Morgunblaðið - 15.07.1998, Qupperneq 4
FRJÁLSIÞROTTIR / GULLMOTIÐ I RÓM
„Eyðimerkurprinsinn“ El Guerrouj stórbætti heimsmetið í 1.500 m hlaupi
Staðfest i ng á
konungstign
„EF ÞAÐ er vilji Guðs að ég
komi til Rómar að ári og bæti
heimsmetið þá geri ég það,“
sagði Hicham El Guerrouj frá
Marokkó eftir að hann hafði
sett heimsmet, 3.26,00 mín., f
•f.500 m hlaupi á öðru Gullmóti
Alþjóða frjálsíþróttasambands-
ins í Róm í gær. El Guerrouj, oft
nefndur „eyðimerkurprinsinn11
bætti þriggja ára gamalt met
Alsírbúans Noureddine Morceli
en það var 3.27,37 sett í Nice í
Frakklandi. „Heimsmetið til-
einka ég Hassan, konungi þjóð-
ar minnar,“ sagði hinn 23 ára
„prins“ sem mörgum þykir nú
hafa endanlega tekið við kon-
ungstign af Morceii.
Iet E1 Guerrouj var hápunktur
mótsins og þrátt íyrir að hann
hafí undanfarin misseri verið fremsti
hlaupari í þessari grein kom heims-
metið að þessu sinni mörgum á óvart
þar sem hann hefur verið að höggva
ýkja næiri meti Morceiis. A Gullmót-
unum fær sigurvegari í hverri hinna
svokölluðu Gullgreina rúmiega eina
milljón fyrir sigurinn. Að auki fær sá
sem nær að setja heimsmet u.þ.b.
hálfu fjórðu milljón króna í uppbót. A
fyrsta Gullmótinu 1 Osló í liðinni viku
var ekkert heimsmet sett.
Robert Kibet frá Kenýa tók for-
ystu í hlaupinu og hélt uppi hraða í
fyrri hluta þess en heltist síðan úr
lestinni og landi hans Noah Ngeny
tók við allt þar til 300 m voru eftir að
E1 Guerrouj geystist fram úr, sló
hvergi af fyrr en í mark var komið á
glæsilegu heimsmeti og rúmlega
fjórum sekúndum á undan næsta
manni. Það liðu hins vegar 20 mínút-
ur frá því hann kom í mark og þar til
metið var staðfest vegna þess að bil-
un varð í tímatökutækjum og fyrst
var talið að metið væri 3.26,20 mín.
„Eitt sinn beindust allra augu að
Said Aouita, þá Morceli og nú að
mér,“ sagði heimsmethafinn kok-
hraustur. „Eini andstæðingur minn
er ég sjálfur. Ég mætti til leiks með
von um að geta bætt heimsmetið eftir
að hafa hlaupið á 3,30 mínútum í ieið-
indaveðri hér fyrir ári. Nú voru að-
stæður fullkomnar og því engin
ástæða til annars en láta slag
standa."
Marion Jones frá Bandaríkjunum
undirstrikaði enn einu sinni að þar er
á ferðinni einstakur íþróttamaður.
Hún sigraði með yfirburðum í 100 m
hlaupi á 10,75 sekúndum og er eins
og E1 Guerrouj enn með í baráttunni
um milijón dollara gullpottinn í lok
mótaraðarinnar í septemberbyrjun.
Hún lét hins vegar ekki þar við
standa heldur vann einnig langstökk
með yfirburðum, stökk 7,23 metra í
lítilsháttar mótvindi. Þar skaut hún
n?f fyrir rass m.a. heimsmeistaranum
frá 1995 og heimamanninum Fionu
May sem varð önnur með 6,89 og
Heike Drechsler frá Þýskalandi sem
varð að gera sér fjórða sætið að góðu.
Nambibíumaðurinn Frankie
Fredericks, sem vann 100 m hlaup
karla á fyrsta mótinu, lenti upp á kant
við mótshaldara fyrr í gær og var útlit
FRANKIE Frederícks
sigraði af öryggi i
100 m hlaupi í Róm
í gær á 9,97 sek.,
og hefur þar með
hlaupið 22 sinnum á
skemmri tíma en 10
sek. - oftar en nokk-
ur annar sprett-
hlaupari.
Þróun heimsmetsins
í 1.500 m hlaupi karla
3.40,2 Olavi Salsola (Finnlandi) .
3.38.1 Stan. Jungwirth (Tékk.) ..
3.36,0 Herb Elliott (Ástralíu) ...
3.35,6 Elliott....................
