Morgunblaðið - 04.11.1998, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA
LANDSMANNA
1998
KNATTSPYRNA
MIÐVIKUDAGUR 4. NOVEMBER
BLAÐ
Leeds, Southampton og Nott. Forest hafa áhuga á Arnari Gunnlaugssyni
Dýrt
vara-
lið hjá
New-
castle
Varalið Newcastle
United í Englandi,
sem lék í gær, var
stjörnum prýtt og í
byrjunarliðinu voru
átta landsliðsmenn.
Þjóðverjinn Diet-
mar Hamann er að
ná sér af meiðslum
og var í liðinu í
gærkvöldi og sömu
sögu er að segja af
Frakkanum Steph-
ane Guivarch, sem
vonast til að út-
sendarar einhverra
félaga sjái hann í
stuði og kaupi, en
hann er að hugsa
um að hafna boði
Glasgow Rangers.
Temuri Ketsbaia,
John Barnes og
Alessandro Pistone
eru allir að reyna
að komast í aðallið-
ið og þannig mætti
lengi telja. Sé áætl-
að kaupverð á leik-
mönnum varaliðs
Newcastle reiknað
kemur í ljós að það
kostar rétt ríflega
tvo milljarða
króna.
Arnar metinn
á 350 milljónir
COLIN Todd, knattspyrnustjóri
Bolton, hefur áhyggjur af því að
hann geti hugsanlega misst Arnar
Gunnlaugsson frá félaginu, en þrjú
lið í úrvals deildinni hafa sýnt honum
áhuga. Það er ekki langt síðan
Bolton seldi Nathan Blake til Black-
burn fyrir 4,25 milljónir punda (tæp-
ar 500 milljónir króna) og nú virðist
sem áhuginn beinist að Arnari. Sout-
hampton, Leeds og Nottingham For-
est hafa áhuga á honum samkvæmt
því sem fram kemur á netútgáfu
Daily Mail í gær.
Þar segir að Amar hafi komið frá Akra-
nesi og að þetta sé annað árið hans hjá
Bolton en upphaflega hafí verið gerður
þriggja ára samningur. Einnig kemur fram
að Arnar sé metinn á um þrjár milljónir
punda, sem er um 350 milljónir króna, og
vitað sé að Leeds eigi lausafé til kaupanna.
Forest bíður eftir að selja Pierre van Hooi-
jdonk og Southampton lítur á Arnar sem
ódýrari kost en Matt Jansen hjá Crystal
Palace, en Terry Venables vill fá um 5
milljónh- punda fyrir hann.
Todd vill halda í Arnar, sem yrði dýrasti
knattspymumaður Islands ef hann yrði
seldur fyrir áðurnefnda upphæð. Hann hef-
ur þó ekki mikla peninga á milli handanna
þannig að hann mun eiga erfítt með að
neita freistandi tilboði.
Bjarki til Preston North End?
Á síðu Preston North End er sagt frá því
í gær að David Moyes, knattspymustjóri
félagsins, hafí áhuga á að fá Bjarka Gunn-
laugsson, en hann leikur með Brann í Nor-
egi. Moyes vill fá hann til reynslu og er
talið að vilji hann kaupa Bjarka muni hann
kosta um 250 þúsund pund, um 29 milljónir
króna.
Preston North End vill Bjarka
Hlynur áfram
með ÍBV
HLYNUR Stefánsson, fyrirliði fslands- og bikar-
meistara ÍBV hefur ákveðið að halda áfram í
slagnum næsta ár, en hann hefur legið undir feldi
að undanförnu. Þetta eru mikii gleðitíðindi fyrir
Eyjamenn því HQynur hefur átt stóran þátt í vel-
gengni ÍBV undanfarin ár og varð m.a. hæstur í
einkunnargjöf Morgunblaðsins á nýliðnu keppnis-
tfmabili.
„Ég á eitt ár eftir að samningi mínum við ÍBV
og ákvað að standa við hann eftir að hafa fengið
tækifæri til þess að slaka á með fjölskyldunni í
tvær vikur utanlands að loknu annasömu keppnis-
tímabili," sagði Hlynur í gær.
