Morgunblaðið - 19.06.1998, Side 37

Morgunblaðið - 19.06.1998, Side 37
36 FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNB L AÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998 37 STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FÖRUM VEL MEÐ VELGEN GNIN A SUMIR segja að hin harða lífsbarátta í þessu landi hafi gert okkur að áhyggjuþrunginni þjóð,“ sagði Davíð Odds- son forsætisráðherra í þjóðhátíðarræðu í fyrradag. Og þrátt fyrir það að okkur gangi flest í haginn og að gróska einkenni þjóðarbúskapinn höfum við nú sem endranær nokkrar áhyggjur. Um hvað snúast áhyggjur dagsins? Forsætisráð- herra svarar þannig: „Við höfum sennilega einmitt áhyggjur af því að þetta kunni að vera of gott til að geta verið satt. Og þess vegna sé líklegast að við munum glutra góðærinu niður. Og vissulega eru mörg dæmi þess að við höfum farið verst að ráði okkar þegar bezt gekk. Við skulum varast þau víti, án þess að draga af þeim of víðtækar ályktanir.“ Tekið skal undir þessi orð. Við eigum að ganga hægt um gleðinnar dyr í góðærinu. Við eigum að varast verðbólguvíti fyrri tíðar, en nokkur verðbólguteikn sjást í efnahagsum- hverfí okkar. „Við skulum fara vel með velgengnina en hræð- ast hana ekki,“ eins og forsætisráðherra komst að orði. Það gerum við bezt með hallalausum ríkisbúskap, sem nú er loks- ins í höfn, ströngu aðhaldi í útgjöldum ríkis og sveitarfélaga, niðurgreiðslu opinberra skulda - og almennum sparnaði, sem hér er alltof lítill. Reynslan kennir okkur að ýta má undir al- mennan sparnað með ýmsum hætti, m.a. með hvötum í skatt- kerfi [hlutabréfakaup, spariskírteini o.fl.]. Við skulum fara vel með velgengnina og skila henni í hendur uppvaxandi „landnámsmanna“, því „ísland er enn ónumið land í vissum skilningi“, eins og forsætisráðherra komst að orði; landnámsmanna „sem nú birtast hér í mynd prúðbúinna barna með fána á grannri stöng í lítilli hendi. Eg held helzt að það sé sú sýn sem mest gleður auga 17. júní - lágvaxnir landnámsmenn með gleðiglampa í augum og vor í hjarta í afmælisboði landsins síns.“ Hver vill stýra göngu þeirra og þjóðarbúskapar okkar til nýrra verðbólguvíta? HEILBRIGÐISKERFI í NEYÐ ENN einu sinni er að skapast neyðarástand í íslenzku heilbrigðiskerfi og eru yfirvöld nú að búa sig undir að senda fárveikt fólk heim af spítölum til aðstandenda, sem á stundum hafa enga möguleika á að veita hinum sjúku að- hlynningu og hjúkrun. Og ástæðan er enn hin sama, hópupp- sagnir fólks í heilbrigðisgeiranum vegna lágra launa og að ekki er staðið við gerða kjarasamninga. Segja má að í upphafi þessa áratugar, þegar kreppti að í efnahagsmálum þjóðarinnar, hafi ekki verið óeðlilegt að reynt hafí verið að rifa seglin í þjónustu heilbrigðiskerfisins og ná fram sparnaði á ýmsum hlutum, en nú er ekki kreppa lengur og nú er ekki sama ástæðan til að halda öllu í lág- marki. Enda verður tæpast gengið lengra í niðurskurði í heilbrigðiskerfinu. Nú eiga menn að snúa sér að því að byggja upp og standa við þann sjálfsagða metnað, að á ís- landi sé bezta heilbrigðiskerfi veraldar. Það er engin spurning að niðurskurðurinn í heilbrigðis- kerfinu var nauðsynlegur á sínum tíma, hann skilaði árangri, en nú er komið að endapunkti. Gjaldtakan í heilbrigðiskerf- inu er líka komin á það stig að staldra þarf við. Þegar unnt er að benda á þá staðreynd, að tekjulítið fólk veigrar sér við að leita nauðsynlegra lækninga, er greinilega mikið að. Hver