Morgunblaðið - 15.07.1998, Page 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
FRJALSIÞROTTIR
Scala til
Madrid
ÍTALSKI þjálfarinn Nevio Scala,
sem var í herbúðum Dortmund í
Þýskalandi sl. keppnistímabil,
verður næsti þjálfari Real Madrid.
Hann mun skrifa undii’ tveggja ára
samning við liðið á morgun í Madrid.
Scala sagði í viðtali við blað í
Þýskalandi um helgina að hann legði
mikla áherslu á að Davor Suker,
markakóngur HM, verði áfram hjá
liðinu - í byrjunarliði. Suker fékk fá
tækifæri hjá Real sl. keppnistímabil.
Scala fundaði með Lorenzo Sanz,
forseta Real, í gærmorgun.
Scala tekur við starfi Jose
Antonuo Camacho, sem var aðeins
22 daga í starfi. Camacho sagði starfi
sínu lausu, þegar hann fékk ekki að
ráða hver yrði aðstoðarmaður hans.
JWírripmMaMíb
1998
MIOVIKUDAGUR 15. JULI
BLAÐ
„Njósnarar" á
leið til íslands
MÖRG félagslið í Evrópu eru farin að víkka
sjóndeildarhringinn og fylgjast í ríkari mæli
með ungum knattspyrnumönnum langt frá sín-
um heimahögum. Norðurlandamót drengja fer
fram á Akureyri og nágrenni 4. til 8. ágúst með
þátttöku íslands, Danmerkur, Svíþjóðar, Finn-
iands, Noregs, Færeyja, Englands og Irlands.
Nú þegar hafa fjögur erlend lið tilkynnt komu
manna frá sér á mótið til að fylgjast með. Það
eru PSV Eindhoven, Bayern MUnchen, Malmö
FF og Wilmbledon, þá er vitað að menn frá Li-
verpool og Arsenal hafa lagt Ieið sína á Norður-
landamótið undanfarin ár.
Liðin sem taka þátt í mótinu eru skipuð leik-
möimum 16 ára og yngri. Þess má geta til gamans
að þegar mótið fór fram í Vejle í Danmörku 1994
var t.d. Michael Owen í enska landsliðinu, en hann
var heldur betur í sviðsljósinu á HM í Frakklandi.
Sænsk lið hafa sýnt ungum
leikmönnum frá Islandi
áhuga á undanförnum árum
og hafa boðið leikmönnum
héðan að dvelja í æfingabúð-
um með jafnöldrum sínum.
Fjórir leikmemi drengja-
landsliðsins voru t.d. hjá Mal-
mö FF í vikutíma á dögunum,
en þrír voru hjá liðinu í
fyrra.
Gústaf Björnsson, starfs-
maður Knattspyrausambands
íslands, sein sér um skipu-
lagningu á NM, segir að um
300 manns komi til landsins í
sambandi við mótið.
Reuters
GLAÐBEITTUR heimsmethafi, Hicham El Guerrouj, var fús til þess að setjast við hlið Ijósaskiltisins sem sýnir
fyrsta heimsmet „eyðimerkurprinsins“ frá Marokkó.
Leikið gegn Lettum fýrir
EM-leik gegn Frökkum
Heimsmet
„eyðimerk-
urprinsins“
HICHAM E1 Guen-ouj, 23 ára gam-
all Marokkóbúi, setti sitt íyrsta
heimsmet er hann hljóp 1.500 m á
3.26,00 mínútum á „Gullmóti" AI-
þjóða frjálsíþróttasambandsins í
Róm í gær. Bætti hann þriggja ára
gamalt met Alsírbúans Noureddines
Morcelis um 1,3 sekúndur. „Heims-
metið tileinka ég Hassan, konungi
þjóðar minnar," sagði Guerrouj eftir
að hann hafði beðið í 20 mínútur eftir
að metið yrði staðfest en bilun kom
upp í hluta tímatækjanna á vellinum.
Fyrir heimsmetið fær E1 Guerrouj
hálfa fjórðu milljón króna í auka-
greiðslu auk einnar milljónar fyrir
sigurinn.
