Morgunblaðið - 18.08.1998, Side 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998
£
MORGUNBLAÐIÐ
Eignasalan og Húsakaup sameinast:
Kaupendursýna nú
viðhaldsfríum íbúð-
um meiri áhuga
Morgunblaðið/Kristinn
EIGENDUR og starfsmenn fasteignasölunnar Eignasalan-Húsakaup.
Frá vinstri: Magnús Einarsson, löggiltur fasteignasali, Brynjar Harð-
arson viðskiptafræðingur, Guðrún Arnadóttir, Iöggiltur fasteignasali,
Berglind Ólafsdóttir ritari, íris Björnes ritari, Sigrún Þorgrímsdóttir
rekstrarfræðingur og Rúna Jóhannsdóttir ritari.
LÍTIÐ hefur verið um, að fast-
eignasölur renni saman og sam-
einist. Nú hafa Eignasalan og Húsa-
kaup verið sameinuð undir heitinu
Eignasalan-Húsakaup með aðsetri
að Suðurlandsbraut 52, þar sem
Húsakaup hafa haft aðsetur sitt.
„Tilgangurinn með sameining-
unni er sá að nýta til fullnustu þá
aðstöðu, sem fyrir er í húsnæði
Húsakaupa að Suðurlandsbraut 52,“
segja eigendur Húsakaupa, þau
Guðrún Agústsdóttir, löggiltur fast-
eignasali og Brynjar Harðarson við-
skiptafræðingur, sem nú hafa keypt
Eignasöluna af Magnúsi Einars-
syni, löggiltum fasteignasala.
„Þegar markaðurinn er í upp-
sveiflu eins og nú er, þá snýst sam-
keppnin um seljendur, það er að fá
eignir í sölu. Úndanfarin ár hefur
samkeppnin aftur á móti snúizt um
kaupendur. Maður eins og Magnús
Einarsson hefur að sjálfsögðu mikil
og góð viðskiptasambönd og við trú-
um því og treystum, að viðskipta-
vinir hans snúi sér áfram til hans.
Tilgangurinn með sameiningunni
er einnig sá að nýta sér þá miklu
reynslu, sem Magnús Einarsson
hefur aflað sér í gegnum tíðina,
þannig að hún hverfi ekki út í busk-
ann engum til gagns, en ljóst má
vera, að á svo löngum starfsferli án
þess að hafa nokkru sinni lent í
áföllum, hefur hann aflað sér ómet-
anlegrar reynslu."
Farsæll starfsferill
„Með þessum hætti fæ ég tæki-
færi til þess að ljúka starfsferli mín-
um á þann hátt, sem ég kýs sjálfur,"
segir Magnús Einarsson, sem mun
starfa áfram við Eignasöluna, en
hann hefur starfað við og rekið þá
fasteignasölu í 41 ár samfleytt.
Hann hefur því sennilega lengri
starfsferil en nokkur annar starf-
andi fasteignasali í landinu nú.
„Eg hef séð margar fasteignasöl-
ur lognast út af, þegar eigendumir
voru komnir á efri ár og reynsla
þeirra þar með orðið að engu,“
sagði Magnús ennfremur. „Með því
að sameinast Húsakaupum má
segja, að Eignasalan gangi á vissan
hátt í endurnýjun lífdaga.
Munurinn á fasteignasölu nú og
þegar ég byijaði fyrir liðlega 40 ár-
um er eins og dagur og nótt. í dag
er fasteignasalan allt önnm’ starfs-
grein. Hér fyrr á árum tóku menn
sér gjaman frí frá vinnu, fóru í
sparifótin og héldu á fund fasteigna-
salans. Þá skipti það miklu máli,
hvort húsnæði var á hitaveitusvæði
eða ekki. Nú fara menn inn á inter-
netið eða hafa samband við okkur í
gegnum tölvupóst, svo að eitthvað
sé nefnt.
Verksviðið er orðið miklu víð-
tækara en eitt sinn var. Gagnaöflun
er orðin ólíkt meiii, því að nú þarf
að gera nákvæmt söluyfirlit og afla
fjölda skjala fyrir hverja eign, sem
tekin er í sölu. Einnig eru komnar
til sögunnar skyldutryggingar, sem
eiga að vemda viðskiptavini fyrir
tjóni.“
Breytt viðhorf
Að sögn þeirra Brynjars, Guð-
rúnar og Magnúsar hefur viðhorf
fólk breytzt mjög. „Sá hugsunar-
háttur margra, að í því felist viss
uppgjöf að selja húsið sitt og fara í
minna, er horfinn,“ segja þau. „Nú
vill fólk losa fé til þess að geta
Bjart framundan
hjá fasteignasölum
Markaóurinn
Miklar breytingar eru framundan, segir
Grétar J. Guðmundsson, rekstrarstjóri
Húsnæðisstofnunar ríkisins. Eftir er að
koma í ljós, hvernig sveitarfélög muni
leysa úr húsnæðisþörf þeirra, sem
verst eru settir.