sá, sem komið hefur inn á sjúkrahús, svo að ekki sé talað um öldrunardeildir, sér, að vinnuálag á starfsfólk er gífurlegt. Þar er oft og tíðum svo fátt starfsfólk að óviðun- andi er og þetta fólk vinnur vanþakklátt starf við slök launa- kjör, svo að ekki sé meira sagt. í þeim efnum má leiða til vitnis lækninn Ingvar Bjarna- son, sem unnið hefur í Bretlandi, og sagði í viðtali við Morg- unblaðið 16. júní sl.: „Það er mér stöðugt undrunarefni að sjá hvernig íslenskir stjórnmálamenn hafa getað rekið bestu heilbrigðisþjónustu sem veitt er í heiminum í dag með lækn- um og hjúkrunarliði sem er eitthvert verst launaða heil- brigðisstarfsfólk í Evrópu og stöðugt er níðst á með miklu vinnuálagi og erfiðum vinnuskilyrðum.“ Islendingar eiga að hafa þann metnað að eiga beztu heil- brigðisþjónustu veraldar. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í ávarpi sínu á þjóðhátíðardeginum: „Við þurfum að styrkja stöðu okkar í mennta- og menningarmálum og tryggja að við verðum áfram talin öðrum til fyrirmyndar í heilbrigðismálum.“ SKÁTAR með fána við Austurvöll á 17. júní. Við skulum fara vel með vel- gengnina, en hræðast hana ekki Lýðveldissjóður veitir styrki og viðurkenningar Islensk tunga og vistfræði hafsins Lýðveldissjóður veitti viðurkenningar og styrki til eflingar íslenskri tungu og rannsóknum á vistfræði hafsins í Al- þingishúsinu þann 17. júní. Hildur Gróa Gunnarsdóttir var viðstödd og ræddi við Halldór Halldórsson sem fékk heiðurs- viðurkenningu fyrir lofsverð störf að eflingu íslenskrar tungu. ÝÐVELDISSJÓÐUR veitti 100 milljónir króna í styrki til rannsókna á vist- fræði hafsins og til eflingar íslenskrar tungu á þjóðhátíðardag- inn. Einnig voru veittar heiðursvið- urkenningar, Einari Egilssyni fyrir störf sín við fræðslu og kynningu á sjávarlífverum og lífríki fjörunnar i nágrenni Reykjavíkur og prófessor Halldóri Halldórssyni fyrir lofsverð störf að eflingu íslenskrar tungu. Lýðveldissjóðurinn var stofnaður á fundi Alþingis á Lögbergi á 50 ára afmæli lýðveldisins, þann 17. júní 1994. í stjóm sjóðsins sitja Rann- veig Rist, Unnsteinn Stefánsson og Jón G. Friðjónsson. Sjóðurinn út- hlutar árlega um 50 milljónum til átaks í rannsóknum á vistfræði hafs- ins og jafnhárri upphæð til eflingar íslenskri tungu. Á hvom fræðasviði er um 45 milljónum varið til verk- efna sem stjórnin eða verkefnis- stjómir á hennar vegum hafa gert tillögu um en um 5 milljónir á hvoru sviði eru veittar til smæm verkefna. 10 rannsóknastofur styrktar til rannsókna á vistfræði hafsins Að verkefnum styrktum af Lýð- veldissjóði fyrir árin 1998-1999 á sviði lífríkis sjávar, vinna sérfræð- ingar frá tíu rannsóknastofum; áHafrannsóknastofnun og útibúi hennar á Akureyri, Líffræðistofnun og Efnafræðistofu HÍ, Háskólanum á Akureyri, Veiðimálastofnun, Til- raunastöð í meinafræði á vegum HÍ að Keldum, Náttúrufræðistofnun íslands, Rannsóknasetri Háskólans í Vestmannaeyjum og Bændaskól- anum að Hólum. í vei'kefnisstjórn eiga sæti dr. Olafur Ástþórsson og dr. Hjálmar Vilhjálmsson frá Haf- rannsóknastofnun og prófessor Jón Ólafsson frá Háskóla íslands. Styrkir eru veittir til þriggja megin- sviða; Vistfræði nytjafíska á 1. ári, samtals 21 milljón, vistfræði svif- og botnsamfélaga samtals 13,35 m.kr. og til annarra verkefna sem snúa að ýmsum rannsóknum á lífríki sjávar renna samtals 11,35 milljónir. Málfarsleiðbeiningar á netinu Styrkir tíl minni háttar verkefha á sviði