„Það réði einnig miklu um ákvörðun mína að
verulegur metnaður er fyrir hendi hjá stjórn fé-
lagsins og þjálfara að halda áfram á þeirr braut
sem félagið hefur verið undanfarin ár og vera í
fremstu röð. Eftir að hafa verið lengi f knattspyrn-
unni án þess að vinna marga titla þá er erfitt að
hætta þeg-
_____________ ar maður er loks kominn í sig-
urlið,“ bætti Hlynur við.
Hlynur var um síðustu helgi
útnefndur besti leikmaður liðs-
ins á uppskeruhátíð félagsms.
ívar Bjarklind verður einnig
áfram í herbúðum Eyjaliðsins,
sem hefur fengið góðan liðs-
styrk. Baldur Bragason, mið-
vallarleikmaður, sem lék með
Leiftri, hefur gengið til liðs
við Eyjamenn. Hlynur sagði að
forráðamenn liðsins hefðu í
hyggju að styrkja liðið enn
frekar.
Markahrókurinn Steingrím-
ur Jóhannesson, sem var hjá
Frankfurt í Þýskalandi á dög-
unum, er nú að kanna aðstæð-
ur hjá sænska liðinu Elfsborg.
Viggó fýlgist með Yoon
ÞAÐ verður ljóst í kvöld þegar Gummersbach og Nettelstedt mæt-
ast í þýsku 1. deildarkeppninni í handknattleik hver framtíð Gum-
mersbach verður. Hvort þessu fornfræga Iiðið verður bjargað frá
gjaldþroti, en það er skuldum vafið. Leikmenn hafa ekki fengið
laun í tvo mánuði og húsaleiga þeirra ekki borguð. Sá möguleiki
hefur verið ræddur að Gummersbach losi sig við alla atvinnumeim
sína og tefli fram áhugamönnum út keppnistímabilið.
Viggó Sigurðsson, þjálfari Wuppertal, verður á meðal áhorfenda
í Gummersbach, þar sem liann mun fylgjast með Suður-Kóreu-
manninum Kyung-Shin Yoon, sem hann hefur hug á að fá til sín.
Morgunblaðið/Golli
ARNAR Gunnlaugsson í baráttu við franska landsliðsmanninn
Christophe Dugarry á Laugardalsvellinum.
Arni
Gautur í
byrjunar-
liðinu
ÁRNI Gautur Arason verður í
byrjunarliði Rosenborgar í
kvöld þegar norska liðið mætir
Galatasaray í Meistaradeild
Evrópu í Istanbúl. Fyrri leik
liðanna í keppninni lyktaði með
3:0 sigri norska liðsins. Þá átti
Árni Gautur Arason stórleik í
marki Rosenborgar og bjarg-
aði m.a. einu sinni á undraverð-
an hátt. í framhaldinu átti
hann síðan fyrirtaksleik í síð-
ustu umferð norsku úrvals-
deildarinnar. Eigi að síður var
hann settur út úr liðinu fyrir
bikarúrslitaleikinn gegn Sta-
bæk síðastliðinn sunnudag.
Þjálfari Rosenborgar, Trond
Sollied, setti þess í stað Jorn
Jamtfall í markið en hann hef-
ur verið aðalmarkvörður liðs-
ins, en hafði verið meiddur um
tíma. Jamtfall þótti standa sig
illa í bikarúrslitaleiknum og
hafa norskir fjölmiðlar jafnvel
kennt honum um tapið og sagt
þjálfara Rosenborgar hafa gert
mistök með því að nota ekki
Árna Gaut áfram eftir góða
frammistöðu.
Mikill þrýstirgur var á Soll-
ied þjálfara að láta Jamtfall
sitja á bekknum og láta Árna
Gaut spreyta sig. M.a. var
Nettavisen með skoðanakönn-
um á því hvor markvörðurinn
skyldi spreyta sig og voru 79%
þeirra sem sendu inn svar á því
að íslendingurinn ætti að
standa á milli stanga marks
Rosenborgar í þessum ei-fíða
útileik.
KNATTSPYRNA: ÞÓRDUR GUÐJÓNSSON GERIR FIMM ÁRA SAMNING VIÐ GENK/C4