MIKIÐ hefur verið að gera á
fasteignamarkaðnum allt
þetta ár og viðskipti verið mikil.
Viðskiptin voru töluverð á síðasta
ári en allt stefnir í að þau verði enn
meiri á þessu ári. í samræmi við
það hefur verð á íbúðarhúsnæði
hækkað lítillega.
Hægt er að merkja að fasteigna-
sala hafi glæðst á sumum stöðum á
landinu þar sem hún hefur verið
mjög dræm á undanförnum árum.
Þá voru gleðileg þau tíðindi sem
bámst nýlega frá Isafirði, að engin
íbúð sé laus í félagslega húsnæðis-
kerfinu þar. Almennt virðist því
bjart framundan á húsnæðismark-
aðnum.
Ný húsnæðislög
Um næstu áramót taka gildi ný
lög um húsnæðismál. Með þeim
verður hætt að veita framkvæmda-
lán til byggingar félagslegra íbúða,
eins og verið hefur, en þess í stað
munu þeir sem uppfylla skilyrði um
tekjur og eignir eiga möguleika á fé-
lagslegum íbúðarlánum til kaupa á
íbúðum á hinum almenna markaði.
Ef eitthvað er ættu þessi nýju lög að
hafa áhrif til að auka við vinnu fast-
eignasala, því hluti af hinum félags-
lega húsnæðismarkaði ætti þá að
bætast við hjá þeim.
Um leið verður reyndar hætt að
veita 100% lán, eins og hinum verst
settu hefur staðið tU boða í félagslega
kerfinu hingað til. Á síðasta ári fengu
rúmlega 200 fjölskyldur slík lán.
Gera má ráð fyrir að sá fjöldi verði
þá að leita annað en eftir íbúðarkaup-
um á hinum almenna markaði.
Einföld umfjöllun
Nokkuð hefur verið fjallað um
þann mikla vanda sem sum sveitar-
félög eru í vegna kaupskyldu þeirra
á íbúðum í félagslega húsnæðiskerf-
inu og er sá vandi líklega ein megin-
ástæðan fyrir þeim breytingum á
hinu félagslega húsnæðiskerfi, sem
taka gildi um næstu áramót. Oft er
þessi umræða einfölduð um of, eins
og þegar fullyrt er að vandi sveitar-
félaganna stafi af því að núgildandi
húsnæðislöggjöf hafi gengið sér til
húðar og að verð á félagslegum
íbúðum sé sums staðar komið úr öllu
samhengi við það sem er að gerast á
markaðnum. Er ekki réttara að
segja að þessu sé öfugt farið, þ.e. að
markaðurinn sé kominn úr öllu sam-
hengi við byggingarkostnað? Og
ætli skýringarnar séu ekki miklu
frekar að fmna í atvinnuástandinu
eða mismikilli þjónustu milli sveitar-
félaga á hinum ýmsu sviðum frekar
en eingöngu í húsnæðislöggjöfinni?
Um síðustu áramót voru um
10.600 félagslegar íbúðir í landinu
öllu. Af þeim höfðu 69 staðið auðar í
6 mánuði eða lengur en 344 félags-
legar eignaríbúðir voru þá í leigu.
Bent hefur verið á að samanlögð
fjárhæð, sem hvílir á sveitarfélögum
víðs vegar um landið vegna kaup-
skyldu þeirra samkvæmt núgildn-
andi lögum, nemi um 9,5 milljörðum
króna. I þessu sambandi gleymist að
taka með að á móti þessari fjárhæð
koma eignir. Menn tala oft eins og
hér sé einungis um skuldir að ræða.
Þá hefur ekki verið nefnt, að það
voru sveitarfélögin sjálf sem óskuðu
eftir lánum úr húsnæðislánakerfinu
til að byggja þær íbúðar sem nú
valda þeim vandræðum. Enginn
þröngvaði lánum upp á þau. Þegar
sveitarfélag sótti um ffamkvæmda-
lán til að byggja félagslegar íbúðir
þurfti það að sýna fram á þörf fyrir
þær. Væri sú þörf ekki fyrir hendi
átti að hafna beiðni um fram-
ÁlkUcbning.
SlcypUíkenvndir
og viiíhald
náruu iögunni (U
Á góbu m »l«b
n«6 rtvkfo úttýni
Stórar svalir.
Nóg piíss
ÚTLITSTEIKNING af La'kjasmára 6. í húsinu eru nitján 4ra herb.
íbúðir, tuttugu 3ja herb. ibúðir og þrjár 2ja herb. íbúðir. Þvottahús er í
hverri íbúð, en geymslur á jarðhæð fylgja einnig íbúðunum. íbúðirnar
verða tilbúnar til afhendingar á næsta ári, en þær eru til sölu hjá
Eignasölunni-Húsakaupum.
stundað hugðarefni sín, hvort sem
það er sumarbústaðurinn, golfið,
ferðalög eða eitthvað enn annað.