vistfræði sjávar árið 1998 eru 9, samtals 5,65 m.kr. Hæstu styrki, eina milljón, hljóta Valur Bogason, Hafrann- sóknastofnun, tíl rannsókna á sflum á ís- landsmiðum, Jón Sólmundsson íyrir verkefnið Göngur og gönguhegðun skarkola í Breiðafirði og Guðrún Þórar- insdóttír Hafrannsóknastofhun tíl verk- efiúsins Dreifing og magn ungra sam- loka, sérstaklega kúfs, við Sléttu og Að- alvík. Á sviði íslenskrar tungu hefur fjármunum Lýðveldissjóðs einkum verið varið til þriggja meginvið- fangsefna og er framhald á því. I fyrsta lagi er Málræktarsjóður efld- ur með 17 milljóna króna framlagi sem fyi-r. í öðru lagi eru veittir styrkir til einstakra verkefna í íslensku. Að þessu sinni voru veittir fimm styrk- ir sem nema samtals 7,7 m.ki'. Ámastofnun fær eina milljón til raf- rænnar skráningar seðlasafns orða- bóka yfír íslensk fomrit. Hrafnhild- ur Ragnarsdóttir eina og hálfa milljón til verkefnisins Máltaka ís- lenskra barna. Islensk málstöð fær 1,9 m.kr. til málfarsleiðbeininga á netinu. Jóhanna Þráinsdóttir og Ólöf Pétursdóttir 1,8 m.kr. til gerð- ar handbókar um skjátextagerð og aðrar þýðingar fyrir myndmiðla og Már Jónsson fær 1,5 m.kr. til raf- rænnar heildarútgáfu á ritverkum Árna Magnússonar. Um fimm milljónum er svo varið til 14 smæiri verkefna. I þriðja lagi eru veittar 20 millj- ónir til verkefna sem ætluð eru til stuðnings við nám ungmenna í ís- lenskri tungu í efri bekkjum grunn- skóla, í framhaldsskólum og á íyrstu árum háskólanáms. Sæll af verkum vel Fyrir hönd Lýðveldissjóðs hélt Unnsteinn Stefánsson ræðu og veitti heiðursviðurkenningar. Um Einar Egilsson heiðursviðurkenn- ingarhafa á sviði vistfræði sjávar sagði Unnsteinn meðal annars: „Störf Einars Egilssonar hafa ein- kennst af einlægum áhuga, dugnaði og ósérplægni og skilað miklum og góðum árangri." Einar hefur starf- að að kynningarmálum fyrir Reykjavíkurhöfn, einkum kynningu lífríki hennar og á nálægum svæð- um. Hann var um tíma formaður Náttúruvemdarfélags Suðvestur- iands og í samvinnu við Hafrann- sóknarstofnun hefur Einar rann- sakað árstíðabreytingar á svifi sem m.a. leiddu til þess að tegundir sem ekki var fyrr vitað að lifðu hér við land fundust. Halldór Halldórsson hlaut heið- ursviðurkenningu fyrir eflingu ís- lenskrar tungu, Unnsteinn nefndi nokkur helstu verk Halldórs þeirra á meðal Orðtakasafn, Kennslubók í íslenskri málfræði handa æðri skól- um og Stafsetningarorðabók hans. Hann gat þess að Halldóri hefði ávallt verið lagið að haga framsetn- ingu þannig að allir fengju skilið og í því fælist styrkur hans sem fræði- manns og kennara. GÓÐIR íslendingar, orðið þjóðhátíð er ekki gamalt í tungu okkar, enda er ekki ofsagt að í margar aldir hafi ekkert tilefni kall- að eftir því. Þar hefur orðið breyting á og getum við þakkað það sigram í sjálfstæðisbaráttunni. Baráttu- mönnunum þótti hægt ganga. En þegar horft er um öxl sést að áfangarnir komu, hver af öðram, á aðeins einni öld, eftir margra alda undirokun. Stjórnarbót, stjórnarskrá, heimastjórn, fullveldi og loks sjálfstæði. Og það er athyglivert að sjá hvemig framfarimar íylgdu hverjum frelsisáfanga örugglega eftir. Frelsið og framfarir vora sem óaðskiljanleg systkini. Það þaif því engan að undra, þótt við teljum árlega vera efni til hátíðarbrigða til heiðurs sjálfstæði þjóðarinnar. Og vel fer á því að hin árlega þjóðhátíð landsmanna hefjist einmitt hér, hið næsta þeim stað, sem byggð hófst í landinu. Og ekki er