Morgunblaðið - 24.06.1998, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1998 47
FOLK I FRÉTTUM
Sidney
Poitier
heiðraður
► Óskarsverðlaunahafínn
Sidney Poitier var heiðraður af
bandarísku kvikmyndaakademí-
unni fyrir farsælan feril sem
leikari nú á dögunum. Boðið var
til gleðskapar í Beverly Hills og
mættu þangað vinir og fyrrver-
andi mótleikarar og leikstjórar
Poitier. Meðal þeirra voru leik-
konan Diahann Carroll, sem lék
á móti honum í „Porgy & Bess“
og „Paris BIues“, leikarinn
James Earl Jones, sem lék með
LEIKKONAN Diahann Carroll og Joanna Shimkus, eiginkona Poitier,
samglöddust leikaranum á heiðurskvöldinu.
Poitier í „Sneakers", og leik- leikstýrði honum í „Guess Who’s
stjórinn Stanley Kramer, sein Coming To Dinner".
Eyðnirannsóknir styrktar
► Sjónvarpsmaðurinn
Larry King lét sig
ekki muna um að taka
dansdýfu með
leikkonunni Sharon
Stone á góðgerðar-
samkomu sem var
haldin til styrktar
bandarísku eyðni-
rannsóknasamtökun-
um í New York um
helgina. Auk King og
Stone voru mætt leik-
konan Lauren Bacall,
fyrrverandi borgar-
stjóri New York,
Mario Cuomo og
Henry Kissinger.
MYNDBÖND
Mikið
meló-
drama
Bella Mafia___
S j « n v a r p s d r a m a
★★
Framleiðsla: Jack Clements. Leik-
stjórn: David Greene. Handrit: Lynda
La Plante. Kvikmyndataka: Gordon
Lonsdale. Tónlist: Joseph Vitarelli.
Aðalhlutverk: Vanessa Redgrave,
Dennis Farina, Nastassja Kinski,
Jennifer Tilly og Illeana Douglas. 113
mín. Bandarísk. Bergvík, júní 1998.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
MICHAEL, elsti sonur Luciano
fjölskyldunnar, sem býr á Sikiley
eins og vera ber, er myrtur á
hroðalegasta hátt áður en hann
kynnir þungaða kærustu sína fyrir
fjölskyldunni. Hún eignast barnið á
laun en fer að lokum og bankar upp
á hjá foreldrum barnsfóðurins. AJlt
fer á annan veg
en hún ætlar og
fyrr en varir er
hún orðin hluti
fjölskyldunnar
án þess að nokk-
ur viti um sam-
band hennar við
látna soninn. Ör-
lögin haga hlut-
unum á þann
veg að týndi
sonurinn, Luka, er ættleiddur af
höfuðóvini fjölskyldunnar og lætur
ekki sitt eftir liggja í stríði og blóð-
hefnd ættanna.
„Bella Mafía“ er mikil og að
mörgu leyti undarleg saga. Hún er
líkust gotneskri skáldsögu eða end-
urreisnarleikriti, því engin takmörk
era fyrir ólíkindalegum söguþræði,
ódýi’um lausnum og yfirgengileg-
um tilviljunum. Dramatíkin er
keyrð upp með öllum tiltækum ráð-
um og útkoman er eitthvert mesta
melódrama sem sést hefur árum
saman.
Einvala lið leikara er í helstu
hlutverkum myndarinnar og stend-
ur sá þáttur upp úr. Vanessa Red-
grave hefur sjaldan verið glæsilegri
og setur hún mikinn svip á mynd-
ina. Þekkt andlit þaulreyndra leik-
ara sjást í öðru hverju hlutverki,
sem hlýtur að teljast óvenjulegt í
sjónvarpsmynd af þessari gerð.
Nokkuð vantar upp á tæknivinnuna
og greinilegt að haldið hefur verið
fast um budduna þegar ekki var
verið að borga leikurum.
Þetta er í raun epísk saga eigin-
kvenna í mafíufjölskyldu og trúi ég
að óhætt sé að mæla með henni við
þá sem kunna að meta skrautlegar
og dramatískar frásagnir. Hinsveg-
ar er hætt við að hún fari í taugam-
ar á þeim sem vilja halda frásögn-
um í hóflegu samræmi við raun-
veruleikann. Myndin er því að
mörgu leyti hin þokkalegasta af-
þreying, en trúlega ekki við allra
hæfí.
Guðmundur Ásgeirsson
Brjálað Kringlukast í Cosmo
__________aldrei betra
^ Ný sending síð pils - ótrúlegt úrval
áður kr.^09ff
nú aðeins kr. 3.990
^ Bolir í stíl
áður kr.^U99ff
nú aðeins kr. 2.990
Frakkar
áður kr&99tf
nú aðeins kr. 4.990
Kápur m/loðkraga stuttar/síðar
áður kr.A890
nú aðeins kr. 4.990
Meiriháttar stretsbuxur hvítar/svartar, munstraðar
áður kr.A99tT
nú aðeins kr. 3.990
Stórir bolir
áður kr,&emr
nú aðeins kr. 1.990
Hlýrabolir
meiriháttar úrval
áður kr. .l*09ff
nú aðeins kr. 1.290
o.fl. o.fl. ótrúleg tilboð
Laugavegi 44, Kringlunni