3.33.1 Jim Ryun (Bandar.) .......
3.32.2 Filbert Bayi (Tansaníu) ..
3.32,1 Sebastian Coe (Bretlandi)
3.31.36 Steve Ovett (Bretlandi) ..
3.31,24 Sydney Maree (Bandar.) .
3.30,77 Ovett ....................
3.29,67 Steve Cram (Bretlandi) ..
3.29,46 Said Aouita (Marokkó) ...
3.28,86 Noureddine Morceli (Áisír)
3.27.37 Morceii...................
3.26,00 H. E1 Guerrouj (Marokkó)
.. .11.7.57
.. .12.7.57
.. .28.8.58
... .6.9.60
... .8.7.67
... .2.2.74
.. .15.8.79
.. .27.8.80
.. .28.8.83
... .4.9.83
.. .16.7.85
.. .23.8.85
... .6.9.92
.. .12.7.95
.. .14.7.98
fyrir að hann myndi ekki mæta tii
leiks. En skömmu áður en kepp-
endur voru kallaðir út mætti hann
og gaf hvergi eftir. Sigraði á ný,
að þessu sinni á 9,97 sekúndum,
tveimur hundraðshlutum úr sek-
úndu á undan Ato Boldon frá
Trínidad. Heimsmeistarinn í 100
m hlaupi karla, Bandaríkjamað-
urinn Maurice Green, varð að
gera sér þriðja sætið að góðu á
10,04 sek. „Boldon heldur mér við
efnið alla leið í mark, hann er
alltaf sterkur á síðustu metrun-
um,“ sagði Fredericks og vildi
sem minnst tala um uppistandið
fyrr um daginn.
Reuters
Annar keppandi gladdist mjög
er hann kom í mark, það var
Michael Johnson, margfaldur
meistari í 200 og 400 m hiaupi.
Hann tapaði í annað sinn á þess-
um áratug í 400 m hlaupi á íýrsta
„Gullmóti" ársins í Ósló og missti
þar með af hlutdeild í milljón
dollara pottinum. Þá varð hann
þriðji en nú lét hann Bretann
Mark Richaldson ekki slá sig út
af laginu. Johnson tók af skarið
strax og sigraði á besta tíma sín-
um á þessu ári 44,40 sek. Ric-
hardsson varð annar á 44,62 og
Tyree Washington, Bandaríkjun-
um, þriðji á 44,71.
FOLK
■ FJÓRIR þeirra sem unnu ein-
hverja hinna tólf „Gullgreina“ á
fyrsta mótinu í Ósló náðu ekki að
fylgja árangri sínum eftir á öðra
mótinu í Róm í gær og geta því ekki
gert sér vonir þegar einnar milljón-
ar dollara verðlaunapotti verður
skipt í Moskvu að loknu síðasta
„Gullmótinu" 2. september.
■ ÞEIR sem í gær gengu úr skaft-
inu eru Bretinn Mark Richardsson í
400 m hlaupi, stangarstökkvarinn
Jeff Hartwig, Melissa Morrison í
100 m grindahlaupi og Tanja Dam-
ske spjótkastari.
■ ÁTTA íþróttamenn halda því
áfram að berjast á næsta móti sem
fram fer í Mónakó 8. ágúst. Það eru
Marion Jones í 100 m hlaupi
kvenna, Charity Opara, 400 m
hlaupi kvenna, ólympíumeistarinn í
1.500 m hlaupi kvenna, Svetlana
Masterkova frá Rússiandi sem er
mætt á ný til leiks eftir erfið meiðsli
á sl. ári.
■ KARLMENNIRNIR sem geta
enn gert sér vonir um hlutdeild í
upphæðinni vænu eru Namibíumað-
urinn Frankie Fredericks í 100 m
hlaupi, heimsmethafinn í 1.500 m
hlaupi, Hicham E1 Guerrouj, Haile
Gebrselassie í 5.000 m hlaupi, 400 m
grindahlauparinn Bryan Bronson
og brosmildi þrístökkskappinn Jon-
athan Edwards.
■ EDWARDS vann þrístökkið með
nokkrum yfirburðum í gær, þrátt
fyrir að hann næði ekki eins löngu
stökki og á fýrsta mótinu, 18,01 m.
Nú stökk Edwards 17,60 m í logni
því enginn vindur mældist þegar
hann stökk.
■ BRYAN Bronson frá Bandaríkj-
unum byrjar keppnistímabilið með
miklum krafti líkt og í iyrra. Þá
sigraði hann í 400 m grindahlaupi á
hverju mótinu á fætur öðru en náði
sér ekki á strik á HM og varð að
lúta í lægra haldi fyrir Frakkanum
Stephane Diagana. Bronson sigraði
með yfirburðum í Róm á 47,76 sek.,
en Diagana varð fimmti á 48,46.