síður við hæfi, að standmynd Jóns Sigurðssonar, tákngervings þjóðfrelsisbaráttunnar, skipar öndvegi þessa atburðar. Sjálfsagt eram við Is- lendingar heldur ónýtir í persónudýrkun, ef frá er tal- in ósvikin aðdáun á einstökum persónum Islendinga- sagna og á örfáum skáldum. Af síðari tíma mönnum höfum við þó helst haft trú á Jóni Sigurðssyni. Þó er mynd hans ekki reist hér til að auðvelda okkur lands- mönnum að vegsama afrek hans eða dýrka persónuna. Nær er að ætla að svipmynd hans sé látin vaka yfir hjarta höfuðborgarinnar, okkur öllum til eilífrar áminningar um skyldur við land og þjóð. Barátta hans og leiðsögn, þrautseigja hans og þolgæði eiga að minna okkur á, að ekkert er sjálfgefið eða fæst fyrir- hafnarlaust - síst af öllu frelsi og sjálfstæði fámennrar þjóðar. Ef þjóðin sofnar á vaktinni „verða hugsjónirn- ar fyrir vonbrigðum" svo að notað sé tungutak málar- ans. Jón Sigurðsson var ekki í vafa um að frelsið væri forsenda alls þess annars, sem ménn þráðu svo heitt. Hann varð því fyrsti merkisberi frjálsrar verslunar á íslandi og sagðist „sannfærður um, að ekkert getur sett líf í oss betur en fríhöndlunin og komi hún ekki, verður hér ekkert líf.“ Jóni Sigurðssyni skjátlaðist ekki í þessu frekar en ýmsu öðru. Og nú stunda land- ar hans umfangsmikil viðskipti um veröldina þvera og endilanga og eiga mikið undir því, að frelsið ríki og takmarkanir á heimsverslun séu hvarvetna afnumdar. ísland var einangrað og harðsótt heim á dögum Jóns Sigurðssonar. Nú er það í alfaraleið og sérhver Islendingur er orðinn heimsborgari í nýrri merkingu þess orðs. Sjálfstæði og sjálfsforræði skipta enn sköp- um, en þó fær engin þjóð þrifist í einangrun og án samstarfs og viðskipta sem óháð era landamæram. Sérhver Islendingur getur lyft sínum fána hátt, stolt- ur af þjóðerni sínu og fósturjörð, en um leið hlýtur hann að fagna nýfengnum heimsborgararétti sínum, sem gefur djarfhuga mönnum óendanleg tækifæri. Til er saga af ræðumanni, sem sagði um tiltekið mál, að í því væra að minnsta kosti tvær þungamiðjur. Þótti það kostuleg kenning. Sama yrði sjálfsagt uppi ef einhver þættist eiga mörg föðuriönd. En þó höfum við tilhneigingu til að eigna okkur nokkurn hlut í þeim löndum okkar, sem héðan hafa flust og jafnvel niðjum þeirra í 4. og 5. lið. Það kemur því ekki á óvart að við fögnum því sérstaklega í dag, að með okkur er ágæt- ur Kanadamaður, Islendingurinn Bjarni Tryggvason, og fjölskylda hans. Bjarni flutti héðan barn að aldri Ávarp forsætisráð- herra, Davíðs Oddssonar, 17.júní1997 ¥ 1 i l Morgunblaðið/Jón Svavarsson DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra flytur þjóðhátíðarávarpið. og er eini íslendingurinn sem tekið hefur á sig krók út fyrir gufuhvolfið til að líta fæðingarland sitt á ný. Landnámsmenn og víkingar, forfeður og mæður hans og okkar hefðu örugglega öfundað hann af þeirri reynslu. Nú sér hann landið hins vegar í návígi og þjóðina, sem þar býr. Eg býst við að hann skynji fljótt, að Island er enn ónumið land í vissum skilningi. Og eins mun hann sjá að landnámsmenn okkar daga eru ekki jafnógnvænlegir og hinir fornu kappar og vopn þeirra mun gæfulegri. Nú birtast landnemarnir hér í mynd prúðbúinna barna með fána á grannri stöng í lít- illi hendi. Eg held helst að það sé sú sýn sem mest gleður auga á 17. júní - lágvaxnir landnámsmenn með gleðiglampa í augum og vor í hjarta í afmælisboði landsins síns. Við höfum ríkar ástæður til að