Af öðrum helstu úrslitum má geta
þess að Marion Jones frá Bandaríkj-
unum sigraði með yfirburðum í
tveimur greinum, 100 m hlaupi og
langstökki og landi hennar Michael
Johnson fékk uppreisn æru í 400 m
hlaupi eftir óvænt tap á fyrsta „Gull-
mótinu" i Osló í liðinni viku.
Fyrsti leikur nýkrýndra heims-
meistara Frakka verður í und-
ankeppni Evrópumóts landsliða á
móti Islendingum á Laugardals-
velli 6. september. Þetta verður í
fyrsta sinn sem ríkjandi heims-
meistarar í knattspymu leika á ís-
landi. „Þetta verður sannkölluð
veisla fyrir okkur íslendinga,“
sagði Guðjón Þórðarson landsliðs-
þjálfari aðspurður um leikinn
gegn Frökkum. íslenska landslið-
ið hitar upp fyrir leikinn gegn
Frökkum er það mætir Lettlandi í
vináttuleik á Laugardalsvelli 19.
ágúst.
Guðjón sagðist hafa fylgst með
Frökkum með öðru auganu und-
anfarin ár. „Ég vildi veg þeirra
sem mestan, sérstaklega vegna
þess að þeir eru með okkur í riðli í
undankeppni EM. Ég fagna sigri
þeirra á HM. Það er gott fyrir evr-
ópska knattspyrnu að Frakkar
eru heimsmeistarar.“
„Þeir sýndu það í keppninni að
þeir leika mjög agað en um leið
með ákveðið frelsi sem er ríkjandi
í leik þeirra. Það segir allt um
styrk þeirra að skora 15 mörk og
fá aðeins á sig tvö í allri úrslita-
keppninn,“ sagði Guðjón.
Hann sagði það auðvitað gaman
að fá heimsmeistarana í fyrsta leik
í EM. „Það er ljóst að fleiri fylgj-
ast með gengi heimsmeistarana
hvar svo sem þeir spila, ekki bara í
Frakklandi heldur um heim allan.
ísland verður miðdepillinn þegar
Evrópukeppnin hefst og athyglin
mun vera þar sem Frakkar leika -
á Laugardalsvelli."
Um möguleika íslenska landsliðs-
ins gegn heimsmeisturunum sagði
Guðjón: „Það væri slæmt ef ég héldi
að við gætum ekki strítt þeim eitt-
hvað. Við höfum séð það á HM að
það er ýmislegt hægt í knattspymu.
Frakkar sönnuðu það á HM því þeir
voru ekki fyrirfram taldir sigur-
stranglegastir. En það eru að sjálf-
sögðu ekki miklar sigurlíkur okkar
meginn en þó alltaf sigurmöguleik-
ar. Okkar strákar fá þama tækifæri
til að mæta besta liði heims og það
eitt og sér er mikil upplifun."
í riðli með íslendingum í und-
ankeppni Evrópumótsins era:
Frakkland, Rússland, Úkraína, Ar-
menía og Andorra. „Það má ganga
út frá því að þessar þrjár fyrst
töldu þjóðir, Frakkland, Rússland
og Úkraína, gefi sér það að þær
verði að ná sex stigum á móti Is-
landi, Andorra og Armeníu og síð-
an yrðu það innbyrðis viðureignir
þessara þriggja hða sem myndu
ráða úrslitum um hvaða tvö lið
komast áfram. Þetta gæti gefið
okkur svolítið annað vægi í þróun
okkar leiks. Eftir því sem lengra
líður að við höldum hreinu verður
meiri pressa á liðin að sækja og
það gæti gefið okkur sóknarfæri og
þá er að nýta þau,“ sagði Guðjón.
Eftir leikinn gegn Frökkum
verða leiknir tveir aðrir EM-leikir
á árinu - í Armeníu 10. október og
síðan koma Rússar til Islands og
leika 14. október.
KNATTSPYRNA: LEIFTUR, ÍBV OG GRINDAVÍK í UNDANÚRSLIT / C2,C3