■ C.J. Hunter sambýlismaður
Marion Jones á ekki sömu vel-
gengni að fagna og sambýliskonan.
Hann er kúluvarpari og varð að
gera sér fjórða sætið að góðu með
20 metra slétta. Fyrir það fékk
hann um 150 þúsund krónur.
■ JONES vann sér aftur móti inn
tífalt hærri upphæð fyrir sigur í 100
m hlaupi og langstökki og er auk
þess enn með í stóra pottinum eins
og fram kemur að ofan.
Guðrún Arnardóttir hefur jafnað sig á meiðslunum og er bjartsýn
Enginn bilbugur fyrir EM
Þetta hefði getað byrjað verr,
aðallega var það slæmt fýrir
hugann að fara ekki hraðar, en ég
er nokkuð bjartsýn og stefni að
því að fara aftur út á næstu dögum
og keppa á tveimur mótum,“ sagði
Guðrún Arnardóttir, grindahlaup-
ari úr Ái-manni. Eftir þrálát
meiðsli í hásin frá því snemma í
vor hóf Guðrún loks keppni í byrj-
un þessa mánaðar og hljóp 400 m
grindahlaup á þremur mótum í
Evrópu. Var hún nokkuð frá ís-
landsmeti sínu, 54,79 sekúndur, í
öllum hlaupunum. „Þessi byrjun
er ekki óeðlileg þegar farið er af
stað eftir meiðsli en ég er bjartsýn
á framhaldið þar sem ég er að
mestu leyti laus við meiðslin og
það er ýmislegt gott í hlaupinu hjá
mér séð frá tæknilegu sjónar-
horni. Ég vonast hins vegar til
þess að geta á næstu vikum bætt
við mig hraða til þess að komast
sem næst fyrri styrk.“
Guðrún sagði árangurinn á mót-
unum á Italíu og í Linz í Austurríki
þar sem hún hljóp á um 56,40 hafa
verið nærri vonum en í síðasta
hlaupinu í Zagreb þar sem hún
hefði verið einni sekúndu lengur að
fara hringinn hefði þreyta verið far-
in að segja til sín. „Mig vantaði bara
kraft sem er alveg nýtt hjá mér,
hingað til hef ég alltaf átt nóg eftir.
í þessu atriði verð ég að vinna, en
grunnurinn er í lagi enda hef ég
náð að viðhalda honum þrátt fyiir
meiðslin. Þá er takturinn í hlaupinu
góður og yfir því er hægt að gleðj-
ast þar sem hann hefrn- stundum
verið að vefjast fýiir mér.“
Guðrún segist vera nokkuð
bjartsýn fýrir Evrópumeistara-
mótið í Búdapest eftir miðjan
ágúst um að komast í úrslit í 400
m grindahlaupi eins og hún hafi
stefnt að þrátt fyrir að hún stæði
þeim allra fremstu í álfunni nokk-
uð að baki nú um stundir. „Ég
stefni á tvö mót í Evrópu í næstu
viku og síðan á Meistaramót Is-
lands um aðra helgi. Strax að því
loknu ætla ég að fara til Athens í
Bandaríkjunum og vera þar við
æfingar ásamt þjálfara mínum í
tvær vikur fyrir Evrópumótið.
Mér þykir það vera vænlegri kost-
ur að æfa á „heimavelli" ytra held-
ur en að fara í æfingabúðir með
landsliðinu til Svíþjóðar. Þá er það
einnig ódýrara að vera ytra auk
þess sem ég hefði þurft að kosta
þjálfara minn til Svíþjóðar og
halda honum þar uppi á launum í
a.m.k. viku. Þá verð ég lika í um-
hverfi sem ég þekki og ég held að
þessi ákvörðun sé á allan hátt
betri fyrir mig og það er það sem
skiptir meginmáli."
Mai-kmið Guðrúnar fyrir tíma-
bilið er að vera á meðal 20 bestu í
400 m grindahlaupi á árinu og
komast í úrslit á EM. „Ég tel það
raunhæft markmið og þrátt fyrir
að mig vanti hraða í dag tel ég rétt
að gera tilraun til að vinna það
upp sem vantar og fara á EM. Ég
vil fara og reyna og sjá hvað ger-
ist, annað hvort gengur allt upp
eða þá að mér mistekst. Ég tel að
ég geti bætt mig verulega þrátt
fyrir að hafa misst mikilvægt
tímabil út. Það er ýmislegt gott í
þessum hægu hlaupum, en hrað-
ann vantar og hann tel ég mig
geta unnið upp. Ég vil a.m.k. gera
tilraun."