hafa mikinn metnað fyrir hönd þessara barna og búa í haginn fyrir þau eins og best við kunnum. Á móti gefa þau okkur vissu og von. Og þá minnumstvið þess, að oftar en ekki var vonin ein eftir, þegar Islandi var mestur háski búinn forðum tíð. Góðir Islendingar, sumir segja að hin harða lífsbar- átta í þessu landi hafi gert okkur að áhyggjuþrunginni þjóð. Og nú eins og endranær höfum við nokkrar áhyggjur. Þó virðast ytri aðstæður vera hagstæðar um flest. Afli er mikill, fiskverð hátt og fjárfestingar era hér með fjörlegasta móti. Hið almenna góðæri er smám saman að bæta hag okkar, hvers og eins og sam- eiginlegra sjóða. Það sést á ýmsu. Kaupmáttur hefur aukist meira en nokkra sinni fyrr. Vanskil einstaklinga minnka frá mánuði til mánaðar og atvinnuleysi er lítið. Um hvað snúast þá áhyggjur dagsins? Við höfum sennilega einmitt áhyggjur af því að þetta kunni að vera of gott til að geta verið satt. Og þess vegna sé lík- legast að við munum glutra góðærinu niður. Og vissu- lega eru mörg dæmi þess að við höfum farið verst að ráði okkar þegar best gekk. Við skulum varast þau víti, án þess að draga af þeim of víðtækar ályktanir. Rithöf- undur þarf ekki að vera vonlaus, þótt hann byrji feril sinn á vondri bók. Flest stórskáld byrjuðu sem leir- skáld, sagði Laxness. Við höfum lært af okkar fyrri mistökum. Efnahagslífið er nú opnara en áður og úr- ræðin fleiri. Frelsi sjóða og einstaklinga til að festa fé sitt utan landsteina og möguleikamir til að draga úr peningamagni í umferð með öflugii einkavæðingu eru dæmi um ný tæki til að bregðast við núverandi stöðu. Við skulum fara vel með velgengnina, en hræðast hana ekki. Hitt er ekki síður mikilvægt, nú þegar hagur batnar, að tækifæri gefst til að horfa til þeirra þátta sem út undan hafa orðið. „Því hvað er auður og afl og hús, ef eingin jurt vex í þinni krús?“ Við þurfum að styrkja stöðu okkar í mennta- og menningannálum og tryggja að við verðum áfram talin öðram til íyrir- myndar í heilbrigðismálum. Við höfum reynt að greiða niður skuld okkar við landið síðustu árin og vissulega hefur nokkuð miðað, þótt enn sé mikið vangoldið, svo mikið reyndar að við höfum ekki leyfi til að draga neitt af okkur. Við höfum með öðrum orðum ekki leyfi til að valda hugsjónunum vonbrigðum. Við skulum minnast drengsins sem vætturin góða snart með sprota sínum og lýst er í stuttmynd snillingsins: „Hann skildi hana, og vildi vaka. Og konan varð glöð yfir þessum litla sigri. Hún tók drenginn sjer í fang og blessaði hann, og sorgartárin hennar hrandu niður á enni sveinsins, og hann fann ylinn úr þeim leggja um sig. Og þráin og ástin, til fjallkonunnar fógru, gagntók hann allan. Nú langaði hann ekki að sofa lengur, nú langaði hann til að vekja þá, sem sváfú. - Og hann byrjaði á að kveða, ósköp lágt fyi'st - en svo hærra og sterkara - og ljóðin urðu þrangin afii grimmra endurminninga og bjartra vona og hugsjóna og fólkið ramskaði og smám saman tóku allir undir með honum og vildu vaka, og þá fyrst byrjaði landið að eiga þjóð, og hefndin þokaði smám saman á braut. Nú eru mörg ár liðin, síðan drengurinn söng fólkið af svefninum langa. Hann hvarf út úr landinu, til þess að kveða um framtíð þess annarsstaðar. Nú vakir þjóð- in af vilja og hugrekki, með von um að geta rekið hefndina á braut, sem enn á sjer djúpar rætur í land- inu hennar. Og þegar hugsjónimar verða fyrir von- brigðum og áformin tefjast, safnar hún jafnan nýjum kröftum með því að taka undir við ljóðin hans, sem ennþá bergmála í háfjöllunum - og í klettunum við ströndina." Þannig var skrifað árið 1908, íyrir réttum níutíu áram. Góðir Islendingar, „Guð verndi list vors máls og ís- lands heiður.