Morgunblaðið - 04.09.1998, Blaðsíða 1
-
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1998
U FÖSTUDA GUR 4. SEPTEMBER
BLAD
Frakkar
með stjörnu
á brjósti
FRAKKAR kynntu í gær nýjan landsliðsbúning,
sem þeir leika í gegn íslendingum á Laugardals-
vellinum. Þar sem Frakkar leika á útivelli klæðast
þeir ekki bláum treyjum, þar sem það er litur fs-
lands á heimavelli. Þeir leika í livítum treyjum og
fyrir ofan hanann í franska merkinu hafa þeir
komið fyrir sijörnu, sem sýnir að þeir hafi einu
sinni orðið heimsmeistarar. Brasiiíumenn byrjuðu
á því að selja stjörnur á treyjur sínar og eru fjórar
stjörnur fyrir ofan merki þeirra. Þjóðveijar tóku
þetta upp eftir Brasilíumönnum - eru með þijár ,
sljörnur fyrir ofan merki sitt.
Hvað er til ráða?
Morgunblaðið/Golli
GUÐJÓN Þórðarson tilkynnir byrjunarlið sitt á morgun, velur ellefu menn úr hópi átján leikmanna. Á myndinni gæti Guðjón verið að
velta fyrir sér hverjir hefja leikinn við heimsmeistarana á laugardaginn.
Hef enga ástæðu til
að vera bjartsýnn
Guðjón Þórðarson, landsliðsþjálf-
ari í knattspyrnu, hefur í mörg
horn að líta fyrir viðureign íslenska
jgggggggggg liðsins við heimsmeist-
Edwin ara Frakka, sem háð
Rögnvaldsson verður á morgun. Lið-
skrífar ið dvelur á Hótel Loft-
leiðum á meðan á und-
irbúningi stendur og þjálfarinn segir
að vel fari um liðið fyrir átökin.
„Við erum bar-a ósköp afslappaðir.
Við höfum það notalegt hérna og
reynum að láta okkur líða vel. Mér
sýnist það takast ágætlega, en að
sjálfsögðu gerum við okkur grein
fyrh- alvöru málsins. Eigi að síður
slökum við á og reynum að haga
undirbúningnum eins og best verður
á kosið,“ segir Guðjón.
Tilhlökkunin er væntanlega mikil í
hópnum.
„Það ríkir vitaskuld mikil eftir-
vænting í liðinu eftir því að spila við
þetta lið og það er mjög kærkomið.
Þetta er í raun stórkostlegt."
Það er vitanlega draumur hvers
leikmanns að taka þátt í svona leik.
Telurðu að menn séu nokkuð dá-
leiddir - geri sér ekki grein fyrir
mikilvægi verkefnisins?
„Ég minni þá stanslaust á að var-
ast það og ég held að menn skynji
hvaða tækifæri felast í að leika við
liðið. Ef menn standa sig gegn því
eru þeim allir vegir færir.“
Hefurðu eytt miklum tíma undir
feldinum, hugleitt ýmsa möguleika
um hvernig við getum snúið á
Frakkana?
„Ég er náttúrlega búinn að íhuga
það vandlega síðan við lentum með
þeim í riðli,“ segh' Guðjón, en hann
segir hugmyndir sínar ekki hafa
breyst mikið frá því að fregnir bár-
ust fyrst af því að Islendingar tækju
á móti Frökkum, sem urðu síðar
heimsmeistarar, í fyrsta leik und-
ankeppni Evrópumótsins. En er
Guðjón bjartsýnn fyrfr viðureignina?
„Ég hef enga ástæðu til að vera
bjartsýnn fyrir leik gegn heims-
meisturunum. Ég reyni að leggja
kalt mat á stöðuna og vera raunsær
án þess að vera nokkuð skelkaður.
Ég tel að við getum látið þá hafa fyr-
ir hlutunum,“ segh- Guðjón.
TF1 vann
„sjónvarps-
stríðið“
EFTIR niikinn þrýsting frá
Knattspyrnusambandi Frakk-
lands lauk „sjónvarpsstríðinu“
í Frakklandi á þann hátt, að
franska ríkisútvarpið France
3, sem hafði tryggt sór útsend-
ingarrétt frá leik íslands og
Frakklands, varð að gefa eftir.
Leikurinn verður sýndur á
einkastöðinni TFl, sem hefúr
um árabil samið við sambandið
um alla heimaleiki Frakka og
jafnframt fengið útileikina.
France 3 hafði samið við þýska
fyrirtækið UFA, sem á sýning-
arrétt frá heimaleikjum ís-
lands i Evrópukeppniimi. TFl
er búið að semja við UFA og
jafnfraint varð TFl að greiða
France 3 bætur fyrir að gefa
eftir.
KNATTSPYRNA: BJARNI VERDUR BAKVÖRÐUR EINS OG PABBI / C3