Morgunblaðið - 18.08.1998, Side 1

Morgunblaðið - 18.08.1998, Side 1
Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 18. ágúst 1998 Biað C Nýjar lausnir VANDANN í félagslega húsnæð- iskerfinu þarf að Ieysa, segir Grétar J. Guðmundsson í þættin- um Markaðurínn. Ákveðið hefur verið að gera það með því að hætta að veita framkvæmdalán til byggingar nýrra íbúða og veita félagsleg lán í staðinn. / 2 ► Endur- lagnir ÞAÐ ER komið að því, að end- urleggja í heilu blokkirnar, segir Sigurður Grétar Guð- mundsson í þættinum Lagna- fréttir. A að bíða eftir því, að lagnakerfín gefi sig og lekar komi fram eða eigum við að Iáta almanakið ráða? / 26 ► Hvera gerði VÉRÐ á húseignum er afar hagstætt í Hveragerði og ekki ofsagt, að þar má fá einbýlishús á verði 3-4ra herb. íbúðar á höfuðborgarsvæðinu. Kemur þetta fram í viðtali hér í blaðinu í dag við Kristin Krist- jánsson í Hveragerði, sölumann hjá fasteignasölunni Gimli. Að sögn Kristins hefur fast- eignaverð heldur verið að styrkjast í Hveragerði, en það hefur verið í lágmarki undan- farin ár. „Það er ekki mjög mikil eftirspurn eftir húsnæði til kaups en aftur á móti gott framboð," segir hann. „Það er ástæðan fyrir því, að hér er hægt að gera góð kaup.“ Við Klettahlíð er til sölu vel uppgert einbýlishús. Það er 108 ferm. auk 50 ferm. bflskúrs. Garðurinn er afar skemmtilegur og útsýni er mjög gott yfir Olf- usið og til Hellisheiðar. Ásett verð er aðeins 8 millj. kr. Kristinn kveðst vera með margar aðrar góðar eignir á söluskrá, bæði einbýlishús, garð- yrkjustöðvar og iðnaðarhúsnæði. „í boði er gott verð og góð greiðslukjör," segir hann. „Við Heiðmörk er mjög góð garð- yrkjustöð ásamt stóru íbúðar- húsi til sölu. Stöðin er í fullum rekstri og myndi henta mjög vel fyrir samhenta fjölskyldu, sem myndi vflja skapa sér sjálfstæð- an atvinnugrundvöll. Oskað er eftir tilboðum.“ Kristinn segir mikinn áhuga vera til staðar á eignum í Hvera- gerði nú. „Það er greinilega óskadraumur margra á höfuð- borgarsvæðinu að upplifa kyrrð- ina og gróðursældina, sem ríkir í Hveragerði," segir hann. / 16 ► Ávöxtunarkrafa hús- bréfa nálgast 5% á ný ÁVÖXTUNARKRAFA húsbréfa hefur farið hækkandi að undanförnu og sl. föstudag var hún komin upp undir 5%, en svo há hefur hún ekki verið frá því í byrjun marz sl. Þá er miðað við ávöxtunarkröfu af húsbréf- um í II. flokki 1996, sem er stærsti flokkurinn af húsbréfum á markaðn- um nú. Þrátt fyrir þessa hækkun er ávöxtunarkrafan nú ólíkt minni en áður var. í byrjun árs 1997 var hún 5,80%, en í fyrrasumar fór hún ört lækkandi og komst lægst í 5,21% í ágústbyrjun. í lok síðasta árs var ávöxtunarkrafan 5,29%. Eftir áramótin síðustu fór ávöxt- unarkrafan aftur lækkandi og hinn 5. marz sl. fór hún niður fyrir 5%. Hinn 25. marz náði hún sögulegu lág- marki, en þann dag komst hún niður í 4,70% á nýjum 25 ára flokki hús- bréfa. Eftir það hækkaði ávöxtunarkraf- an á ný og komst yfir 4,90% í byrjun apríl. Síðan hefur hún sveiflazt eitt- hvað en samt haldizt undir 5%. Breytingar á ávöxtunarkröfunni skipta miklu máli fyrir marga. Sem dæmi má nefna, að afföll af 1 millj. kr. í húsbréfum í I. fl. 1998 til 25 ára eru 7.650 kr. ef ávöxtunarkrafan er 4.80% en 27.250 kr., þegar ávöxtun- arkrafan er 5%. Um leið hafa breytingar á ávöxtun- arkröfunni mikil áhrif á fasteigna- markaðinn, því að það er hagstæðara að kaupa og byggja, þegar ávöxtun- arkrafan er lág, þar sem húsbréfin eru þá þeim mun verðmætari, sem fást út á eignirnar. Ástæðuna til hækkandi ávöxtunar- kröfu nú má að sögn Halldórs Stef- ánssonar hjá Landsbréfum að nokkru leyti rekja til minni eftir- spurnar, þar sem lífeyrissjóðir og verðbréfasjóðir, sem eiu lang stærstu fjárfestarnir á markaðnum, hafa verið að kaupa meira af innlend- um hlutabréfum og erlendum verð- bréfum undanfarið. Jafnframt hefur áhugi á verð- tryggðum skuldabréfum minnkað vegna verðhjöðnunar síðustu tveggja mánaða. Að mati Halldórs eru ekki líkur á, að ávöxtunarkrafan fari yfir 5%, heldur muni hún fara heldur lækkandi á næstunni. 4,83% 4,80% 1997 1998 Ávöxtunarkrafa* húsbréfa ágúst ’97- ágúst ’98 * ávöxtunarkrafa við kaup 5,5% 5,42% 5,4 5,21% 15 14.8.98 5,00% Verið velkomin í afgreiðsluna að Ármúla 13A eða hafið samband við ráðgjafa okkar í síma 515 1500. Við höfum opið alla virka daga frá 9.00-16.00 KAUPÞING HF Við kaupum alla flokka húsbréfa Armúla 13A • Sími 515 1500 • Fax 515 1509 • www.kaupthing.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.