Morgunblaðið - 29.09.1998, Blaðsíða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
Stjórnbúnaður
fyrir
varmaskipta
orfttttMitliili
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þriðjudagur 29. september 1998
Blað C
Skuldir og
íbúðarkaup
TÖLUVERÐUR fjöldi fólks er
yfir eðlilegum skuldamörkum,
segir Grétar J. Guðmundsson
í þættinum Markaðurinn.
Vonandi verður áfram upp-
gangur í þjóðfélaginu. Annars
er hætta á erfíðleikum íbúðar-
eigenda. / 2 ►
Umhverf-
isvernd
f ÞÆTTINUM Lagnafréttir
fjallar Sigurður Grétar Guð-
mundsson um vistvænt skipu-
lag. Því miður hafa ýmis sam-
tök, sem höfðu verndun um-
hverfis, dýra og gróðurs, á
stefnuskrá sinni, snúist upp i
andhverfu sína. / 6 ►
Ú T T E K T
Parhús á
Selljarn-
arnesi
SELTJANARNES er að
kalla fullbyggt og því
lítið um nýbyggingar.
Parhús, sem Innréttinga-
smiðjan sf. er með í smíðum
við Suðurmýri, hafa því vakið
talsverða athygli á markaðn-
um. Parhúsin eru fjögur og
því með átta íbúðum alls. Þær
eru á tveimur hæðum og hver
íbúð 152 ferm. Sex af íbúðun-
um eru þar að auki með bfl-
skúr, en tvær með bflskýli.
Það gefur þessum parhús-
um aukið gildi, að þau rísa í
grónu hverfí, þar sem öll
þjónustufyrirtæki og stofnan-
ir eru í næsta nágrenni. Eld-
hús og stofur verða mjög
bjartar, því að á suðurhlið
húsanna verður stór ská-
gluggi, sem nær upp á efri
hæð. Árni Þorvaldur Jónsson
arkitekt, sem hannað hefur
parhúsin, er menntaður í
Frakklandi.
„Það kann vel að vera, að
það gæti franskra áhrifa við
hönnun þessara húsa,“ segir
hann. „Franskur arkitektúr
hefur gjarnan yfir sér létt yf-
irbragð og suðurgluggarnir
bera þess merki.“
„Nær ekkert er eftir af lóð-
um á Seltjarnarnesi undir
nýbyggingar og raunar ein-
stakt að fá ný hús þar til
sölu,“ segir Olafur Stefánsson
hjá Fasteignamarkaðnum, þar
sem þessi parhús eru til
sölu. / 16 ►
Vanskil á húsnæðis
lánum minnkandi
Á ÞESSU ári hefur enn dregið úr
vanskilum íbúðareigenda við íbúða-
lánakei-fið eins og teikningin hér til
hliðar ber með sér. Nú nema vanskil
aðeins um 0,5% af heildarútlánum
íbúðalánakerfisins, en skil hafa verið
að batna bæði í krónum talið og hlut-
fallslega frá því í janúar 1995, er van-
skil voru í hámarki.
Ibúðarkaup og húsbyggingar eru
með mikilvægustu fjárhagsákvörðun-
um, sem hver og einn tekur á lífsleið-
inni og skuldbindingarnar, sem því
fylgja yfirleitt veigameiri en flestar
aðrai’. Það er því mikilvægt, að allar
ákvarðanir varðandi fasteignavið-
skipti, séu teknar á traustum grunni.
Þrír þættir ráða mestu um, hve
dýrri íbúð hver og einn getur fest
kaup á eða byggt, en þessir þættir
eru laun, eigið fé og lánamöguleikar.
En það hefur sýnt sig, að sumir mis-
reikna sig, þegar þeir leggja mat á
eigin greiðslugetu. Tilhneigingin er
til að ofmeta hana frekar en hitt. Það
getur auðveldlega leitt til erfiðleika
síðar og hefur oft gert.
Meðal annars þess vegna er það
eitt af skilyrðum íyrir húsbréfaláni,
að umsækjandi fari fyrst í greiðslu-
mat hjá viðurkenndri fjármálastofn-
un, áður en ákvörðun er tekin um
íbúðarkaup eða húsbyggingu.
Greiðslugeta fólks er að sjálfsögðu
misjöfn. Margir kostnaðarliðir eru
svipaðir frá einni fjölskyldu til ann-
arrar. En svo er hins vegar fjöl-
margt, sem vegur misjafnlega. Staðl-
að gi-eiðslumat getur því aldrei verið
annað en eins konar rammi utan um
útreikninga íyrir hvern og einn.
Ráðgjöf í þessum efnum hefur
stóraukizt á undanförnum áram.
Hana má fá hjá bönkum og sparisjóð-
um og öðrum fjármálafyrirtækjum,
þar sem greiðslumatið er fram-
kvæmt. Húsnæðisstofnun ríkisins
hefur einnig veitt íbúðarkaupendum
ókeypis ráðgjöf í þessum efnum í
rúman áratug.
Minnkandi vanskil íbúðarlána end-
urspegla væntanlega batnandi efna-
hags- og atvinnuástand í landinu. Þau
hafa jákvæð áhrif á lánskjör á lána-
markaði og verða þannig til þess að
auka greiðslugetu íbúðarkaupenda og
húsbyggjenda og gera þeim almennt
auðveldara að greiða af lánum sínum.
Útlán og vanskil húsnæðislána
Vanskil 1991-98
Hlutfall af útlánum ^ 2
í öllum sjóðum
1,2
Lántakendur
í vanskilum
1993-98
Hlutfall af
heildarfjölda
lántakenda í
öllum sjóðum
0,8%
0,9
0,7 0,7
0,9
1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998
Á verðlagi
1993 1994 1995 1996 1997 1998
1. janúar hvert ár 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998
Útlán samtals, m.kr. 78.200 106.500 123.800 141.900 159.800 176.800 194.700 212.300
þ.a. húsbréf, m.kr. 5.700 21.800 34.300 46.700 61.000 72.800 86.500 101.700
Vanskil (%) af útlánum 0,8% 0,7% 0,7% 0,9% 1,2% 1,2% 0,9% 0,5%
Vanskil (%) húsbréfal. 0,2% 0,4% 0,5% 0,7% 1,4% 1,3% 0,9% 0,5%
Ertu í leit að láni?
HANDSALtt
n>
Handsal hf. býður þér lán til 30 ára fyrir allt að 70% af verðmati fasteignar. Þessi lán
henta þeim vel sem hyggja á fasteignakaup, nýbyggingar eða endurbætur og viðhald
fasteigna. Einnig þeim sem vilja endurfjármagna skammtímalán eða eldri óhagstæð lán.
<o &
QC CD
UJ O'
O- O
Vextir frá 5,95%
Skilyrði fýrir lánveitingu eru:
Hámark 70% licildarveðsetning á fastcign
Gildir aðeins fyrir Stór-Reykjavíkursvæðið
Kynntu þér kosti Fasteignalúna Handsals
lijá ráögjöfum i síma 510 1600
0 0 5 8