Kaupendur á íbúðum í nýjum
fjölbýlishúsum eru því gjarnan fólk
á miðjum aldri, sem er að selja
stærri eignir, sem það átti fyrir.
Þetta fólk er að hugsa um áhyggju-
laust líf, þar sem það þarf ekki að
huga að viðhaldi. Eignin sem það
sækist eftir er því oftast góð íbúð í
lyftuhúsi, sem er að kalla viðhalds-
frítt að utan.
Nú höfum við einmitt nýverið
hafið sölu á íbúðum í nýju fjölbýlis-
húsi, sem byggingafyrirtækið Hús-
virki er með í smíðum við Lækja-
smára 6 í Kópavogi, en Húsvirki er
stærsti viðskiptavinur okkar. Húsið
er álklætt, þannig að steypu-
skemmdir og viðhald eiga nánast að
heyra sögunni til.
Húsið er staðsett í skjólsælum
reit í miðjum Kópavogsdal og úr
kvæmdalán. Ekki er langt um liðið
síðan mikil læti urðu út af því að
húsnæðismálastjóm hafnaði beiðn-
um um framkvæmdalán frá ákveðn-
um landssvæðum, þar sem stjórnin
taldi að ekki væri þörf fyrir íbúðir
þar. Þá var talað um að sveitarfélög-
in í landinu sætu ekki öll við sama
borð.
Þetta var á þeim tíma þegar litið
var á framkvæmdalán til byggingar
félagslegra íbúða sem lið í að skapa
vinnu fyrir iðnaðarmenn. Þær íbúðir
sem nú standa auðar sums staðar og
valda sumum sveitarfélögum erfið-
leikum voru flestar byggðar á þess-
um tíma. Því er einfóldun að segja
að vandi sumra sveitarfélaga stafi af
húsnæðislöggjöf sem hafi gengið sér
til húðar.
Lausn á vandanum
Allir eru sammála um að óskyn-
samlegt er að láta íbúðir standa auð-
ar á einum stað, sérstaklega á sama
tíma og verið er að byggja nýjar
íbúðir annars staðar. Því er ljóst að
vandann í félagslega húsnæðiskerf-
inu þarf að leysa. Akveðið hefur ver-
ið að gera það með því að hætta að
veita framkvæmdalán til byggingar
nýrra íbúða og veita félagsleg lán í
staðinn, eins og að framan greinir,
þannig að öruggt sé að vandinn haldi
ekki áfram að myndast. Þá hefur og
verið talað um að því til viðbótar
þurfi ríkið að koma til aðstoðar með
því að afskrifa og niðurgreiða eldri
lán Byggingarsjóðs verkamanna.
Samfélaginu í heild verður þar með
vætanlega gert að leysa úr vanda til-
tekinna sveitarfélaga.
Hvað sem þessu öllu líður er ljóst
að miklar breytingar eru framund-
an. Eftir er að koma í Ijós hvernig
sveitarfélög munu leysa úr húsnæð-
isþörf þeirra sem verst eru settir.
Ekkert bendir hins vegar til annars
en bjart sé framundan hjá fasteigna-
sölum.
húsinu er fallegt útsýni til allra átta.
Allar íbúðimai’ eru bjartar og sól-
ríkar og með stórum svölum, sem
snúa í suður eða vestur. í húsinu
eru nítján 4ra herb. íbúðir, tuttugu
3ja herb. íbúðir og þrjár 2ja herb.
íbúðir. Þvottahús er í hverri íbúð,
en geymslur á jarðhæð iylgja einnig
íbúðunum.
í göngufæri frá Lækjasmára er
grunnskóli, dagheimili, íþrótta-
svæði, heilsugæzlustöð og verzlun-
armiðstöð, sem rísa mun við Smára- torg.“
Fasteignasölur
í blaðinu
ídag
Agnar Gústafsson bls. 13
Ás bls. 25
Ásbyrgi bls. 11
Berg bls. 22
Bifröst bls. 15
Borgarfasteign bls. 17
Borgir bis. 14-15
Brynjólfur Jónsson bls. 27
Eignamiölun bls. 7
Eignaval bls. 13
Fasteignamarkaður bls. 9
Fasteignamiðlunin bls. 22
Fasteignasala íslands bls. 27
Fast.sala Mosfellsbæjar bls. 11
Fjárfesting bls. 13
Fold bls. 28
Frón bls. 23
Garður bls. 11
Gimli bls. 21
Hátún bls. 26
Hóll bls. 5
Hóll Hafnarfirði bls. 20
Hraunhamar bls. 8
Húsakaup bls. 3
Húsið bls. 17
Húsvangur bls. 12
Höfði bls. 4
Kjöreign bls. 19
Lundur bls. 6
Miðborg bls. 24
Óðal bls. 18
Skeifan bls. 25
Valhöll bls. 10