvarlega. Clyde er ekki eina persónan sem er skemmtileg (þótt þær séu frá- hrindandi), enda Altman þekktur fyrir skemmtilega og sannfærandi persónusköpun og kannski fyrst og fremst frábæra vinnu með leik- uram. Kenneth Branagh leikur lögfræðinginn Rick og mér finnst túlkun hans mikill leiksigur. Flest- ir tengja hann við Shakespeare- karaktera og fleiri aftan úr sög- unni, þar sem hann sprangar um oft ansi spjátrangslegur mælandi á hádramatískan hátt. Nú birtist hann sem nútíma-karakter, spjátr- ungur að vísu, en breyskur með bandarískan hreim. Sú breyting ein gerir það að verkum að hann er mjög forvitnileg persóna og sannfærandi. Fyrrverandi eigin- kona hans, leikin af Femke Jans- son, er skondin yfirstéttardrós og sannfærandi sem slík. Darryl Hannah leikur eðlilegustu mann- eskjuna, Lois, samstarfskonu Ricks. Hin þekkta blondína er nú orðin brúnhærð með fjarsýnisgler- augu, óþekkjanleg og virðuleg. Svo eru það gömlu karlarnir Duvall og Berenger sem alltaf standa fyrir sínu. Embeth Davidtz er þjónustu- stúlkan og um hana er betra að segja sem minnst. Piparkökukarlinn vitnar í ævin- týrið um piparkökukarlinn sem var viss um að enginn gæti náð sér, en var síðan gleyptur af refi. Hún seg- ir okkur að margur sem heldur sig ref er í raun piparkökukarl. Alt- man er þó ekki að reyna að predika yfir áhorfendum. Hann leikur sér með formið og tekm’ það heldur ekki of alvarlega. Mér finnst þetta í rauninni frekar fyndin mynd en fráhrindandi. Hildur Loftsdóttir Sigurður Vovka Bragason Askenazy Sigurður og Vovka með tónleika í Bonn SIGURÐUR Bragason barít- onsöngvari og píanóleikarinn Vovka Ashkenazy halda tón- leika í Beethoven Haus í Bonn í Þýskalandi þann 23. júní nk. Tónleikamir eru á vegum lista- ráðs borgarinnar en Sigurður og Vovka komu síðast fram saman í Kaupmannahöfn og Helsingör 1996 á vegum list- ráðs Kaupmannahafnar í tilefni af því að borgin var menning- arborg Evrópu. Þetta er í fjórða sinn sem Sigurði er boðið að sjmgja í Beethoven Haus en hann hefur einnig komið fram á tónlistar- hátíðum bæði austan hafs og vestan og haldið tónleika í Wigmore Hall í London og Carnegie Hall í New York. Vovka hefur komið fram sem einleikari í Bandaríkjunum, Japan og Ástralíu og leikið með mörgum af þekktustu hljómsveitum heims s.s. Sin- fóníuhljómsveit Lundúna. ,.A efnisskránni verða verk eftu- Jean Sibeuus, itowara Grieg, Carl Nielsen, C.I. Sjöberg, Sigfús Einarsson, Pál ísólfsson, Jón Leifs og Modest Mussorgsky. Textilmynd- verk eftir Heidi í Há- teig’skirkju HEIDI Kristiansen sýnir nú textílmyndverk í safnaðar- heimili Háteigskirkju. Á sýn- ingunni eru 14 myndteppi unn- in í textílapplíkeringu og vatt- stungin. Verkin era frá áran- um 1997 og 1998 og hafa ekki áður verið sýnd hér á landi. Heidi hefur tekið þátt í átta samsýningum og haldið tíu einkasýningar á öllum Norður- löndunum og í Frakklandi. Sýningin er í tengigangi Há- teigskirkju við safnaðarheimil- ið og stendur yfir þar til í lok júnímánaðar. Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 9-16 og sunnudaga frá kl. 10-12.30. Benda má á að verkin sjást líka vel utanfrá. Kvartett Eðvarðs Lárussonar á Jóm- frúnni ÞRIÐJU sumarjazz-tónleikar veitingahússins Jómfrúrinnar við Lækjargötu fara fram laug- ardaginn 30. júni kl. 16-18. Að þessu sinni leika Eðvarð Lár- usson á gítar, Jóel Pálsson á tenór-saxófón, Þórir Baldurs- son á Hammond-orgel og Ein- ar Scheving á trommur. Tónleikarnir fara fram á Jómfrúrtorginu á milli Lækj- argötu, Pósthússtrætis og Austurstrætis, ef veður leyfir, annars inn á Jómfrúnni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.