Morgunblaðið - 03.01.1999, Side 12

Morgunblaðið - 03.01.1999, Side 12
Aduki baunir Kínverskar litlar dökkrauðar baunir sem hafa hærra kolvetnamagn en margar aðrar baunategundir og eru sætari á bragðið. * Góðar til spírunar en einnig í hina ýmsu pott- og pönnurétti, súpur, salöt eða blandaðar saman við soðin hrísgrjón. Við að láta þær spíra þá eykst próteininnihald þeirra. Augnbaunir Þessar baunir eru m.a. ræktaðar í Mexíkó. Þær eru Ijósar með svörtum „augum". Góðar í súpur, salöt og hina ýmsu pott- og pönnurétti. Bóndabaunir Geta verið hvítar eða brúnar. Hýðið þarf að fjarlægja eftir suðu þar sem það er mjög seigt. Góðar sem mauk eða í súpur, heitar eða kaldar. Ef þær eru framreiddar kaldar er gott að krydda þær vel og setja sítrónusafa yfir. * Flagolet baunir Hvítar baunir sem tíndar eru áður en þær eru fullþroska og því fölgrænar á litinn. Góðar í salöt og blandaðar með öðrum baunum. Grænar baunir Hnöttóttar fallega grænar á litinn. Góðar sem mauk einar og sér eða t.d. með lauk eða hvítlauk. Einnig í blandaða pottrétti. Hvítar baunir Eru hvítar (Ijósar) á lit. Þær eru m.a. ^ræktaðar í Kanada, USA og Póllandi. Þekktastar sem niðursoðnar bakaðar baunir. Góðar í salöt. Kjúklingabaunir Eru Ijósdrappleitar með ójafnt yfirborð og svolítið hnetukenndar á bragðið. Mikið ræktaðar í Miðjarðarhafslöndunum. Góðar í súpur og pott- og pönnurétti, einnig góðar maukaðar í buff. Þær eru til ristaðar og kryddaðar og eru þá notaðar líkt og salthnetur Linsur Það eru til margar mismunandi tegundir af linsum. Þeim er oftast skipt í tvo megin flokka. Annars vegar stórar flatar, oftast drapp-, græn- og brúnleitar. Hins vegar litlar linsur, rauðar persneskar, gular og grænar kínverskar. Linsur eru m.a. « ræktaðar í Egyptalandi, USA og Kanada. Góðar í súpur, salöt, pott- og pönnurétti. Einnig mjög góðar marineraðar með ýmsu grænmeti og kryddi. Mung baunir Litlar grænar hnöttóttar. Einnig nefndar grænar sojabaunir. Þær eru m.a. ræktaðar í.Kína, Afríku, Thailandi og Ástralíu. Góðar tíþað láta spíra og best þekktar sem kfnverskar bauna-spírur. Mungspírur má borða bæði eldaðar og hráar. Pintobaunir Um 12 mm langar, ílangar í laginu og brúnyrjóttar á litinn. Mikið notaðar í Mexíkóska baunarétti s.s.''refrito"og „chilli". Einnig góðar í súpur, pott-og pönnurétti. ^Nýrnabaunir Um 15 mm langar, nýrnalaga og til í mörgum litum m.a. rauðbrúnar, svartar, brúnleitar og hvítar. Góðar í súpur, pott- og pönnurétti, blandaðar með grænmeti, hrísgrjónum og kjötréttum. Einnig góðar maukaðar í buff. Smiörbaunir Mjólkurhvítar, stórar og flatar í útliti. Getur verið betra að fjarlægja hýðið eftir suðu því það er nokkuð seigt. Góðar í súpur, pott- og pönnurétti og salöt. Einnig mjög góðar marineraðar með ýmsu grænmeti og kryddi. * Sojabaunir Eru stundum nefndar kjöt austursins vegna þess hversu þýðingarmikil fæðutegund þær eru hjá mörgum austrænum þjóðum. Ræktaðar m.a. í Brasilíu, Kína, Japan og USA. Úr þeim eru framleiddar hinar ýmsu fæðutegundir s.s. sojamjöl, sojakjöt, sojamjólk, sojasósa, tofu og miso. Góðar í blandaða bauna- og pottrétti. Þær eru Lþó meira notaðar maukaðar í baunabuff. Baunir og linsur eru vinsælar fæðutegundir í flestum löndum heims og ekki síst í þeim löndum sem matarmenning stendur hvað hæst eins og á Ítalíu og í Frakklandi. Þær eru hluti af því sælkerafæði sem einkennir eldhús þessara landa. Baunir og iinsur eru ódýrar, geymast vel og eru afar næringarríkar og auðugar af trefjum. Kjúklingabaunir Pumate Sanremo ítalskur réttur fyrir fjóra kjúklingabaunir, þurrkaðar ólífuolía skarlottulaukur sólþurrkaðir tómatar Pumate Sanremo rjómi eða kaffirjómi hvítvín eða 2 msk Balsamedik Herbamare jurtasalt pipar, nýmalaður majoran Hreinsið hugsanlegar skemmdar baunir og smásteina í burtu og skolið baunirnar vel. Leggið baunirnar í bleyti í um þrefalt meira vatni en magn bauna í 12-18 klst. Hellið ibleytingarvatninu af baununum. Sjóðið þær í ríflegu vatni við vægan hita í u.þ.b. 70 mínútur. Athugið að baunirnar eiga ekki að vera alveg fullsoðnar þannig að þær maukist ekki við áframhaldandi matargerð. Hreinsið og saxið laukinn. Hitið ólífuolíuna á pönnu og steikið laukinn þar til hann er glær. Stráið jurtasaiti og malið piparyfir. Bætið tómötum, rjóma/kaffirjóma, hvítvíni/balsamediki og majorani á pönnuna og látið suðuna koma upp. Sjóðið við vægan hita í um 5 mínútur þar til sósan þykknar eilítið. Hrærið í af og til á meðan. Bætið kjúklingabaununum útí og látið suðuna koma upp aftur og sjóðið þar til baunirnar eru gegnheitar. Goíí að bera fram með soðnum hýðishrísgrjónum eða blönduðum hrísgrjónum, brauði og salati. Ath.: Ef notaðar eru soðnar eða niðursoðnar kjúklingabaunir þi eru notaðar um 525 g af baunum í stað 250 g þurrkaðra. 250 g/3 dl 3 msk 1 stór/80 g 100 g/11 stk I1/2 dl 1/2 dl 1/2 tsk 1« tsk I1/4 tsk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.