“ Eg óska ykkur öllum gleðilegs þjóð- hátíðardap og giftu í bráð og lengd. Halldór Halldórsson fær sérstaka viðurkenningu Lýðveldissjóðs HALLDÓR Halldórsson fékk sérstaka viðurkenningu fyrir ævistarf sitt frá Lýðveldissjóði á miðvikudag og kvaðst hann í þakkarræðu sinni meta hana mikils. „Þótt ég hafi að vísu alltaf verið dálítið tor- tryggur á viðurkenningar og verðlaun þá verð ég að játa að ég met þessa viðurkenningu mjög mik- ils, enda hafa snotrir menn um vélt.“ Halldór ræddi um ævistarf sitt sem er nær ein- göngu helgað íslensku máli og skýrði hvernig mál- vísindin og málvöndun era tengd en þó ólík svið. „Málvísindi eru fólgin í rannsókn á íslensku máli, hvernig það er, hvemig það var og hvernig það er skylt öðrum málum. Önnur afstaða til íslensks máls er málvöndun. Málvísindin þurfa ekkert með málvöndun að gera en málvöndun verður að hafa gagn af málvísindum." Málvöndun bæði íhaldssöm og róttæk Halldór sagði málvöndunina með tvennum hætti, annars vegar væri hún íhaldssöm og hins vegar róttæk. Ihaldssemin fælist í því að vernda málið frá breytingum, vemda það sem gamalt er og rýma burt erlendum slettum. Róttæki þáttur- inn sé hins vegar málræktin, það að auðga málið á einhvern hátt, það sé hægt með ýmsu móti t.d. með því að bregðast við breyttri merkingu orða, orð sem eingöngu hafi eintölu geti þurft að taka fleirtölu vegna nýrrar merkingar. Víðtækara verk- efni sé smíði nýyrða. „Við vitum að yfir landið flæða ný hugtök, sem betur fer, um vísindi og nýja tækni. Það fer illa í íslensku máli að nota um þetta erlend orð og því hefur það verið okkar siður um langan tíma að reyna að búa til nýyrði. Þessi ný- yrðastefna er gömul í málinu, það má segja að hún sé jafngömul málinu. Fornu skáldin létu sig ekki muna um að búa til ný orð. [...] Málverndin er þátt- ur í þjóðernisstefnunni, en hún getur verið með ýmsu móti. Okkar þjóðernisstefna er ekki fólgin í því að ráðast að öðram þjóðum og leggja undir okkur lönd. Okkar þjóðernisstefna er fólgin í því að vernda gamlar hefðir og gamla siði. Eg vona að slíkt muni halda áfrarn." Áhugi á íslensku frá unga aldri Blaðamaður hafði áhuga á því að vita hverju mætti þakka að Halldór helgaði ævistarf sitt ís- lenskri tungu. Halldór segir áhuga sinn á íslenskri tungu að sumu leyti uppeldinu að þakka og að öðru leyti því að hann hafi alla tíð haft mjög góða kenn- ara. „Móðir mín var mjög málfróð þannig að ég fékk gott mál úr fóðurhúsum. Síðan tók við Hans Einarsson sem var kennari í barnaskólanum á Isa- firði, síðan fékk ég Sigurð Guðmundsson skóla- meistara og loks Sigurð Nordal og Alexander Jó- hannesson. Þannig hafði ég bestu kennara lands- ins til að kenna mér íslensku, en ég hafði þegar áhuga á málinu frá barnæsku." Aldrei fullnuma Morgunblaðið/Jón Svavarsson HALLDÓR Halldórsson heiðursviðurkenn- ingarhafi ásamt forsetahjónunum. Sérsvið Halldórs í málfræðinni er orðfræði en hann kenndi mörg önnur fög í Háskólanum. Hall- dór segir öll málfræðistörf mikla þolinmæðisvinnu og þar sé gerð orðabóka engin undantekning. Mikl- ar rannsóknir þurfi á aldri orða og samanburð við önnur mál til að geta gert sér grein fyrir því hvern- ig orð er til komið og hvernig það sé hugsað. Segja má að orðtök séu svo sérsvið Halldórs innan orð- fræðinnar. „Eg er í rauninni fyrsti maðurinn sem ski'ifa verulega um íslensk orðtök. Finnur Jónsson hafði skrifað eina litla grein í Skírni áður en annað hafði ekki verið skrifað um íslensk orðtök í sam- fellu.“ Nýyrðasmíði mikilvæg Það segir sig því sjálft að Halldór hefur unnið mikið brautryðjandastai'f í gerð orðtakasafna, hann lýsir verklaginu svo: „Ég þurfti að lesa tvær orðabækur algerlega, eina fornmálsorðabók og svo orðabók Sigfúsar Blöndals auk þess sem ég notaði safn Orðabókar Háskólans gífurlega mikið.“ Halldór telur margt horfa til betri vegar í mál- verndarmálum og sem dæmi um það segir hann frá því að þegar hann var ungur maður í Háskólan- um hafi hann hlegið með félögum sínum að villun- um í Morgunblaðinu en þeir hafi fundið einhverjai' vitleysur í hverju einasta blaði. „Núna finnst mér það betur skrifað og það er sjaldan sem ég sé þar villur.“ Halldór telur engan veg að spá um íramtíð ís- lenskrar tungu. „Ég vil ekki spá neinu um framtíð íslenskrar tungu, það er svo margt sem getur kom- ið fyrir sem breytir henni. En ég veit að það er mikið unnið að því að útrýma enskuslettum og orðanefndir eru nokkrar starfandi sem reyna að ís- lenska ný orð.“ Halldór hefur sjálfur verið ötull nýyrðasmiður og vai' beðinn um að nefna nokkur af uppáhalds orðum sínum en víst er að mörg orð sem við notum daglega eru komin frá honum. Halldór sagði erfitt að taka út sérstök orð en nefndi orðið pall- borðsumræður, það hafi hann sérstaklega búið til fyrir fund hjá Sjálfstæðisflokknum. Orðið vínstúka er komið frá Halldóri og segir hann það nokkuð vinsælt, einkum í þýddum reyfurum. Ekki má gleyma orðinu fjölmiðill en það er komið frá Hall- dóri líkt og ógrynni orða og eiginnafna. Halldór segir að kappkosta þurfi að þýða orð sem fyrst þegar þau komi inn í málið því ef þau nái fótfestu sé erfitt að útrýma þeim. Best sé að orðin komi um leið og hluturinn sjálfur. Sem dæmi um slíkt orð nefnir Halldór orðið mjólkurferna, en það bjó hann til áður en fernurnar komu til landsins. Þegar talið berst að þýðingum orða tengdum tölvutækni segist Halldór lítið hafa fengist við þýð- ingu þeirra en hann hafi fylgst með því starfi. Sér virðist sem erfiðlega gangi að þýða orðið internet en sér líki illa við orðið alnet. Réttara sé að tala um millinet eða bara net, millinet sé nákvæmari þýð- ing. Hann minnir á að málræktin felist ekki bara í nýyrðasmíði heldur einnig beygingum orða. Beyg- ingar skipti miklu enda mikið sérkenni á íslensku máli. Hann segir ennþá erfiðara að fást við beyg- ingarnar en skólarnir geti haft mikil áhrif, kennar- ar ættu að lesa ritgerðir rækilegar með hliðsjón af máli þeirra og benda nemendum á það sem þarf að laga. Að auki eigi að leggja meiri áherslu á orð- fræði og uppruna orða heldur en gert sé, menn læri meira i máli á því. íslenska erfítt mál I ræðu sinnni vék Halldór að því hvernig menn læri mál. „Við skulum gera okkur grein fyrir því að íslenska er erfitt tungumál enda eru öll tungumál erfið, en ég held að íslenska megi teljast með þeim sem erfiðari þykja. Það má vera að íslensk börn kunni meginatriði og hafi öðlast talfærni í íslensku máli um það bil sjö ára gömul. En þau kunna ekki íslenskt mál til neinnar hlítar. Þau vantar fjöldann allan af orðum og merkingum sem hin ýmsu orð hafa og við lærum síðar með aldrinum."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.